NOTE: This article is more than 5 years old.

04 júní 2020

/

Utanríkisvarpið - 6. þáttur. Mannréttindi og utanríkismál

{image.Description}
Davíð Logi Sigurðsson, deildarstjóri hjá Alþjóða og þróunarsamvinnuskrifstofu, ásamt Sveini H. Guðmarssyni, upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins.

Í sjötta þætti Utanríkisvarpsins er rætt við Davíð Loga Sigurðsson, deildarstjóra hjá Alþjóða og þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, um mannréttindi og utanríkismál. Sérstaklega er rætt um setu Íslands í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna sem er eitt veigamesta hlutverk sem Ísland hefur gegnt á alþjóðavettvangi. 

Mikla athygli vakti þegar Ísland hafði frumkvæði að því að flutt var sameiginlegt ávarp, af hálfu 36 ríkja, um bágt ástand mannréttinda í Sádi-Arabíu. Eins þegar Ísland hafði frumkvæði að því að mannréttindaráðið samþykkti ályktun um stöðu mannréttinda á Filippseyjum fyrir tæpu ári. 

Skýrsla mannfréttindafulltrúa SÞ um mannréttindaástandið á Filippseyjum kom einmitt út í dag eftir að þátturinn var tekinn upp.


Utanríkisvarpið · 6. þáttur. Mannréttindi og utanríkismál

Þættina má einnig nálgast á Spotify.
Upphafsstef: Daði Birgisson.