03 mars 2022

/

Samstaða með Úkraínu

{image.Description}
Sendiráðsbygging Íslands og Danmerkur í Nýju-Delí lýst upp með fánalitum Úkraínu

Sendiráðsbygging Íslands og Danmerkur í Nýju-Delí er lýst upp með fánalitum Úkraínu þessa vikuna til að sýna samstöðu með Úkraínu í baráttunni við innrásarher Rússa og samhug með almennum borgurum. Íslensk stjórnvöld fordæma harðlega víðtækar árásir rússneskra stjórnvalda á Úkraínu. „Hugur okkar er hjá því saklausa fólki sem verður fyrir barðinu á stríðsrekstri og ógnartilburðum Rússlands í Úkraínu,” segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.