19 apríl 2024

/

Nr. 404/2024 Úrskurður

Hinn 19. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 404/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020048

 

Kæra [...]

og barna hennar

á ákvörðunum

Útlendingastofnunar

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. febrúar 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 24. janúar 2024, um að synja kæranda og börnum hennar, [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir A), og [...], fd. [...], ríkisborgara Nígeríu (hér eftir B) um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og kæranda og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og til þrautavara að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi krefst þess til þrautaþrautavara að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 29. október 2022. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum sama dag kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 11. nóvember 2022 var upplýsingabeiðni beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 34. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir nefnd Dyflinnarreglugerðin). Í tilkynningu Útlendingastofnunar til yfirvalda á Ítalíu, dags. 23. febrúar 2023, kom fram að þar sem þarlend stjórnvöld hefðu ekki svarað viðtökubeiðni stofnunarinnar innan tilskilins frest samkvæmt Dyflinnarreglugerðinni, liti stofnunin svo á að ítölsk yfirvöld hefðu samþykkt beiðnina, sbr. 2. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar. Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun, 8. desember 2022, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 17. apríl 2023 að taka umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, dags. 13. júlí 2023, voru ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar.

Þar sem ekki tókst að flytja kæranda og börn hennar til viðtökuríkis innan frests samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga voru mál þeirra tekin til efnismeðferðar hjá Útlendingastofnun. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 20. nóvember 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðunum, dags. 24. janúar 2024, synjaði Útlendingastofnun kæranda og börnum hennar um alþjóðlega vernd ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda og börnum hennar var jafnframt brottvísað frá landinu og var kæranda ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Voru ákvarðanir Útlendingastofnunar kærðar til kærunefndar útlendingamála 7. febrúar 2024. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 21. febrúar 2024 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn og upplýsingar í máli kæranda 23. febrúar og 11. apríl 2024.

III.    Ákvarðanir Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún sé í hættu í heimaríki vegna ofsókna af hálfu konungsins, Oba í Benín og aðila á hans vegum. Þá eigi dóttir kæranda á hættu að verða fyrir kynfæralimlestingum.

Niðurstaða ákvarðana Útlendingastofnunar var sú að kærandi og börn hennar væru ekki flóttamenn og að þeim skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda og börnum hennar var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í málum barnanna A og B, kom fram að þau væru svo ung að árum að ekki yrði talið tilefni til að taka viðtal við þau. Fram kom að umsóknir þeirra væru grundvallaðar á framburði móður þeirra og henni hefði verið synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Í ákvörðun í máli móður hefði jafnframt verið tekin afstaða til aðstæðna A og B og hvernig þær aðstæður horfi við einstökum þáttum ákvörðunarinnar. Var það niðurstaða Útlendingastofnunar með vísan til niðurstöðu í máli móður þeirra, að gættum ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, laga um útlendinga og barnaverndarlaga, að A og B væri ekki stefnt í hættu með því að fylgja móður sinni til heimaríkis.

Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. A og B var brottvísað frá landinu.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvarðananna, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að hún hafi verið að glíma við verki í líkamanum undanfarin fjögur ár. Kærandi hafi gengið í gegnum mikil veikindi á meðgöngu en börnin hennar hafi fæðst hér á landi eftir fyrirburafæðingu. Kærandi hafi flúið heimaríki vegna ótta við að vera seld í nauðungarvinnu eða vera sett í fangelsi í allt að 25 ár vegna kvaða sem hafi fylgt hefðum í fjölskyldu hennar og heimasvæði í Edo fylki. Kærandi hafi ung orðið þolandi kynfæralimlestinga og óttist að dóttir hennar muni einnig sæta kynfæralimlestingum af hendi fjölskyldumeðlima eða jafnvel heilbrigðisstarfsfólks. Um málsatvik að öðru leyti vísar kærandi til gagna málsins.

Kærandi byggir á því að hún óttist ofsóknir af hálfu konungsins, Oba í Benín og aðila á hans vegum. Þrátt fyrir að Nígería sé stjórnarskrárbundið fulltrúalýðveldi hafi hefðbundnir leiðtogar mikil áhrif, þá helst konungurinn af Benín. Þá séu lög byggð á hefð viðurkennd í nígerískum rétti. Dómstólar vitni í ákvarðanir konungsins í dómum sínum og svifaseint réttarkerfi geri það að verkum að úrlausnarvald konungsins sé meira en ella. Fjallar kærandi um slæma heilbrigðisþjónustu í heimaríki og stöðu kvenna þar í landi. Kærandi vísar til heimilda máli sínu til stuðnings og úrskurðar kærunefndar í máli nr. 315/2021 frá 8. júlí 2021. Kærandi fjallar jafnframt um hagsmuni barna sinna og vísar til þess að þau teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og stjórnvöldum sé skylt að hafa það sem börnunum sé fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar séu um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá beri samkvæmt 1. mgr. 22. gr. samningsins að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður fái viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- og mannúðarmála. Kærandi vísar jafnframt til 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. 207/2021 frá 20. maí 2021 þar sem fram komi að ofbeldi gagnvart börnum sé útbreitt vandamál í Nígeríu. Kærandi byggir á því að hún sé ein á ferð ásamt börnum sínum og glími við slæma líkamlega og andlega heilsu sem hafi áhrif á getu hennar til að sinna börnum sínum og á vinnufærni hennar. Kærandi vísar til þess að börnin hennar séu síðfyrirburar, fædd með keisara á 36 viku meðgöngu vegna meðgöngueitrunar hjá móður og vaxtaskerðingar hjá báðum tvíburum. Gögn málsins gefi til kynna að kærandi hafi óskað eftir stuðningi félagsþjónustu og barnaverndar og sótt hafi verið um tilsjón hjá barnavernd að ósk kæranda og í kjölfar tilkynningar til barnaverndar. Vísar kærandi til þess að skólaganga hennar sjálfrar hafi verið lítil sem engin þar sem fjölskylda hennar hafi ekki haft efni á að senda hana í skóla. Greiða þurfi fyrir alla menntun og heilbrigðisþjónustu og kærandi sé óskrifandi og lítið læs. Af sömu ástæðu muni hún ekki geta sent börnin sín í skóla. Kærandi vísar til skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2022 þar sem fram komi að stúlkur og konur sem óttist kynfæralimlestingar myndi tiltekinn þjóðfélagshóp. Menningarlegir þættir hafi þau áhrif að börn kæranda séu í enn viðkvæmari stöðu en börn almennt, þar sem fjölskyldan verði fyrir mismunun í heimaríki vegna félagslegrar stöðu sinnar og eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum. Í ljósi fyrri reynslu kæranda sé ljóst að framtíð barna hennar yrði stefnt í hættu ef þeim yrði gert að snúa aftur til Nígeríu.

Kærandi byggir á því að samsafn ástæðna leiði til þess að kærandi og dóttir hennar hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki. Kærandi byggir á því að dóttir hennar tilheyri þjóðfélagshópi ungra stúlkna í Nígeríu sem eigi á hættu að verða fyrir kynfæralimlestingum, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá tilheyri kærandi sjálf þjóðfélagshópi þolanda kynfæralimlestinga, í skilningi d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að þær ofsóknir sem dóttir hennar eigi á hættu að verða fyrir í heimaríki séu skýlaus og alvarleg brot á grundvallarmannréttindum í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Í því samhengi vísar kærandi til trúverðugrar frásagnar sinnar og heimilda um kynfæralimlestingar í heimaríki hennar. Þá vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar í máli nr. 307/2023 frá 25. maí 2023 og þess að með vísan til jafnræðisreglu verði að komast að sömu niðurstöðu í máli hennar. Kærandi vísar til þess að málsatvik í máli hennar bendi ekki til þess að fyrrum sambúðarmaki hennar muni fylgja kæranda til Nígeríu verði hún send þangað en hann sé staddur á Ítalíu. Kærandi muni því vera ein á ferð og geti ekki staðið í vegi fyrir því að dóttir hennar verði fyrir kynfæralimlestingum af hendi fjölskyldumeðlima eða jafnvel heilbrigðisstarfsfólks. Dóttir kæranda sé ung að aldri og kærandi sé ómenntuð. Landaupplýsingar bendi til þess að dóttir kæranda muni eiga kynfæralimlestingar á hættu um margra ára skeið og ekki sé tryggt að kærandi geti komið í veg fyrir það.

Kærandi andmælir því að þeir úrskurðir kærunefndar sem vísað sé til í hinni kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar hafi fordæmisgildi í máli hennar. Aðstæður í málunum séu ólíkar og umræddir úrskurðir séu eldri en framangreindur úrskurður kærunefndar nr. 307/2023 frá 25. maí 2023. Þá andmælir kærandi trúverðugleikamati Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun hvað varðar hættu dóttur kæranda á að verða fyrir kynfæralimlestingum.

Kærandi byggir jafnframt á því að hún hafi ástæðuríkan ótta á ofsóknum vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshóp, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sem elsta dóttirin í fjölskyldu tengdri konungnum í Benín borg, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að eiga á hættu að vera sett í 25 ára fangelsi í kastala í Benín borg. Sem elsta dóttirin í fjölskyldu sem tengist konungnum í Benín, Oba fjölskyldunni, hafi hún skyldu hefðum samkvæmt til að gerast þjónn í kastalanum í 25 ár. Hún þurfi jafnframt að vera hrein mey. Kærandi hafi lýst aðdraganda flótta síns með ítarlegum hætti og hvernig faðir hennar hafi greint henni frá hefðinni þegar hún hafi verið [...]. Kærandi hafi greint föður sínum frá því að hún væri ekki hrein mey sem væri mikið hneyksli. Ef það myndi koma í ljós í kastalanum að kærandi væri ekki hrein mey myndi hún í staðinn vera sett í fangelsi í 25 ár. Þá myndu foreldrar kæranda vera gerð útlæg úr konungsríkinu. Faðir kæranda hafi því hvatt kæranda til þess að flýja. Eftir að hún hafi flúið hafi fólk frá kastalanum komið að leita hennar. Lýst hafi verið eftir kæranda á landsvísu þar sem hún hafi verið álitin týnd. Kærandi byggir á því að hún óttist að vera send í fangelsi verði hún send til baka. Þær ofsóknir sem kærandi óttist að verða fyrir verði henni snúið aftur til heimaríkis séu skýlaus og alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Frelsissvipting og nauðungarvinna feli óumdeilanlega í sér ómannúðlega meðferð og þrælkun í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá feli ofsóknirnar sem hún óttist í sér brot á 3., 4. og 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Í ljósi leiðbeininga flóttamannafulltrúa sameinuðu þjóðanna sé enginn vafi á því að ofsóknirnar sem kærandi hafi orðið fyrir og óttist að verða fyrir séu vegna kyns hennar og ættarstöðu. Því sé kærandi einstaklingur í sérstökum þjóðfélagshópi, sbr. d-liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þá mótmælir kærandi trúverðugleikamati Útlendingastofnunar í hinni kærðu ákvörðun og telur að ályktun stofnunarinnar byggi á misskilningi fulltrúa stofnunarinnar á svörum kæranda. Byggt sé á því í hinni kærðu ákvörðun að kærandi hafi greint frá því að að nafn konungsins væri Ewuare en hann hafi ekki tekið við völdum fyrr en 2016. Kærandi byggir á því að hún hafi verið að vísa til þess hver væri núverandi konungur Benín. Þá hafnar kærandi því að ótti hennar sé bundinn við þann konung sem hafi verið við völd við flótta hennar frá heimaríki. Kærandi byggir á því að snúi hún aftur til heimaríkis muni einhver finna hana og fara með hana í kastalann að beiðni konungsins þar sem lýst hafi verið eftir henni. Kærandi geti ekki leitað verndar lögreglu eða fengið vernd vegna ofsóknanna sem hún óttist þar sem allir fylgi fyrirmælum konungsins.

Kærandi byggir á því til vara að henni og börnum hennar verði veitt viðbótarvernd með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Yfirgnæfandi líkur séu á því að kærandi og börn hennar verði fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð, jafnvel dauða, verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá sé öryggisástandið í Edo fylki almennt slæmt. Með hliðsjón af persónulegri stöðu kæranda sem þolandi kynfæralimlestinga og vegna kyns hennar og ættarstöðu leiki enginn vafi á því að kærandi uppfylli skilyrði viðbótarverndar. Byggir kærandi á því að innri flutningur sé ekki mögulegur fyrir hana og börn hennar. Kærandi hafi greint frá því að konungurinn í Benín sé hærra settur en aðrir konungar í Nígeríu og unnt væri að finna kæranda hvar sem hún væri stödd í heimaríki auk þess sem hún geti ekki leitað verndar hjá yfirvöldum. Þá vísar kærandi til þess að flutningur innanlands leysi dóttur hennar ekki undan þeirri hættu að verða fyrir kynfæralimlestingum. Kærandi sé fátæk og ómenntuð og hafi flúið á barnsaldri frá heimaríki. Í ljósi almennra viðhorfa í Nígeríu til einstæðra kvenna og stöðu þeirra sé það mat kæranda að ekki sé með sanngirni hægt að ætlast til þess að kærandi og börn hennar setjist að annars staðar þar sem hún hafi ekki bakgrunn og tengslanet. Vísar kærandi til leiðbeininga flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um flutning innanlands, athugasemda með 4. mgr. 37. gr. í frumvarpi til laga um útlendinga og úrskurðar kærunefndar í máli nr. 307/2023 frá 25. maí 2023.

Kærandi krefst þess til þrautavara að hún og börn hennar fái dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga vegna bágrar félagslegrar stöðu þeirra. Persónulegar aðstæður kæranda séu þannig að hún flúði heimaríki sitt barn að aldri og sé þolandi kynfæralimlestinga. Fyrir liggi að kærandi sé ein á ferð ásamt börnum sínum og glími við slæma líkamlega og andlega heilsu. Þá hafi kærandi lítið bakland í heimaríki og málsatvik gefi ekki til kynna að fyrrum sambúðarmaki kæranda muni fylgja henni til Nígeríu verði hún send þangað en hann sé núna á Ítalíu.

Kærandi krefst þess til þrautaþrautavara að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hún hafi lagt fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt börnum sínum 29. október 2022 og þau hafi enn ekki fengið niðurstöðu í málum sínum á stjórnsýslustigi. Hinn 28. febrúar 2024 verði 16 mánuðir liðnir frá því þau lögðu fram umsóknir sínar og með tilliti til þess séu skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga uppfyllt. Verði ekki fallist á að leggja tímafrest samkvæmt 32. gr. d-liðar reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, til grundvallar byggir kærandi á því að 29. apríl 2024 verði 18 mánuðir liðnir frá því þau sóttu um alþjóðlega vernd hér á landi. Með vísan til þess beri að veita þeim dvalarleyfi af mannúðarástæðum.

Þá byggir kærandi á því að með því að senda hana og börn hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við því að endursenda fólk þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu (e. non-refoulement), sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki myndi slík ákvörðun brjóta gegn 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi. Þá kemur fram í gögnum málsins að A og B hafi fæðst hér á landi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og börn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Leggur kærunefnd því til grundvallar að kærandi og börn hennar séu nígerískir ríkisborgarar.

Réttarstaða barna kæranda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
  • 2016 Strategic Conflict Assessment of Nigeria (Institute for Peace and Conflict Resolution, 2017);
  • 2021 Country Report on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23 – Nigeria (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual report on religious freedom (covering 2021) (USCIRF, apríl 2022);
  • Childs Rights Act Tracker (Partners West Africa Nigeria, https://www.partnersnigeria.org/childs-rights-law-tracker/ sótt 22. nóvember 2023);
  • Country Guidance: Nigeria – Common analysis and guidance note (EUAA, 19. október 2021);
  • Country of origin information report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs,2021);
  • Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (UK Home Office, júlí 2022);
  • Country Policy and Information Note- Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);
  • Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
  • DFAT Country Information Report - Nigeria (Austalian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • EASO COI Report – Nigeria - Actors of Protection (EASO, nóvember 2019);
  • EASO COI Report – Nigeria – Country Focus (EUAA, 4. júní 2017);
  • EASO COI Report – Nigeria – Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
  • EASO COI Report – Nigeria –Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
  • EASO COI Report – Nigeria – Trafficking in human beings (EUAA, 25. apríl 2021);
  • Freedom in the World 2023 – Nigeria (Freedom House, 2023);
  • Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (Socialprotection.org, 7. febrúar 2019);
  • Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
  • Medical Country of Origin Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
  • Nigeria: Country Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
  • Nigeria: Delstaten Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
  • Nigeria 2021 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State,2. júní 2022);
  • Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 25. apríl 2019);
  • Nigeria: Psykisk helsevern (Landinfo, 23. júní 2017);
  • Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 Rome (EUAA, 21. ágúst 2017);
  • Nigeria: Security Situation – Country of Origin Information Report (EUAA, 3. júní 2021);
  • Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC), 16. júní 2019);
  • Nigeria: Whether women who head their own household, without male or family support, can obtain housing and employment in Abuja, Lagos, Ibadan and Port Harcourt; government support services available to female-headed households (2017-November 2019) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. nóvember 2019);
  • Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
  • Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
  • The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
  • Social Institutions and Gender Index 2019 - Nigeria (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014.en.pdf);
  • The World Factbook – Nigeria (CIA, uppfært 14. nóvember 2023);
  • Upplýsingar af vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (https://www.migrationjointinitiative.org/countries/sahel-and-lake-chad/nigeria, sótt 23. nóvember 2023);
  • Violent Extremist in West Africa (Denmark – Immigration Service, COI Division, 28. júní 2020);
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, janúar 2018);
  • Vest-Afrika: Nettverk (Landinfo, 15. maí 2019)
  • Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022) og
  • World Report 2024 – Nigeria (Human Rights Watch, 11. janúar 2024)

Nígería er sambandslýðveldi með tæpa 231 milljón íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2021 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta, m.a. vegna takmarkana á réttindum þeirra til tjáningar og samkomu og einnig við að fá atvinnu hjá ríkinu.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2022, að töluverð spilling sé innan dómkerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Council (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmanns í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórnar lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 kemur fram að sérstök viðbragðsdeild vegna kvartana yfir störfum lögreglu hafi unnið að því að byggja upp traust almennings til lögreglunnar. Deildin taki á móti kvörtunum vegna starfa lögreglunnar og auðveldi úrlausn slíkra mála. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérstakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2021 er öryggisástand landsins hvað verst í norðurhluta Nígeríu þar sem hryðjuverkahópurinn Boko Haram ber ábyrgð á morðum mörg þúsund íbúa. Öryggisástand í norðurhluta og norðausturhluta Nígeríu hafi farið versnandi á árunum 2019 og 2020 og yfirvöld á viðkomandi svæðum geti einungis veitt takmarkaða vernd. Átök og árásir af hálfu hryðjuverkahópa hafi jafnframt átt sér stað í norðvesturhluta Nígeríu frá árinu 2019. Helstu átök í suðurhluta Nígeríu megi rekja til ágreinings í tengslum við olíuauðlindir á svæðinu. Samkvæmt skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2021 hafa öryggissveitir Nígeríu sætt gagnrýni fyrir að hafa ekki tekist að útrýma hættunni sem stafi af Boko Haram, en talið að til þess þurfi öryggissveitir landsins meiri mannafla, vopn, þjálfun og fjármagn. Yfirvöld hafi þó gripið til ýmissa aðgerða í þeim tilgangi að útrýma hryðjuverkahópnum, þ. á m. Boko Haram, en með takmörkuðum árangri.

Fram kemur í framangreindum gögnum að ofbeldi gegn börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaráætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016-2021), með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaráætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Samkvæmt vefsíðu Partners West Africa Nigeria hafa nú 34 af 36 fylkjum Nígeríu tekið lögin í gildi þ.á m. Edo fylki og Lagos fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.

Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá júlí 2022 og EASO frá 2019, er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengt sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-20%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurðar. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi hafði búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega 8 þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar eitt af markmiðum aðgerðaráætlunar til ársins 2030 um sjáflbærni (e. 2030 Agenda for Sustainable Development) sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.

Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu.

Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars 2023 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.

Í skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 og apríl 2022 kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram kemur að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðlög samtök og önnur ríki, þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo og skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í apríl 2022 hafi NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá kemur fram í skýrslu frá EASO frá árinu 2021 að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. NAPTIP vinni með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og andlegan stuðning. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP í einhverjum tilvikum fyrir aðkasti í samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu.  

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)) sem leitt sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Megin verkefni aðgerðarteymisins séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum s.s. Cross-river, Lagos, Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi vegna hefndaraðgerða þeirra aðila sem staðið hafi að baki mansalinu. Lögreglan í ríkinu hafi þá almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Samkvæmt skýrslu EASO frá apríl 2021 benda ýmsar heimildir til þess að mansalsgerendur einblíni frekar á að finna nýja þolendur mansals í stað þess að beita þolendur ofbeldi, sem enn standi í skuld við þá, þar sem þeir vilji síður draga að sér athygli lögregluyfirvalda í Nígeríu. Þrátt fyrir að dæmi séu um að fjölskyldur þolenda verði fyrir ofbeldi eða árásum af hálfu mansalsgerenda bendi heimildir til þess að slíkar hefndaraðgerðir séu sjaldgæfar samkvæmt framangreindri skýrslu EASO. Oft sé ástæðan sú að fjölskyldur þolenda komi að mansalinu sjálfu.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2020 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé starfrækt á vegum sveitarfélaga, annað stig sé starfrækt á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið sé starfrækt á vegum alríkisins. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins feli í sér almenna heilbrigðisþjónustu, m.a. mæðra- og ungbarnavernd, fyrir borgara Nígeríu og fái jafnframt minnsta fjármagnið af stigunum þremur. Því sé almenn heilbrigðisþjónusta almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Samkvæmt vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutninga­stofnunarinnar (IOM) hafa stofnanirnar síðan árið 2017 staðið að átaki er lýtur að endursendingu fólks til Afríkuríkja, m.a. Nígeríu. Verkefnið geri fólki kleift að snúa til baka til heimaríkis á öruggan og virðulegan hátt. Stofnanirnar hafi í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir í Nígeríu, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking), veitt ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Af greinargerð kæranda verður ráðið að hún byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún eigi á hættu ofsóknir í heimaríki af hálfu konungsins í Benín borg og aðila á hans vegum vegna hefðar. Þá eigi A á hættu að verða fyrir kynfæralimlestingum.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 20. nóvember 2023 greindi kærandi frá því að vera fædd í Edo fylki í Nígeríu og hafa verið búsett í Benín borg áður en hún flúði heimaríki sitt í febrúar 2008. Kærandi kvaðst eiga nafngreindan maka (hér eftir M) sem væri jafnframt barnsfaðir hennar. Kærandi hafi flúið heimaríki sitt vegna hefðar sem ríki í Benín borg. Samkvæmt hefðinni eigi fyrsta stúlkan úr hverri fjölskyldu sem hafi ættartengsl við konunginn í Benín borg að starfa sem þjónn í kastalanum í 25 ár. Þeir þurfi 14 stúlkur og 14 drengi og stúlkurnar þurfi að vera hreinar meyjar. Kærandi hafi greint föður sínum frá því að hún gæti ekki sinnt skyldu sinni þar sem að hún væri ekki hrein mey. Uppgötvist það að stúlka sem eigi að starfa fyrir konunginn sé ekki hrein mey sé hún sett í fangelsi í 25 ár. Faðir kæranda hafi verið áhyggjufullur og sagt kæranda að flýja af því aðilar á vegum konungsins kæmu á eftir henni. Foreldrar kæranda hafi gefið henni fjármuni til að komast í burtu. Kærandi hafi farið og hitt eldri bróður sinn í borginni Lagos og hafi dvalið hjá honum í eina nótt. Næsta dag hafi faðir kæranda hringt og greint kæranda frá því að aðilar á vegum konungsins hafi komið og leitað hennar en hann hafi sagt þeim að hann vissi ekki um kæranda. Aðilarnir hafi greint konungnum frá því að kærandi væri horfin og konungurinn hafi þá fyrirskipað þeim að upplýsa lögregluna, sjónvarps- og útvarpsstöðvar um að stúlka sem hafi átt að starfa í kastalanum væri horfin. Þegar faðir kæranda hafi heyrt þetta hafi hann haft samband við bróður kæranda og sagt honum að segja kæranda að fara frá landinu. Kærandi kvaðst hafa kynnst konu þegar hún hafi verið að bíða eftir rútu sem hafi einnig verið frá Benín borg og hún hafi boðið kæranda að koma með henni til Líbíu þar sem hún starfaði sem heimilishjálp og kærandi hafi gert það. Kærandi hafi verið búsett í Líbíu í þrjá til fjóra mánuði. Kærandi greindi frá því að hún væri eftirlýst í heimaríki og hún óttist að vera sett í fangelsi þar í landi snúi hún aftur þangað. Faðir kæranda hafi sagt henni að snúa ekki til baka áður en hann hafi látist árið 2016. Kærandi greindi frá því að móðir hennar og bróðir séu búsett í heimaríki en hún sé aðeins í sambandi við bróður sinn. Þau séu ekki í hættu eins og er en ef konungurinn kæmist að því að kærandi væri ekki hrein mey yrðu þau útskúfuð. Kærandi hafi ekki getað leitað til lögreglu þar sem lögregla starfi fyrir konunginn.

Áður en mál kæranda hlaut efnismeðferð sætti mál hennar meðferð á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar. Við þá meðferð lagði kærandi fram ýmis gögn, þ. á m. viðtal ítalskra yfirvalda við kæranda, dags. 1. ágúst 2022, vegna meðferðar umsóknar hennar um alþjóðlega vernd þar í landi. Í lauslegri þýðingu á því viðtali kemur fram að kærandi hafi flúið heimaríki sitt til að komast undan nauðungarhjónabandi við eldri mann. Kærandi hafi verið um [...]þegar faðir hennar hafi fengið háa fjárhæð lánaða hjá efnuðum manni og hafi lofað að greiða skuldina til baka ellegar gefa kæranda í hjónaband til hans. Faðir kæranda hafi stofnað fyrirtæki fyrir peningana en það ekki gengið og hann hafi tapað öllu. Aðilinn hafi verið vel þekktur, þekkt til lögreglu og átt stráka sem hafi starfað fyrir hann. Faðir kæranda hafi óskað eftir tíma til að greiða lánsfjárhæðina til baka en hafi ekki fengið að gera það. Maðurinn hafi oft látið handtaka föður kæranda og á endanum hafi hann og aðilar á hans vegum rænt föður hennar og myrt hann. Móðir kæranda hafi jafnframt neitað að gefa kæranda í hjónaband og eftir morðið á föður kæranda hafi hún tilkynnt manninn til lögreglu en það hafi ekki borið árangur. Móðir kæranda hafi óttast um kæranda og látið hana hafa pening til þess að flýja land. Kærandi hafi lagt á flótta frá heimaríki sínu árið 2008. Þá kemur fram í viðtalinu að kærandi hafi kynnst konu þegar hún hafi verið að bíða eftir rútu sem hafi boðist til að aðstoða kæranda. Þær hafi ferðast til Líbíu og kærandi hafi farið þaðan á bát til Ítalíu. Kærandi greindi frá því að hún hafi stundað vændi á Ítalíu en hafi síðar fengið vinnu á veitingastað. Kærandi greindi frá því að hún hafi kynnst nafngreindum manni, M, í matvörubúð á Ítalíu og hún hafi sagt honum frá því að hún ætti engan samastað. M hafi boðið henni að dvelja í stofunni hjá sér. Kærandi kvað M hafa unnið alla daga en hún kvaðst hafa unnið á veitingahúsinu öðru hvoru. Aðspurð greindi kærandi frá því að M væri ekki maki hennar heldur hafi aðeins aðstoðað hana við að starfa án samninga og veitt henni húsaskjól. Kærandi greindi frá því að fjölskyldumeðlimir mannsins sem hún hafi átt að ganga í hjúskap með í heimaríki væru enn á eftir henni og að krefja fjölskyldu hennar um pening. Þá hafi þeir látið handtaka bróður kæranda en honum hafi verið sleppt þegar þeir hafi séð að enginn borgaði tryggingu fyrir lausn hans. Kærandi kvaðst aðeins vera í sambandi við móður sína en ekki bróður sinn því hún vilji ekki að hann hafi símanúmerið sitt svo hann lendi ekki í vandræðum af þeim sökum. Kærandi kvaðst óttast að láta lífið líkt og faðir hennar snúi hún til baka. Þá greindi kærandi frá því að hún hafi kynnst maka sínum (hér eftir D) í matvörubúð þar sem hann hafi greitt fyrir hana í búðinni. D sé einnig frá Nígeríu og starfi sem götusali. D eigi barn en kærandi hafi ekki hitt það. Þegar viðtal við kæranda fór fram á Ítalíu var hún barnshafandi og kvaðst hafa verið ólétt í um mánuð.

Ljóst er af framansögðu að talsvert misræmi er á frásögn kæranda hjá íslenskum stjórnvöldum annars vegar og ítölskum stjórnvöldum hins vegar, s.s. varðandi ástæður flótta hennar, hver maki hennar sé, hvenær faðir hennar hafi látist og við hvern hún sé í samskiptum í heimaríki. Með tölvubréfi kærunefndar dags. 5. apríl 2024, var kæranda gefinn kostur á að veita skýringar og andmæli við misræminu. Í andmælum kæranda sem bárust kærunefnd 10. apríl 2024 kemur fram að viðtal við kæranda hjá ítölskum stjórnvöldum hafi farið fram á og verið ritað á ítölsku. Spurningar til kæranda hafi verið þýddar yfir á ensku og svör hennar þýdd yfir á ítölsku. Kærandi byggir á því að við mat á því hvort ósamræmis gæti í frásögn hennar sé nauðsynlegt að taka mið af bakgrunni kæranda, menningu og menntunarstigi í samræmi við leiðbeiningar flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um trúverðugleikamat. Bakgrunnur kæranda hafi mikil áhrif á getu hennar til að koma frásögn sinni til skila eins og gera megi ráð fyrir. Þá vísar kærandi til þess að hún sé með sterkan hreim, takmarkaðan og ófullkomin orðaforða og ónákvæma og ófullkomna málfræði. Það hafi haft þau áhrif að erfitt sé að skilja kæranda og hafa rétt eftir henni og það hafi m.a. haft áhrif í samskiptum kæranda við talsmann hennar og hún þurfi reglulega að endurtaka sig til að talsmaður hennar skilji inntak þess sem hún segi. Kærandi byggir á því að sá munur sem er á milli frásagnar hennar hjá ítölskum og íslenskum stjórnvöldum sé vegna skertrar getu hennar til að gera sig skiljanlega á ensku utan heimaríkis. Kærandi byggir á því að hún hafi lýst sömu ástæðum flótta á Ítalíu og hún hafi gert hér á landi. Á Ítalíu hafi kærandi vísað til valdamikils manns sem hefði marga menn í vinnu hjá sér og að hún hafi átt að fara til hans vegna hefðar. Þar hafi hún verið að vísa til konungsins í Benín. Kærandi hafi notað orðið „tradition“ sem hafi á ítölsku verið ranglega þýtt sem „traditional marriage“ og af því stafi misræmið. Fulltrúar ítalskra yfirvalda sem hafi tekið viðtal við hana hafi ekki skilið hana vel og hún hafi ekki skilið þá vel. Þá greindi kærandi frá því að ranglega hafi verið haft eftir henni hjá ítölskum yfirvöldum hvenær faðir hennar hafi látist. Hið rétta sé að hann hafi látist árið 2015 eftir að hún flúði heimaríki líkt og hún hafi greint frá í viðtali hér á landi en ekki árið 2008 þegar hún hafi flúið heimaríki líkt og komi fram í viðtali hjá ítölskum yfirvöldum. Greinir kærandi frá því að ítölsk yfirvöld hafi ranglega haft eftir henni hver maki hennar sé. Hún hafi greint ítölskum stjórnvöldum frá því að M væri maki hennar, líkt og hún hafi greint frá hér á landi. Þau hafi búið í sama herbergi og það væri D sem væri einungis vinur sem hafi aðstoðað hana fjárhagslega. Ítölsk stjórnvöld hafi víxlað nöfnum þeirra. Kærandi greinir jafnframt frá því að sambandi hennar og M sé nú lokið og hún viti ekki um afdrif D en hann hafi einungis verið vinur hennar. Þá greindi kærandi frá því að rangt hafi verið haft eftir henni í viðtali hjá ítölskum yfirvöldum um að hún væri ekki í samskiptum við bróður sinn. Kærandi gerir jafnframt athugasemd við að endurrit viðtals hennar hjá ítölskum yfirvöldum sé á ítölsku og ekki liggi fyrir formleg þýðing á því. Örðugt sé fyrir kæranda að sýna fram á með nánari hætti að hvaða leyti frásagnir hennar séu í samræmi og að hvaða leyti rangt hafi verið haft eftir henni. Rannsóknir sýni að eðlilegt sé að fram komi ólík atriði þegar frásögn sé sögð í annað skipti. Kærandi krefst þess að hún verði boðuð í viðtal hjá nefndinni og henni gefinn kostur á að færa fram frekari skýringar. Kæranda hafi ekki gefist kostur á lægra stjórnsýslustigi til að tjá sig um meint ósamræmi sem spurningar kærunefndar lúti að þrátt fyrir að þau gögn sem kærunefnd byggi á hafi legið fyrir á því stigi. Framangreint gangi gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga og meginmarkmið stjórnsýslukæru sé að tryggja réttaröryggi borgaranna með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Kærandi vísar jafnframt til andmælaréttar síns samkvæmt 13. gr. stjórnsýslulaga og 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga um að veita kæranda kost að koma fyrir nefndina en samkvæmt greinargerð með frumvarpi til laga um útlendinga sé ætlunin með heimild 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga að henni sé beitt þegar vafi sé uppi um trúverðugleika. Í fyrirspurn kærunefndar var kærandi beðin um að leggja fram uppfærð heilsufarsgögn og gögn frá barnavernd sem kærandi kvaðst ætla að leggja fram í greinargerð og lagði kærandi fram frekari gögn frá barnavernd en vísaði til heilbrigðisgagna sem þegar höfðu verið lögð fram.

Að mati kærunefndar er misræmi á milli kæranda hjá íslenskum stjórnvöldum annars vegar og ítölskum stjórnvöldum hins vegar það umfangsmikið að ekki verður fallist á með kæranda að rekja megi það til túlkunarvanda. Við það mat lítur kærunefnd til þess að þegar viðtal við kæranda hjá ítölskum stjórnvöldum fór fram hafði hún verið búsett á Ítalíu í fjórtán ár. Þá kemur fram í upphafi viðtalsins að viðtalið hafi farið fram á ensku líkt og kærandi hafi óskað eftir og kvaðst kærandi skilja túlkinn vel sem og það sem fram fór og gerði engar athugasemdir við framkvæmd viðtalsins. Að mati kærunefndar dregur framangreint misræmi verulega úr trúverðugleika frásagnar kæranda þar sem það varðar kjarna málsástæðna hennar og grundvöll umsóknar hennar, þ.e. ástæðu þess að hún kveðst hafa flúið heimaríki sitt sem og fjölskylduaðstæður hennar. Að mati kærunefndar er misræmið það umfangsmikið að ekki er unnt að leggja frásögn kæranda um að hún hafi flúið heimaríki sitt vegna hefðar og hættu á ofsóknum af hálfu konungsins í Benín og aðila á hans vegum til grundvallar.

Jafnvel þó frásögn kæranda væri lögð til grundvallar falla aðstæður hennar ekki undir ofsóknir sem nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mæli fyrir um. Kærunefnd hefur ekki fundið upplýsingar um þá hefð sem kærandi hefur borið fyrir sig, þ.e. að elsta dóttirin í fjölskyldu sem eigi ættir að rekja til konungsins þurfi að þjóna honum í 25 ár og vera hrein mey ellegar sæta fangelsisvist í 25 ár. Heimildir benda þó til þess að hefðir hafi verið viðhafðar í heimaríki kæranda. Þá séu hefðir viðurkenndar í Nígeríu svo lengi sem þær séu innan marka laganna og stangist ekki á við réttlæti, sanngirni og góða samvisku. Heimildir benda til þess að konungurinn í Benín borg gegni aðallega fulltrúarhlutverki en geti þó haft áhrif á nígerísk yfirvöld. Konungurinn geti ekki refsað neinum löglega. Konungurinn geti átt milligöngu í málum en hann geti ekki dæmt í þeim. Með vísan til framangreinds verður að telja ólíklegt að konungurinn geti sett kæranda í fangelsi í 25 ár fyrir það að hafa ekki verið hrein mey þegar hún hafi átt að þjóna honum. Auk þess eru um 16 ár liðin frá því kærandi flúði heimaríki sitt og benda gögn málsins og frásögn kæranda ekki til þess að hún eigi enn á hættu að sæta ofsóknum af hálfu konungsins eða aðila á hans vegum.

Kærunefnd fellst á það með kæranda að Útlendingastofnun hafi borið að bera framangreint misræmi undir kæranda í samræmi við rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Úr þeim annmarka hefur verið bætt við meðferð málsins hjá kærunefnd og hefur kærandi fengið tækifæri til að gefa skýringar á misræminu. Kærunefnd telur því ekki ástæðu til að gefa kæranda kost á að koma fyrir nefndina samkvæmt 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.

Að framangreindu virtu og öðrum gögnum málsins verður ekki séð að kærandi hafi sætt ofsóknum af hálfu yfirvalda sem nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Þá verður ekki sé að kærandi eða börn hennar eigi slíkar ofsóknir á hættu.

Kærandi ber einnig fyrir sig að hún og A tilheyri tilteknum þjóðfélagshópi sem konur í Nígeríu. Þrátt fyrir að konur sæti almennt mismunun í Nígeríu og geti talist til sérstaks þjóðfélagshóps í skilningi 38. gr. laga um útlendinga er það mat kærunefndar að sú mismunun nái ekki því alvarleikastigi að geta talist ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna. Verður því ekki fallist á að kærandi og A hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki sínu á grundvelli kyns síns. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hún og börn hennar geti ekki notið verndar lögreglu eða sýnt fram á það með öðrum hætti. Er það því mat kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að stjórnvöld geti ekki eða vilji ekki veita kæranda og börnum hennar vernd telji kærandi þörf á því, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 20. nóvember 2023 greindi kærandi frá því að hafa sætt kynfæralimlestingum sem barn í heimaríki sínu. Með tölvubréfi, dags. 13. desember 2023, óskaði Útlendingastofnun eftir upplýsingum hvort hún viti hver hafi staðið að baki verknaðinum í hennar tilviki og hvort hún myndi koma í veg fyrir kynfæralimlestingar á A yrðu þær sendar til heimaríkis. Í svörum frá kæranda sem bárust sama dag greindi kærandi frá því að hún viti ekki hverjir hafi staðið að baki verknaðinum á henni sjálfri en hún hafi verið mjög ung. Þá kvaðst kærandi ekki vita hvort hún gæti komið í veg fyrir kynfæralimlestingu á A þar sem í Nígeríu séu slíkar athafnir líkt og lög. Eina sem hún geti gert sé að fara ekki með hana til heimaríkis. Auk þess muni kærandi ekki geta nýtt sér heilbrigðisþjónustu í heimaríki af ótta við að þau finni út að A sé ekki umskorin og starfsfólk á þeim heilbrigðisstofnunum sem hún kunni að leita til muni framkvæma þá aðgerð sama hvort kæranda líki það eða ekki. Í hinum kærðu ákvörðunum var lagt til grundvallar að M væri faðir barna kæranda. Hinn 12. desember 2023 sendi Útlendingastofnun tölvubréf á M og óskaði eftir upplýsingum um hver afstaða hans til kynfæralimlestinga kvenna væri. Í svörum frá M sem bárust samdægurs kemur fram að hann sé mótfallinn kynfæralimlestingum. vaðst M ekki getað svarað því hvort hann og kærandi muni koma til með að sameinast á Ítalíu, í heimaríki eða annarsstaðar á einhverjum tímapunkti.

Líkt og að framan greinir er umskurður á konum og stúlkum refsiverður verknaður samkvæmt nígerískum alríkislögum. Lögin gilda hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi hafði búsetu. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-25%. Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra. Þrátt fyrir að aðrir ættingjar geti haft áhrif á þá ákvörðun sé það mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis. Fyrir liggur að kærandi er mótfallin kynfæralimlestingum og af framburði hennar og með vísan til landaupplýsinga verður ekki ráðið að ástæða sé til að ætla að A hafi ástæðuríkan ótta við að verða þolandi umskurðar í heimaríki sínu gegn vilja móður sinnar. Það er því mat kærunefndar að A eigi ekki á hættu kynfæralimlestingar hvort sem kærandi sameinist barnsföður sínum eða ekki. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður í úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 307/2023 frá 25. maí 2023, sem kærandi hefur vísað til, séu ólíkar aðstæðum kæranda og barna hennar. Í því máli var lagt til grundvallar að kærandi hafi látið skoðun sína á kynfæralimlestingum í ljós í tilvikum eldri dætra hennar en móðir hennar hafi ekki virt skoðanir hennar. Þá lá fyrir að kærandi í því máli hafði verið að glíma við andleg veikindi.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Útlendingastofnun taldi ekki ástæðu til þess að taka viðtal við A og B vegna aldurs þeirra. Þá verður ekki ráðið að kærandi, A og B eigi á hættu að sæta ofsóknum af öðrum ástæðum er tilgreindar eru í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Leggur kærunefnd mat á hagsmuni barna kæranda samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barna kæranda nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur, að teknu tilliti til ákvæða í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og barnaverndarlögum nr. 80/2002, að engin rök standi í vegi fyrir því að A og B fylgi móður sinni aftur til heimaríkis eða Ítalíu þar sem faðir þeirra er búsettur. Kærunefnd horfir m.a. til þess að A og B eru í fylgd móður sinnar sem er að mestu heilsuhraust og vinnufær og njóta stuðnings hennar. Þá benda gögn ekki til annars en að fjölskyldan geti búið saman í heimaríki. Frásögn kæranda bendir jafnframt til þess að hún eigi fjölskyldu í heimaríki og njóti stuðnings þeirra. Líkt og áður greinir stendur A og B til boða gjaldfrjáls grunnskólamenntun í heimaríki þeirra. Þá bera gögn með sér að A og B muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Þá er það mat kærunefndar að aðstæður A og B, s.s. að þau hafi aldrei komið til heimaríkis, komi ekki í veg fyrir að þau fylgi móður sinni til heimaríkis.

Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska, að það sé A og B fyrir bestu að þau fylgi móður sinni til heimaríkis.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún eða A og B hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á hvort aðstæður kæranda og barna hennar séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi og börn hennar séu í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Benín eða Edo fylki séu slíkar að kærandi eða börn hennar eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til Nígeríu.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda er það mat kærunefndar að aðstæður kæranda og barna hennar þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi. 

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi og börn hennar uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir að ótryggt ástand ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíða kæranda og barna hennar í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni eða óbærilegum þjáningum. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 13. nóvember 2023 kvaðst kærandi finna fyrir kulda í hvert skipti sem hún fari út og þegar hún komi inn aftur sé hún verkjuð um allan líkamann. Kærandi hafi glímt við þetta í yfir tvö ár og hafi farið til læknis sem hafi tekið blóðprufu. Kærandi kvaðst jafnframt vera með háan blóðþrýsting og taka lyf vegna þess. Kærandi kvaðst ekki geta nálgast lyfið í heimaríki nema greiða fyrir það. Þá kvað kærandi andlega heilsu sína vera slæma vegna aðstæðna í heimaríki. Kærandi kvað börnin sín vera við góða heilsu. Í gögnum frá heilsugæslunni Firði, dags. 10. mars 2023, kemur fram að kærandi hafi átt börnin sín hér á landi með bráðakeisara. Kærandi hafi greinst með háþrýsting á meðgöngu og hafi verið sett á lyf eftir fæðingu. Kærandi hafi verið með höfuðverk af og til fyrstu dagana eftir heimkomu og hafi tekið verkjalyf. Kærandi sé búin að jafna sig vel líkamlega eftir keisaraskurðinn og skurðsár líti vel út. Þá kemur fram að kærandi hafi greint frá því að vera þreytt og þurfa aðstoð með börnin. Tilkynning hafi verið send til barnaverndar eftir fæðingu og fylgja ætti eftir hvort hún gæti fengið auka stuðning. Annars gangi vel með börnin, þau séu vær, drekki og sofi. Framlögð heilsufarsgögn benda jafnframt til þess að kærandi hafi verið í eftirliti vegna hás blóðþrýstings og húðvandamáls. Í samskiptaseðli hjúkrunarfræðings hjá heilsugæslunni Firði, dags. 26. apríl 2023, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að vera glöð og líða vel hér á landi en óttast að fá ekki landvistarleyfi. Kærandi hafi greint frá því að finna ekki fyrir kvíða vegna foreldrahlutverksins en að hún sé þreytt og myndi vilja meiri aðstoð með börnin en hún fái. Ekki hafi verið talin þörf á sálfræðimeðferð fyrir kæranda. Í samskiptaseðli hjúkrunarfræðings á heilsugæslunni Firði, dags. 26. apríl 2023, kemur fram að bókuð hafi verið blóðprufa þar sem hún sé ekki að lagast í húðinni. Samkvæmt samskiptaseðli læknis á heilsugæslunni Firði, dags. 5. október 2023, hafi blóðprufur verið innan marka en óskað hafi verið eftir hjartaómun. Samkvæmt samskiptaseðli læknis, dags. 7. desember 2023, hafi kærandi kvartað yfir verk vinstra megin í brjósti og að vont væri að anda djúpt. Þegar kærandi fari út í kulda verði hún veik og hafi verið þannig í sex ár. Kærandi hafi verið hlustuð og hún hafi verið verið með reglulegan hjartslátt og jafna og hreina hlustun. Í læknabréfum, dags. 28. febrúar 2023, kemur fram að A og B hafi fæðst með bráðakeisara vegna meðgöngueitrunar móður og óðeðlilegs rits hjá barninu A. Börnin hafi verið lögð inn á vökudeild til eftirlits og meðferðar vegna meðgöngulengdar og vaxtaskerðingar. Í læknabréfi, dags. 3. apríl 2023, kemur fram að B hafi lagst inn á Landspítala með viku sögu um kvef og hósta. B hafi andað hratt og átt erfitt með næringarinntöku. Hann hafi þurft súrefni til að viðhalda mettun og hafi því lagst inn á barnadeild ásamt A. B hafi verið greindur lág jákvæður fyrir RS-veiru, hafi verið með talsvert slím en náð að drekka vel og þyngst. Kærandi hafi óskað eftir stuðningi frá félagsþjónustu og barnavernd þar sem hún sé einstæð með börnin. Komið hafi verið á föstu innliti einu sinni í viku og næstu skref séu að sækja um tilsjón hjá barnavernd. Í níu vikna skoðun barnanna, dags. 21. apríl 2023, hafi B komið í aukaskoðun ásamt kæranda og A. Fram kemur að gengið hafi vel heima og hann dafni vel. Í samskiptaseðli, dags. 28. júní 2023, kemur fram að A hafi glímt við hægðatregðu og fengið ráðleggingar. Í tíu mánaða skoðun, dags. 21. desember 2023, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að erfitt sé að fá A til að borða, hún drekki vatn og þurrmjólk og hafi þyngst lítið. Við skoðun sé húð þurr og hreyfingar sérkennilegar og stirðar og erfitt sé að fá hana til að opna lófa. A sitji óstudd en sé ekki að draga sig upp í standandi stöðu. Hún brosi og sé athugul og skoðun sé að öðru leyti eðlileg. Gert verði endurmat í ellefu mánaða skoðun. Í skoðun barnanna, dags. 19. janúar 2024, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að A og B hafi lítinn áhuga á að borða og útskýrt hafi verið fyrir henni mikilvægi þess að þau fái fjölbreytta fæðu þar sem mjólkin uppfylli ekki næringarþörf þeirra. Þau séu að fylgja þyngdarkúrfu frá síðustu skoðun og komi næst í tólf mánaða skoðun.

Í ljósi þess sem fram kemur í framlögðum heilsufarsgögnum verður sú meðferð sem kærandi og börn hennar þarfnast hvorki talin vera svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hana eða börn hennar verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Líkt og fram hefur komið er öllum ríkisborgurum Nígeríu tryggður aðgangur að heilbrigðiskerfinu í landinu og er það mat kærunefndar að kærandi og börn hennar muni hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum sem þeim eru nauðsynleg þar í landi. Samkvæmt skýrslu EUAA um lyf í Nígeríu frá apríl 2022 er hægt að fá meðferð við háum blóðþrýstingi í Nígeríu, þ. á m. lyf. Samkvæmt framangreindum landaupplýsingum er heilbrigðisþjónusta fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli og töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess, en kærandi kveðst hafa verið búsett í Benín borg sem er staðsett í suðvesturhluta Nígeríu.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Þá segir í athugasemdunum að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.

Kærandi byggir á því að hún og börn hennar muni búa við erfiðar félagslegar aðstæður verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Fyrir liggi að kærandi sé ein á ferð ásamt börnum sínum og glími við slæma líkamlega og andlega heilsu. Þá hafi kærandi lítið bakland í heimaríki og málsatvik gefi ekki til kynna að fyrrum sambúðarmaki kæranda muni fylgja henni til Nígeríu verði hún send þangað en hann sé núna á Ítalíu. Kærandi hefur lagt fram gögn frá barnaverndarþjónustu Hafnarfjarðar máli sínu til stuðnings. Samkvæmt bréfi frá félagsráðgjafa hjá Hafnarfjarðarbæ, dags. 8 mars 2024, barst tilkynning 10. mars 2023 vegna áhyggna af getu kæranda við umönnun barna sinna og tengslamyndun hennar við börnin. Kærandi hafi sýnt lítinn áhuga á meðgöngu og áhyggjur hafi vaknað um erfiðleika kæranda við að ná utan um verkefnið. Könnun hafi leitt í ljós að þörf væri á stuðningi við kæranda vegna umönnunar barnanna. Sá stuðningur sem veittur hafi verið séu viðtöl við málastjóra, innlit á heimili og Þroskafjör sem sé hóptími leiddur af iðjuþjálfurum. Kærandi hafi verið móttækileg fyrir fræðslu sem hafi verið í boði og tekið leiðbeiningum vel. Kærandi hafi náð að tileinka sér það sem farið hafi verið yfir í tímum og börnin tekið framförum hvað varðar hreyfiþroska. Þá liggur fyrir tilkynning til barnaverndar Hafnafjarðar, dags. 24. febrúar 2023, þar sem fram kemur að starfsfólk Vöku-, meðgöngu- og sængurlegudeildar hafi haft áhyggjur af getu móður við umönnun barna sinna og tengslamyndun. Hún þurfi stýringu og hvatningu við að sinna þeim, t.a.m. við að gefa börnunum á þriggja tíma fresti og skipta á þeim. Í greinargerð frá félagsráðgjafa hjá Hafnarfjarðarbæ, dags. 15. júní 2023, kemur fram að þeim hafi borist tilkynning um vanrækslu varðandi umsjón og eftirlit og áhyggna af getu móður við að sinna og tengjast nýfæddum börnum sínum. Mat félagsráðgjafa, hjúkrunarfræðings og starfsmanna barnaverndar, sé að með stuðningi geti kærandi sinnt börnunum vel. Kærandi hafi verið móttækileg fyrir fræðslu og þiggi allan stuðning sem settur hafi verið upp með henni. Málinu sé vísað í stuðning hjá stoðdeild flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Könnun málsins sé lokið og ekki talin ástæða til aðgerða barnaverndarþjónustu.

Kærandi er ung kona og ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að hún sé heilsuhraust og vinnufær. Þá bendir frásögn kæranda til þess að hún sé í einhverjum tengslum við fjölskyldu sína í heimaríki sem gefur til kynna að hún geti notið stuðnings þeirra. Framlögð gögn frá barnavernd benda jafnframt til þess að málinu hafi verið lokað af þeirra hálfu og kærandi hafi tekið öllum leiðbeiningum vel og verið móttækileg fyrir þeirri fræðslu sem hún hafi fengið. Með vísan til þessa og framangreindrar umfjöllunar telur kærunefnd að félagslegar aðstæður kæranda og barna hennar við endurkomu til heimaríkis séu ekki með þeim hætti að þær teljist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hún og börn hennar hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barna kæranda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Aðstæður kæranda og barna hennar í heimaríki eru ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 29. október 2022 og umsóknir barna hennar teljast hafa verið lagðar inn við fæðingu þeirra 19. febrúar 2023. Á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu skv. 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í málum kæranda og barna hennar. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hennar þangað.

Brottvísun og endurkomubann  

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 29. október 2022 og A og B fæddust hér á landi 19. febrúar 2023 og telja umsóknir þeirra um alþjóðlega vernd frá þeim tíma. Eins og að framan greinir hefur umsóknum hennar og barna hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barna hennar til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 20. nóvember 2023 var kæranda tilkynnt að Útlendingastofnun væri með það til skoðunar hvort brottvísa bæri henni með endurkomubanni til tveggja ára. Var kæranda gefið færi á að tjá sig um það og hafa uppi andmæli. Kærandi kvaðst ekki hafa tengsl við lönd á Schengen-svæðinu og svaraði spurningu Útlendingastofnunar um hvort hún teldi brottvísun og endurkomubann hingað til lands og alls Schengen-svæðisins ósanngjarna ráðstöfun gagnvart sér eða fjölskyldumeðlimum sínum játandi.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hennar og barna hennar og endurkomubann kæranda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn og því ekki ástæða til að fallast á varakröfu kæranda þess efnis.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hún landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður. A og B var brottvísað frá landinu.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hennar.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar í málum kæranda og barna hennar eru staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún sjálfviljug frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration in the cases of the appellant and her children are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Valgerður María Sigurðardóttir                                                        Þorbjörg I. Jónsdóttir