11 apríl 2024

/

Úrskurður nr. 367/2024


Hinn 11. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 367/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020162

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 20. febrúar 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Bandaríkjanna (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. febrúar 2024, um að synja honum um langtímavegabréfsáritun.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni hans um langtímavegabréfsáritun.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Tekið skal fram að umsókn sonar kæranda um langatímavegabréfsáritun var unnin samhliða þessari og er fjallað um hana í úrskurði kærunefndar nr. 366/2024.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ásamt síðari breytingum, og ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Samkvæmt gögnum málsins kom kærandi til Íslands 7. janúar 2024 á grundvelli 90 daga áritunarfrelsis sem ríkisborgari Bandaríkjanna. Kærandi lagði fram umsókn um langtímavegabréfsáritun 26. janúar 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 14. febrúar 2024. Hinn 20. febrúar 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda. Hinn 5. mars 2024 lagði kærandi fram greinargerð og frekari gögn vegna málsins.

Með kæru óskaði kærandi jafnframt eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefnd, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð rekur kærandi ástæður þess að hann óski eftir langtímavegabréfsáritun. Ástæða dvalar kæranda á Íslandi sé vegna þess að hann eigi föður sem sé íslenskur ríkisborgari. Þá eigi kærandi íslensk systkini sem eigi afkomendur. Kærandi eigi í góðum samskiptum við ættingja sína hér á landi og vilji rækta þau tengsl frekar. Kærandi hafi komið til landsins ásamt syni sínum í framangreindum tilgangi en sonur kæranda hafi auk þess fengið boð um að leika [...] með [...]út ágúst 2024 þangað til hann byrji í háskóla. Sonur kæranda hafi einnig sótt um langtímavegabréfsáritun en fengið synjun á umsókn sinni hjá Útlendingastofnun. Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi sótt um íslenskan ríkisborgararétt og umsókn hans um langtímavegabréfsáritun sé liður í þeirri vegferð kæranda að fá íslenskan ríkisborgararétt sinn endurveittan. Kærandi vilji tengjast landi og þjóð. Kærandi telur að grundvöllur dvalar hans hér á landi sé fjölskyldusameining við nafngreinda ættingja sína þó svo systkini og afkomendur þeirra falli ekki undir nánustu aðstandendur í skilningi 69. gr. laga um útlendinga. Þá sé ekki tæmandi talið hvað „annar lögmætur tilgangur“ feli í sér í merkingu c-liðar 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga. Kærandi gerir kröfu um að umsókn hans um langtímavegabréfsáritun verði afgreidd samhliða umsókn sonar síns enda sé mikilvægt að kærandi fái að dvelja hér á landi með syni sínum fái hann veitta slíka áritun.

Á kærustigi lagði kærandi fram afrit af útrunnum íslenskum vegabréfum sínum. Hið fyrra útgefið [...] en hið síðara [...].

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Í 1. mgr. 21. gr. laga um útlendinga segir að langtímavegabréfsáritun megi veita þegar umsækjandi óskar eftir dvöl umfram 90 daga en tilgangur dvalar sé ekki af ástæðu sem tilgreind sé almennt í dvalarleyfisflokkum og ekki sé ætlun umsækjanda að setjast að á landinu. Vegabréfsáritun samkvæmt ákvæðinu verði ekki veitt til lengri tíma en 180 daga. Þá er nánar fjallað um skilyrði fyrir veitingu langtímavegabréfsáritunar í II. kafla reglugerðar um útlendinga.

Í 49. gr. laga um útlendinga er fjallað um dvöl án dvalarleyfis en þar kemur m.a. fram í 1. mgr. að útlendingum sé óheimilt án sérstaks leyfis að dveljast hér lengur en 90 daga frá komu til landsins. Dvöl í öðru ríki, sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu, telst jafngilda dvöl hér á landi. Í 4. mgr. er ráðherra veitt heimild til að setja reglugerð um frekari undanþágur frá kröfu um dvalarleyfi.

Í athugasemdum við 21. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga kemur fram að veita megi langtímavegabréfsáritun að því gefnu að tilgangur dvalar falli ekki undir aðra dvalarleyfisflokka og fullvíst sé að umsækjandinn ætli sér ekki að setjast að á landinu. Ekki er heimilt að endurnýja langtímavegabréfsáritun þannig að gildistími hennar verði lengri en 180 dagar nema í þeim tilvikum þar sem heimilt er að gefa út áritun til lengri tíma. Miðað er við að um sé að ræða samfellda dvöl í allt að 180 daga en eftir það tímamark er almennt skylt að skrá lögheimili á Íslandi og þá myndast jafnframt skattskylda hér á landi. Heimild til veitingar langtímavegabréfsáritunar er m.a. í þeim tilvikum þegar einstaklingar koma hingað til lands í lengri heimsóknir eða í ákveðnum tilgangi og verkefni viðkomandi taki lengri tíma en 90 daga. Hugsunin að baki ákvæðinu hafi verið að heimila komu einstaklinga hingað til lands sem ekki vilja setjast að hér en þurfa eða vilja dvelja hér á Íslandi í ákveðnum tilgangi sem getur ekki verið grundvöllur dvalarleyfis. Þau tilvik sem í framkvæmd voru felld undir dvalarflokk á grundvelli lögmæts og sérstaks tilgangs, sbr. þágildandi lög um útlendinga nr. 96/2002, muni nú verða færð undir langtímavegabréfsáritun. Eru það t.d. tilvik þar sem aðili hefur slasast eða veikst hér á landi og þörf er á að framlengja dvalarleyfi fyrir hann og aðstandanda á meðan á sjúkrahúsdvöl stendur eða vegna dómsmáls sem útlendingur er aðili að og stendur yfir fyrir íslenskum dómstólum. Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til breytinga á lögum um útlendinga nr. 96/2002, varðandi dvalarleyfi í lögmætum og sérstökum tilgangi, kemur m.a. fram að það sé skilyrði fyrir veitingu slíks dvalarleyfis að tilgangur dvalar sé lögmætur og sérstakur. Sem dæmi má nefna að undir þetta ákvæði gætu fallið nunnur og trúboðar sem koma hingað til lands, sem og útlendingur sem hefur sérstök tengsl við landið. Dæmi um útlending sem hefur sérstök tengsl við landið er útlendingur sem á von á barni með íslenskum ríkisborgara og er í sambúð með honum, en getur ekki fengið dvalarleyfi á grundvelli 13. gr. laganna. Þar sem um undanþáguákvæði er að ræða ber að túlka það þröngri skýringu. Samkvæmt 1. mgr. 3. gr. reglugerðar um útlendinga má veita útlendingi langtímavegabréfsáritun að fenginni umsókn og að uppfylltum skilyrðum laga og öðrum skilyrðum reglugerðarinnar. Í 2. mgr. segir að langtímavegabréfsáritun feli í sér heimild til dvalar hér á landi í allt að 90 daga og útlendingur sem sækir um slíka áritun skuli vera staddur hér á landi nema annað sé tekið fram í reglugerðinni. Dvöl útlendings þegar sótt er um slíka áritun skuli vera í samræmi við 49. gr. laga um útlendinga nema annað sé tekið fram. Langtímavegabréfsáritun sé einungis heimilt að gefa út einu sinni á hverju 12 mánaða tímabili.

Í 5. gr. reglugerðarinnar er fjallað um grundvöll langtímavegabréfsáritunar og eru í a-c liðum 2. mgr. nefnd í dæmaskyni tilvik sem geta verið grundvöllur slíkrar áritunar. Í a-lið 2. mgr. ákvæðisins kemur fram að heimilt sé að gefa út langtímavegabréfsáritun til aðstandenda, sbr. 1. mgr. 69. gr. laga um útlendinga, sem hyggjast koma í lengri heimsóknir hingað til lands. Heimilt sé að víkja frá aldursskilyrði foreldra umsækjanda við útgáfu langtímavegabréfsáritunar. Í b-lið 2. mgr. ákvæðisins er fjallað um vitni eða aðila að dómsmáli, og fjallar c-liðurinn um útlendinga sem koma hingað í öðrum lögmætum tilgangi, svo sem listamenn, vísindamenn eða íþróttamenn, enda kalli dvöl þeirra ekki á útgáfu dvalar- og/eða atvinnuleyfis.

Í 6. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um skilyrði langtímavegabréfsáritunar en þar kemur fram að umsækjandi skuli, ásamt umsókn, leggja fram öll þau gögn og vottorð sem Útlendingastofnun gerir kröfu um og teljast nauðsynleg við vinnslu umsóknar. Samkvæmt a. og e. lið 2. mgr. ákvæðisins skal umsækjandi m.a. sýna fram á boðsbréf frá gestgjafa eða bréf þar sem tilgangi dvalar hér á landi er lýst og gögn sem staðfesta tilgang dvalar hér á landi.

Loks mælir 7. gr. reglugerðar um útlendinga fyrir um ástæður þess að umsókn um langtímavegabréfsáritun skuli synjað. Í d-lið 1. mgr. ákvæðisins kemur m.a. fram að umsókn skuli synjað ef dvöl samræmist ekki tilgangi dvalar á grundvelli langtímavegabréfsáritunar.

Útlendingastofnun synjaði umsókn kæranda á þeim grundvelli að tilgangur dvalar kæranda uppfylli ekki skilyrði fyrir útgáfu langtímavegabréfsáritunar með vísan til 21. greinar laga um útlendinga og 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga. Kærandi eigi ekki aðstandendur hér á landi í skilningi a-liðar 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga. Þá var það mat Útlendingastofnunar að heimsókn kæranda knýi hann ekki til þess að vera hér á landi í lengri tíma en 90 daga. Tilgangur dvalar kæranda félli ekki undir ákvæði 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga, sbr. d-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar þar sem segi að umsókn um langtímavegabréfsáritun skuli synjað ef dvöl samræmist ekki tilgangi dvalar á grundvelli langtímavegabréfsáritunar. Var umsókninni því synjað á grundvelli 21. gr. laga um útlendinga.

Heimild til útgáfu langtímavegabréfsáritunar er undanþága frá kröfu um dvalarleyfi og ber sem slík að túlka þröngt. Ákvæði 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga felur ekki í sér tæmandi talningu tilvika varðandi útgáfu langtímavegabréfsáritunar. Af lestri ákvæðisins í heild og með vísan til þeirra dæma sem þar eru nefnd, að teknu tilliti til 49. gr. laga um útlendinga og lögskýringargagna, liggur fyrir að umsækjandi þarf annað hvort að hafa náin tengsl við Ísland í formi aðstandanda, sbr. a-liður ákvæðisins, eða þurfi að dvelja hér á landi í ákveðnum tilgangi og verkefni viðkomandi taki lengri tíma en 90 daga. Kærunefnd hefur yfirfarið röksemdir kæranda og fylgigögn málsins. Ekki verður séð að kærandi falli undir einhvern dvalarleyfisflokka laga um útlendinga hvað varðar tilgang dvalar kæranda hér á landi. Kærunefnd fékk þær upplýsingar frá talsmanni kæranda að íslenskur faðir kæranda búi í Bandaríkjunum. Kærandi á ekki aðstandendur hér á landi í skilningi a-liðar 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga. Þá verður ekki séð að heimsókn kæranda til annarra ættingja eða tilgangur dvalar hans til að rækja fjölskyldutengsl knýi hann á um að vera hér á landi lengur en 90 daga. Sem bandarískur ríkisborgari nýtur kærandi vegabréfsáritunarfrelsis til ferðalaga hingað til lands og getur hann á grundvelli þess ræktað tengsl við fjölskyldu sína. Tilgangur dvalar kæranda fellur því ekki undir ákvæði 2. mgr. 5. gr. reglugerðar um útlendinga, sbr. d-lið 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar.

Að öllu framangreindu virtu verður ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á langtímavegabréfsáritun staðfest. Með vísan til þeirrar niðurstöðu er ekki ástæða til að fallast á beiðni kæranda um frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration in the appellant’s case is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður