16 júní 2021

/

Sendiherra Íslands afhendir trúnaðarbréf í Róm

{image.Description}
Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra, ásamt forseta Ítalíu, Sergio Mattarella
Unnur Orradóttir-Ramette, sendiherra gagnvart Ítalíu með aðsetur í París, afhenti þann 14. júní 2021 Sergio Mattarella, forseta ítalska lýðveldisins, trúnaðarbréf sitt í Róm. Ítalía er meðal tíu umdæmisríkja sendiráðsins í París, en á Ítalíu eru auk þess sex ræðismenn í jafnmörgum borgum.