05 apríl 2024

/

Úrskurður nr. 347/2024


Hinn 5. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 347/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24010006, KNU24010005 og KNU24010007

Kæra [...],

[...],

barna þeirra og barnabarns

og [...]

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 1. janúar 2024 kærðu [...] fd. [...] ríkisborgari Venesúela (hér eftir K), [...] fd. [...] ríkisborgari Venesúela (hér eftir M) og uppkomin dóttir M og stjúpdóttir K, [...] fd. [...] (hér eftir A) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 18. desember 2023 um að synja kærendum og börnum þeirra K og M, [...] fd. [...] (hér eftir B) og [...] fd. [...] (hér eftir C), ásamt dóttur B, [...] fd. [...] (hér eftir D), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærendur krefjast þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum og börnunum, B, C og D, verði veitt alþjóðleg vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að kærendum og börnunum B, C og D verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kærendum og börnunum B, C og D verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og kærendum og börnunum B, C og D verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautaþrautavara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og málum kærenda og barnanna B, C og D verði vísað til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.

II. Málsatvik og málsmeðferð

M, A og C sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi 10. desember 2022. K, B og D sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi 13. apríl 2023. Kærendur komu í viðtal hjá Útlendingastofnun dagana 4. júlí 2023 (K), 7. júní 2023 (M), 4. október 2023 (A), 9. nóvember 2023 (B) og 12. júlí 2023 (C) ásamt löglærðum talsmönnum sínum. Með ákvörðunum, dags. 18. desember 2023, synjaði Útlendingastofnun kærendum og börnunum B, C og D um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærendum og börnunum B, C og D var jafnframt brottvísað frá landinu og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru þær ákvarðanir kærðar til kærunefndar útlendingamála 1. janúar 2024. Kærunefnd barst sameiginleg greinargerð fjölskyldunnar, 17. janúar 2024 og sameiginleg viðbótargreinargerð þeirra allra ásamt fylgiskjölum 29. febrúar 2024. Hinn 13. mars 2024 bárust frekari gögn frá kærendum. Kærunefnd óskaði eftir svörum frá kærendum við viðbótarspurningum og bárust svörin 26. mars 2024. Hinn 2. apríl 2024 bárust kærunefnd upplýsingar frá kærendum.

III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að kærendur, B, C og D, byggi umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki sínu vegna ofsókna af hálfu glæpamanna og stjórnvalda. B byggi auk þess á því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi er hún var 11 ára gömul.

Niðurstaða Útlendingastofnunar var sú að kærendur væru ekki flóttamenn og að þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum B og C kom fram að þau hafi mætt í viðtal ásamt talsmanni sínum. Fram kom að umsóknir B og C væru grundvallaðar á framburði þeirra og framburði foreldra þeirra og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum í málum foreldra hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna barnanna og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli foreldra barnanna, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að B og C væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barnsins D, kom fram að það væri svo ungt að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við það. Fram kom að umsókn D byggði á framburði móður þess, hinni ólögráða B, auk framburðar foreldra B (K og M), og þeim hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðunum foreldra B (K og M) hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna D og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli forsjáraðila D, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að D væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni og forsjáraðilum til heimaríkis.

Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. B, C og D var brottvísað frá landinu.

Útlendingastofnun tilkynnti kærendum, B, C og D, jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kærenda

Í sameiginlegri greinargerð kærenda, B, C og D til kærunefndar kemur fram að M, A og C hafi sótt um vernd 10. desember 2022. K, B og D hafi komið síðar til landsins og sótt um vernd 13. apríl 2023 þar sem B hafi verið ófrísk af D í desember 2022 og því ekki mátt fljúga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun hafi M greint frá því að hann hafi starfað sem lögreglumaður í [...] í Venesúela. Vegna sjúkdóms sem ber enska heitið [...] eða [...] hafi hann þurft að láta af störfum og farið á örorku. Þótt veikindi hans hafi verið alvarleg og um tíma ógnað lífi hans hafi hann náð heilsu á ný. M hafi greint frá því að hafa þó áfram fundið fyrir nokkrum einkennum en að nauðsynleg lyf hafi ekki verið fáanleg í Venesúela. Hann hafi fengið þau send frá frænku sinni í Kólumbíu. Í kjölfar veikindanna hafi M stofnað matvælafyrirtæki sem hafi orðið gjaldþrota 2018. Síðan þá hafi þau hjónin dregið björg í bú með sölu raftækja en mánaðarlaunin hafi þá numið um 300 til 350 bandaríkjadollurum mánaðarlega. Með þessum hætti hafi þau haft ráð á því að kaupa nauðsynjavörur og þjónustu. Kærendur hafi greint frá því að það drykkjarvatn sem þeim hafi staðið til boða hafi verið mengað og oft ódrekkandi. Ómögulegt hafi verið að drekka það vatn sem hafi komið úr krana og að þeir hafi bara virkað annað slagið.

Heilsa kærenda og barnanna væri almennt góð að undanskildum fyrrgreindum veikindum M. M greindi einnig frá því að sennilega væri A með [...] en enga aðstoð væri að fá við því í Venesúela. Þá hafi hið mikla andlega álag sem fjölskyldan hafi verið undir mánuðina fyrir flóttann frá Venesúela leitt til þess að meðgöngu B hafi verið stefnt í hættu. M tilheyri minnihlutahópi í Venesúela þar sem hann sé á móti stjórnvöldum og öllum sem það séu væri mismunað í Venesúela.

M greindi frá því að [...] á afmælisdegi B sem þá hafi verið ófrísk af D, hafi M verið á leið til þess að afhenda raftæki sem hann hafi selt fyrir 800 dollara. Er hann hafi ekið yfir hraðahindrun hafi hann verið stöðvaður af fjórum vopnuðum glæpamönnum, meðlimum hópsins Los Vizcaínos, sem hafi stigið um borð í bílinn. Þeir hafi hirt allt reiðufé af M og barið hann. Því næst hafi þeir tjáð M að ef hann myndi hlýða fyrirmælum þeirra myndi hann ekki lenda í vandræðum. M hafi í kjölfarið verið látinn bíða eftir yfirmanni glæpahópsins sem hafi ítrekað við M að allt færi vel ef hann gerði bara það sem honum væri sagt. M hafi í kjölfarið verið sendur í ferð með um tíu kassa af áfengi en síðan með byssur og fíkniefni. Sendiferðin hafi verið honum þvert um geð, enda telji hann sig heiðarlegan mann, en hann hafi ekki átt annarra kosta völ.

M greindi frá því að þegar hann hafi snúið aftur úr sendiferðinni hafi tveir lögreglumenn gefið sig á tal við glæpahópinn og tjáð þeim að M væri lögreglumaður. Glæpamennirnir hafi brugðist illa við þeim fréttum, lamið M og spurt hann hvers vegna hann hafi ekki sagt þeim frá því. M hafi þá sagt þeim að hann væri fyrrum lögreglumaður en í dag væri hann öryrki. M hafi talið sig þekkja einn lögreglufulltrúann, X, en sá hafi ítrekað sagt að best væri að drepa M þar sem hann væri líklegur til að segja til þeirra. M hafi grátbeðið um að sér yrði þyrmt, enda hafi þetta verið afmælisdagur dóttur hans. Yfirmaður glæpagengisins hafi tekið þá ákvörðun að M yrði fyrirgefið ef hann myndi fylgja þeim fyrirmælum sem honum yrðu gefin og starfaði fyrir gengið. M ætti að keyra bifreið fyrir glæpahópinn, afhenda fíkniefni og vopn. Í lok dags hafi M verið gert að skutla konum með CLAP matvörur frá ríkinu á nokkra staði. M kvaðst hafa reynt að leggja staðina á minnið gæfist honum kostur á að því síðar að kæra atburði dagsins. Hafi honum síðan verið gert að mæta klukkan átta morguninn eftir til að sinna svipuðum verkefnum fyrir gengið. M hafi verið hótað lífláti segði hann frá.

M greindi frá því að þegar hann hafi snúið heim aftur hafi afmælisveisla dóttur hans verið í gangi en stöðvuð snarlega er M hafi greint fjölskyldu sinni frá því sem gerst hafði. Hafi M verið ekið á spítala og um nóttina hafi þau öll gist heima hjá móður M, en þau hafi óttast um öryggi sitt heima fyrir. Morguninn eftir hafi meðlimir glæpagengisins hringt í M en hann hafi ekki svarað í símann. Um klukkustund síðar hafi tveir lögreglumenn komið að heimili þeirra og kynnt sig fyrir K sem vini M og óskuðu eftir að M kæmi með þeim. Annar lögreglumannanna hafi verið áðurnefndur X. M kvað mennina hafa haft í hótunum við sig og tjáð honum að ef hann léti aftur hjá líða að svara í símann myndi hann og allir í kringum hann deyja. Hafi þeir ítrekað að þeir vissu hvar M og fjölskylda hans byggi.

M hafi farið síðar um daginn á heimili móður sinnar þar sem bróðir hans hafi hvatt hann til þess að kæra. Það yrði þó að vera í öðru sveitarfélagi, [...], enda væri ekki mögulegt að gera það í þeirra heimasveitarfélagi þar sem gerendur væru lögreglumenn. M greindi frá því að þegar hann hafi lagt fram kæru vegna atviksins hafi lögreglumenn neitað að rita nafn spillta lögreglufulltrúans X í skýrsluna. M hafi verið tjáð að þar hafi einhver villt á sér heimildir og að ekki væri um X að ræða. Um kvöldið hafi M borist skilaboð frá X þar sem hann sagði M hafi gert mistök og að þau ætluðu að drepa M. M kvaðst hafa flýtt sér á lögreglustöðina þar sem hann hafi starfað áður og óskað eftir aðstoð við að kæra. Þar hafi honum verið tjáð að best væri ef hann yfirgæfi svæðið. M hafi verið tjáð að umræddur glæpahópur, Los Vizcaínos, dræpi gjarnan lögreglumenn sem störfuðu ekki fyrir þá, og að flestir lögreglumennirnir væru nú á þeirra vegum. M hafi strax í kjölfarið undirbúið flóttann. Hann hafi selt eignir sínar, íbúð sína og íbúð dætra sinna, lausamuni og bíl, til þess að fjármagna vegabréf og ferðalagið. Hinn 8. ágúst 2022 hafi M síðast heyrt í glæpahópnum, en þá hafi honum verið hótað lífláti. Í kjölfarið hafi hann skellt á og brotið sim-kort sitt til þess að koma í veg fyrir frekari samskipti.

Til stuðnings aðalkröfu sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga byggja kærendur á því að staða öryggis- og mannréttindamála í Venesúela sé almennt slæm. Kærendur vísa til úrskurðar kærunefndar útlendingamála frá því í júlí 2022. Kærendur vísa í ýmsar skýrslur um almennt ástand í Venesúela máli sínu til stuðnings.

Kærendur byggja á því að glæpahópurinn Los Vizcaínos teljist til vopnahópa sem starfi í tengslum við ríkisstjórn Venesúela sem treysti á slíka hópa, Colectivos, til að draga úr þreki almennings til að setja sig upp á móti stjórnarfyrirkomulagi landsins. Lögregla hafi enga getu eða vilja til að veita vernd gegn slíkum vopnuðum hópum. Vísa kærendur til skýrslu Armed Conflict Location & Event Data Project frá 2023 þar sem gerð sé grein fyrir sterkum tengslum milli hins opinbera og glæpahópa, en um þriðjungur gengjaofbeldis bitni á almennum borgurum samkvæmt gögnum frá 2022.

Kærendur byggja á því að ríkisstarfsmenn sem ekki séu samvinnufúsir yfirvöldum séu sérstakt skotmark yfirvalda og vopnahópa þeirra, Colectivos. Þá sé að finna fjölda frétta af því að lögreglumenn séu sérstakt skotmark hópanna þegar störf þeirra hindri starfsemi glæpahópanna. Til að mynda hafi að minnsta kosti 53 lögreglufulltrúar verið myrtir í Venesúela samkvæmt frjálsa fjölmiðlinum Effect Cocuyo. Kærendur vísa til frétta um morð Los Vizcaínos á lögreglufulltrúa í heimabæ kæranda, [...]. Þar komi fram að hópurinn sé sérstaklega þekktur fyrir mannrán, bifreiðastuld, fjárkúgun og manndráp. M hafi lagt fram myndband af yfirmanni Los Vizcaínos sem hafi haft samskipti við hann og hótað honum. Kærendur vísa til frétta um lögreglufulltrúa sem myrtir hafi verið af Colectivos glæpahópum. Kærendur byggja á því að M sé ekki aðeins almennur borgari heldur einnig fyrrum lögreglumaður og því hafi lítill gaumur verið gefinn í hinn kærðu ákvörðun í máli M.

Kærendur vísa til þess að B, C og D séu ólögráða börn og skylt sé að hafa það sem börnum sé fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar séu um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Einnig vísa kærendur til 1. mgr. 22. gr. sama samnings og 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Menntunarmöguleikar barnanna séu ekki tryggðir í Venesúela. Foreldrar þeirra hafi varla hætt þeim út úr húsi í Venesúela af ótta við hótanir sem M hafi borist og beinist berum orðum að fjölskyldu hans ekki síður en honum sjálfum. Hafi börnin því upplifað mikið óöryggi á eigin skinni. Þessa hafi hvergi verið getið í hinum kærðu ákvörðunum. Vísa kærendur til framburðar barnanna B og C í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þá séu umrædd börn kvenkyns og heilbrigðisþjónusta á sviði kynheilbrigðis sé, líkt og önnur heilbrigðisþjónusta í Venesúela, í lamasessi, yfir helmingur kvenna í Venesúela búi við ófullnægjandi fæðingarhjálp, skortur sé á getnaðarvörnum og þungunarrof sé refsivert nema í þeim tilvikum er lífi móður sé ógnað. Þá hafi borist fregnir af því að hermenn í Venesúela beiti konur og börn kynferðisofbeldi, skv. skýrslu Human Rights Watch frá 2023. Með vísan til framangreinds telja kærendur að með hliðsjón af einstaklingsbundnu mati á væntanlegum aðstæðum kærenda beri að veita börnunum vernd hér á landi.

Kærendur byggja á því að í hinum kærðu ákvörðunum hafi enginn gaumur verið gefinn að því hvað staða M sem fyrrum lögreglufulltrúa hafi haft fyrir atburðarás málsins. Ekki hafi verið rannsakað í hvaða sérstöku hættu umfram aðra borgara þeir lögreglumenn séu sem ekki starfi á vegum Colectivos. Brotið hafi verið gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá gera kærendur athugasemd við trúverðugleikamat Útlendingastofnunar.

Til stuðnings aðalkröfu sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga byggja kærendur á því að þau búi við ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna aðildar að þjóðfélagshópi, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur telji að samsafn ástæðna geri það að verkum að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Verði þeim gert að snúa aftur stafi þeim ógn bæði af stjórnvöldum, sem telji þá sem yfirgefið hafi landið föðurlandssvikara, og af glæpahópnum Los Vizcaínos, auk spilltra lögreglufulltrúa á borð við X. Kærendur byggja á því að þau málsatvik sem að framan séu rakin, auk almennra aðstæðna í landinu, geri ótta þeirra ástæðuríkan. Vísa kærendur til handbókar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna, um samsafn ástæðna. Kærendur telja að þeir tilheyri þjóðfélagshópi einstaklinga í Venesúela sem yfirgefið hafi landið og vísa til fréttaflutnings hér á landi vegna sjálfviljugrar heimfarar fyrrum umsækjenda um alþjóðlega vernd til Venesúela 15. nóvember 2023. Ásakanir venesúelskra stjórnvalda um landráð, í garð umsækjenda um alþjóðlega vernd, feli í sér ofsóknir í skilningi b- og d-liðar 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til frétta frá 2017, 2018 og 2019 um að venesúelsk stjórnvöld beiti lagaákvæðum um landráð gegn pólitískum andstæðingum.

Kærendur byggja á því að þau tilheyri þjóðfélagshópnum þolendur ofbeldisglæpa vegna þess ofbeldis sem M hafi verið beittur, svo og þeirra alvarlegu líflátshótana sem hafi beinst að fjölskyldunni allri. Þá tilheyri M einnig þjóðfélagshópnum fyrrverandi lögreglufulltrúi sem er mótfallinn ríkisstefnu landsins. Tenging sé á milli fyrrum starfsferils M og þeirra líflátshótana sem kærendum hafi öllum borist. Hefði M ekki verið fyrrum lögreglufulltrúi sem þekkti lögreglufulltrúann X, samstarfsmann glæpahópsins Los Vizcaínos, og hefði M ekki kært ofbeldið sem hann hafi orðið fyrir af þeirra hálfu, þá hefðu kærendur ekki setið undir jafn afdráttarlausri líflátshótun í kjölfarið frá glæpahópnum, sem og lögreglufulltrúanum X. Að auki byggja kærendur á því að sú ákvörðun þeirra að leggja inn kæru gegn glæpahópnum Los Vizcaínos, sem njóti stuðnings Maduro forseta, leiði til þess að þau séu einnig bendluð við stjórnarandstöðu, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til þess að þegar M hafi kært atvikið til lögreglu í öðru sveitarfélagi hafi kærendum borist ákafari og afdráttarlausari líflátshótanir. M hafi reynt eftir bestu getu að komast hjá því að vera þátttakandi í glæpastarfsemi umrædds glæpahóps, þvert á þau fyrirmæli sem honum hafi verið gefin af glæpahópnum og lögreglufulltrúanum X. Vegna alls framangreinds verði að telja ótta kærenda verulega ástæðuríkan, sér í lagi í ljósi hlutlægra heimilda og frétta um lögreglufulltrúa sem myrtir hafi verið af Los Vizcaínos, í heimabæ og heimasveitarfélagi kærenda. Aðstæður kærenda séu að þessu leyti frábrugðnar aðstæðum annarra borgara í Venesúela. Taka verði sérstakt tillit til þess að glæpasamtökin sem M óttist og lögreglufulltrúinn X, sem sé í samstarfi við hópinn, þekki M í útliti og viti hvar kærendur búi. Glæpahópurinn sé staðsettur í grennd við heimabæ þeirra og víðsvegar um landið. Ástæðuríkur ótti kærenda sé byggður á hlutlægum grundvelli, þ.e. þeim atvikum þegar M hafi verið rænt, hann neyddur til að framkvæma ákveðin verk og beittur ofbeldi, sbr. a-lið 2. gr. 38. gr. laga um útlendinga, auk þeirra líflátshótana sem M og kærendum öllum hafi borist, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi ekki og geti ekki hlotið vernd yfirvalda í Venesúela, enda séu yfirvöld sjálf völd að ofsóknum með ýmsum hætti, sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, svo sem fram komi í heimildum um Venesúela. Fyllilega sé skýrt að kærendur geti ekki treyst á vernd lögreglu gagnvart glæpastarfsemi.

Til stuðnings varakröfu sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga byggja kærendur á sömu málsástæðum og gerð er grein fyrir að framan í tengslum við aðalkröfu þeirra. Kærendur vísa til almenns ástands í Venesúela. Mannréttindabrot sem snerti kærendur séu fjölmörg. Fjöldi trúverðugra gagna liggi fyrir sem styðji frásögn kærenda. Kærendur óttist um líf sitt við það eitt að ganga á götum úti og telji sig tilneydd til að hafast við í felum í Venesúela, yrði þeim gert að snúa þangað aftur, af ótta við glæpahópa á heimasvæði þeirra. Kærendur séu fullviss um að vegna tengsla spilltra lögreglumanna við mál þeirra, myndu glæpahópar strax fá veður af veru þeirra í landinu yrði þeim gert að snúa aftur.

Til stuðnings þrautavarakröfu sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga byggja kærendur á því að réttarkerfi í Venesúela sé að hruni komið og mannréttindabrot séu þar ríkjandi sbr. röksemdir fyrir aðal- og varakröfum. Kærendur hafi þegar selt allar eigur sínar til að fjármagna ferðalagið til Íslands. Starfsemi M við sölu raftækja sé farin fyrir bí. Kærendur gætu því ekki framfleytt sér og fjölskyldu sinni yrðu þau send aftur til Venesúela og ekki greitt fyrir heilbrigðisþjónustu. Kærendur séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu sem aðilar að þjóðfélagshópi, enda séu þau þolendur hótana og ofbeldisglæpa af hálfu glæpasamtaka sem setið hafi fyrir M, reynt að myrða hann sem og hótað fjölskyldunni lífláti. Þá sé dýrt að kaupa drykkjarvatn. M hafi ekki alltaf getað fengið nauðsynleg lyf í Venesúela heldur fengið þau send frá ættingja búsettum erlendis. Kærendur vísa til þess að há glæpatíðni hafi valdið kærendum þjáningu, ótta og óöryggi og þau eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Venesúela þar sem langvarandi neyðarástandi hafi ríkt.

Til stuðnings þrautaþrautavarakröfu sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga byggja kærendur á því að 10. apríl 2024 séu liðnir 16 mánuðir frá því þau sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi og þann dag verði skilyrði 2. mgr. 74. gr. laganna öll uppfyllt.

Til stuðnings þrautaþrautaþrautavarakröfu byggja kærendur á því að í hinni kærðu ákvörðun hafi sérstakri stöðu M sem fyrrum lögreglufulltrúa enginn gaumur verið gefinn sem sé brot á rannsóknarreglu sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Lögreglumenn sem ekki starfi á vegum Colectivos séu í sérstakri hættu. Kærendur vísa til úrskurðar kærunefndar í KNU22100074 þar sem ákvörðun Útlendingastofnunar hafi verið felld úr gildi. Kærendur telja að í hinni kærðu ákvörðun hafi ekki verið lagt fullnægjandi mat á einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barnanna B, C og D. Um verulegan annmarka sé að ræða sem ekki sé unnt að bæta úr á kærustigi.

Kærendur byggja á því að innri flutningur í landinu sé ekki mögulegur fyrir þau þar sem stjórnvöld sjálf séu völd að mannréttindabrotum sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá telja kærendur að verði þau send til heimaríkis bryti það gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

Kærendur sendu sameiginlega viðbótargreinargerð til kærunefndar 29. febrúar 2024. Með viðbótargreinargerðinni fylgdu afrit af örorkuskírteini M ásamt venesúelskri löggjöf um réttindi fatlaðs fólks frá árinu 2007 og 2023. Kærendur byggja á því að í viðtali hjá Útlendingastofnun og í viðbótarskýringum til stofnunarinnar, dags. 3. október 2023, hafi M gert grein fyrir Wilexis glæpahópnum en hópurinn sé nefndur eftir höfuðpaur hópsins. Hópur þessi sé einn sá stærsti í Venesúela. M hafi alist upp í sama hverfi og Wilexis sjálfur og þeir þekki vel hvor til annars. Það hafi verið Wilexis sem hafi látið glæpamenn í Vizcaínos hópnum vita af því þegar M hafi tilkynnt á lögreglustöð það ofbeldi sem hann hafi orðið fyrir, enda séu hóparnir í samstarfi. Wilexis glæpahópurinn sé stór innan Venesúela og eigi sér marga bandamenn. Heimildir bendi einnig til þess að hópurinn njóti verndar stjórnvalda og sé dæmi um svokallaðan Colectivos glæpahóp þar í landi. Hópurinn hafi í talsverðum mæli komið að mannránum og fjárkúgunum, auk þess sem meðlimir stundi smygl og dreifingu fíkniefna. Hópurinn sé stærstur í [...], heimafylki kærenda. M telji að vegna tengsla hans við Wilexis sjálfan sé honum og fjölskyldu hans hætta búin. M vísar til fréttar frá því í febrúar 2024 um að Wilexis hafi myrt son sinn því hann hafi talað við lögregluna og svikið föður sinn. M óttist að fjölskylda hans sé útsett fyrir samskonar ofbeldi af hálfu Wilexis þar sem M hafi greint frá starfsemi Vizcaínos glæpahópsins sem sé náinn samstarfsaðili Wilexis glæpahópsins. Auki þetta enn á ástæðuríkan ótta kærenda um að verða fyrir ofsóknum umræddra glæpahópa.

Í viðbótargreinargerð er byggt á því að M sé með áðurnefndan [...]sjúkdóm sem sé alvarlegur og ólæknandi. Starfsgeta M sé því verulega skert. M hafi unnið við sölu raftækja í Venesúela en þeirri vinnu hafi hann stýrt frá heimili sínu enda hafi hann ekki sömu getu og almennir borgarar til að sinna hefðbundinni vinnu. Þessa vinnu hafi hann getað stundað vegna löggjafar í Venesúela sem miði að því að fatlaðir einstaklingar fái vinnu sem útsetji þá ekki fyrir frekara heilsutjóni. M geti vegna aðstæðna í Venesúela ekki gengið að því vísu að njóta slíkrar lagaverndar á ný, einkum eftir brottför fjölskyldunnar úr landi og þeirra móttaka sem þau megi eiga von á snúi þau aftur til landsins. Hafi M ekki aðgang að vinnustað sem taki tillit til líkamlegs ástands hans sé framfærslugetu hans og fjölskyldu hans verulegar skorður settar. Slíkt væri ekki hægt að tryggja í Venesúela þar sem opinberir innviðir séu gegnsýrðir af spillingu. Kærendur telji mikilvægt að tekið sé tillit til fötlunar M ekki síst í sambandi við 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Hinn 2. apríl bárust frekari upplýsingar frá kærendum. M vísar til fréttaflutnings á spænskri rás CNN af málflutningi þingmanns Evrópuþingsins Antonio López Izturiz White. Var vísað til fréttar og fréttatilkynninga um að sendiráð Argentínu í Karakas hafi tekið á móti leiðtogum stjórnarandstöðu og m.a. lýst áhyggjum af ástandi stofnana og áreiti og ofsóknum í garð stjórnmálamanna í Venesúela. Þá var í fréttinni greint frá viðbrögðum venesúelskra stjórnvalda við yfirlýsingu sendiráðsins.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín ásamt D. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og börnin B, C og D hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki tilefni til að draga framangreint í efa og byggir á því að kærendur og börnin B, C og D séu venesúelskir ríkisborgarar.

Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd með foreldrum sínum og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • Informe Annual de Violencia 2023 (Observatorio Venezolano de Violencia, desember 2023);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 27. mars 2024);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 31. mars 2024);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 27. mars 2024);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela Protection Analysis Update (Global Protection Cluster, 19. desember 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum.Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að morðtíðni í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi morðum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun morða til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 morð á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi orðið aukning í morðum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi verið fyrsta árið, frá árinu 2016, þar sem skráð morð af hálfu lögreglu hafi verið fleiri en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að morðtíðni það ár hafi verið 40,9 morð á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 morð hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á morðum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að morðtíðni fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 morð á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Fjárkúgunargjöld séu ákveðin í samræmi við kaupmátt þolandans ven geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Samkvæmt skýrslu EUAA hafi þrír sjómenn verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og morðin tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi kjötkaupmaður verið myrtur af hálfu glæpahóps í verslun sinni í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA sé engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Lögreglan í landinu sé þó treg við að grípa inn í og koma í veg fyrir ofbeldi í samböndum og sé ekki þjálfuð til að takast á við slík mál. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum sé lögunum sjaldan fylgt í raun.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafi aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og sé börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fá lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Leiðtogar trúfélaga sem gagnrýni stjórnvöld geti þó verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til samræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda byggir á endurriti af viðtali hjá Útlendingastofnun öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kærenda.

Kærendur byggja umsókn sína á því að þau hafi sætt ofsóknum af hálfu glæpahópa sem starfi með stjórnvöldum og lögreglu í Venesúela. Stjórnvöld séu sjálf völd að ofsóknum með ýmsum hætti, sbr. a-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Lögregla hafi ekki getu eða vilja til að veita vernd gegn slíkum hópum. M sé fyrrum lögreglumaður sem ekki starfi með slíkum hópum og tilheyri því sérstökum þjóðfélagshópi í aukinni hættu á ofsóknum. Tenging sé á milli fyrrum starfsferils M og þeirra líflátshótana sem kærendum hafi borist og beinist að allri fjölskyldunni. Að auki byggja kærendur á því að sú ákvörðun þeirra að leggja inn kæru gegn glæpahópnum Los Vizcaínos, sem njóti stuðnings Maduro forseta, leiði til þess að þau séu einnig bendluð við stjórnarandstöðu, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá geri samsafn ástæðna það að verkum að fjölskyldan hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir, m.a. vegna þess að stjórnvöld muni líta á þau sem föðurlandssvikara snúi þau aftur til Venesúela.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að efast um málsatvik í frásögn kærenda svo sem þeim er lýst í kaflanum um málsástæður og rök kærenda. M hafi verið stöðvaður [...]2022 af meðlimum Los Vizcaínos sem hafi rænt hann, barið hann, hótað honum og neytt í sendiferðir með ólöglegan varning, m.a. með stolna matarpakka. Glæpamennirnir hafi þá ekki vitað að M væri fyrrum lögreglumaður fyrr en lögreglumanninn X hafi borið að garði og borið kennsl á M. M hafi ekki svarað glæpamönnunum í síma daginn eftir en þá hafi þeir sótt hann að heimili hans, farið með hann í sendiferð og hótað honum og fjölskyldu hans lífláti. M hafi kært atvikið á lögreglustöð í nágrannasveitarfélagi en þar hafi lögreglumenn verið spilltir og ekki viljað rita nafn X í lögregluskýrsluna. Í kjölfarið hafi X sent M skilaboð um að til stæði að drepa M. M hafi þá farið á lögreglustöðina þar sem hann starfaði áður og beðið um aðstoð við að kæra en verið ráðlagt að yfirgefa svæðið þar sem umræddur glæpahópur væri hættulegur. M hafi þá farið að undirbúa flótta frá Venesúela og selt íbúðir, lausamuni og bíl til að fjármagna vegabréf og ferðalagið. Hinn 8. ágúst 2022 hafi M í síðasta skipti heyrt í glæpahópnum í síma og honum hafi verið hótað lífláti. Í kjölfarið hafi hann skellt á og brotið sim-kort sitt til að koma í veg fyrir frekari samskipti. Í viðtali greindi M frá því að hafa farið frá Venesúela 8. desember 2022. Frásögn M hlýtur stuðning í frásögn eiginkonu hans og dætra.

Í viðbótargreinargerð til kærunefndar greindi M nánar frá Wilexis glæpahópnum og tengslum sínum við forsprakka hans. M kvað Wilexis sjálfan hafa látið glæpahópinn Los Vizcaínos vita af því að M hafi kært atvikið [...]2022 til lögreglu í nágrannasveitarfélagi.

Í viðtali kváðust kærendur ekki vera aðilar að stjórnmálaflokki eða virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki sínu. Þá liggur fyrir að fjölskyldan varð sér út um vegabréf og fór úr landi án vandkvæða. Auk þess lagði M fram mynd af örorkuskírteini sem gefið var út af yfirvöldum í Venesúela 1. febrúar 2024 og gildir til 1. febrúar 2034. Framangreint bendir ekki til þess að M eða fjölskylda hans hafi sætt eða eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu Venesúelskra stjórnvalda.

Að því er varðar ætlaðar ofsóknir af hálfu glæpahópsins Los Vizcaínos liggur fyrir að þau K, B og D fóru frá Venúsúela 11. apríl 2023 eða fjórum mánuðum eftir að M, A og C yfirgáfu landið. B greindi frá því í viðtali að eftir að M, A og C höfðu farið frá Venesúela hefðu B og móður hennar ekki borist neinar hótanir, hvorki símleiðis né munnlega, en þær hafi þó verið á varðbergi. Þannig voru þær K og B, og síðar D eftir að hún fæddist, í rúma átta mánuði í Venesúela eftir að M heyrði síðast frá Los Vizcaínos án þess að verða fyrir áreiti. Í svörum sínum við viðbótarspurningum kærunefndar gaf M þá skýringu að K, B og D hafi dvalið í húsi móður M og því hafi þær ekki fundist, en húsið hafi verið skráð á nafn látinnar ömmu M. Glæpahópurinn hafi ekki þekkt nafn hennar. Af framangreindu verður dregin sú ályktun að fátt bendi til þess að glæpahópurinn Los Vizcaínos hafi verið að leita að kæranda eða fjölskyldu hans eftir 8. ágúst 2022.

Þá er ekki skýrt hvernig umræddur Wilexis og hópur hans tengist Los Vizcaínos glæpahópnum. Kærendur hafa þá ekki lagt grunn að þeirri staðhæfingu sinni að umræddur Wilexis þekki M persónulega eða hvernig hann á að hafa komist að því að M hafi lagt inn kæru vegna framangreindra atvika. Samkvæmt fréttum sem M lagði fram af umræddum Wilexis, kemur fram að hann sé eftirlýstur í Venesúela. Þá greina nýlegar heimildir frá því að nokkrar stórar öryggisaðgerðir hafi beinst að glæpahópi Wilexis sem og öðrum glæpahópum í landinu. Í ljósi framangreinds er það mat kærunefndar að kærendur hafi ekki leitt líkur að því að þeir aðilar sem hafi neytt M til þess að fara með þeim um á bíl sínum hafi slík tengsl við yfirvöld að þeim sé ómögulegt að leita aðstoðar þeirra vegna þess áreitis og hótana sem þau hafi sætt.

Ekki verður talið að staða M sem fyrrverandi lögreglumanns valdi því að hann sé sérstaklega útsettur fyrir ofbeldi af hálfu glæpahópa, enda greindi M frá því að hafa látið af störfum sem lögreglumaður árið 2012 og bar ekki fyrir sig að hafa lent í sérstöku áreiti vegna þess. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í viðtölum greindu M og K frá því að vera mormónar. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá 2023 er talið að u.þ.b. 168.500 einstaklingar, eða 0,5% af íbúafjölda Venesúela, tilheyri mormónakirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu (e. The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints). Af heimildum verður ekki ráðið að mormónar sæti ofsóknum á grundvelli trúar sinnar í Venesúela. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærendur hafi orðið fyrir ofsóknum eða eigi þær á hættu á þeim grundvelli að þau séu mormónar.

Í greinargerð er jafnframt vísað til stöðu kvenna og stúlkna í Venesúela, konur standi höllum fæti í samfélaginu einkum er varðar kynheilbrigði og kynbundið ofbeldi. Með vísan í framangreindar heimildir er ljóst að konur njóta sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Lög kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu og dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Verður því ekki lagt til grundvallar að K, A, B, C eða D eigi á hættu að sæta mismunun eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á grundvelli kyns síns.

Þá verður ekki séð af gögnum málsins að kærendur eða börnin B, C og D eigi á hættu að sæta ofsóknum af öðrum ástæðum sem tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. B kvaðst hafa orðið fyrir [...] en hún hafi ekki greint frá því þá fyrr en eftir komuna hingað til lands. Gerandanum, sem hafi verið vinur M, hafi síðar verið brottvísað frá Venesúela fyrir svipaðan verknað gegn öðrum aðila. B kvað aðstæður dóttur sinnar D myndu verða erfiðar í Venesúela. Hún sé ekki með stuðning frá barnsföður sínum og B væri undir lögaldri sem geri aðstæður hennar mjög erfiðar í Venesúela. B vísaði til óöryggis og ofsókna gegn föður sem ástæðu flótta frá Venesúela. Í viðtali við C kvað hún óöryggi hafa angrað sig mest og að kennarar hafi mætt illa til kennslu. Í október 2022 hafi kennslu verið hætt vegna verkfalls kennara. C vísaði til óöryggis og ofsókna gegn föður sem ástæðu flótta frá Venesúela.

Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barnsins D nægilega komið á framfæri með framburði móður þess, kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að B, C og D fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Kærunefnd horfir m.a. til þess að börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem flest eru heilsuhraust og vinnufær, að minnsta kosti K, sem og B sem er móðir D, og njóta börnin stuðnings þeirra. Líkt og áður greinir stendur börnum kærenda ásamt D til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá beri gögn með sér að börnin munu jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna, að þeim sé fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau og börnin B, C og D hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 4. mgr. 38. gr. laganna. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna.

Kærendur og börnin B, C og D uppfylla því ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kærenda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærendur séu í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærendur verði þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kærenda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 110 mgr., og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997, 40. mgr.).

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í framangreindum úrskurðum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.

Kærendur kveða að þau og börnin B, C og D hafi verið búsett í [...] í Venesúela. Samkvæmt landaheimildum er [...] staðsett í norðurhluta Venesúela og er [...] höfuðborg þess. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í [...]. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á þeim svæðum sem kærendur hafa tengsl við eða í Venesúela almennt.

Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði þau og börnin B, C og D send aftur til heimaríkis. Þá er ekkert í gögnum málsins og framangreindum framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra og barnanna leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður kærenda og barnanna B, C og D þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Kærendur, B, C og D uppfylla því ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærendur og börnin B, C og D uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki þeirra, er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kærenda og barnanna B, C og D í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali kvað M líkamlega heilsu sína í dag mjög góða. Hann væri þó með [...] og lagði hann fram gögn þess efnis. M kvaðst hafa unnið á Íslandi og það hafi gengið mjög vel. Andlega heilsu sína kvað M vera góða. M kvaðst hafa verið metinn með örorku vegna sjúkdóms síns árið 2012. Lýsti hann því að hafa fengið heilbrigðisþjónustu í Venesúela en frá árinu 2014 hafi hann ekki getað fengið lyf ([...]) í Venesúela. Frænka hans í Kólumbíu hafi getað keypt lyfin fyrir hann. Í viðbótargreinargerð til kærunefndar kemur fram að umræddur sjúkdómur sé alvarlegur og ólæknandi. Starfsgeta M sé verulega skert sem hafi komið fram í sjálfboðavinnu M á Íslandi, en M hafi ekki sama þrek og aðrir sjálfboðaliðar. Í Venesúela hafi M unnið við sölu raftækja en þeirri vinnu hafi hann getað stýrt frá heimili sínu. Þessa vinnu hafi hann getað stundað á grundvelli löggjafar í Venesúela sem geri fötluðum einstaklingum kleift að fá vinnu við hæfi. M þurfi að hafa aðgang að vinnustað sem taki tillit til líkamlegs ástands hans og snúi hann til baka verði það ekki í boði. Að mati kærunefndar bendir ekkert til þess að M eigi ekki rétt á meðferð við sjúkdómi sínum í Venesúela eða að hann sé með einhverjum hætti útilokaður frá slíkri meðferð, svo sem vegna alvarlegrar mismununar. Verður því ekki talið að M hafi ríka þörf fyrir vernd af heilbrigðisástæðum.

Í viðtali við K kvað hún líkamlega og andlega heilsu sína vera mjög góða. M og K kváðu börn sín almennt við góða heilsu. Í viðtali við A kvaðst hún vera við fullkomna heilsu líkamlega og góða heilsu andlega. M kvað hana vera með [...]. Í svörum við viðbótarspurningum kærunefndar kvað M að A hafi verið greind með [...] árið 2013, hún hafi einangrað sig frá öðrum, hér á landi eigi hún erfitt með svefn og stari út í tómið. Engin gögn hafa verið lögð fram um greiningu A en ekki er ástæða til að efast um að hún sé með [...] . Af frásögn M verður þó ekki annað ráðið en að A hafi fengið heilbrigðisþjónustu í heimaríki sínu. Í viðtali við B kvaðst hún hafa farið fyrir mörgum árum í aðgerð við kviðsliti og í nefkirtlatöku. Þá væri sjónin að angra hana. Hún væri komin með tíma hjá augnlækni hér á landi. Þá kvaðst hún hafa farið í bráðakeisaraskurð og að hún væri þunglynd. Hún hafi farið í eitt skipti til sálfræðings. B kvað dóttur sína D vera heilsuhrausta fyrir utan flensu.

Að framangreindu virtu er það mat kærunefndar að ekki verði talið að kærendur og börnin B, C og D séu í meðferð eða þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærendur og börnin B, C og D hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Þrátt fyrir erfiðar efnahagslegar aðstæður hafa kærendur greint frá því að hafa stundað atvinnu í heimaríki og átt þar eignir, s.s. tvær íbúðir, bíl og lausamuni. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau séu heilsuhraust og vinnufær, fyrir utan M sem hefur skerta starfsgetu en hefur þó getað unnið undanfarinn rúman áratug.

B kvaðst hafa orðið fyrir [...] en hún hafi ekki greint frá því fyrr en eftir komuna hingað til lands. Gerandanum, sem hafi verið vinur M, hafi síðar verið brottvísað frá Venesúela fyrir svipaðan verknað gegn öðrum aðila. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá eru í landinu starfandi félagasamtök sem aðstoða þolendur kynbundins ofbeldis í landinu í samstarfi við Mannfjöldasjóð Sameinuðu þjóðanna (UNFPA). B kvað aðstæður dóttur sinnar D myndu verða erfiðar í Venesúela. Hún sé ekki með stuðning frá barnsföður sínum og hún sé undir lögaldri sem geri aðstæður hennar mjög erfiðar í Venesúela. B er fædd [...]og verður því 18 ára [...]. Í fyrra viðtali B hjá Útlendingastofnun kvað hún móður barnsföður síns hafa aðstoðað hana við umönnun D. Þá hafi hún fengið aðstoð frá foreldrum sínum og móður barnsföður síns vegna kostnaðar við fæðingu D.

Kærunefnd telur að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við mat á þörf fyrir dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða hefur kærunefnd litið sérstaklega til aðstæðna barna í Venesúela. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barna kærenda ásamt D í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki kærenda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barnanna B, C og D í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Því er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður kærenda og barna þeirra ásamt D í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri þeim dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Samkvæmt gögnum málsins sóttu M, A og C um alþjóðlega vernd hér á landi 10. desember 2022 og K, B og D 13. apríl 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barnanna B, C og D. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barnanna B, C og D þangað.

Athugasemdir kærenda við ákvarðanir Útlendingastofnunar

Kærendur gerðu ýmsar athugasemdir við málsmeðferð og mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika og heimildum um Venesúela. Kærunefnd hefur farið yfir hinar kærðu ákvarðanir og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. Þar á meðal er trúverðugleikamat, mat á málsmeðferð Útlendingastofnunar og mat á almennu ástandi í Venesúela. Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og telur ekki tilefni til að gera athugasemdir við hana. Þá hefur nefndin komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sóttu M, A og C um alþjóðlega vernd hér á landi 10. desember 2022 og K, B og D 13. apríl 2023. Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barnanna B, C og D um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda, B, C og D til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kærendum og börnunum B, C og D úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnunum B, C og D frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. M kvað bróður sinn búa hér á landi og að hann ætti frænkur á Spáni sem væru að sækja um dvalarleyfi þar í landi. Kvaðst hann muna fylgja reglunum í landinu. K kvaðst ekki eiga ættingja á Schengen-svæðinu og kvað engar ástæður fyrir hendi til að telja brottvísun ósanngjarna ráðstöfun. A kvaðst eiga ömmu á Spáni sem hún væri ekki í sambandi við. A kvað ósanngjarnt að brottvísa þeim frá landinu þar sem það hafi verið erfitt fyrir þau að koma hingað, þau hafi þurft að selja húsið sitt og allar eigur til þess að fjármagna ferðalagið.

Af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og barnanna B, C og D og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð kærenda eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Í ákvörðunarorðum í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum kærenda og barnanna B, C og D er þeim brottvísað og kærendum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi þau landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda, B, C og D til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi kærendur landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barna þeirra ásamt D staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kærenda og barnanna B, C og D eru staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellants and the children B, C and D are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.


Þorsteinn Gunnarsson

Gunnar Páll Baldvinsson

Valgerður María Sigurðardóttir