22 febrúar 2024
/
Nr. 174/2024 Úrskurður
Hinn 22. febrúar 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 174/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23090121
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 26. september 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsókn einstaklings er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), um alþjóðlega vernd og brottvísa henni frá landinu. Var kæranda gert að yfirgefa landið án tafar ellegar sæta endurkomubanni í tvö ár. Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd ásamt maka sínum. Fjallað er um umsókn hans í úrskurði kærunefndar nr. 175/2024.
Kærandi eignaðist barn hér á landi [...] (hér eftir A) og verður tekin afstaða til hagsmuna þess í eftirfarandi úrskurði.
Kærandi krefst þess aðallega að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að umsókn hennar um alþjóðlega vernd verði tekin til efnismeðferðar hér á landi en til vara að fallið verði frá brottvísun og endurkomubanni til tveggja ára og að henni verði veittur tilhlýðilegur frestur til þess að yfirgefa landið.
II. Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi 23. júní 2023. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum 24. júní 2023 kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Með umsókn framvísaði kærandi flóttamannavegabréfi útgefnu af yfirvöldum á Ítalíu með gildistíma til 19. febrúar 2028. Hinn 4. júlí 2023 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 24. júlí 2023, kom fram að kæranda hefði verið veitt réttarstaða flóttamanns og að hún væri með dvalarleyfi með gildistíma til 19. febrúar 2028. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 31. ágúst 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 13. september 2023 að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að henni skyldi brottvísað frá landinu með endurkomubanni til tveggja ára. Ákvörðunin var birt fyrir kæranda 15. september 2023 og barst kærunefnd greinargerð kæranda 29. september 2023, ásamt fylgigögnum. Þá bárust viðbótargögn og upplýsingar frá kæranda 8. febrúar 2024.
III. Ákvörðun Útlendingastofnunar
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kæranda hafi verið veitt alþjóðleg vernd á Ítalíu og sé með dvalarleyfi þar í landi til 19. febrúar 2028. Umsókn hennar um alþjóðlega vernd yrði því ekki tekin til efnismeðferðar, sbr. a-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kæranda til Ítalíu ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Útlendingastofnun taldi unnt að leggja til grundvallar að kærandi hafi hlotið málsmeðferð og alþjóðlega vernd á Ítalíu undir gefnu auðkenni. Þá taldi Útlendingastofnun að kærandi hefði ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að hún fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsókn kæranda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga. Kæranda var ákveðið endurkomubann hingað til lands í tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Var skorað á kæranda að yfirgefa landið án tafar og athygli hennar vakin á því að yfirgæfi hún landið sjálfviljug yrði endurkomubannið fellt niður.
IV. Málsástæður og rök kæranda
Í greinargerð kæranda vísar hún til viðtals síns hjá Útlendingastofnun, greinargerðar sinnar til stofnunarinnar og annarra gagna málsins er varðar málavexti. Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi greinst með meðgöngusykursýki, sykursýki tvö og meðgöngueitrun þegar hún hafi verið ófrísk af barni sínu. Í greinargerð kæranda er einnig að finna umfjöllun, með vísan til alþjóðlegra skýrslna, um takmarkað aðgengi einstaklinga með alþjóðlega vernd á Ítalíu að heilbrigðisþjónustu, menntun, atvinnu, húsnæði og annarri opinberri þjónustu. Vísar kærandi til þess að yfirvöld á Ítalíu hafi, með nýlegri löggjöf, gert tilraun til þess að takmarka veitingu dvalarleyfa til þeirra sem ekki falli með hefðbundnum hætti undir flóttamannahugtakið eða skilyrði fyrir viðbótarvernd en hafi engu að síður ríka þörf á vernd. Vinnuveitendur haldi áfram að mismuna flóttamönnum á vinnumarkaði og notfæra sér veika lagavernd landsins gegn misnotkun á erlendum ríkisborgurum. Auk þess vísar kærandi til stöðu mansals á Ítalíu. Konur og börn frá Nígeríu séu sérstaklega viðkvæm fyrir mansali sem rekja megi til starfsemi nígerískra glæpasamtaka sem sérhæfa sig í mansali. Hafi ítölsk yfirvöld greint frá því að mannræningjar láti nígeríska þolendur mansals sækja um alþjóðlega vernd á Ítalíu til að tryggja áframhaldandi misbeitingu gagnvart þeim.
Kærandi byggir aðallega á því að taka skuli mál hennar til efnismeðferðar á grundvelli 2. og 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Byggir krafan aðallega á persónulegum aðstæðum kæranda og þeirri viðkvæmu stöðu sem hún sé í. Kærandi sé ung kona frá Nígeríu sem hafi búið á Ítalíu frá árinu 2020 og er með dvalarleyfi á grundvelli alþjóðlegrar verndar til ársins 2028. Kærandi hafi verið þolandi mansals, orðið fyrir kynþáttamismunun og átt erfitt með að komast inn á atvinnumarkað á Ítalíu. Hún óttist að verða á vergangi á Ítalíu og að hún muni enda í greipum mannræningja sem munu aftur koma henni í mansal verði hún endursend þangað. Telji kærandi að ótækt sé af íslenskum yfirvöldum að senda hana aftur til Ítalíu, sérstaklega m.t.t. þeirra bágu aðstæðna sem hún hafi þurft að lifa við þar í landi, en þær aðstæður sem bíði hennar séu ekki viðunandi fyrir ungt barn og geti verið barninu beinlínis hættulegar. Heilsufar kæranda geri það einnig að verkum að hún eigi erfitt með að framfleyta sér á Ítalíu og stunda þar atvinnu. Kærasti og barnsfaðir kæranda sé staddur með henni hér á landi. Hann hafi hlotið fimm ára endurkomubann til Ítalíu og því telji kærandi að endursending hennar og barnsins til Ítalíu feli í sér endursendingu í ómannúðlegar aðstæður og án nokkurs stuðnings þar sem eining fjölskyldunnar verði óhjákvæmilega rofin. Staða kæranda sé einstaklega viðkvæm og þurfi hún aðstoð eftir fæðingu barns síns m.t.t. heilsufars hennar.
Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun hafi metið hana sem einstakling í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærandi telji mat Útlendingastofnunar, um að hún njóti í öllum megindráttum sömu réttinda og ítalskir ríkisborgarar til grunnþjónustu, ekki ríma við upplifun kæranda né þær heimildir sem hún vísi til í greinargerð sinni til stofnunarinnar og kærunefndar útlendingamála. Með vísan til framangreinds, fyrirliggjandi heilsufarsgagna og annarra heimilda telji kærandi það ljóst að aðstæður hennar séu það sérstakar og einstaklingsbundnar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum.
Vísar kærandi til þess að verði hún endursend til Ítalíu verði staða hennar og barns hennar óviðunandi. Ekkert bendi til annars en að kærandi muni áfram búa við þær ómannúðlegu aðstæður sem hún hafi vitnað um í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun og í greinargerð sinni til stofnunarinnar. Íslenskum stjórnvöldum beri að leggja heildstætt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barns hennar og þær afleiðingar sem endursending geti haft í för með sér fyrir þau, bæði andlegar og líkamlegar. Þá beri stjórnvöldum að meta hvort kærandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 25. gr. sömu laga. Viðkvæm staða hennar skuli hafa vægi við mat á því hvort sérstakar ástæður séu uppi í málinu. Hvað varðar hagsmuni og réttindi barns kæranda vísar hún til 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga, 6. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013 og 1. mgr. 22. gr. samningsins. Vísar kærandi máli sínu til stuðnings til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 472/2019 frá 7. nóvember 2019 þar sem aðstæður kæranda í því máli hafi að nokkru leyti verið sambærilegar aðstæðum kæranda. Því skuli mál kæranda hljóta sömu meðferð með vísan til jafnræðisreglu stjórnsýslulaga og stjórnarskrár.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Aðstæður kæranda
Samkvæmt gögnum málsins er kærandi kona á [...]. Kærandi hafi komið hingað til lands barnshafandi en eignast barn hér á landi [...]. Kærandi hafi greint frá því að barnsfaðir og kærasti hennar, sem staddur sé hér á landi, hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Íslandi og hafi verið synjað um alþjóðlega vernd á Ítalíu. Hún eigi fimm frændsystkin á Ítalíu sem hún sé þó ekki náin. Samkvæmt gögnum málsins lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu 24. júní 2021. Kærandi hafi hlotið réttarstöðu flóttamanns á Ítalíu og sé með dvalarleyfi þar í landi til 19. febrúar 2028. Þá hafi kærandi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi í júní 2023. Kærandi vilji ekki snúa aftur til Ítalíu þar sem kærasti hennar og barnsfaðir hafi fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd og fimm ára endurkomubann. Einnig hræðist hún lögregluna þar í landi þar sem hún sé á eftir kærasta hennar og barnsföður. Kæranda hafi verið boðin húsnæðis- og fjárhagsaðstoð á Ítalíu á meðan hún hafi dvalið í flóttamannabúðum. Eftir að hún hafi yfirgefið þær og flutt inn með kærasta sínum hafi hún ekki leitast eftir fjárhagsaðstoð. Kæranda hafi þó verið neitað um skólagöngu áður en hún hafi hlotið réttarstöðu flóttamanns. Þá hafi hún mátt þola fordóma og mismunun á Ítalíu. Kærandi hafi verið með atvinnuleyfi og atvinnu þar til hún hafi sagt starfi sínu lausu eftir að hún varð barnshafandi. Kærandi greindi frá því að hafa haft aðgang að heilbrigðiskerfinu þar í landi, m.a. farið með sjúkrabíl vegna veikinda. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg og andleg heilsa hennar væri í lagi. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærandi greinst með meðgöngusykursýki, meðgöngueitrun og sykursýki tvö á meðan hún hafi gengið með barnið A. Þá hafi hún einnig þurft að gangast undir aðgerð til að láta fjarlægja gallblöðru. Samkvæmt gögnum málsins verður ekki annað ráðið en að A sé við góða heilsu og að fæðingin hafi gengið vel.
Réttarstaða barns kæranda
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.
Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtal við kæranda hjá Útlendingastofnun og framlögð heilsufarsgögn. Það er mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A verði ákveðin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Barnið A er í fylgd móður sinnar og verður því tekin afstaða til mála þeirra í einum úrskurði.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
a. umsækjandi hafi komið til landsins að eigin frumkvæði eftir að hafa hlotið virka alþjóðlega vernd í öðru ríki.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum málsins var kæranda veitt réttarstaða flóttamanns á Ítalíu og hefur hún gilt dvalarleyfi þar í landi til 19. febrúar 2028. Að mati kærunefndar telst sú vernd sem kærandi nýtur á Ítalíu virk alþjóðleg vernd í skilningi a-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt neðangreindum upplýsingum um aðstæður á Ítalíu getur A einnig fengið dvalarleyfi á Ítalíu á grundvelli verndar móður sinnar.
Aðstæður á Ítalíu
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd jafnframt kynnt sér þær skýrslur sem kærandi vísar til í greinargerð sinni og litið til efnis þeirra við mat á aðstæðum í viðtökuríki.
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Italy (United States Department of State, 20. mars 2023);
- Amnesty International Report 2022/2023 – Italy (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2021 (European Asylum Support Office, 28. júní 2022);
- Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, uppfært 31. maí 2023);
- Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2019);
- Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
- ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerence, 7. júní 2016);
- Freedom in the World 2023 – Italy (Freedom House, mars 2023);
- The Journey of Hope: Education for Refugee and Unaccompanied Children in Italy (Education International Research, 31. maí 2017);
- Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, 21. janúar 2020);
- Report concerning the implementation of the Council of Europe Convention on Action against Trafficking in Human beings by Italy (Council of Europe: Group of Experts on Action against Trafficking in Human Beings, 25. janúar 2019);
- Report of mission to Italy on racial discrimination, with a focus on incitement to racial hatred and discimination (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 2019);
- Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019);
- Trafficking in Persons Report (United States Department of State, 1. júlí 2021);
- Country profiles – Italy: Policies and progress towards investing in children: (European Commission, 11. júní 2021);
- Upplýsingar af vefsíðu Amnesty International (www.amnesty.org);
- Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – (http:www.cir-onlus.org/en/);
- Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights (www.hatecrime.osce.org/italy);
- Upplýsingar af vefsíðu ítalska menntamálaráðuneytisins (https://www.miur.gov.it/web/ guest/scuola-dell-infanzia);
- Upplýsingar af vefsíðu ítalska fjölskylduráðuneytisins (https://famiglia.governo.it/it/);
- Upplýsingar af vefsíðu félagasamtakanna L'Albero della Vita (http://www.alberodellavita.org/en/varcare-la-soglia) og
- World Report 2023 – European Union (Human Rights Watch, 12. janúar 2023).
Ítalía er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Ítalía verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 16. október 1955. Ítalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 12. janúar 1989 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 15. nóvember 1954.
Samkvæmt framangreindum gögnum eru dvalarleyfi einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og einstaklinga með viðbótarvernd gefin út til fimm ára en að þeim tíma liðnum geta handhafar sótt um ótímabundið dvalarleyfi á Ítalíu. Í framangreindri skýrslu European Council on Refugees and Exiles (ECRE) kemur fram að til að endurnýja dvalarleyfi þar í landi þurfi að fylla út þar til gert eyðublað og senda það með bréfpósti en málsmeðferðin geti tekið allt upp í nokkra mánuði. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns geti öðlast ríkisborgararétt að fimm árum liðnum en einstaklingar með viðbótarvernd að tíu árum liðnum, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Einstaklingar með réttarstöðu flóttamanns fái útgefin flóttamannavegabréf (í. documenti di viaggio) með fimm ára gildistíma en handhafar viðbótarverndar geti fengið svonefnt ferðaleyfi (í. titolo di viaggio). Af framangreindum gögnum verður þó ekki séð að á Ítalíu sé munur á réttindum einstaklinga með réttarstöðu flóttamanns og handhafa viðbótarverndar hvað varðar aðgang að húsnæði, heilbrigðisþjónustu og atvinnuleyfi.
Af framangreindum gögnum má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Í skýrslu ECRE kemur m.a. fram að húsnæðisaðstoð við einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar sé af skornum skammti. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tóku lög nr. 130/2020 gildi árið 2020 sem kveða á um breytingar á móttökumiðstöðvum og búsetuúrræðum fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt ákvæðum laganna hefur móttöku- og húsnæðiskerfið SIPRIOMI, sem áður var einungis ætlað þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og fylgdarlausum börnum, verið endurskipulagt og fengið nýtt nafn, SAI (e. System of accommodation and integration). Í maí 2023 tóku lög nr. 50/2023 gildi á Ítalíu og meðal breytinga sé að SAI hefur verið fært í fyrra horf og er aðeins ætlað handhöfum alþjóðlegrar verndar. Þegar einstaklingar hafi fengið inngöngu í SAI úrræði megi þeir dvelja þar í sex mánuði. SAI sé rekið af sveitarfélögum og frjálsum félagasamtökum og eigi búsetumiðstöðvarnar m.a. að tryggja þeim sem dvelja þar túlkaþjónustu, lögfræðiaðstoð, tungumálakennslu, heilbrigðisþjónustu, félags- og sálfræðiþjónustu og fleira. Þá eigi handhafar alþjóðlegrar verndar rétt á stuðningi við aðlögun og aðstoð við atvinnuleit. Aftur á móti séu ekki nógu mörg SAI úrræði til að mæta þeim fjölda sem hafi fengið alþjóðlega vernd.
Í skýrslu ECRE kemur fram að handhafar alþjóðlegrar verndar eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til velferðarþjónustu sem tryggingastofnun ríkisins veitir (í. Istituto Nazinale della Previdenza Soviale/INPS). Félagsleg úrræði séu ekki bundin skilyrðum um búsetu á tilteknum svæðum en í sumum tilvikum séu sett skilyrði um samfellda búsetu í landinu. Þá kemur fram í skýrslu ECRE að einstaklingar sem njóta alþjóðlegrar verndar og hafi dvalarleyfi á Ítalíu hafi sama rétt til atvinnuþátttöku og ítalskir ríkisborgarar, að undanskildum störfum sem feli í sér beitingu opinbers valds eða ábyrgð á almannahagsmunum ríkisins. Þá hafi handhafar alþjóðlegrar verndar sama rétt og ítalskir ríkisborgarar að því er varðar aðgang að störfum, sjálfstæðum rekstri, starfsþjálfun, þ. á m. endurmenntun, námskeiðum og þjónustu á vegum vinnumiðlana. Þá hafi einstaklingar sem njóti alþjóðlegrar verndar á Ítalíu almennt sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til velferðarþjónustu. Aftur á móti sé í einhverjum tilvikum gerð krafa um búsetu á Ítalíu í ákveðinn tíma, t.a.m. sé tiltekin aðstoð við framfærslu eingöngu veitt einstaklingum sem hafi búið í tíu ár á Ítalíu.
Í skýrslu ECRE kemur fram að hægt sé að skrá fæðingu barns á spítala innan þriggja daga frá fæðingu eða síðar í sveitarfélagi viðkomandi að framlögðum persónuskilríkum. Þá kemur fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu geti sótt um fjölskyldusameiningu, þ á m. við barn undir 18 ára aldri. Hægt sé að leggja fram umsókn um fjölskyldusameiningu í viðkomandi héraði þegar einstaklingar hafi fengið útgefið dvalarleyfi. Þá sé enginn tímafrestur á því að leggja fram umsókn um fjölskyldusameiningu á Ítalíu. Ríkisborgarar þriðju ríkja þurfi almennt að uppfylla tiltekin skilyrði fyrir fjölskyldusameiningu, þ. á m. sýna fram á lágmarks framfærslutekjur og húsnæði. Einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd séu hins vegar undanþegnir þeim skilyrðum. Á heimasíðu ítalska menntamálaráðuneytisins kemur fram að foreldrar barna á aldrinum þriggja mánaða til tveggja ára geti sótt um aðgang að vöggustofum en aðgengi að þeim sé stjórnað af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Börn á aldrinum þriggja til sex ára hafi aðgang að leikskólum sem séu hluti af samfelldri menntastefnu landsins og opinberir leikskólar séu gjaldfrjálsir. Í skýrslu ECRE og skýrslu samtakanna Education International Research kemur m.a. fram að ítölsk lög kveði á um skólaskyldu til 16 ára aldurs. Öll börn sem dvelja á ítölsku yfirráðasvæði eigi því rétt á skyldubundinni menntun frá 6 til 16 ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá eigi erlend börn rétt á sérstakri aðstoð hafi þau sérþarfir og jafnframt bjóði sumir skólar upp á sérstakt undirbúningsnámskeið til að aðstoða erlenda nemendur við að aðlagast skólanum. Þegar erlend börn leggi fram umsókn um skólavist þá sé krafist sömu upplýsinga um barnið og hjá ítölskum börnum en skortur á framlagningu gagna komi ekki í veg fyrir að barn sé skráð í skólann.
Í skýrslu ECRE kemur m.a. fram að einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd, bæði börn og fullorðnir, eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, að því gefnu að þeir hafi skráð sig inn í heilbrigðiskerfið. Slík skráning sé háð því að umsækjandi hafi skráð lögheimili sem eðli máls samkvæmt geti verið hindrun fyrir einstaklinga sem séu án fastrar búsetu. Skráning í heilbrigðiskerfið falli ekki sjálfkrafa úr gildi meðan á málsmeðferð endurnýjunar dvalarleyfisins standi en í framkvæmd geti einstaklingar með útrunnin dvalarleyfi átt í erfiðleikum með að nálgast heilbrigðisþjónustu. Sjúklingar þurfi almennt að greiða hluta þess kostnaðar sem falli til vegna heilbrigðisþjónustu sem þeir nýti sér en frá því séu þó undantekningar, t.d. í þeim tilvikum þegar sjúklingar séu utan vinnumarkaðar og án annarrar framfærslu. Mismunandi túlkun á reglum um greiðsluþátttöku sjúklinga hafi þó leitt til þess að í sumum sveitarfélögum hafi verið gerð krafa um að einstaklingar sem njóti alþjóðlegrar verndar en séu utan vinnumarkaðar greiði kostnað við heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt framangreindum heimildum eru því ýmsar aðgangshindranir þegar kemur að heilbrigðiskerfinu á Ítalíu, m.a. vegna tungumálaörðugleika.
Af framangreindum skýrslum s.s. skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins og samtakanna Human Rights Watch, verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna eru vandamál á Ítalíu. Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem gefin var út í kjölfar sendifarar til Ítalíu sem farið var í árið 2019 til þess að meta aukna mismunun á grundvelli kynþáttar, kemur fram að í ítalskri löggjöf sé kveðið á um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Þá sé í stjórnarskrá landsins kveðið á um vernd ákveðinna hópa, þ. á m. útlendinga. Ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Á Ítalíu sé starfrækt stofnun (í. Ufficio Nazionale Antidiscriminazioni Razziali (UNAR)) sem hafi það hlutverk að berjast gegn hvers kyns mismunun. Einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun þ. á m. vegna kynþáttar eða kynhneigðar og þurfa á aðstoð eða ráðgjöf að halda geti leitað til stofnunarinnar. Þá reki lögreglan stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori). Stofnuninni sé m.a. ætlað að auka þjálfun lögreglufólks og stuðla að því að hatursglæpir séu tilkynntir og skráðir. Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar. Ef líkur eru taldar á að tilkynnt atvik sé glæpsamlegt sé tilkynning áframsend lögreglu til rannsóknar en aðrar séu áframsendar til UNAR. Þá standi dómstólar landsins styrkum fótum sem hafi stuðlað að virkri framkvæmd hluta löggjafar um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kveður stjórnarskrá Ítalíu á um að dómsvald skuli vera sjálfstætt. Þá er einnig kveðið á um rétt til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar. Sakborningar séu álitnir saklausir uns sekt er sönnuð og eigi þeir rétt á að vera viðstaddir réttarhöld sín og njóta aðstoðar lögmanns. Þá geti þeir krafist réttarbóta fyrir innlendum dómstólum vegna mannréttindabrota og farið með mál fyrir Mannréttindadómstól Evrópu vegna mannréttindabrota stjórnvalda hafi þeir nýtt sér þau réttarúrræði sem þeim standi til boða innanlands.
Framangreindar skýrslur, s.s. skýrsla bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal og skýrsla sérfræðinga um aðgerðir gegn mansali (GRETA), bera með sér að þrátt fyrir að mansal sé vandamál á Ítalíu þá hafi ítölsk stjórnvöld sýnt verulega viðleitni í baráttunni gegn mansali. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um mansal er þeim löndum sem skýrslan tekur til skoðunar raðað í fjóra mismunandi flokka í samræmi við viðmið laga um vernd þolenda mansals (e. Trafficking Victims Act (TVPA)). Í skýrslunni kemur fram að uppröðunin snúi að því hversu langt stjórnvöld viðkomandi landa gangi til að mæta þeim lágmarksviðmiðum sem TVPA mæli fyrir um. Í skýrslunni kemur fram að ítölsk stjórnvöld séu í flokki 2 og að þrátt fyrir að þau uppfylli ekki að öllu leyti umrædd lágmarksviðmið þá hafi þau sýnt aukna viðleitni í baráttunni gegn mansali á árinu 2021, s.s. með því að bera kennsl á og aðstoða þolendur, auka fjármagn til umönnunar þolenda, þjálfun löggæslufólks og aukinni alþjóðlegri samvinnu. Af skýrslunum má jafnframt sjá að skimað sé eftir þolendum mansals í samstarfi við frjáls félagasamtök, lögreglu og starfsfólk útlendingayfirvalda auk þess sem að þeir sem hafi gerst brotlegir séu sóttir til saka. Þá séu ítölsk stjórnvöld í samstarfi við frjáls félagasamtök og alþjóðleg samtök um að veita þolendum íverustað og þjónustu. Í framangreindri skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 kemur m.a. fram að yfirvöld á Ítalíu sæki gerendur sem beiti konur ofbeldi til saka en þolendur neiti þó oft að leggja fram kærur vegna ótta, skammar eða vanþekkingar á lögunum. Þá sé starfrækt neyðarlína fyrir þolendur ofbeldis sem þurfi aðstoð og tímabundinn dvalarstað.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. og 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því. Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Kærandi er kona á [...] sem kom hingað til lands barnshafandi. Kærandi eignaðist barnið A hér á landi [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg og andleg heilsa hennar væri í lagi. Samkvæmt dagál meðgöngu- og sængurlegudeildar, dags. 15. september 2023, hafi kærandi greinst með meðgöngusykursýki, sykursýki af gerð tvö og meðgöngueitrun þegar hún hafi gengið með barnið A. Hún hafi fengið lyfjameðferð, m.a. lyfið Trandate, ásamt því að nota insúlín vegna sykursýkinnar og verið á blóðþrýstingslækkandi lyfjum vegna meðgöngueitrunarinnar. Þá hafi hún verið í eftirliti vegna áhættusamrar meðgöngu. Kærandi hafi verið sett af stað á 38. viku vegna meðgöngueitrunar en fæðingin hafi verið eðlileg og gengið vel. Eftir fæðingu barnsins A hafi kærandi fengið lyfið Metformin við sykursýki tvö, en allt bendi til þess að kærandi hafi verið með sykursýki áður en hún hafi orðið barnshafandi. Þá liggur sjúkraskrá kæranda fyrir í málinu þar sem kemur fram að kærandi hafi leitað á bráðadeild 15. desember 2023 vegna kviðverkja sem reyndust vera gallsteinar. Daginn eftir hafi hún farið í aðgerð til að láta fjarlægja gallblöðruna. Læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 25. ágúst 2023, liggur jafnframt fyrir í málinu þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram í samræmi við ákvæði sóttvarnalaga.
Kærandi lagði fram heilsufarsgögn vegna A. Samkvæmt læknabréfi barnalækninga, dags. [...], kemur fram að A hafi heilsast vel eftir fæðingu. Kærandi hafi farið heim með barnið með heimaþjónustu ljósmóður á fyrsta sólarhring. Í fimm daga skoðun hafi A verið lögð inn á vökudeild vegna nýburagulu og þar sem hún hafi ekki verið að þyngjast. Hafi A verið sett í ljósameðferð og fengið næringu m.a. með magasondu. Hafi hún síðan verið útskrifuð af vökudeild eftir þriggja daga innlögn. Þá hafi kærandi leitað til læknis með A vegna hita og slappleika 5. nóvember 2023. A er [...] og engar frekari upplýsingar liggja fyrir um heilsufar hennar. Ekki eru forsendur til annars en að líta svo á að A sé við góða heilsu.
Kærunefnd tekur fram að kæranda var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 31. ágúst 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem kærandi telji hafa þýðingu fyrir mál sitt og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls hennar hjá Útlendingastofnun. Þá var kæranda, sem nýtur aðstoðar löglærðs talsmanns, jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 26. september 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Heilsufarsgögn bárust með greinargerð kæranda. Þá bárust frekari heilsufarsgögn og upplýsingar frá kæranda 8. febrúar 2024. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kæranda sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar kæranda og barns hennar og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kæranda eða barns hennar geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kæranda eða A sé með þeim hætti að þær teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Í því sambandi er sérstaklega vísað til þess að meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Að mati kærunefndar er heilsufar kæranda og barns hennar ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að kærandi og A hafi aðgang að grunnheilbrigðisþjónustu þar í landi en eins og áður hefur verið rakið eiga einstaklingar sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu að lögum sambærilegan rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu, og ríkisborgarar Ítalíu þó að þeir þurfi í einhverjum tilvikum að yfirstíga ákveðnar hindranir til að nýta rétt sinn. Kærandi hefur þá greint frá því að hún hafi notið heilbrigðisþjónustu í viðtökuríki. Telur kærunefnd því að aðstæður kæranda og barns hennar tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður kæranda og barns hennar geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Þá tekur kærunefnd fram að í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi kærandi greint frá því að hafa haft aðgang að heilbrigðisþjónustu á Ítalíu en að hún hafi ekki verið ánægð með þjónustuna.
Þá telur kærunefnd að gögn málsins beri ekki með sér að kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða að hún geti vænst þess að staða hennar, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Ítalíu kemur fram að einstaklingar með alþjóðlega vernd þar í landi hafi sama rétt á heilbrigðisþjónustu og ítalskir ríkisborgar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Framangreint fær að auki stoð í frásögn kæranda, en hún hafi fengið heilbrigðisþjónustu og m.a. farið með sjúkrabíl vegna veikinda. Er það mat nefndarinnar að almennar aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar á Ítalíu séu ekki þess eðlis að þær, einar og sér, teljist til sérstakra ástæðna. Í því sambandi hefur nefndin jafnframt litið til þess sem fram kemur í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga að efnahagslegar ástæður geti ekki talist til sérstakra ástæðna.
Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa orðið fyrir fordómum á Ítalíu. Af framangreindum gögnum verður ráðið að löggæslan sé virk og að kærandi geti leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra yfirvalda óttist hún um öryggi sitt á Ítalíu. Samkvæmt áðurnefndum skýrslum sæki yfirvöld á Ítalíu m.a. gerendur sem beiti konur ofbeldi til saka og þá er starfrækt neyðarlína fyrir þolendur ofbeldis sem þurfi aðstoð og tímabundinn dvalarstað. Af framangreindum gögnum verður ráðið að ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Lögreglan á Ítalíu reki m.a. stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori). Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar. Það er mat kærunefndar að aðstæður kæranda séu ekki slíkar að hún geti ekki borið sig eftir þeirri þjónustu sem hún og A eiga að lögum rétt á og þurfa á að halda. Með hliðsjón af framangreindum heimildum og gögnum málsins er það mat kærunefndar að kæranda og A standi til boða grunnþjónusta og vernd á Ítalíu. Kærandi hefur ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður hennar í viðtökuríki séu slíkar að viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsókn hennar til efnismeðferðar hér á landi.
Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars að líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast.
Líkt og að framan er rakið er kærandi handhafi alþjóðlegrar verndar á Ítalíu og er með dvalarleyfi þar í landi en A er fædd hér á landi. Kærunefnd telur ljóst af framangreindum gögnum að A geti fengið dvalarleyfi á Ítalíu á grundvelli alþjóðlegrar verndar móður sinnar. Það er mat kærunefndar á grundvelli framangreindra upplýsinga um aðstæður á Ítalíu og gagna málsins að flutningur kæranda og barns hennar til Ítalíu muni ekki hafa í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist. Að því er varðar aðgengi A að menntun sé ljóst að hún eigi lagalegan rétt á endurgjaldslausri menntun á Ítalíu fram til a.m.k. 16 ára aldurs. Jafnframt geta foreldrar sótt um pláss á leikskóla fyrir börn sín frá þriggja ára aldri. Þá mun A eiga sama lagalegan rétt til heilbrigðisþjónustu og ríkisborgarar Ítalíu að því gefnu að kærandi skrái A inn í heilbrigðiskerfið.
Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í málum kæranda og barns hennar og umfjöllunar um aðstæður barna með alþjóðlega vernd á Ítalíu er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Ítalíu samrýmist hagsmunum barnsins þegar litið er m.a. til öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Þá er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barns kæranda að umsókn þess verði ekki tekin til efnismeðferðar hér á landi.
Í greinargerð vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 472/2019 frá 7. nóvember 2019. Í því máli lágu fyrir ýmis heilsufarsgögn sem gáfu til kynna að kærandi, sem var einstæð móðir með þrjú börn á sínu framfæri, glímdi við andleg bágindi. Þá var málið svokallað Dyflinnarmál og ljóst að kærandi í því máli var á leið í málsmeðferð á Ítalíu en ekki handhafi alþjóðlegrar verndar. Þá hafi aðstæður í viðtökuríki tekið breytingum á þeim rúmu fjórum árum sem hafa liðið frá því nefndin kvað upp fyrrgreindan úrskurð. Kærunefnd telur einstaklingsbundnar aðstæður málanna af þeim sökum vera ólíkar og þ.a.l. ekki um sambærileg mál að ræða. Er því ekki unnt að fallast á að málið hafi fordæmisgildi fyrir mál kærenda.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda og barns hennar er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun 31. ágúst 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að hún og A hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá er ljóst að 2. málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga á ekki við í máli kæranda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að hún sótti um alþjóðlega vernd hér á landi, en hún lagði fram umsókn sína 23. júní 2023.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið rétt að hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallinn að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr. og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Í ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 70. mgr., kemur m.a. fram að það eitt að efnahagsstaða einstaklings versni við frávísun eða brottvísun frá aðildarríki nái ekki því alvarleikastigi að teljast vanvirðandi meðferð og brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þá verði greinin ekki túlkuð þannig að í henni felist skylda aðildarríkja til að sjá einstaklingum sem njóti alþjóðlegrar verndar fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum. Dómstóllinn áréttaði jafnframt að einstaklingur sem standi til að vísa brott geti ekki gert kröfu um áframhaldandi dvöl í ríki í því skyni að njóta þar heilbrigðis- eða félagsþjónustu. Veruleg skerðing lífsgæða sé ekki nægjanleg til að teljast brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans nema sérstaklega sannfærandi mannúðarástæður mæli gegn endursendingu, sbr. 71. mgr. ákvörðunarinnar. Málið varðaði flutning einstæðrar móður með tvö ung börn sem voru með viðbótarvernd til Ítalíu og komst dómstóllinn einróma að þeirri niðurstöðu að málsástæður hennar um að flutningur til Ítalíu væri brot á 3., 8. og 13. gr. mannréttindasáttmálans væru bersýnilega tilhæfulausar og að mál hennar væri af þeim sökum ekki tækt til meðferðar. Um inntak „sérstaklega sannfærandi mannúðarástæðna“ vísast til dóms Mannréttindadómstóls Evrópu í máli N. gegn Bretlandi (nr. 26565/05), frá 27. maí 2008, 42. mgr., og Sufi og Elmi gegn Bretlandi (nr. 8319/07 og 11449/07) frá 28. nóvember 2011, 281.-292. mgr., en dómarnir setja háan þröskuld fyrir því að meðferð eða aðstæður teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra réttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr., og Ibrahim o.fl. gegn Þýskalandi, C‑297/17, C‑318/17, C‑319/17 og C‑438/17, frá 30. apríl 2019, 83.-85. mgr.
Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika tengdum aðbúnaði flóttamanna sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. t.d. dóm Evrópudómstólsins í máli N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/1021, frá 21. desember 2011, 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti þar eða við flutninginn ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda viðtökuríkis hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr. og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður einstaklinga sem njóta alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki og einstaklingsbundinna aðstæðna kæranda er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsóknar kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi og flutningur hennar til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Þar sem kærandi nýtur alþjóðlegrar verndar í viðtökuríki telur kærunefnd jafnframt að tryggt sé að hún verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf hennar eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt framansögðu verður mál kæranda ekki tekið til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Brottvísun og endurkomubann
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Umræddar lagabreytingar voru m.a. gerðar til að tryggja að framkvæmd brottvísana hér á landi væri í samræmi við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2008/115/EB um sameiginleg viðmið og skilyrði fyrir brottvísun og endursendingum ríkisborgara utan EES sem dveljast ólöglega á yfirráðasvæði aðildarríkjanna (brottvísunartilskipunin) sem Ísland er skuldbundið af vegna þátttöku í Schengen-samstarfinu.
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 23. júní 2023. Eins og að framan greinir hefur umsókn hennar um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð. Hefur hún því ekki frekari heimild til dvalar. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun var kæranda gefið færi á að andmæla mögulegri brottvísun og endurkomubanni frá Íslandi. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við Ísland eða annað Schengen-ríki, en taldi endurkomubann vera ósanngjarna ráðstöfun gagnvart henni þar sem hún vilji alls ekki fara aftur til Ítalíu. Með vísan til framkominna gagna, athugasemda kæranda og umfjöllunar kærunefndar um aðstæður kæranda á Ítalíu telst brottvísun kæranda frá Íslandi og endurkomubann ekki fela í sér ósanngjarna ráðstöfun í skilningi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til 3. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal kærandi yfirgefa landið án tafar. Samkvæmt 2. mgr. 104. gr. laganna skal að jafnaði veita frest í 7-30 daga til sjálfviljugrar heimfarar. Með vísan til meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga verður að skilja orðalagið án tafar þegar veittur er frestur til sjálfviljugrar heimfarar svo að miða verði við lágmarksfrest í 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestur kæranda til sjálfviljugrar heimfarar er því 7 dagar og tekur ákvörðun um brottvísun og endurkomubann ekki gildi yfirgefi kærandi landið sjálfviljug án tafar. Af öllu framangreindu virtu er varakröfu kæranda um að falla frá brottvísun og endurkomubanni hennar hafnað. Ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann er staðfest.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Þorsteinn Gunnarsson Sandra Hlíf Ocares