NOTE: This article is more than 5 years old.
27 október 2020
/
Skýrsla gefin út um stöðu Norðurlanda á sviði heilsu og velferðar
Skýrsla um stöðu Norðurlanda á sviði heilsu og velferðar hefur verið gefin út undir yfirskriftinni „State of the Nordic Region 2020 – Wellbeing, health and digitalization edition”. Í skýrslunni er fjallað um tækifæri og áskoranir sem felast í fjarheilbrigðisþjónustu á Norðurlöndum.
Nordregio, norræna rannsóknastofnunin um byggðaþróun, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, gefur skýrsluna út. Skýrslan var kynnt á sérstökum kynningarfundi í síðustu viku.
Við sama tækifæri var kynnt sérstök skýrsla um byggðaþróun í tengslum við fjarheilbrigðis- og fjarfélagsþjónustu (Digital Health Care and Social Care - Regional Development Impacts in the Nordic Countries).
- Skýrsla um stöðu Norðurlanda á sviði heilsu og velferðar
- Skýrsla um byggðaþróun í tengslum við fjarheilbrigðis- og fjarfélagsþjónustu
- Upptaka af fyrsta fundi á vefráðstefnu Nordregio Forum 2020 þar sem skýrslurnar voru kynntar