14 maí 2023

/

Bretar sinna loftrýmisgæslu við Ísland

{image.Description}
utanríkisráðuneytið
Ratsjárstöðin Bolafjalli

Í tengslum við leiðtogafund Evrópuráðsins sem haldinn verður í Reykjavík dagana 16.-17. maí sinnir flugsveit breska flughersins loftrýmisgæslu við Ísland. 

Loftrýmisgæsluverkefnið stendur yfir dagana 15.-19. maí.

Um er að ræða tvíhliða fyrirkomulag loftrýmisgæslu milli Íslands og Bretlands, með stuðningi stjórnstöðvar Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og aðkomu flugherstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norður-Evrópu.