Áform um ný heildarlög um skólaþjónustu og nýja þjónustustofnun í samráð
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti í gær
viðamiklar breytingar sem áformað er að ráðast í á menntakerfinu. Áform um frumvörp til nýrra heildarlaga um skólaþjónustu og nýja þjónustustofnun hafa verið
birt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Mennta- og barnamálaráðuneytið kallar eftir umsögnum frá haghöfum og almenningi. Umsagnarfrestur er til og með
31. október.