NOTE: This article is more than 5 years old.

06 apríl 2020

/

Heimavinna í Washington og opnunartími sendiráðs

{image.Description}

Starfsmenn sendiráðs Íslands í Washington vinna nú að heiman vegna samkomu- og útgöngutakmarkana í borginni vegna COVID-19 heimsfaraldursins.

Heimaskrifstofurnar eru fjölbreyttar, en það eru líka erindin sem við fáum frá Íslendingum og öllum þeim sem nú flýta heimför vegna faraldursins.

Íslendingar sem þurfa á aðstoð að halda geta haft samband við sendiráðið símleiðis í síma + 354 545 7832 eða á netfangið [email protected].

Opnunartími sendiráðsins er óbreyttur frá 9-16 alla virka daga. Utan almenns opnunartíma er borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins á vakt allan sólahringinn og hægt að hafa samband í síma +354 545-0-112, í [email protected] eða í gegnum facebook utanríkisráðuneytisins.