31 mars 2022

/

Sendiherra Noregs heimsótti matvælaráðherra

{image.Description}
Sendiherra Noregs, Aud Lise Norheim og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Svandís matvælaráðherra Svavarsdóttir tók á móti Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs í vikunni.

Tilgangur fundarins var að fara yfir þau málefni þar sem Noregur og Ísland eiga sameiginlegra hagsmuna að gæta og eiga í samstarfi, s.s. í sjávarútvegi, landbúnaði og fiskeldi. Einnig var  rætt það góða samstarf sem hefur verið til staðar á milli landanna í heilbrigðismálum og þá sérstaklega í Covid faraldrinum.