28 nóvember 2021

/

Ríkisráðsfundir á Bessastöðum sunnudaginn 28. nóvember

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

Frá ríkisráðsritara:

Ríkisráð Íslands mun koma saman til tveggja funda í dag, sunnudaginn 28. nóvember. Fyrri fundurinn hefst kl. 15 en þar mun forseti Íslands veita núverandi ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur lausn frá störfum. Á síðari fundinum sem hefst kl. 16 mun forseti Íslands skipa nýtt ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur.