18 apríl 2024
/
Úrskurður nr. 385/2024
Hinn 18. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 385/2024
í stjórnsýslumálum nr. KNU23110093 og KNU23110094
Kæra [...]
,
[...]og barna þeirra
á ákvörðunum
Útlendingastofnunar
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 21. nóvember 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðunum Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir M) og [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir K) og barna þeirra, [...], fd. [...] (hér eftir A), [...], fd. [...] (hér eftir B) og [...], fd. [...] (hér eftir C), ríkisborgarar Nígeríu, um alþjóðlega vernd og vísa þeim frá landinu.
Þess er krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda og barna þeirra til efnismeðferðar, aðallega á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, en til vara á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, sbr. 42. gr. sömu laga.
II. Málsmeðferð
Kærendur lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 4. september 2023. Við leit að fingraförum kærenda í Eurodac gagnagrunninum 5. september 2023, kom í ljós að fingraför þeirra höfðu m.a. verið skráð í grunninn af yfirvöldum í Þýskalandi. Hinn 3. október 2023 var beiðni um viðtöku kærenda og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda í Þýskalandi, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá þýskum yfirvöldum, dags. 4. og 9. október 2023, samþykktu þau viðtöku kærenda og barna þeirra á grundvelli d-liðar 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun dagana 17. og 26. október 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 9. nóvember 2023 að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum 13. nóvember 2023 og barst kærunefnd greinargerð kærenda 23. nóvember 2023.
III. Ákvarðanir Útlendingastofnunar
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að þýsk stjórnvöld beri ábyrgð á meðferð umsókna kærenda um alþjóðlega vernd á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Umsóknirnar yrðu því ekki teknar til efnismeðferðar, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda fæli flutningur kærenda til Þýskalands ekki í sér brot gegn 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. mgr. 36. gr. laganna. Þá taldi Útlendingastofnun að kærendur hefðu ekki slík tengsl við Ísland að nærtækast væri að þau fengi hér vernd eða að sérstakar ástæður mæltu annars með því að taka bæri umsóknir kærenda til efnismeðferðar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendum var vísað frá landinu, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, og skyldu þau flutt til Þýskalands.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barnanna A, B og C kom fram að það væri niðurstaða stofnunarinnar, með vísan til niðurstöðu í málum foreldra þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, lög um útlendinga og barnaverndarlaga nr. 80/2002, að hagsmunum þeirra væri ekki stefnt í hættu með því að þeir fylgi foreldrum sínum til Þýskalands.
IV. Málsástæður og rök kærenda
Í greinargerð kærenda er vísað til viðtala þeirra hjá Útlendingastofnun og greinargerðar til stofnunarinnar hvað málavexti varðar. Kærendur telja að leggja beri mat á hagsmuni barna sinna á eigin forsendum, m.a. með hliðsjón af því að þau hafi myndað tengsl hérlendis. Börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og stjórnvöldum sé skylt að hafa það sem börnunum sé fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar séu um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Beri samkvæmt 1. mgr. 22. gr. sama samnings að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu flóttamanns fái viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um samningum og alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- eða mannúðarmála. Þá séu sömu sjónarmið áréttuð í 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafi greint frá því að A sé á [...] og hafa þau lagt fram heilsufarsgögn sem varpi ljósi á heilsufar hans, en A hafi enn ekki fengið fullnægjandi greiningu og meðferð. Þörf sé á frekari greiningu og meðferð sé mikil en hann muni ekki koma til með að hafa aðgang að slíku í Þýskalandi enda hafi kærendur þegar greint frá því að þar hafi A ekki fengið fullnægjandi stuðning við skólagöngu. Í sjúkragögnum kemur m.a. fram að hann sé í þörf fyrir [...]. Verði A gert að yfirgefa landið séu möguleikar hans til meðferðar útilokaðir. Með hliðsjón af þessu þyki tilefni til þess að A fái viðeigandi þjónustu hér á landi og sú ákvörðun sé betur fallin til að tryggja hagsmuni hans en endursending til Þýskalands. Kærendur telja að A sé í sérstaklega viðkvæmri stöðu samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, en börn teljist ávallt til sérstaklega viðkvæms hóps. A sé með sérþarfir og menningarlegir þættir leiði til þess að hann njóti sérstakrar verndar og umönnunar samkvæmt alþjóðasamningum. Kærendur gera athugasemd við að ekki hafi verið umfjöllun eða mat á sérþörfum hans en enga umfjöllun sé að finna í ákvörðun Útlendingastofnunar um heilsufar A umfram reifun á málavöxtum og skírskotun í frásögn kærenda. Ekkert liggi fyrir sem bendi til þess að þjónustuþörf A hafi verið metin sérstaklega. Staða barna með sérþarfir hafi ekki verið rannsökuð umfram almenna stöðu barna í Þýskalandi. Kærendur telji að almenn heimildatilvísun dugi ekki til þess að hnekkja trúverðugleika frásagnar kærenda eða uppfylla rannsóknarskyldu stofnunarinnar. A sé í þörf fyrir viðeigandi stuðningsúrræði. Kærendur telji að þau og þá sérstaklega K og A séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Kærendur vísa til 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Kærendur telji að Útlendingastofnun hafi borið skylda til að leggja ítarlegt mat á stöðu þeirra en það hafi ekki verið gert með fullnægjandi hætti. Í hinum kærðu ákvörðunum hafi kærendur ekki verið metin í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærendur andmæli mati stofnunarinnar og telja það haldið ágalla. Kærendur vísa til þess að það sé hlutverk kærunefndar að meta einstaklingsbundnar aðstæður þeirra og meta hvort andleg eða líkamleg veikindi þeirra eða afleiðingar alvarlegs ofbeldis eða pyndinga leiði til þess að sérstakar ástæður séu uppi í máli þeirra. Telji kærunefnd að þau gögn sem liggi fyrir um andlega og líkamlega heilsu kærenda varpi ekki skýru ljósi á stöðu þeirra beri nefndinni að óska eftir frekari gögnum eða eftir atvikum hlutast til um mat á heilsu þeirra eða senda málið til nýrrar meðferðar. K hafi greint frá því að vera [...] en engir verkferlar hafi verið virkjaðir eða frekari rannsókn farið fram á aðstæðum hennar. A sé á [...] og þurfi frekari greiningu og meðferð þar sem hann geti ekki tjáð sig. Kærendur telji framangreint leiða til þess að rannsókn málsins hafi verið háð annmörkum, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá hafi jafnræðisreglan verið brotin. Hvergi sé getið um heilsufarsgögnin eða efni þeirra í hinum kærðu ákvörðunum og telji kærendur því að efni hinna óþýddu gagna hafi ekki ratað inn í forsendur ákvarðananna. Jafnframt telja kærendur að menntunarmöguleikar A séu betri hér á landi.
Kærendur krefjast þess aðallega að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknirnar þeirra til efnismeðferðar á grundvelli 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Kærendur telji að þau muni verða fyrir alvarlegri mismunun í Þýskalandi verði þau endursend þangað. Kærendur vísa til 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum. K sé [...] og hún standi frammi fyrir því að sinna börnum sínum ein þar sem þýsk stjórnvöld hafi áður gert tilraun til þess að sundra fjölskyldunni. Kærendur telji að þýsk stjórnvöld muni vísa M úr landi verði þau endursend til Þýskalands. Kærendur hafi einnig orðið fyrir fordómum og mismunun í Þýskalandi sérstaklega tengt skólagöngu, greiningu og meðferð á A. Þannig sé fullvíst að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í Þýskalandi. Í ljósi alls framangreinds telji kærendur að sérstakar ástæður séu uppi í máli þeirra í skilningi 2. mgr. 36. gr. og að íslenskum stjórnvöldum beri skylda til að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar.
Til vara er þess krafist að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Íslensk stjórnvöld séu bundin af grundvallarreglu um bann við endursendingu (non-refoulement). Kærendur séu ósammála mati Útlendingastofnunar og vísa til þess að þau hafi fengið lokasynjun vegna umsókna sinna um alþjóðlega vernd í Þýskalandi og standi því frammi fyrir því að verða endursend til Ítalíu þar sem K hafi verið neydd í mansal. Með endursendingu til Þýskalands séu stjórnvöld því að gerast brotleg gegn 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Aðstæður kærenda og barna þeirra
Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur par á [...]sem eru stödd hér á landi ásamt þremur börnum sínum sem eru [...], [...]og [...]ára. Kærendur hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Ítalíu árið 2015. Þá hafi kærendur lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd í Þýskalandi árið 2018 en fengið synjun. Kærendur hafi komið hingað til lands 4. september 2023 og lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd. Kærendur greindu frá því að hafa búið í flóttamannabúðum á meðan þau dvöldu í Þýskalandi og fengið framfærslu frá þýskum stjórnvöldum. Kærendur hafi einnig haft aðgang að heilbrigðiskerfinu þar í landi. Kærendur hafi orðið fyrir fordómum í Þýskalandi og að A hafi ekki fengið þá þjónustu sem hann sé í þörf fyrir. K greindi frá því að líkamleg heilsa hennar væri ágæt en hún eigi erfitt með að muna hluti auk þess sem hún sé [...] sem hafi átt sér stað á Ítalíu. M greindi frá því að líkamleg heilsa hans væri fín og andleg heilsa hans væri í lagi. Þá hefði hann upplifað ofbeldi sem hefði áhrif á andlega heilsu hans. Kærendur greindu frá því að börn sín væru við góða heilsu en A hefði verið greindur með [...] í Þýskalandi.
Réttarstaða barna kærenda
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.
Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kærendur hjá Útlendingastofnun. Gögn málsins bera ekki annað með sér en að A, B og C séu almennt við góða heilsu og eigi í góðum tengslum við foreldra sína. Það er því mat nefndarinnar að allt bendi til þess að hagsmunum A, B og C sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða A, B og C verði ákvörðuð í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A, B og C eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.
Ákvæði 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:
c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.
Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland áðurnefnda Dyflinnarreglugerð, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.
Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Þýskalands á umsóknum kærenda og barna þeirra er byggð á d-lið 1. mgr. 18. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem þau hafi fengið synjun á umsóknum sínum um alþjóðlega vernd þar í landi. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja þýsk stjórnvöld um að taka við þeim, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Aðstæður í Þýskalandi
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður og málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum. Þá hefur kærunefnd lagt mat á þær skýrslur sem kærendur vísa til í greinargerð sinni.
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Germany (United States Department of State, 20. mars 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 - Germany (Amnesty International, 27. mars 2023);
- The AnkER centres. Implications for asylum precedures, reception and return (European Council on Refugees and Exiles, 26. apríl 2019);
Asylum Information Database, Country Report: Germany (European Council on Refugees and Exiles, 6. apríl 2023);
- Asylum Information Database, Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 29. maí 2019);
- Conclusions on Germany (European Commission against Racism and Intolerance, 28. febrúar 2017);
- Country Report – Immigration Detention in Germany: From Open Arms to Public Backlash (Global Detention Project, ágúst 2020);
- Freedom in the World 2023 – Germany (Freedom House, mars 2023);
- Report by Nils Muižnieks Commissioner for Human Rights of the Council Of Europe Following his Visit to Germany on 24th April and from 4 to 8 May 2015 (Council of Europe: Commissioner for Human Rights, 1. október 2015);
- Report to the German Government on the visit to Germany carried out by the European Committee for the Prevention of Torture and Inhuman or Degrading Treatment or Punishment (CPT) from 13 to 15 August 2018 (Council of Europe, 9. maí 2019);
- Upplýsingar af vefsíðu stofnunar gegn mismunun (https://www.antidiskriminierungsstelle.de/EN/homepage/homepage-node.html,);
- Upplýsingar af vefsíðu þýsku útlendingastofnunarinnar (www.bamf.de);
- Upplýsingar af vefsíðu KOK (https://www.kok-gegen-menschenhandel.de/en/kok/organization) og
- World Report 2024 – Germany (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Þýskaland er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Þýskaland verið aðili að Evrópuráðinu frá 13. júlí 1950 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu árið 1953. Þýskaland fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 1. október 1990, um borgarleg og stjórnmálaleg réttindi og um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi 17. desember 1973. Þá fullgilti Þýskaland barnasáttmálann 6. mars 1992. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 1. desember 1953.
Í skýrslu European Council on Refugees and Exiles (ECRE) frá árinu 2023 kemur fram að einstaklingar skuli sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi hjá þýsku útlendingastofnuninni (þ. Bundesamt für Migration und Flüchtlinge) eða lögreglunni. Lögum samkvæmt eigi umsækjendur rétt á gistirými í móttökumiðstöðvum (þ. Aufnahmeeinrichtung) frá því að þeir leggi fram umsókn sína og þar til niðurstaða liggur fyrir. Í skýrslunni kemur fram að árið 2022 hafi meðalmálsmeðferðartími útlendingastofnunar á umsóknum um alþjóðlega vernd verið rúmir sjö mánuðir. Umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eigi rétt á viðtali með aðstoð túlks, áður en ákvörðun er tekin í máli þeirra hjá þýsku útlendingastofnuninni. Í framangreindum gögnum kemur fram að umsækjendur sem fengið hafi synjun á umsókn sinni hjá þýsku útlendingastofnuninni geta kært niðurstöðuna til sérstaks stjórnsýsludómstóls (þ. Verwaltungsgericht). Fái umsækjendur synjun á umsókn sinni hjá útlendingastofnun eða stjórnsýsludómstól eigi þeir möguleika á því að leggja fram viðbótarumsókn (þ. Folgeantrag) um alþjóðlega vernd hjá útlendingastofnun. Ef nýjar upplýsingar eða gögn liggi fyrir í máli umsækjanda, aðstæður hafa breyst í máli hans eða verulegir annmarkar voru á fyrri málsmeðferð, geti skilyrði viðbótarumsóknar verið uppfyllt. Umsækjendur geti borið mál sitt undir þýska dómstóla sé viðbótarumsókn þeirra synjað. Jafnframt eigi umsækjendur þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á alþjóðlegri vernd hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða meðferð sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu.
Í skýrslu ECRE frá árinu 2023, um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi kemur fram að umsækjendum séu tryggð búsetuúrræði og mataraðstoð. Flestar móttökumiðstöðvar hafi þá stefnu að hýsa einstæðar konur og fjölskyldur í aðskildum byggingum eða álmum. Þá séu sumar móttökumiðstöðvar sem útvegi aðskilin herbergi fyrir einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Þá verður ráðið af skýrslu ECRE að umsækjendur um alþjóðlega vernd í Þýskalandi eigi rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt dómaframkvæmd þýskra dómstóla felur orðalagið „nauðsynleg heilbrigðisþjónusta“ ekki einvörðungu í sér bráðaþjónustu. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd sem glíma við sálræn áföll fengið aðgang að þjónustu sérfræðilækna og annarra meðferðaraðila. Þó eru dæmi um að umsækjendur hafa átt í erfiðleikum með að nálgast slíka þjónustu, m.a. vegna fjarlægða milli búsetu- og meðferðarúrræða. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að börn umsækjenda um alþjóðlega vernd eigi rétt á menntun í Þýskalandi til 16 ára aldurs.
Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér verður talið að þýsk stjórnvöld uppfylli skyldur sínar varðandi lögfræðiaðstoð til handa umsækjendum um vernd samkvæmt tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 32/2013 um málsmeðferð við veitingu og afturköllun alþjóðlegrar verndar, sbr. 19. og 20. gr. hennar. Samkvæmt skýrslu ECRE tryggi þýsk yfirvöld umsækjendum ekki lögfræðiaðstoð endurgjaldslaust við meðferð máls á fyrsta stjórnsýslustigi. Frá árinu 2019 hafi verið boðið upp á lögfræðiráðgjöf fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og var sú ráðgjöf endurbætt árið 2023, en hún nái ekki til lögfræðiaðstoðar á fyrsta eða öðru stjórnsýslustigi. Á kærustigi eigi umsækjendur kost á lögfræðiráðgjöf og fyrir dómstólum geti þeir sótt um aðstoð lögmanns á kostnað þýskra yfirvalda.
Í skýrslu samtakanna Freedom House frá árinu 2023 kemur fram að stjórnarskrá Þýskalands og annarri löggjöf sé ætlað að tryggja jafnræði meðal allra auk þess sem í þeim er að finna ákvæði sem leggi bann við mismunun á grundvelli uppruna, trúar og annarra ástæðna. Þá kemur fram í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022 að umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólk hafi orðið fyrir ofbeldi í Þýskalandi. Í skýrslu samtakanna Amnesty International kemur fram að árið 2021 hafi þýska ríkisstjórnin samþykkt aðgerðaráætlun til að uppræta hatursglæpi en þó hafi skort heildarstefnu við að uppræta kynþáttafordóma. Þá kemur fram í skýrslu samtakanna fyrir árið 2022 að aðgerðaráætlun gegn hægri-öfgastjórn hafi verið kynnt í mars 2023 en þar hafi ekki verið tekið á stofnana- og kerfisbundnum kynþáttafordómum. Þá sé starfrækt stofnun gegn mismunun (e. Anti-Discrimination Agency) í Þýskalandi sem einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun geti leitað til. Á vefsíðu stofnunarinnar kemur fram að hlutverk hennar sé fyrst og fremst að veita þolendum mismununar leiðbeiningar og aðstoð um það í hvaða farveg sé best að leggja mál þeirra.
Á vefsíðu þýsku samtakanna KOK (e. German NGO Network against Trafficking in Human Beings) kemur fram að í Þýskalandi séu frjáls félagasamtök sem hafi það að markmiði að vinna gegn hvers kyns mansali og geti þolendur mansals leitað sér aðstoðar og stuðnings í tilteknum miðstöðvum sem starfræktar séu víðsvegar um landið.
Ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 1. og 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því. Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með „aðild Íslands að Dyflinnarsamstarfinu hefur ríkið skuldbundið sig til að fylgja og virða þær reglur sem felast í Dyflinnarreglugerðinni“ og að „íslensk stjórnvöld sem starfa að útlendingamálum [beiti] ákvæðum reglugerðarinnar við mat á því hvaða ríki beri ábyrgð á meðferð umsókna um alþjóðlega vernd sem lagðar eru fram hér á landi.“ Ákvæði 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. byggir á heimild í 1. mgr. 17. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og felur í sér frávik frá þeirri meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram koma í reglugerðinni.
Á grundvelli 4. mgr. 36. gr. laga um útlendinga setti ráðherra reglugerð nr. 276/2018 um breytingu á reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, en með henni bættust tvær greinar, 32. gr. a og 32. gr. b, við reglugerðina. Í 32. gr. a reglugerðarinnar kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í ákvæðinu jafnframt talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar sem tilvikin eru talin upp í dæmaskyni geta aðrar aðstæður, sambærilegar í eðli sínu og af svipuðu alvarleikastigi, haft vægi við ákvörðun um hvort sérstakar ástæður séu til að taka mál umsækjanda til efnismeðferðar hér á landi, svo framarlega sem slíkar aðstæður séu ekki sérstaklega undanskildar, eins og efnahagslegar ástæður, sbr. 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar.
Samkvæmt 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar skal líta til þess hvort umsækjandi muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, svo sem ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki. Kærunefnd telur að orðalagið „muni eiga“ feli ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar. Orðalagið gerir þó kröfu um að tilteknar líkur verði að vera á alvarlegri mismunun, þ.e. að sýna verður fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir en að ekki sé nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.
Þá skal líta til þess hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Í reglugerðinni kemur fram að meðferð teljist, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur sé átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en umsækjanda muni ekki standa hún til boða. Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi lítur kærunefnd m.a. til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem hann þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.
Samkvæmt 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi umfram það sem leiðir af 2. mgr. 32. gr. a, nema það teljist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið. Þá tekur 3. mgr. 32. gr. a af tvímæli um það að efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Slíkar aðstæður gætu þó fallið undir 3. mgr. 36. gr. nái þær því alvarleikastigi sem við á, sbr. umfjöllun hér í framhaldinu.
Kærendur eru par á [...]sem eru stödd hér á landi ásamt þremur börnum sínum sem eru [...], [...]og [...]ára. K greindi frá því að líkamleg heilsa hennar væri ágæt en hún eigi erfitt með að muna hluti auk þess sem hún sé [...] á Ítalíu. M greindi frá því að líkamleg heilsa hans væri fín og andleg heilsa hans væri í lagi. Þá hefði hann upplifað ofbeldi sem hefði áhrif á andlega heilsu hans. Kærendur greindu frá því að börn sín væru við góða heilsu en A hefði verið greindur með [...] í Þýskalandi. Hafa kærendur lagt fram heilsufarsgögn frá Þýskalandi sem bera með sér að A hafi verið greindur með [...] þar í landi.
Kærunefnd tekur fram að kærendum var leiðbeint í viðtölum við fulltrúa Útlendingastofnunar dagana 17. og 26. október 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem þau telji hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð máls þeirra hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum jafnframt leiðbeint með tölvubréfi kærunefndar, dags. 21. nóvember 2023, um framlagningu frekari gagna í málinu. Engin frekari gögn um heilsufar hafa borist kærunefnd. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu telur kærunefnd að mál kærenda og barna þeirra sé nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.
Kærunefnd telur að gögn málsins beri ekki með sér að heilsufar kærenda og barna þeirra sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, eins og segir í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Af þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi verður ráðið að umsækjendur hafi fullnægjandi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Þá geta umsækjendur um alþjóðlega vernd sem glíma við sálræn áföll fengið aðgang að þjónustu sérfræðilækna. Í ljósi fyrirliggjandi gagna telur kærunefnd ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar við úrlausn málsins að kærendur og börn þeirra geti fengið viðhlítandi aðstoð í Þýskalandi. Telur kærunefnd því að aðstæður kærenda og barna þeirra tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá telur nefndin að heilbrigðisaðstæður þeirra geti ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði framhjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Samkvæmt framburði kærenda og framlögðum gögnum hafi þau haft aðgang að heilbrigðiskerfinu í Þýskalandi. Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari þeirra verði ekki stefnt í hættu.
Gögn málsins bera ekki með sér að kærendur og börn þeirra muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að hann geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærendur sér mismunað eða óttist þau um öryggi sitt að einhverju leyti geti þau leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.
Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru fjölskyldur sem leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd í Þýskalandi almennt vistaðar saman. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar.
Samkvæmt framangreindum heimildum kveða þýsk lög á um að öll börn á þýsku yfirráðasvæði eigi rétt á skyldubundinni menntun frá sex til sextán ára aldurs, til jafns við þýska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra í Þýskalandi og án endurgjalds. Þá eiga börn í Þýskalandi rétt á heilbrigðisþjónustu og er almenn læknisþjónusta tryggð fyrir börn. Þá vísar kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, m.a. í máli M.T. og aðrir gegn Svíþjóð nr. 22105/18 frá 20. október 2022, þar sem vísað er til þeirrar meginreglu að þrátt fyrir að barni muni vegna betur í einu aðildarríki mannréttindasáttmálans en öðru teljist það ekki falla undir hugtakið bestu hagsmunir barnsins.
Í greinargerð kærenda kemur fram að þau telji að þau séu einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og þá sérstaklega K og A. Kærunefnd áréttar að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð.
Kærendur gera athugasemd við að enga umfjöllun sé að finna í ákvörðun Útlendingastofnunar um heilsufar A umfram reifun á málavöxtum og skírskotun í frásögn kærenda. Ekkert liggi fyrir sem bendi til þess að þjónustuþörf A hafi verið metin sérstaklega. Þá hafi staða barna með sérþarfir ekki verið rannsökuð umfram almenna stöðu barna í Þýskalandi. Kærendur telji að almenn heimildatilvísun dugi ekki til þess að hnekkja trúverðugleika frásagnar kærenda eða uppfylla rannsóknarskyldu stofnunarinnar. Jafnframt hafi K hafi greint frá því að vera [...] en engir verkferlar hafi verið virkjaðir eða frekari rannsókn farið fram á aðstæðum hennar. A sé á [...] og þurfi frekari greiningu og meðferð þar sem hann geti ekki tjáð sig. Kærendur telji framangreint leiða til þess að rannsókn málsins hafi verið háð annmörkum, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá hafi jafnræðisreglan verið brotin. Hvergi sé getið um heilsufarsgögnin eða efni þeirra í hinum kærðu ákvörðunum og telji kærendur því að efni hinna óþýddu gagna hafi ekki ratað inn í forsendur ákvarðananna.
Af ákvörðunum Útlendingastofnunar má sjá að mat hafi verið lagt á aðgang umsækjenda um alþjóðlega vernd að viðeigandi heilbrigðisþjónustu í Þýskalandi með hliðsjón af þeim heilsufarsvandamálum sem þau glími við. Með tilliti til heildarmats í máli kærenda og barna þeirra telur kærunefnd ljóst að ítarlegri rannsókn á heilsufari þeirra og framlagning frekari gagna hefði ekki getað haft áhrif á niðurstöðu í málinu enda er ekkert sem bendir til þess að þau glími við mikil og alvarleg veikindi, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Er það mat kærunefndar að málsmeðferð Útlendingastofnunar hafi verið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga, sbr. 2. mgr. 23. gr. og 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 21. nóvember 2023, var kærendum leiðbeint um að leggja fram frekari heilsufarsgögn en engin heilsufarsgögn bárust. Kærunefnd tekur fram að heilsufarssaga A og frásögn K hvað varðar mansal sem hún greindi frá að hafa orðið fyrir, hafi verið lögð til grundvallar í málinu hjá Útlendingastofnun og kærunefnd.
Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd í Þýskalandi er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Þýskalands samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja beiðni um að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi, og fallast á að senda þau til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kærenda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.
Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barna þeirra er það mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi sérstakar ástæður sem mæla með því að mál þeirra verði tekin til efnismeðferðar hér á landi, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Kærendur kváðust í viðtölum hjá Útlendingastofnun dagana 17. og 26. október 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur og börn þeirra hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Þá telur kærunefnd ljóst að 2. málsliður 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi ekki við í máli kærenda þar sem ekki eru liðnir 12 mánuðir frá því að þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi, en þau lögðu fram umsóknir sínar 4. september 2023.
Ákvæði 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga
Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:
Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.
Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er kveðið á um að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan útlending til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd jafnframt að líta verði til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.
Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga lítur kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá hefur kærunefnd talið að til að stuðla að einsleitinni framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar á meðal aðildarríkja Dyflinnarsamstarfsins sé rétt að líta til dóma Evrópudómstólsins í málum sem tengjast framkvæmd reglugerðarinnar.
Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.
Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.
Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.
Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.
Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Enn fremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.
Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.
Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.
Áður hefur verið fjallað um málsmeðferð umsókna um alþjóðlega vernd í Þýskalandi, þ.m.t. möguleika umsækjenda til að fá ákvarðanir um synjun verndar endurskoðaðar af þýskum stjórnvöldum. Þýsk stjórnvöld eru bundin af sambærilegum reglum og Ísland um vernd gegn brottvísun umsækjenda um alþjóðlega vernd til ríkis þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum og lífi þeirra eða frelsi ógnað (non-refoulement). Að mati kærunefndar veitir málsmeðferð þýskra stjórnvalda nægilega tryggingu fyrir því að einstaklingsbundið mat sé lagt á aðstæður umsækjenda um alþjóðlega vernd í því skyni að tryggja að enginn umsækjandi sé sendur þangað sem líf hans eða frelsi er í hættu. Vegna umfjöllunar í greinargerð leggur kærunefnd áherslu á að við túlkun á því hvaða skyldur hvíla á ríkjum sem senda einstaklinga til annarra ríkja þar sem þeir kunna að vera sendir áfram til þriðja ríkis (e. indirect refoulement) hefur nefndin horft á hvort ríkið, sem senda á einstaklinginn til, veiti raunhæfa vernd (e. effective guarentees) til að tryggja að einstaklingar verði ekki sendir áfram í ómannúðlegar og vanvirðandi aðstæður, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi. Kærunefnd telur gögn málsins bera með sér að í Þýskalandi sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem líf þess eða frelsi sé ógnað. Samkvæmt framsögðu benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði í Þýskalandi, bæði fyrir landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Sambærileg aðferðarfræði er varðar mat á því hvort viðtökuríki tryggi raunhæfa vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða endursent til ríkja þar sem það eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eða lífi þess eða frelsi er ógnað kemur fram í dómi Hæstaréttar í máli nr. 405/2013, dags. 24. október 2013.
Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði í Þýskalandi, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd í Þýskalandi og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barna þeirra, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að þau eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.
Samkvæmt framansögðu verða mál kærenda og barna þeirra ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Frávísun
Kærendur komu hingað til lands 4. september 2023 ásamt börnum sínum og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kærendum og börnum þeirra því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.
Kærendur og börn þeirra skulu flutt til Þýskalands innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kærenda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.
Samantekt
Í máli þessu hafa þýsk stjórnvöld fallist á að taka við kærendum og umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd á grundvelli ákvæða Dyflinnarreglugerðarinnar. Í ljósi alls framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja því að taka til efnismeðferðar umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi og senda þau til Þýskalands með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru því staðfestar.
Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Athygli kærenda er einnig vakin á því að Útlendingastofnun getur frestað framkvæmd ákvörðunar með vísan til 2. mgr. 103. gr. laga um útlendinga vegna sérstakra aðstæðna útlendings eða vegna þess að ómögulegt sé að framkvæma ákvörðun að svo stöddu.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir
Bjarnveig Eiríksdóttir Gunnar Páll Baldvinsson