26 nóvember 2021

/

Verðlagsnefnd búvara: Ákvörðun um verð á mjólk og mjólkurvörum

{image.Description}
Golli

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um hækkun lágmarksverðs mjólkur til bænda og heildsöluverðs mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Eftirfarandi verðbreytingar munu taka gildi þann 1. desember 2021:

  • Lágmarksverð 1.fl. mjólkur til bænda hækkar um 3,38%, úr 101,53 kr./ltr í 104,96 kr./ltr.
  • Heildsöluverð mjólkur og mjólkurvara sem nefndin verðleggur hækkar almennt um 3,81%, nema verð á undanrennu- og nýmjólkurdufti verður óbreytt.

Verðhækkunin er til komin vegna kostnaðarhækkana við framleiðslu og vinnslu mjólkur frá síðustu verðákvörðun 1. apríl 2021. Frá síðustu verðákvörðun til desembermánaðar 2021 hafa gjaldaliðir í verðlagsgrundvelli kúabús hækkað um 3,38%. Á sama tímabili hefur vinnslu- og dreifingarkostnaður afurðastöðva hækkað um 2,34%. Auk kostnaðarhækkana sem þegar hafa orðið byggir verðhækkun nú á umsaminni hækkun launa þann 1. janúar nk. og er þá hækkun vinnslu- og dreifingarkostnaðar 4,32%. Með því að taka tillit til þessarar launahækkunar nú er talið að ekki verði þörf á nýrri verðlagningu í janúar 2022.