NOTE: This article is more than 5 years old.

15 júní 2020

/

Úthlutun 360 milljóna króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra

{image.Description}
Úreikningar

Heilbrigðisráðherra hefur úthlutað 360 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra. Styrkir voru veittir til 24 verkefna. Um 250 milljónir króna renna til verkefna sem bæta munu aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum og laga aðstæður á heimilunum að viðmiðum ráðuneytisins um skipulag hjúkrunarheimila. Önnur verkefni snúast um smærri viðhaldsverkefni og endurbætur á húsnæði hjúkrunarheimila víðsvegar um landið.

Hæstu framlögin renna til til hjúkrunarheimilisins Áss í Hveragerði, Hrafnistu í Hafnarfirði og Dalbæjar á Dalvík. Framlagið til Áss nemur um 100 milljónum króna vegna uppbyggingar á nýjum matsal og breytinga á eldhúsi, Hrafnista í Hafnarfirði fær tæpar 100 milljónir króna til endurbóta á einstaklingsrýmum og hreinlætisaðstöðu og Dalbær á Dalvík fær rúmar 60 milljónir króna til viðgerða- og viðhalds.

Styrkirnir eru veittir í samræmi við tillögur stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra til ráðherra.