Stefnumörkun um safnastarf
Stefnumörkun um safnastarf var unnin í samstarfi
safnaráðs og höfuðsafnanna þriggja; Listasafns Íslands, Þjóðminjasafns Íslands og Náttúruminjasafns Íslands. Stefnan varpar ljósi á bæði hlutverk safna og markmið í rekstri þeirra og er ætlað að gera sýnileg víðtæk áhrif safna í samfélaginu. Söfn eru fyrir alla og allir hópar samfélagsins eiga að upplifa sig velkomna á söfnum, bæði sem virkir þátttakendur og gestir.
Leiðarljós stefnunnar er sú sameiginlega ábyrgð samfélagsins að vernda menningar- og náttúruarf landsins, stuðla að faglegri umgengni og tryggja jafnt aðgengi að arfinum.