15 mars 2024
/
Úrskurður nr. 278/2024
Hinn 15. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 278/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24020189
Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli [...]
Málsatvik
Hinn 15. febrúar 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. maí 2023, um að synja [...], fd. [...], ríkisborgara Líbíu, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurður kærunefndar var birtur fyrir aðila 15. febrúar 2024. Hinn 23. febrúar 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 5. mars 2024 barst kærunefnd greinargerð aðila. Hinn 12. mars 2024 bárust kærunefnd viðbótarmálsástæður aðila. Degi seinna bárust viðbótargögn frá aðila.
Málsástæður aðila
Aðili krefst þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan hann fer með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar verða málsástæður ekki reifaðar frekar.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Í 3. máls. 6. mgr. 104. laga um útlendinga kemur fram að krafa um frestun á réttaráhrifum skuli gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Líkt og að framan greinir var úrskurður kærunefndar í máli aðila birtur honum 15. febrúar 2024 og barst kærunefnd tölvubréf með beiðni aðila um frestun réttaráhrifa 23. febrúar 2024.
Með tölvubréfi kærunefndar til aðila, dags. 11. mars 2024, óskaði kærunefnd eftir skýringum á því hvers vegna beiðni aðila hafi borist að liðnum lögmæltum fresti. Í svari aðila, dags. 12. mars 2024, kom fram að aðili hafi fyrst fengið úrskurð kærunefndar í hendurnar 16. febrúar 2024 frá fyrrum talsmanni sínum og hafi því talið að birting hafi miðast við þann dag. Trúnaðarsamband aðila og fyrrum skipaðs talsmanns hafi lokið sama dag og hafi þeir ekki verið í neinum samskiptum eftir þann dag. Aðili hafi leitað til nýs talsmanns 23. febrúar 2024 og hafi aðili þá fullyrt að niðurstaða kærunefndar hafi legið fyrir 16. febrúar 2024. Aðili hafi verið á milli talsmanna og því ekki gert sér grein fyrir tímafrestinum. Hinn 13. mars 2024 lagði aðili fram viðbótargögn, þ.e. skjáskot sem sýnir samskipti aðila við fyrrum talsmann sinn á samskiptaforritinu „Whatsapp“. Skjáskotið sýnir að aðila var sendur úrskurður kærunefndar frá fyrrum talsmanni 16. febrúar 2024.
Við meðferð þessarar beiðni hefur kærunefnd leitast við að kanna hvort afsakanlegt verði talið að beiðni aðila um frestun réttaráhrifa hafi ekki borist fyrir lok sjö daga lögmælts frests og er þá horft til þess hvort aðila eða eftir atvikum lögmanni hans hafi af óviðráðanlegum ytri aðstæðum ekki verið unnt að leggja beiðnina fram innan tímamarka. Aðili hefur borið fyrir sig að vera á milli talsmanna og talið að birting hafi miðast við annan dag. Þá hefur aðili lagt fram gögn sem sýna að honum hafi borist úrskurðurinn 16. febrúar 2024.
Hvað þessi atriði varðar vísar kærunefnd annars vegar til afgerandi orðalags 3. máls. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga, þar sem segir að beiðni skuli lögð fram innan 7 daga frá birtingu og hins vegar til jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga. Að mati kærunefndar er ljóst að hinn lögmælti tímafrestur myndi missa marks ef fallist væri á að víkja frá honum vegna atvika sem rekja mætti til athafna eða athafnaleysis aðila eða eftir atvikum lögmanns. Í þessu sambandi áréttar nefndin að samkvæmt 1. mgr. 39. gr. stjórnsýslulaga teljast stjórnvaldsákvarðanir eða önnur gögn birt þegar aðili á kost á að kynna sér efni þeirra. Birting umrædds úrskurðar átti sér stað 15. febrúar 2024 þegar talsmanni aðila á grundvelli umboðs var sendur úrskurður nefndarinnar með tölvubréfi sem hann svo framsendi aðila daginn eftir. Það að aðili hafi leitað til lögmanns sem var ekki skipaður talsmaður breytir því ekki að síðasti dagur til að leggja fram beiðni um frestun réttaráhrifa var 22. febrúar. Þá var í úrskurði nefndarinnar leiðbeint um möguleika á frestun réttaráhrifa og hvenær slík beiðni þyrfti að vera fram komin.
Að öllu framangreindu virtu er það mat kærunefndar að aðili hafi hvorki lagt fram gögn né skýringar sem gefi til kynna að afsakanlegt verði talið að beiðnin hafi verið lögð fram utan lögmælts frests. Þá er ekkert annað í málinu sem bendir til þess að slíkar afsökunarástæður eigi við.
Þá verður ekki séð að aðstæður hafi breyst verulega frá því úrskurður sá sem óskað er frestunar réttaráhrifa á var kveðinn upp. Ítrekað er að frávísun á beiðni þessari kemur ekki í veg fyrir að kærandi höfði mál fyrir dómstólum.
Í ljósi alls framangreinds og með vísan til orðalags 3. máls. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga er það niðurstaða kærunefndar að vísa beiðni aðila um frestun á réttaráhrifum úrskurðar hans í máli KNU23060077 frá kærunefnd.
ÚRSKURÐARORÐ
Kröfu aðila er vísað frá.
The appellant’s request is dismissed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Þorsteinn Gunnarsson, formaður