24 apríl 2024

/

Úrskurður nr. 405/2024


Hinn 24. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 405/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU23070046

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. júlí 2023 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Tyrklands (hér eftir nefndur kærandi) ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. júní 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd með vísan til 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til vara krefst kærandi þess að honum verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Til þrautavara krefst kærandi þess að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða með vísan til 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka málið til lögmætrar meðferðar að nýju.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II. Málsmeðferð

Ekki er af gögnum málsins ljóst hvenær kærandi kom hingað til lands. Kærandi var handtekinn af lögreglu 27. október 2022 vegna gruns um ólöglega dvöl hér á landi. Honum var birt tilkynning um hugsanlega brottvísun og endurkomubann sama dag þar sem hann merkti við að hann hygðist leggja fram greinargerð, vegabréf og önnur gögn til að sýna fram á lögmæti dvalar. Engin frekari gögn bárust frá kæranda í tengslum við framangreint mál. Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 2. nóvember 2022 og var brottvísunarmálið þá fellt niður hjá Útlendingastofnun. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun 13. desember 2022 ásamt löglærðum talsmanni sínum vegna umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd. Með ákvörðun, dags. 26. júní 2023, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var sú ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 7. júlí 2023. Kærunefnd barst greinargerð kæranda 21. júlí 2023.

III. Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana sinna og vegna aðildar sinnar að minnihlutahópi Kúrda.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi gerir athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hans. Í fyrsta lagi mótmæli kærandi því mati Útlendingastofnunar að hann eigi ekki á hættu að verða fyrir ofsóknum vegna stjórnmálaskoðana sinna, þrátt fyrir að vera meðlimur HDP flokksins. Kærandi byggi á því að vegna þátttöku sinnar í framangreindum flokki þá sé hann í verulegri hættu á að verða fyrir ofsóknum af hálfu yfirvalda vegna stjórnmálaskoðana sinna. Séu öll gögn málsins, þar með talið frásögn kærenda í viðtali hjá Útlendingastofnun, borin saman við alþjóðlegar skýrslur og fréttir af ofsóknum tyrkneskra stjórnvalda, megi sjá að frásögn kæranda sé í fullu samræmi við það og það geri frásögn kæranda trúverðuga. Slíkar ofsóknir og áreiti af hálfu yfirvalda gegn stjórnarandstæðingum séu sjaldnast skjalfestar með beinum hætti. Kærandi hafi lagt fram skírteini sem staðfesti aðild hans að HDP-flokknum. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar útlendingamála nr. 295/2020 og byggi á að úrskurðurinn sé fordæmisgefandi fyrir mál hans. Í öðru lagi mótmælir kærandi því mati Útlendingastofnunar að hann eigi ekki á hættu ofsóknir vegna trúarbragða sinna sem Kúrdi. Óumdeilt sé að Kúrdar í Tyrklandi hafi í áraraðir þurft að þola áreiti og ofsóknir af hálfu yfirvalda. Þar sem kærandi sé Kúrdi eigi hann á hættu að verða fyrir ofsóknum og áreiti í heimaríki sínu. Samræmist það einnig því sem fram hafi komið í frásögn kæranda. Kærandi eigi því á hættu að sæta meðferð í Tyrklandi sem nái því alvarleikastigi að teljast ofsóknir sbr. 1. mgr. 38. gr. og b- og c- lið 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Þar sem yfirvöld séu að baki ofsóknum í garð Kúrda og þeirra sem tilheyri HDP-flokknum sé ljóst að kærandi geti ekki leitað verndar hjá yfirvöldum í Tyrklandi. Kærandi byggir á því að hann hafi ástæðuríkan ótta við að vera ofsóttur vegna stjórnmálaskoðana sinna sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eða að minnsta kosti nái mál hans undir ákvæði viðbótarverndar sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og einnig undir 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur flutning innanlands hvorki raunhæfan né sanngjarnan þannig að uppfyllt séu skilyrði um sanngirni og öruggs og löglegs ferðamáta í skilningi 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggi á því að yfirvöldum hér á landi beri að horfa til aðstæðna kæranda og veita honum alþjóðlega vernd og dvalarleyfi hér á landi skv. 73. gr., sbr. 1. mgr. 45. gr. laga um útlendinga og koma í veg fyrir óútreiknanlega framtíð kæranda.

Kærandi telji að með endursendingu hans til Tyrklands yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

Í greinargerð kæranda er um málavexti, málsástæður og lagarök að öðru og frekara leiti vísað til greinargerðar hans sem lögð var fram hjá Útlendingastofnun, dags. 27. desember 2022.

V. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað tyrknesku nafnskírteini og ökuskírteini. Var það mat Útlendingastofnunar að þar sem kærandi hefði ekki sannað hver hann væri með fullnægjandi hætti yrði leyst úr auðkenni hans á grundvelli trúverðugleikamats. Með vísan til þeirra gagna sem kærandi hefði lagt fram til að sanna á sér deili og lýsingar hans á staðháttum taldi Útlendingastofnun enga ástæðu til að draga í efa að hann hefði verið búsettur í borginni Istanbúl í Tyrklandi og væri ríkisborgari Tyrklands. Útlendingastofnun taldi kæranda að öðru leyti ekki hafa sannað auðkenni sitt.

Við málsmeðferð hjá kærunefnd hefur kærandi engin frekari gögn lagt fram til sönnunar á auðkenni sínu. Það er mat kærunefndar að ekki séu fyrir hendi forsendur til að hagga mati Útlendingastofnunar þess efnis að kærandi sé tyrkneskur ríkisborgari og verður það því lagt til grundvallar í málinu. Að öðru leyti er auðkenni kæranda óljóst.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Tyrklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Türkiye Earthquake Disaster Brief (The International Federation of Red Cross and Crescent Societies (IFRC), 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Peoples’ Democratic Party (HDP) (UK Home Office, mars 2020);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Kurds (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Peoples’ Democratic Party/Green Left Party (HDP/YSP) (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note – Turkey: Military service (UK Home Office, október 2023);
  • DFAT Country Information Report – Turkey (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 10. September 2020);
  • Freedom in the World 2023 – Turkey (Freedom House,9. mars 2023);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 2. mars 2022);
  • Progress report on the preparation for EU membership – Türkiye 2023 Report (European Commission, 8. nóvember 2023);
  • Report on the human rights situation covering 2022 – Türkiye (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • The World Factbook - Turkey (Central Intelligence Agency, 6. desember 2019);
  • Turkey 2022 Human Rights Report (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • Turkey’s Constitution of 1982 with Amendments through 2017 (https://www.constituteproject.org/constitution/Turkey_2017.pdf?lang=en, skoðað 12. desember 2023);
  • Turkey Healthcare Technologis Resource Guide (U.S. International Trade Adminitration. Sótt 15. apríl 2024);
  • Turkey: Situation of Kurds, including in Istanbul, Ankara and Izmir; situation of supporters or perceived supporters of the People’s Democratic Party (Halklarin Demokratik Partisi, HDP); situation of Alevi Kurds (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. janúar 2020);
  • Türkiye – Country overview (European Observatory of Health Systems and Policies. Sótt 15. apríl 2024);
  • World Report Turkey 2023 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Directory of Minorities and Indigenous Peoples - Turkey: Kurds (Minority Rights Group International, júní 2018).

Tyrkland er lýðveldi með rúmlega 83 milljónir íbúa. Ríkið er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ríkið er jafnframt aðili að m.a. flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og alþjóðasamningi um afnám alls kynþáttamisréttis.

Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Tyrkland frá október 2023 kemur fram að landið sé og verði áfram lykilsamstarfsaðili Evrópusambandsins. Tyrkland hafi verið tengt Evrópusambandinu með samstarfssamningi síðan 1964 og hafi tollabandalag verið stofnað árið 1995. Tyrkland hafi stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá desember 1999. Aðildarviðræður hafi hafist í október 2005 en séu í biðstöðu og hafi verið frá árinu 2018. Fram kemur að ekki hafi verið brugðist við alvarlegum áhyggjum Evrópusambandsins af áframhaldandi hnignun lýðræðislegra viðmiða, réttarríkisins, sjálfstæði dómstóla og virðingu fyrir grundvallarréttindum borgara landsins. Í maí 2023 fóru fram forseta- og þingkosningar í Tyrklandi og hélt stjórnarbandalagið meirihluta sínum á þinginu og var sitjandi forseti endurkjörinn. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar séu meðal annars aðstoð og endurreisn eftir jarðskjálfta, fjármálastöðugleiki og endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hinn 31. mars 2024 fóru fram sveitarstjórnarkosningar í landinu þar sem að stjórnarandstaðan, einkum CHP flokkurinn, vann mikinn sigur m.a. í höfuðborginni Istanbúl.

Stjórnarskrá ríkisins gerir ráð fyrir einu þjóðerni fyrir alla ríkisborgara og viðurkennir ekki minnihlutahópa á grundvelli þjóðernis, svo sem Kúrda, eða kynþáttar að undanskildum Armenum, gyðingum og þeim sem tilheyri grísku rétttrúnaðarkirkjunni. Rétturinn til eigin tungumáls, menningarlegra og trúarlegra réttinda sé ekki tryggður öðrum hópum fyllilega samkvæmt lögum. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2023 um aðstæður Kúrda í Tyrklandi kemur fram að rúmlega 15 milljónir íbúa landsins séu af kúrdískum uppruna og tali kúrdískar mállýskur. Samkvæmt tyrkneskum lögum sé leyfilegt að opna einkareknar menntastofnanir þar sem kennsla fari fram á tungumálum og mállýskum sem íbúar noti í daglegu lífi. Sumir háskólar bjóði upp á valkvæða áfanga á kúrdísku og tveir háskólar séu með kúrdískar málvísindadeildir. Lögin heimili jafnframt að kúrdísk þorp og hverfi taki upp sín fyrri nöfn í stað þeirra tyrknesku og leyfi stjórnmálaflokkum og meðlimum þeirra að velja tungumál í stjórnmálabaráttu sinni og kynningarefni. Sá réttur hafi þó ekki alltaf verð virtur í framkvæmd. Þá banni lög notkun annarra tungumála en tyrknesku í opinberum stofnunum. Þrátt fyrir að kúrdíska sé formlega leyfð í einkareknum menntastofnunum og opinberri orðræðu hafi ríkisstjórnin ekki framlengt leyfi fyrir kennsluefni á kúrdísku í almenningsskólum. Þá kemur fram í skýrslunni að vísbendingar séu um áframhaldandi samfélagslega mismunun gagnvart Kúrdum og hafi fjölmargar fregnir borist af árásum sem beinst hafi að Kúrdum árið 2023. Í sumum tilfellum sé hugsanlegt að þessar árásir hafi ekki verið rannsakaðar á réttan hátt eða ekki verið viðurkenndar sem árásir byggðar á kynþáttahatri. Kúrdar sem búi í borgum í vesturhluta Tyrklands kunni að vera hræddir við að upplýsa um kúrdískt þjóðerni sitt eða tala kúrdísku á almannafæri, og atvinnumöguleikar geti verið takmarkaðir fyrir kúrdískt fólk, sérstaklega ef það sé virkt í kúrdískum stjórnmálum eða áberandi um stuðning sinn við málstað Kúrda. Hins vegar geti flestir Kúrdar sem ekki eru virkir í stjórnmálastarfi og þeir sem styðja AKP lifað án mismununar í borgum í vesturhluta Tyrklands. Nokkrar heimildir séu um að Kúrdum hafi verið meinaður aðgangur að leiguhúsnæði vegna þjóðernis síns. Þá geti Kúrdar sem ekki tali tyrknesku átt í erfiðleikum með að fá aðgang að læknisþjónustu.

Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 um aðstæður í Tyrklandi kemur fram að átök stjórnvalda og PKK hafi leitt af sér umfangsmikið tjón í suðausturhluta Tyrklands. Stjórnvöld hafi af þeim sökum árið 2016 lagt hald á tilteknar eignir í sérstökum héruðum í suðausturhluta landsins. Hafi yfirvöld lýst því yfir að tilgangur yfirtökunnar væri að auðvelda uppbyggingu eftir átökin. Sumir íbúanna sem hafi orðið fyrir áhrifum yfirtökunnar hafi fram lagt fram kröfur fyrir dómstólum þar sem þeir hafi sóst eftir leyfi til að vera áfram á yfirteknu landsvæði og fá bætur. Hafi mörg þessara mála enn verið óafgreidd í árslok 2022. Í ákveðnum tilfellum hafi dómstólar dæmt íbúum bætur. Frá og með júní hafi 5,7 milljarðar líra verið greiddar út til umsækjenda. Í skýrslu er greint frá einu atviki um að sprengja hafi sprungið í Istanbúl þar sem sex einstaklingar hafi látið lífið og 81 einstaklingur slasast. Það hafi enginn hópur gefið sig fram um að bera ábyrgð á atvikinu en tyrknesk yfirvöld telji árásina hafa verið að undirlagi PKK. Yfirvöld hafi handtekið einstakling sem talinn hafi verið bera ábyrgð á sprengingunni og tólf aðra einstaklinga. Í kjölfar sprengingarinnar hafi tyrkneskar hersveitir sprengt um 500 skotmörk í Sýrlandi og Írak, og drepið að minnsta kosti tíu óbreytta borgara. Í öðrum heimildum, t.d. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2022, kemur fram að ofbeldisverk annara aðila, svo sem PKK, hafi ekki átt sér stað í borgum í Tyrklandi heldur eigi sér helst stað í dreifbýli í suðausturhluta landsins.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2023 um kúrdíska lýðræðisflokkinn (HDP flokkinn) í Tyrklandi kemur fram að flokkurinn og Verkamannaflokkur Kúrda (PKK) starfi að ólíkum markmiðum. HDP flokkurinn hafi verið stofnaður með það að markmiði að stuðla að réttindum Kúrda og annarra minnihlutahópa. PKK flokkurinn sé aftur á móti talinn hryðjuverkahópur af tyrkneskum yfirvöldum. PKK hafi upphaflega verið kúrdískur aðskilnaðarflokkur sem hafi haft það að markmiði að stofna sjálfstætt ríki Kúrda í suðausturhluta Tyrklands. HDP flokkurinn hafi neitað tengslum við PKK flokkinn og gefið sig út fyrir að berjast fyrir auknum réttindum Kúrda með friðsamlegum hætti. Þá kemur fram í skýrslunni að hryðjuverkalöggjöf landsins hafi verið beitt ítrekað á andstæðinga ríkisstjórnarinnar. Þá kveði tyrknesk lög á um að allir þeir sem smáni forseta landsins geti átt yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi. Meðlimir HDP flokksins sem vinni að mannréttindamálum eigi á hættu að vera handteknir og ákærðir fyrir brot gegn hryðjuverkalöggjöf landsins. Í skýrslunni kemur fram að upplýsingar bendi til þess að stjórnvöld kunni að líta svo á að þeir sem gagnrýni stjórnvöld eða öryggissveitir séu meðlimir í hryðjuverkasamtökum. Aðgerðarsinnar sem starfi innan raða HDP flokksins hafi margir hverjir hlotið refsingu án beinnar tengingar við ákveðinn glæp eða brot gegn lagaákvæðum. Frá árinu 2015 hafi tugþúsundir verið til rannsóknar af hálfu yfirvalda vegna meintra brota gegn hryðjuverkalögum landsins sem síðar hafi leitt til ákæru. Ættingjar meðlima HDP flokksins geti einnig átt á hættu afskipti yfirvalda sér í lagi ef fjölskyldumeðlimur er áberandi innan flokksins, hafi verið ákærður fyrir brot, ættingjar sýni áhuga á dómsmáli fjölskyldumeðlima sinna, geri pólitískar athugasemdir á samfélagsmiðlum eða mæti á pólitíska fundi. Það eitt og sér að vera meðlimur HDP flokksins geri það þó ekki að verkum að viðkomandi eigi á hættu afskipti yfirvalda. Aftur á móti aukist líkurnar með frekari þátttöku í starfi flokksins, s.s. með því að taka þátt í mótmælum, láta skoðun sína á stjórnvöldum opinberlega í ljós eða dreifa bæklingum fyrir flokkinn. Meðlimir HDP flokksins sem settir hafa verið í varðhald séu oft látnir lausir gegn því að viðkomandi veiti yfirvöldum í té upplýsingar um flokkinn. Jafnframt tíðkist að aðilar sem hafi verið handteknir og síðar sleppt séu áfram undir eftirliti yfirvalda.

Samkvæmt 1. gr. tyrkneskra herlaga nr. 1111/1997 eru allir tyrkneskir karlmenn skyldugir til að gegna herþjónustu í samræmi við ákvæði laganna. Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2023 um herskyldu í Tyrklandi kemur fram að herþjónusta sé skyldubundin fyrir tyrkneska karlmenn á aldrinum 20 til 41 árs í sex til tólf mánuði. Þeir sem sinni herskyldu séu einn mánuð í herþjálfun og séu síðan sendir til þjónustu og frekari þjálfunar og fái greitt fyrri uppihald þann tíma sem þeir sinni skyldunni. Nýliðar og einstaklingar sem ekki séu starfandi hermenn séu ekki sendir á átakasvæði eða í sérstakar aðgerðir gegn hryðjuverkum nema rík nauðsyn sé til, þar sem nóg sé um atvinnuhermenn til að sinna slíkum verkefnum. Eftir að hafa lokið eins mánaðar grunnþjálfun, hafi hermenn kost á að koma sér undan síðustu fimm mánuðum skyldubundinnar herþjónustu með því að greiða ákveðna peningaupphæð (í júlí 2023 var upphæðin 122.351 tyrknesk líra). Þeir sem hafi þegar hafið herþjónustu, komið sér undan herskyldu eða séu í felum geti ekki nýtt sér þennan valmöguleika. Þá séu sumir karlmenn undanþegnir skyldubundinni herþjónustu, svo sem vegna heilsufarsástæðna og öðrum geti verið heimilt að fresta herþjónustu vegna sérstakra aðstæðna, þar á meðal ef þeir séu að sækja sér framhaldsmenntun. Aðrar undanþágur frá herskyldu eru ekki heimilaðar, s.s vegna trúar eða sannfæringar. Samkvæmt ákvæðum herlaga liggi refsing við því að koma sér undan herskyldu (a-liður 1. mgr. 63. gr. laganna) og að yfirgefa stöðu sína í hernum (a-liður 1. mgr. 66. gr. laganna). Þeir sem gefi sig ekki fram við skráningarskrifstofur hersins séu sektaðir þann tíma sem yfirvöld telji aðilann vera að koma sér undan herskyldu. Sektirnar hækki í hlutfalli við fjölda þeirra ára sem aðili komi sér undan skyldunni. Þrátt fyrir að lögin heimili fangelsisrefsingu við því að koma sér undan herskyldu þá sé slíkri refsingu ekki beitt í framkvæmd. Þá kunni undanskot frá herskyldu að hafa aðrar afleiðingar í för með sér, s.s. að aðili sé skráður í eftirlitsgagnagrunn yfirvalda, geti ekki sótt um vegabréf, gift sig, opnað bankareikning, tekið þátt í kosningum eða gegnt opinberum störfum.

Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að heilbrigðisráðuneytið í Tyrklandi setji stefnu í heilbrigðismálum og sé stærsti veitandi heilbrigðisþjónustu í landinu. Það séu um 880 ríkisreknir spítalar í landinu, 570 einkareknir spítalar og 68 háskólasjúkrahús. Heildarfjöldi sjúkrarúma séu um 226.000. Tyrkland eyði um 4,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og hafi það hlutfall margfaldast síðan árið 2002 þegar að átak hafi verið gert í heilbrigðismálum í Tyrklandi. Tyrkland hafi sett sér framsækna stefnu í rafrænni heilbrigðisþjónustu. Allar upplýsingar um læknisheimsóknir, rannsóknir, meðferðir og lyfjaávísanir séu skráðar í rafræna sjúkraskrá. Lyfseðlar séu gefnir út rafrænt og þeim lyfjum sem sé ávísað fáist afgreidd í apótekum samkvæmt rafrænu lyfseðlum. Þá hafi almenningur aðgang að sjúkraskrá sinni í gegnum snjallsímaforrit. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policies kemur fram að á Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá Almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Almannatryggingar séu fjármagnaðar með framlagi atvinnurekanda og starfsmanna en þeir sem hafi lága innkomu séu undanþegnir greiðslu. Svo til nær öll heilbrigðisþjónusta fellur undir almanntryggingar nema lýtalækningar og tannlækningar og tæknifrjóvgun sé aðeins greitt að hluta. Vegna skorts á læknum á landsvísu hafi sífellt fleiri keypt viðbótarheilbrigðistryggingu til að greiða fyrir meðferð á einkareknum sjúkrahúsum.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki, verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kæranda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann hafi orðið fyrir mismunun, áreiti og ofbeldi af hálfu lögreglu og almennra borgara í Tyrklandi vegna kúrdísk þjóðernis síns.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 13. desember 2022, kvaðst kærandi vera kúrdískur en ekki vera trúaður. Aðspurður greindi kærandi frá því að það væri mikið af Kúrdum í Tyrklandi og hann áliti þá ekki í minnihluta. Þrátt fyrir þennan fjölda einstaklinga hafi ekkert verið gert fyrir Kúrda í Tyrklandi. Kærandi kvað Kúrda almennt verða fyrir fordómum í Tyrklandi. Hann hafi orðið fyrir fordómum sem barn, einkum í trúarskóla sem hann hafi verið í. Þess vegna hafi hann snúið frá trúnni. Kærandi greindi frá því að vera meðlimur í HDP- flokknum. Vegna mismununar sem hann hafi orðið fyrir sem Kúrdi hafi áhugi hans á flokknum aukist. Hlutverk hans í flokknum hafi verið að aðstoða og að mæta á fundi. Kærandi greindi frá því að hafa aðstoðað við að afla upplýsinga svo hann hafi getað lært meira um menningu og sögu Kúrda og tungumálið sitt. Kærandi kvaðst ekki hafa verið valdamikill í flokknum heldur aðeins venjulegur meðlimur. Um helmingur frændsystkina hans hafi einnig verið í flokknum. Kærandi greindi annars vegar frá því að flokkurinn væri bannaður í Tyrklandi, að aðrir flokkar álitu meðlimi hans hryðjuverkamenn, og hins vegar að hægt væri að kjósa flokkinn í kosningum. Kærandi kvað flokkinn vera í samstarfi við YPG en eingöngu tyrknesk yfirvöld teldu síðar greinda hópinn vera hryðjuverkahóp. Kærandi kvað foreldra sína kjósa HDP-flokkinn en að þau hafi ekki verið meðlimir í flokknum. Kærandi greindi frá því að vegna aðildar hans að flokknum hafi einhver komið á heimili hans og spurt eftir kæranda. Þessir einstaklingar hafi ruðst inn í íbúðina, án þess að sýna skilríki, og hafi verið vopnaðir. Þá kvað kærandi að lögreglan hafi margoft komið heim til hans en hann hafi falið sig fyrir þeim. Þessir einstaklingar hafi ekki sýnt skilríki og hafi ekki verið í lögreglubúningum en það hafi verið um sex til tíu einstaklingar fyrir utan húsið og hrópað að þeir væru lögreglan. Kærandi greindi frá því að muna ekki eftir öllu sem hafi komið fyrir hann vegna aðildar hans að flokknum. Síðar í viðtali greindi kærandi frá því að hann teldi að það hafi verið skuggayfirvöld (e. deep government), sem sjái um að framkvæma slæma hluti fyrir yfirvöld, sem hafi komið heim til hans. Kærandi hafi ekki lent í neinum vandræðum áður en hann hafi gerst meðlimur að HDP-flokknum. Þá greindi kærandi frá því að hann hafi reglulega skipt um dvalarstað þar sem að meðlimir HDP-flokksins hafi stafað ógn af MHP-flokknum. Síðarnefndi flokkurinn sé þjóðernissinnaður stjórnmálaflokkur sem sé á móti Kúrdum. Flokkurinn hafi ekki unnið í neinum kosningum. Kærandi hafi orðið fyrir mismunun af hálfu meðlima MHP-flokksins, hermanna og kennara. Alvarlegasta atvik hafi orðið fyrir löngu síðan þegar kærandi hafi lent í slagsmálum við einn meðlim MHP-flokksins þegar kærandi hafi aðstoðað vin sinn sem hafi lent í útistöðum við meðlimi flokksins. Kærandi hafi lent í mörgum slíkum atvikum. Þegar fólk hafi talað kúrdísku eða hlustað á kúrdíska tónlist þá dræpu meðlimir MHP-flokksins þá. Kærandi kvaðst óttast um líf sitt í Tyrklandi, óttast að vera rænt, verða fyrir ofbeldi, vera settur í fangelsi eða myrtur.

Kærandi ber fyrir sig að vera í hættu í heimaríki vegna aðildar sinnar að HDP-flokknum og að hann hafi orðið fyrir aðkasti lögreglu og annarra aðila í Tyrklandi vegna þess. Kærandi hefur lagt fram afrit af yfirlýsingu um aðild sína að HDP-flokknum. Að mati kærunefndar er ekki tilefni til að draga í efa að kærandi sé flokksbundinn HDP-flokknum. Samkvæmt framangreindum heimildum geta meðlimir HDP-flokksins sem starfi að mannréttindamálum átt á hættu að vera handteknir og ákærðir fyrir brot gegn hryðjuverkalöggjöf landsins. Aðgerðasinnar sem starfi innan raða HDP-flokksins hafi margir hverjir hlotið refsingu án beinnar tengingar við ákveðinn glæp eða brot gegn lagaákvæðum. Frá árinu 2015 hafi tugþúsundir verið til rannsóknar af hálfu yfirvalda vegna meintra brota gegn hryðjuverkalögum landsins sem síðar hafi leitt til ákæru. Það eitt og sér að vera meðlimur HDP-flokksins geri það þó ekki að verkum að viðkomandi eigi á hættu afskipti yfirvalda. Aftur á móti aukist líkurnar með frekari þátttöku í starfi flokksins, s.s. með því að taka þátt í mótmælum, láta skoðun sína á stjórnvöldum opinberlega í ljós eða dreifa bæklingum fyrir flokkinn. Af frásögn kæranda verður ekki ráðið að hann hafi verið í háttsettri stöðu hjá flokknum og hafi lent í tilteknum ágreiningi við stjórnvöld vegna þessarar aðildar. Þá verður ekki ráðið af frásögn kæranda að hann hafi tekið þátt í mótmælum, gagnrýnt stjórnvöld opinberlega eða komið opinberlega fram fyrir hönd flokksins að öðru leyti. Að mati kærunefndar er frásögn kæranda af áreiti lögreglu og annarra aðila ónákvæm og misræmis gætir um hver hafi leitað hans. Frásögn hans ber með sér að þar sé um getgátur hans sjálfs að ræða. Þá hefur kærandi lagt fram afrit af framangreindri yfirlýsingu sem kærandi kveður staðfesta að hann sé flokksbundin HDP-flokknum. Yfirlýsingin ber með sér að vera útgefin af Ríkissaksóknara í Tyrklandi 5. október 2022, eða stuttu áður en kærandi flúði heimaríki sitt. Bendir framangreint ekki til þess að kærandi sé undir sérstöku eftirliti eða í hættu af hálfu yfirvalda í Tyrklandi. Að mati kærunefndar gefur framangreint ekki ástæðu til að ætla að kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í heimaríki, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, vegna stjórnmálaskoðana sinna.

Af framburði kæranda í viðtali hjá Útlendingastofnun og greinargerð hans til Útlendingastofnunar, dags. 21. júlí 2023, má ráða að hann og aðrir Kúrdar hafi orðið fyrir fordómum og einhverri mismunun í heimaríki hans, svo sem af hálfu almennings og yfirvalda. Renna heimildir stoðum undir þann framburð kæranda og er að mati kærunefndar ekki tilefni til að draga í efa að hann hafi orðið fyrir einhverju áreiti eða fordómum af hálfu yfirvalda og almennings í heimaríki. Kærandi hefur hins vegar ekki lýst neinu sem talist gæti til ofsókna gagnvart honum eða á annan hátt leitt að því líkur að tyrknesk yfirvöld beini sjónum sínum sérstaklega að honum eða hann sé á annan hátti í verri stöðu í heimaríki en aðrir einstaklingar af sama þjóðernisuppruna. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna að Kúrdar kunni að eiga á hættu einhverja mismunun í heimaríki kæranda af þeirri ástæðu að þeir tilheyri þjóðarbrotinu. Ekkert í þeim gögnum gefur þó til kynna að sú mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Líkt og áður hefur komið fram eru refsingar lagðar við glæpum sem grundvallast á hatri gegn tilteknu þjóðerni. Þá geti einstaklingar er verði fyrir áreiti af hálfu aðila ótengdum ríkinu leitað til m.a. umboðsmanns og stofnunar mannréttinda og jafnréttismála (NHREI). Þó hlutleysi þeirra og skilvirkni hafi sætt gagnrýni verður ekki fallist á að Kúrdar sæti kerfisbundinni mismunun þar í landi eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1.mgr. 37. gr. laga um útlendinga eingöngu á grundvelli þjóðarbrots síns. Er það því mat kærunefndar að kærandi hafi ekki orðið fyrir eða eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila í Tyrklandi sem nái því marki að teljast ofsóknir skv. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli þjóðarbrots síns.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna.

Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Líkt og framan er rakið er lagt til grundvallar að kærandi sé frá borginni Istanbúl í Tyrklandi og hafi búið þar áður en hann yfirgaf heimaríki sitt. Með vísan til framangreindra heimilda er það mat kærunefndar að ástandið í heimaborg kæranda sé ekki á því alvarleikastigi að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, í heimaborg sinni, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til Tyrklands.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda telur kærunefnd að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi uppfyllir heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017, með síðari breytingum, kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki hans er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Ekki verður annað séð en að kærandi sé almennt heilsuhraustur. Þá bera gögn málsins og frásögn kæranda sjálfs með sér að hann hafi getað leitað sér læknisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir kæranda verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærandi hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Þá segir í athugasemdunum að með erfiðum almennum aðstæðum að öðru leyti sé einnig vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu eða þá aðstöðu að yfirvöld veiti ekki þegnum sínum vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum.

Af gögnum málsins má ráða að kærandi sé almennt heilsuhraustur og vinnufær. Kærandi hefur greint frá því að eiga fjölskyldu í Tyrklandi sem hann sé í sambandi við. Af frásögn kæranda má einnig ráða að kærandi hafi verið í launuðu starfi í heimaríki og hafi verið tryggður. Kærandi telji sig geta séð um sig með aðstoð fjölskyldu í heimaríki og að hann telji sig geta fengið vinnu snúi hann aftur til heimaríkis. Með vísan til þessa og framangreindrar umfjöllunar telur kærunefnd að félagslegar aðstæður kæranda við endurkomu til heimaríkis séu ekki með þeim hætti að þær teljist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Aðstæður kæranda í heimaríki eru ekki með þeim hætti að veita beri honum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 2. nóvember 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli kæranda. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Athugasemdir kæranda við ákvörðun Útlendingastofnunar og málsmeðferð kærunefndar

Í greinargerð kæranda eru gerðar ýmsar athugasemdir við hina kærðu ákvörðun. Kærunefnd hefur að framan tekið afstöðu til athugasemda kæranda að því leyti sem þær kunna að hafa áhrif á niðurstöðu þessa máls og komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 2. nóvember 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Með tölvubréfi Útlendingastofnunar, dags. 20. júní 2023, var kæranda leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða kæranda endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Ekki bárust svör frá kæranda við spurningum Útlendingastofnunar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að eiga tvo föðurbræður hér á landi og fjarskylda ættingja í Frakklandi.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann sjálfviljugur frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson

Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir