13 janúar 2023

/

Tveir sóttu um embætti varadómanda við Endurupptökudóm

{image.Description}

Þann 23. desember 2022 auglýsti dómsmálaráðuneytið laust til umsóknar embætti varadómanda við Endurupptökudóm. Umsóknarfrestur rann út þann 9. janúar 2023 og eru umsækjendur tveir: Helgi Birgisson lögmaður og Jónas Þór Guðmundsson lögmaður.

Skipað verður í embættið hið fyrsta eftir að dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara skilar ráðherra umsögn sinni.