NOTE: This article is more than 5 years old.

12 maí 2020

/

Breyttur opnunartími sendiráðsins

{image.Description}

Sendiráðið í París vekur athygli á breyttum opnunartíma í ljósi aðstæðna tengdum Covid-19 faraldrinum.

Frá og með þriðjudeginum 12. maí verður afgreiðsla sendiráðsins opin alla virka daga frá kl. 10:00- 14:00. Almennar fyrirspurnir og tímapantanir fyrir vegabréfaumsóknir má senda á netfangið [email protected]. Símsvörun sendiráðsins verður opin á sama tíma í síma +33 (0)1 44 17 32 85.


Utan opnunartíma sendiráðsins má vegna áríðandi borgaraþjónustumála hafa samband við neyðarvakt borgaraþjónustunnar í síma +354 545 0 112, senda tölvupóst á [email protected] eða í gegnum Messenger á Facebook-síðu utanríkisráðuneytisins. Upplýsingar um borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins er að finna á heimasíðu ráðuneytisins: www.utn.is.