29 apríl 2024

/

Úrskurður 9/2024 Framboð til forseta Íslands


Tilvísun lks2024040007

 


Ár 2024, 29. apríl kl. 11:00 kom landskjörstjórn saman á fundi í Þjóðminjasafni Íslands til að úrskurða um gildi framkominna framboða til kjörs forseta Íslands 1. júní 2024.   


Fyrir er tekið framboð Jóns Gnarr til kjörs forseta Íslands og kveðinn um það svofelldur


ú r s k u r ð u r  nr. 9/2024:


Hinn 26. apríl 2024 kl. 11:23 kom Jón Gnarr á fund landskjörstjórnar og skilaði tilkynningu um framboð til kjörs forseta Íslands. Tilkynningin var undirrituð af Jóni. Á tilkynningarblaðinu kom fram að meðmælum væri safnað rafrænt. 


Landskjörstjórn hefur kannað framboðstilkynningu Jóns til kjörs forseta Íslands og þau meðmæli sem framboðinu fylgja. Könnunin leiddi í ljós að framboðið uppfyllir bæði skilyrði stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og kosningalaga nr. 112/2021.


Á grundvelli framangreinds er það niðurstaða landskjörstjórnar að framboð Jóns Gnarr til kjörs forseta Íslands sé gilt. 


 


Ú R S K U R Ð A R O R Ð


Framboð Jóns Gnarr til forsetakjörs 1. júní 2024 er gilt.


 


Landskjörstjórn 


Kristín Edwald, formaður


Arnar Kristinsson

Ebba Schram

Hulda Katrín Stefánsdóttir


Magnús Karel Hannesson