20 desember 2023
/
Niðurstaða úthlutunar á ESB tollkvótum á landbúnaðarafurðum fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024
Þriðjudaginn 5. desember síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1176/2023 fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2024. Útboðsverð tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 23 gild tilboð í tollkvótann.
Nautgripakjöt í vörulið 0201/0202. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á nautgripakjöti, samtals 590.001 kg. á meðalverðinu 308 kr./kg. Hæsta boð var 1.001 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 348.000 kg. á jafnvægisverðinu 1 kr./kg.
Svínakjöt í vörulið 0203. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á svínakjöti, samtals 959.500 kg. á meðalverðinu 253 kr./kg. Hæsta boð var 660 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 350.000 kg. á jafnvægisverðinu 368 kr./kg.
Alifuglakjöt, í vörulið 0207. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, samtals 1.167.000 kg á meðalverðinu 378 kr./kg. Hæsta boð var 753 kr./kg en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 428.000 kg á jafnvægisverðinu 587 kr./kg.
Alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið úr 0207. Sex tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á alifuglakjöti, lífrænt ræktað/lausagöngu, samtals 284.500 kg á meðalverðinu 113 kr./kg. Hæsta boð var 590 kr./kg en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá fjórum fyrirtækjum um innflutning á 100.000 kg á jafnvægisverðinu 9 kr./kg.
Kjöti og ætir hlutar af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;... í vörulið 0210. Tíu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á kjöti og ætum hlutum af dýrum, saltað í saltlegi, þurrkað eða reykt;..., samtals 133.400 kg. á meðalverðinu 272 kr./kg. Hæsta boð var 799 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá tíu fyrirtækjum um innflutning á 50.000 kg. á jafnvægisverðinu 350 kr./kg.
Ostar og ystingur í vörulið 0406. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi á vörulið 0406, samtals 596.784 kg. á meðalverðinu 510 kr./kg. Hæsta boð var 1.139 kr./kg. en lægsta boð var 0 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 190.000 kg. á jafnvægisverðinu 930 kr./kg.
Ostur og ystingur úr vörulið úr 0406;...(**). Þrettán umsóknir bárust um tollkvóta vegna innflutnings á ostum og ystingi úr vörulið úr 0406...(**) samtals 605.000 kg. Á grundvelli 5. gr. reglugerðar nr. 1176/2023 er tollkvóta úr vörulið úr 0406 úthlutað með hlutkesti og er hámark úthlutunar til hvers fyrirtækis 15% af heildarmagni tollkvótans. Samtals var úthlutað 115.000 kg., til átta fyrirtækja.
(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla.
Pylsur og þess háttar vörur úr kjöti.... í vörulið 1601. Ellefu tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á pylsum og þess háttar vörum úr kjöti.... úr vörulið 1601, samtals 391.750 kg. á meðalverðinu 195 kr./kg. Hæsta boð var 701 kr./kg. en lægsta boð var 1 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 125.000 kg. á jafnvægisverðinu 350 kr./kg.
Annað kjöt...., unnið eða varið skemmdum-... í vörulið 1602. Tólf tilboð bárust í tollkvóta vegna innflutnings á öðru kjöti..., á vörulið 1602, samtals 790.200 kg. á meðalverðinu 444 kr./kg. Hæsta boð var 1.021 kr./kg. en lægsta boð var .10 kr./kg. Tilboðum var tekið frá níu fyrirtækjum um innflutning á 200.000 kg. á jafnvægisverðinu 840 kr./kg.
Matvælaráðuneytið hefur úthlutað tollkvótum til eftirtalinna fyrirtækja á grundvelli tilboða og/eða umsókna þeirra:
Kjöt af nautgripum, nýtt, kælt eða fryst, 0201/0202
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
10.000 |
Aðföng. |
|
141.639 |
Ekran ehf |
|
16.040 |
Garri ehf. |
|
67.000 |
Háihólmi ehf |
|
28.320 |
Innnes ehf. |
|
38.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf. |
|
15.000 |
Krónan ehf |
|
2.000 |
Mata ehf |
|
15.000 |
OJK-Ísam ehf |
|
15.000 |
Samkaup hf. |
Svínakjöt, nýtt, kælt eða fryst, 0203
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
5.000 |
Aðföng |
|
17.000 |
Ekran ehf |
|
500 |
Filipino Store ehf |
|
21.000 |
Háihólmi ehf |
|
1.000 |
Innnes ehf |
|
10.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
10.000 |
Krónan ehf |
|
110.000 |
LL42 hf |
|
120.000 |
Mata hf |
|
55.500 |
Sláturfélag Suðurlands svf |
Kjöt af alifuglum, nýtt, kælt eða fryst, 0207
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
120.000 |
Aðföng |
|
53.500 |
Ekran ehf |
|
4.000 |
Garri ehf |
|
34.500 |
Háihólmi ehf |
|
50.000 |
Innnes ehf |
|
13.000 |
Kjötmarkaðurinn ehf |
|
5.000 |
Krónan ehf |
|
40.000 |
LL42 ehf |
|
96.000 |
Mata hf. |
|
12.000 |
OJK – ÍSAM ehf |
Kjöt af alifuglum nýtt, kælt eða fryst, lífrænt ræktað/lausagöngu úr 0207
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
15.000 |
Krónan ehf |
|
5.500 |
LL42 ehf |
|
64.500 |
Mata hf |
|
15.000 |
OJK – ÍSAM ehf |
Kjöt og ætir hlutar af dýrum.. 0210
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
1.231 |
Aðföng |
|
1.000 |
Ekran ehf. |
|
1.300 |
Garri ehf |
|
1.000 |
Háihólmi ehf |
|
10.000 |
Innnes ehf. |
|
20.000 |
Krónan ehf. |
|
2.000 |
LL42 ehf |
|
600 |
Mata ehf |
|
10.369 |
OJK-Ísam ehf |
|
2.500 |
Samkaup hf |
Ostur og ystingur 0406
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
6.000 |
Garri ehf |
|
90.000 |
Innnes ehf. |
|
35.000 |
Krónan ehf. |
|
7.000 |
Market ehf |
|
2.000 |
Mata ehf. |
|
4.000 |
Mini Market ehf |
|
10.000 |
Mjólkursamsalan ehf |
|
31.000 |
Nathan & Olsen ehf. |
|
5.000 |
Samkaup hf |
Ostur og ystingur úr 0406 Úthlutun gerð á gr.v. 5. gr. reglugerðar nr. 1176/2023
|
Úthlutað magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
15.000 |
Aðföng |
|
17.250 |
Dalsnes ehf. |
|
17.250 |
Innnes ehf |
|
16.000 |
LL42 ehf. |
|
5.000 |
Market ehf. |
|
17.250 |
Mata hf |
|
10.000 |
Stórkaup ehf. |
|
17.250 |
Vínportið ehf. |
Pylsur og þess háttar vörur 1601
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
2.000 |
Ekran ehf |
|
500 |
Háihólmi ehf |
|
2.000 |
Innnes ehf. |
|
20.000 |
Krónan ehf |
|
750 |
Mata ehf |
|
45.000 |
Market ehf. |
|
51.458 |
Mini market ehf. |
|
1.292 |
OJK – ÍSAM ehf |
|
2.000 |
Samkaup hf. |
Annað kjöt, hlutar úr dýrum-.... 1602
|
Magn (kg) |
Tilboðsgjafi |
|
17.500 |
Danól ehf |
|
500 |
Garri ehf |
|
120.000 |
Innnes ehf. |
|
10.000 |
Krónan ehf |
|
7.000 |
Market ehf. |
|
4.000 |
Mini Market ehf. |
|
20.000 |
OJK-Ísam ehf |
|
5.000 |
Samkaup hf. |
|
16.000 |
Stjarnan ehf |
Reykjavík, 14. desember 2023
Matvælaráðuneytinu