13 júní 2021

/

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra á leiðtogafundi NATO

{image.Description}
Frá höfuðstöðvum Atlantshafsbandalagsins í Brussel

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sækir á morgun fund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Þetta er fyrsti fundur forsætisráðherra erlendis í meira en ár. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra situr einnig fundinn.

Á dagskrá fundarins eru tillögur Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, til leiðtoganna sem miða að því að styrkja Atlantshafstengslin og efla pólitískt samstarf til að bandalagið verði enn betur í stakk búið til að takast á við öryggisáskoranir nútíðar og framtíðar. Þá verður ný aðgerðaáætlun í loftslagsmálum lögð fyrir leiðtogana og ný netöryggisstefna.