26 mars 2024
/
Úrskurður nr. 324/2024
Hinn 26. mars 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 324/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24020197
Kæra [...]
á ákvörðun
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 26. febrúar 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. febrúar 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 8. febrúar óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir þriggja daga dvöl frá 24. febrúar til 26. febrúar 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. febrúar 2024. Hinn 26. febrúar 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.
III. Málsástæður og rök kæranda
Kærandi kvaðst á umsókn sinni ætla að ferðast til Ítalíu, Íslands og Hollands á tímabilinu 24. febrúar til 28. apríl 2024. Kærandi lagði fram afrit af staðfestingu bókunar á flugleggjum sem gefa til kynna að hann hygðist fara til Bretlands á milli heimsókna sinna inn á Schengen-svæðið. Í athugasemdum kæranda til kærunefndar kveður hann ástæðu synjunar Útlendingastofnunar vera þá að dvalarleyfi hans í Bretlandi gilti ekki nægilega lengi. Einnig kemur fram að á grundvelli hinnar kærðu ákvörðunar og samtals kæranda við starfsmann sendiráðs Íslands, hafi kærandi lagt fram staðfestingu á flugi til Indlands. Kærandi telur sig uppfylla öll skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar sem gildi á öllu Schengen-svæðinu á grundvelli 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Ný gögn voru ekki lögð fram á kærustigi.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að dvalarleyfi kæranda gilti ekki lengur en þrjá mánuði eftir brottför hans frá Íslandi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá íslenska sendiráðinu í London, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
Útlendingastofnun synjaði umsókn kæranda eins og áður segir á grundvelli þess að dvalarleyfi kæranda gilti ekki lengur en þrjá mánuði eftir fyrirhugaða brottför hans frá Íslandi. Þannig teldust rök ekki hafa verið færð fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar kæranda.
Í b-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga kemur fram það grunnskilyrði fyrir veitingu vegabréfsáritunar sem gildi á öllu Schengen-svæðinu, að útlendingur hafi heimild til að ferðast til baka til heimalands eða annars ríkis sem gildi a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar. Dvalarleyfi kæranda rennur út 30. maí 2024 og fyrirhuguð ferð hans frá Íslandi átti að vera 19. mars 2024. Fyrirhuguð ferð kæranda frá Amsterdam átti að vera enn síðar, eða 28. apríl 2024. Er því framangreint grunnskilyrði ekki uppfyllt.
Að framangreindu virtu hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Það grunnskilyrði að kærandi hafi heimild til að ferðast til ríkis sem gildi a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar, sbr. b-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, er ekki uppfyllt. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir