03 maí 2023

/

Leiðtogafundur Norðurlandanna með forseta Úkraínu

{image.Description}
Johannes Jansson/norden.org

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra tekur þátt í leiðtogafundi Norðurlandanna með Volodymyr  Zelensky, forseta Úkraínu, í Helsinki í dag.

Á fundinum verður rætt um áframhaldandi stuðning Norðurlandanna við Úkraínu vegna innrásarstríðs Rússlands, umsókn Úkraínu um aðild að Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu og hvernig stuðla megi að friði og hefja efnahagsuppbyggingu í landinu.

Að loknum leiðtogafundinum mun forsætisráðherra eiga tvíhliða fund með Úkraínuforseta.