30 apríl 2024

/

Nr. 425/2024 Úrskurður

Hinn 30. apríl 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 425/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020094

 

Kæra [...]

á ákvörðun Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 13. febrúar 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 30. janúar 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Kærandi krefst þess aðallega hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að kæranda verði veitt alþjóðleg vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi krefst þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd á grundvelli 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Önnur varakrafa kæranda er að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarástæðna, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga og þriðja varakrafa að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. sömu laga. Fjórða varakrafa kæranda er að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að málið verði sent til Útlendingastofnunar til nýrrar meðferðar.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

II.      Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 1. nóvember 2022. Kærandi kom í viðtal hjá Útlendingastofnun ásamt löglærðum talsmanni sínum 13. desember 2022, 12. janúar 2023 og 9. janúar 2024. Með ákvörðun, dags. 30. janúar 2024, synjaði Útlendingastofnun kæranda um alþjóðlega vernd ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kæranda var jafnframt brottvísað og ákveðið endurkomubann til tveggja ára. Var framangreind ákvörðun kærð til kærunefndar útlendingamála 13. febrúar 2023. Hinn 4. mars 2024 barst kærunefnd greinargerð kæranda ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari upplýsingar frá kæranda 19. apríl 2024.

III.    Ákvörðun Útlendingastofnunar

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi byggi umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna ofsókna af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab.

Niðurstaða ákvörðunar Útlendingastofnunar í máli kæranda var sú að kærandi væri ekki flóttamaður og honum skyldi synjað um alþjóðlega vernd á Íslandi samkvæmt ákvæðum 37. og 40. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt synjað um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laga um útlendinga. Þá taldi stofnunin að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga stæði endursendingu til heimaríkis ekki í vegi.

Kæranda var brottvísað frá landinu og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kæranda var veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frestsins yrði endurkomubannið fellt niður.

Útlendingastofnun tilkynnti kæranda jafnframt að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 35. gr. laga um útlendinga.

IV.    Málsástæður og rök kæranda

Kærandi byggir á því að verulegir annmarkar séu á hinni kærðu ákvörðun sem séu svo alvarlegir að aðeins verði leyst úr þeim með því að ógilda hina kærðu ákvörðun og vísa málinu aftur til Útlendingastofnunar. Um sé að ræða brot á 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, jafnræðisreglu, réttmætisreglu og lögmætisreglu stjórnsýslulaga auk grundvallarmannréttindum kæranda n.tt. réttinum til réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 70. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1994 og 6. gr. mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sbr. lög nr. 62/1994.

Kærandi andmælir því að honum hafi ekki tekist að sanna auðkenni sitt. Kærandi hafi lagt fram afrit af persónuskilríkjum sínum útgefnum af sómalískum yfirvöldum og gerir kærandi athugasemd við mat Útlendingastofnunar um að um sé að ræða nafnskírteini. Þá hafi kærandi lagt fram háskólaskírteini sitt og afrit af námsferilsyfirliti. Unnt sé að sannreyna auðkenni kæranda með því að fletta upp nafni hans á tiltekinni vefsíðu sómalískra stjórnvalda. Þá telur kærandi ótækt að Útlendingastofnun fallist á það í trúverðugleikamati að kærandi sé verkfræðingur á grundvelli þeirra gagna sem hann hafi lagt fram um menntun sína, sem séu beintengd auðkenni hans, án þess að fallast á að kærandi hafi sannað auðkenni sitt. Með hliðsjón af framangreindu hafi stofnunin ekki framfylgt rannsóknarskyldu sinni við mat á því hvort kærandi hafi sannað á sér deili og fella beri hina kærðu ákvörðun úr gildi.

Kærandi byggir á því að trúverðugleikamat Útlendingastofnunar sé haldið verulegum annmörkum og nauðsynlegt sé að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi. Í hinni kærðu ákvörðun sé matið ekki byggt á einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda og skorti alfarið umfjöllun og heimfærslur um þjóðfélagshópana sem kærandi tilheyri. Þar af leiðandi hafi niðurstaða stofnunarinnar um að kærandi sé ekki sérstakt skotmark Al-Shabaab verið röng. Kærandi gerir m.a. athugasemd við að stofnunin fjalli í löngu máli um nýliðaskráningu Al-Shabaab í stað umfjöllunar um þá þjóðfélagshópa sem kærandi tilheyri, þ.e. einstaklinga sem vinni beint eða óbeint fyrir sómalska ríkið eða mannúðarsamtök, einstaklinga sem séu álitnir taka þátt í og stuðla að óíslamskri hegðun og sið, einstaklinga sem starfi fyrir ríkið eða einstaklinga sem Al-Shabaab telji starfa fyrir ríkið, sbr. d. liður 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ekki byggt á því að Al-Shabaab hafi þvingað hann til að gerast nýliði í samtökunum til að gegna hernaðarhlutverki fyrir þá. Kærandi hafi orðið fyrir mannráni af hálfu Al-Shabaab fyrir að tilheyra framangreindum þjóðfélagshópum og fengið líflátshótanir vegna þess. Kærandi hafi greint frá því með skýrum og samræmdum hætti að honum hafi verið rænt af Al-Shabaab, hann hafi verið kúgaður til að gefa upplýsingar um verkefnið sem hann hafi unnið fyrir yfirvöld og mannúðarsamtök, hann hafi verið barinn og þvingaður til að vinna fyrir Al-Shabaab í þeim skilningi að hann átti að ráða tvo meðlimi hópsins til starfa í verkefni sem hann hafi sinnt. Kærandi hafi orðið fyrir þessu vegna þess að hann hafi gengt stöðu verkfræðings með yfirumsjón yfir verkefni sem hafi falið í sér að endurnýja og byggja við skóla. Verkkaupandinn hafi verið sómalska ríkið og yfirmaður kæranda hafi verið einstaklingur á vegum mannúðarsamtakanna Save the Children. Kærandi gerir alvarlega athugasemd við skort á umfjöllun um grundvallaratriði í frásögn hans um að stór alþjóðleg mannúðarsamtök hafi stjórnað verkefninu en landaupplýsingar bendi til þess að starfsmenn mannúðarsamtaka séu skotmörk Al-Shabaab og vísar kærandi til heimilda máli sínu til stuðnings. Auk þess gerir kærandi athugasemd við heimildanotkun Útlendingastofnunar og vísar til nýrrar skýrslu máli sínu til stuðnings. Kærandi telur túlkun Útlendingastofnunar á skotmörkum Al-Shabaab ónákvæma og ekki taka mið af öllum fyrirliggjandi heimildum. Til rökstuðnings vísar kærandi til úrskurða kærunefndar útlendingamála sem endurspegli þessa túlkun, sbr. mál nefndarinnar nr. 57/2023 og 374/2024. Kærandi byggir á því að ekki verði séð að Útlendingastofnun hafi framkvæmt einstaklingsbundið mat á aðstæðum kæranda og ástæðum hans fyrir flótta frá heimaríki sínu. Stofnunin hafi ekki tekið afstöðu til þess hvort kærandi tilheyri þeim þjóðfélagshópum sem kærandi byggir á að hann tilheyri og með því hafi stofnunin vanrækt rannsóknarskyldu sína samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga. Ekkert sé því til fyrirstöðu að leggja til grundvallar að hann hafi starfað sem verkfræðingur í borginni Waajid við að endurbæta grunnskóla á vegum ríkisins og mannúðarsamtaka. Þá vísar kærandi til þess að kærunefnd hafi áður komist að því að einstaklingar hafi sætt afskiptum af Al-Shabaab án þess að lögð hafi verið fram gögn því til stuðnings og vísar kærandi til tiltekinna úrskurða nefndarinnar hvað það varðar.

Kærandi byggir á því að frásögn hans hafi verið skýr frá upphafi og samræmd í öllum þremur viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, varðandi það að stjórnvöld hafi staðið fyrir verkefninu sem kærandi sinnti og hafi fengið þjónustu félagasamtakanna Save the Children við vinnslu verkefnisins sem og aðkeypta þjónustu frá atvinnurekanda kæranda. Aðkoma þekktra alþjóðlegra góðgerðarsamtaka að stóru verkefni við endurnýjun og viðbyggingu skóla yfirvalda sé eitthvað sem ætti að vekja sérstaka athygli Al-Shabaab samkvæmt fyrirliggjandi heimildum. Kærandi gerir athugasemd við að í hinni kærðu ákvörðun sé talið að afskipti Al-Shabaab af endurnýjun skólans séu ósennilegar með vísan til misræmis í frásögn kæranda um að verkefnið hafi falið í sér byggingu á skóla en síðar hafi hann talað um endurnýjun. Kærandi byggir á því að fullt samræmi sé á frásögn hans hvað varði verkefnið, aðkomu Save the Children og beinu líflátshótunina sem kærandi hafi fengið frá Al-Shabaab. Kærandi vísar til heimilda um vinnubrögð samtakanna og afskipti þeirra af grunnskólum landsins. Þá renni heimildir stoðum undir þá reynslu kæranda að hafa orðið fyrir mannráni í verkefni sem hafi verið stjórnað af mannúðarsamtökum, að hafa orðið fyrir líflátshótunum og vera sakaður um að taka þátt í að innræta börnum boðskap sem fari gegn íslamstrú. Þá gerir kærandi athugasemdir við meintan ótrúverðugleika og ósamræmi í frásögn hans. Kærandi hafnar því að hann hafi ekki gefið Útlendingastofnun fullnægjandi svör við því hvers vegna hann hafi verið sérstakt skotmark Al-Shabaab. Þá mótmælir kærandi mati Útlendingastofnunnar um að hagsmunir Al-Shabaab við að þvinga hann til að vinna verk fyrir sig séu ósennilegir og telur kærandi niðurstöðu stofnunarinnar byggja á rökum sem séu óviðunandi í ljósi rannsóknarreglu stjórnsýslulaga og meginreglu flóttamannaréttarins. Vísar kærandi m.a. til þess að atriði sem stofnunin útlisti séu ekki grundvallaðar á heimildum heldur sé um að ræða vangaveltur. Þá fjallar kærandi um slæmar aðstæður á heimasvæði hans í Mógadisjú, í héraðinu Varta Nabada og vísar til alþjóðlegra skýrslna máli sínu til stuðnings.

Kærandi krefst þess aðallega að honum verði veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna aðildar að þjóðfélagshópi samkvæmt d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til hættu kæranda í heimaríki vegna hótanna og ofsókna af hálfu Al-Shabaab. Þá hafi kærandi verið starfsmaður fyrirtækis sem hafi sinnt verkefni á vegum yfirvalda og mannúðarsamtaka. Hryðjuverkasamtökin geri opinbera starfsmenn og starfsmenn hjálparsamtaka að skotmarki sínu og myrði fjölda einstaklinga sem falli undir hópinn sem og ræni þeim í þeim tilgangi að fá upplýsingar um starfsemina. Kærandi telur nauðsynlegt að tekið sé tillit til eðli starfs hans við úrlausn málsins.

Kærandi krefst þess til vara að honum verði veitt viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og byggir á sömu ástæðum og byggt sé á í aðalkröfu. Auk þess vísar kærandi til einstaklingsbundinna þátta. Raunveruleg hætta steðji að kæranda sem almennum borgara vegna handahófskenndra árása og hryðjuverka á heimasvæði hans. Handahófskennt ofbeldi nái háu stigi á heimasvæði hans einkum vegna Al-Shabaab. Þá sé ljóst að kærandi eigi yfir höfði sér vanvirðandi og ómannúðlega meðferð og refsingu verði honum gert að snúa aftur til Sómalíu og kunni jafnframt að verða fyrir skaða í átökum þar sem ekki sé greint á milli borgaralegra og hernaðarlegra skotmarka, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að flutningur innanlands sé ekki mögulegur fyrir hann en stjórnvöld séu sjálf valdur af þeim margvíslegu mannréttindabrotum sem framin séu í landinu.

Önnur varakrafa kæranda er að honum verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að staða hans heyri til almennra og félagslegra aðstæðna samkvæmt ákvæðinu. Kærandi vísar til þess að hann búi við veikt félagslegt bakland þar sem hann hafi verið hrakinn úr starfi og atvinnuöryggi, aflagetu og framfærslu hans hafi verið ógnað verulega.

Þá krefst kærandi þess í þriðju varakröfu að honum verði veitt dvalarleyfi hér á landi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga með vísan til þess að hann hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 1. nóvember 2022 og líklega verði ekki búið að afgreiða mál hans hjá kærunefnd innan frests. Þá sé það mat kæranda að ákvæði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Verði komist að því að einhver af stafliðum 2. og 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eigi við byggir kærandi á því að víkja skuli frá þeim þar sem sérstaklega standi á sbr. 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Fjórða varakrafa kæranda er að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og vísað aftur til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun þar sem hún sé háð verulegum annmörkum.

Að lokum byggir kærandi á því að með endursendingu hans til Sómalíu yrði brotið gegn meginreglunni um bann við því að vísa fólki brott eða endursenda þangað sem líf þess eða frelsi kunni að vera í hættu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Þá muni slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

V.      Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Auðkenni

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi lagt fram afrit af sómölsku nafnskírteini til að sanna á sér deili. Með vísan til þess hafi kærandi ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst.

Við meðferð máls kæranda hefur hann lagt fram afrit af nafnskírteini frá Sómalíu, afrit af starfsmannaskírteini frá fyrirtækinu Hansan Engineering auk afrita af námsferilsyfirliti og útskriftaskírteini frá Jazeera háskólanum. Þar sem um er að ræða afrit er ekki unnt að meta trúverðugleika framangreindra gagna og þá er til þess að líta að opinber gögn frá Sómalíu eru almennt metin ótraust þar sem almanna skráningu þar í landi er verulega ábótavant og útgáfa falsaðra skjala er algeng, líkt og ítarlega var fjallað um í úrskurði kærunefndar nr. 297/2020, dags. 10. september 2020. Hafa alþjóðleg stjórnvöld, svo sem kanadíska innflytjendaráðið, metið það svo að vegabréf útgefin af sómölskum yfirvöldum séu ekki áreiðanleg, meðal annars þar sem engir trúverðugir eða sannanlegir skráningaraðilar séu til útgáfu aðalskjala, svo sem fæðingarvottorða eða skrá yfir staðfestingu á ríkisborgararétti. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um almannaskráningu í Sómalíu og áreiðanleika skjala útgefinna þar í landi almennt er það mat kærunefndar að framlögð gögn séu ekki til þess fallin að staðfesta auðkenni kæranda.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari þó að öðru leyti sé auðkenni hans óþekkt.

Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • ●2021 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 2. Júní 2022);
  • ●2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. Apríl 2022);
  • ●2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. Mars 2023);
  • ●Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. Mars 2023);
  • ●BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. Febrúar 2022);
  • ●Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
  • ●Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. September 2020);
  • ●Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
  • ●Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
  • ●Country Guidance: Somalia (EUAA, 11. Ágúst 2023);
  • ●Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • ●Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
  • ●Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
  • ●Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
  • ●Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. Desember 2021);
  • ●EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. Júlí 2021);
  • ●EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. September 2021);
  • ●Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
  • ●Heightened Political Violence in Somalia (ACLED, 3. Mars 2023);
  • ●International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, september 2022);
  • ●Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
  • ●Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. Mars 2023);
  • ●Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. September 2013);
  • ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 17. Febrúar 2021);
  • ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. Maí 2021);
  • ●Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. Febrúar 2022);
  • ●Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. Maí 2019);
  • ●Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. Júní 2023);
  • ●Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. Mars 2021);
  • ●Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab ttack sand Political Differences Persist (ACLED, 21. Apríl 2023);
  • ●Somalia country profile (BBC, 20. Desember 2022);
  • ●Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. Febrúar 2023);
  • ●Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. Ágúst 2020);
  • ●Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. Júní 2021);
  • ●Somalia: Health system (The Danish Immigration Service, nóvember 2020);
  • ●Somalia: Health car services in Mogadishu (The Danish Immigration Service, mars 2024);
  • ●Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. Apríl 2023);
  • ●Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (er)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
  • ●Somalia – Rekruttering til al-Shabaab (Landinfo, 17. október 2022);
  • ●Somalia – Reaksjoner mot personer mistankes for tilknytning til al-Shabaab (Landinfo, 2. desember 2022);
  • ●Somalia – Reaksjoner mot al-Shabaab avhoppere (Landinfo, 20. júní 2023);
  • ●Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
  • ●Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023);
  • ●Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
  • ●Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
  • ●Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
  • ●Somalia. COI Query. Security situation update, 1 December 2022 to 14 April 2023 (EUAA, 25. apríl 2023);
  • ●South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
  • ●South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
  • ●The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 9. janúar 2024);
  • ●UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
  • ●UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
  • ●Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í maí 2018);
  • ●Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, september 2021) og
  • ●World Report 2024 – Somalia: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.

Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 bera hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hefur hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.

Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnní salafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.

Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 hafi Al-Shabaab borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.

Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í skýrslunni kemur fram að í Sómalíu séu fjórir stærstu ættbálkarnir Darod, Hawiye, Isaaq og Dir. Samkvæmt skýrslunni hafi mikilvægi aðildar að tilteknum ættbálki breyst á undanförnum árum í höfuðborginni Mógadisjú. Hlutverk ættbálksins hafi í auknum mæli færst frá því að verja stöðu ættbálksins yfir í hlutverk félagslegrar aðstoðar og stuðnings. Þá sé lítið um ættbálkaerjur í Mógadisjú og afkoma meðlima minnihlutaættbálka ráðist ekki af aðild þeirra að ættbálkinum.

Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2024 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.

Ákvæði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök skv. b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á með heildstæðri og trúverðugri frásögn af atburðum, og eftir atvikum með trúverðugum gögnum, sem eru í samræmi við áreiðanlegar og hlutlægar upplýsingar um almennt ástand í heimaríki hans, að hann hafi orðið fyrir ofsóknum í skilningi laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis. Í þeim tilvikum hvílir það á stjórnvöldum að eyða öllum vafa um slíka hættu, t.d. með vísan til þess að aðstæður í heimaríki hans hafi breyst.

Kærunefnd hefur við mat sitt á umsókn kærenda haft til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2011). Þá hefur aðferðarfræði trúverðugleikamats kærunefndar tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Kærandi byggir á því að hann óttist ofsóknir af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab vegna starfa sinna sem verkfræðingur fyrir sómölsk stjórnvöld og mannréttindasamtök við uppbyggingu skóla í borginni Waajid í Bakool umdæmi í Sómalíu. Kæranda hafi m.a. verið rænt af meðlimum samtakana, hótað lífláti og þvingaður til að gefa upplýsingar um verkefnið og aðstoða samtökin.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurriti af viðtölum hans hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kæranda.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 13. desember 2022 greindi kærandi frá því að hafa fæðst í Adado í Sómalíu en vera uppalinn í Mógadisjú og hafa verið búsettur þar þangað til hann flúði heimaríki sitt 8. október 2021. Kærandi kvaðst tilheyra meirihlutaættbálknum Hawiye og hafa hlotið menntun í heimaríki. Kærandi hafi útskrifast sem verkfræðingur úr Jazeera háskólanum 10. október 2019. Í kjölfarið hafi kærandi hafið störf hjá nafngreindu fyrirtæki. Kærandi hafi starfað til reynslu frá nóvember 2019 til febrúar 2020 en hafi þá fengið fast starf hjá fyrirtækinu. Í júlí 2021 hafi fyrirtækið fengið verkefni á vegum sómalska ríkisins við uppbyggingu skóla í Waajid í Bakool umdæmi í Sómalíu og kærandi hafi verið beðinn um að vera með yfirumsjón yfir verkefninu. Auk þess hafi félagasamtökin Save the children verið þátttakendur í verkefninu og kærandi hafi starfað með verkfræðingi á vegum samtakanna. Kærandi greindi frá því að Waajid væri undir stjórn sómalskra yfirvalda en aðeins hafi verið unnt að ferðast þangað með flugvél þar sem Al-Shabaab hindraði aðgengi á öllum vegum að borginni. Kærandi greindi frá því að þegar verkefnið hafi verið á lokastigi, dags. 25. september 2021, hafi kæranda verið rænt af meðlimum Al-Shabaab. Þeir hafi haft undir höndum allar upplýsingar um kæranda og farið fram á að hann staðfesti það sem þeir sögðu um hann. Þá hafi þeir sakað kæranda um að aðstoða yfirvöld við að byggja skóla þar sem börn hljóti menntun gegn íslamstrú. Meðlimir samtakanna hafi hótað kæranda lífláti og farið fram á að hann starfaði með samtökunum. Þá hafi þeir beitt kæranda ofbeldi og krafið kæranda um upplýsingar um framhald verkefnisins og hvort það yrði haldin viðburður í skólanum eftir að því lyki. Kærandi hafi greint þeim frá því að 29. september 2021 yrði síðasti vinnudagurinn við skólann og í framhaldinu yrði haldin opnunarhátíð. Meðlimir samtakana hafi farið fram á að senda tvo aðila á þeirra vegum til að sinna frágangi og þrifum við skólann 29. september 2021 og kærandi hafi átt að aðstoða þá við allt sem þeir þyrftu. Að mati kæranda hefði frásögn þeirra bent til þess að þeir hafi ætlað að koma fyrir sprengju í skólanum fyrir opnunarhátíðina þar sem yrðu m.a. háttsettir aðilar. Aðilarnir hafi hótað kæranda lífláti sinnti hann ekki þessu verkefni fyrir þá og greint honum frá því að þeir gætu fundið hann hvar sem væri í Sómalíu. Kærandi hafi því samþykkt þetta og hafi þá verið sleppt úr haldi. Í kjölfarið hafi kærandi ákveðið að tala ekki við neinn og hann hafi ekki treyst vinnufélögum sínum. Kærandi hafi tilkynnt sig veikan daginn eftir, 26. september 2021, og tekið fyrsta flugið sem bauðst til Mógadisjú 27. september 2021. Kærandi hafi dvalið á hóteli í Mógadisjú þar sem hann hafi ekki þorað að fara heim til sín af ótta við að Al-Shabaab myndi ná til hans. Á hótelinu hafi kærandi fengið símtal frá frænda sínum sem hafi gengið á kæranda og farið fram á að hann myndi starfa með Al-Shabaab. Kærandi hafi í kjölfarið haft samband við móður frænda síns sem hafi greint honum frá því að frændi hans starfaði fyrir Al-Shabaab og bað kæranda að vara sig á honum. Þá hafi kærandi fengið símtal frá Al-Shabaab 28. september 2021 þar sem þeir hafi greint honum frá því að þeir vissu hvar hann héldi sig og að þeir myndu verða honum að bana þar sem hann hafi ekki fylgt fyrirmælum samtakanna. Kærandi hafi slökkt á símanum sínum í kjölfarið en hafi dvalið áfram á hótelinu. Þá greindi kærandi frá því í framhaldsviðtali hjá Útlendingastofnun 9. janúar 2024 að 30. september 2021 hafi yfirmaður kæranda, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, komið til hans á hótelið. Sama dag hafi kærandi fengið fregnir af því frá samstarfsmanni sínum að bifreið yfirmanns hans hafi sprungið. Bílstjórinn hafi látið lífið og framkvæmdastjórinn særst. Kærandi hafi einnig fengið hótanir í gegnum síma frá Al-Shabaab um að þeir hafi myrt vin hans og að kærandi væri næstur. Kærandi hafi þá flúið heimaríki sitt með aðstoð fjölskyldu sinnar. Kærandi kvaðst ekki geta snúið til baka þar sem hann sé skotmark Al-Shabaab og frændi hans sem starfi fyrir samtökin muni upplýsa þau um það snúi kærandi til baka.

Í fyrirspurn kærunefndar til kæranda dags. 16. apríl 2024 óskaði nefndin eftir frekari svörum frá kæranda um ýmis atriði. Óskaði nefndin m.a. eftir upplýsingum um verkfræðinginn frá félagasamtökunum Save the Children sem kærandi kvaðst í viðtali hjá Útlendingastofnun hafa starfað náið með. Í svörum frá kæranda sem bárust kærunefnd 19. apríl 2024 greindi kærandi frá nafni mannsins en kvaðst ekki hafi tengiliðaupplýsingar við hann. Þeir hafi átt í samskiptum í gegnum netfangið sitt hjá fyrirtækinu en hann hafi ekki lengur aðgang að því netfangi þar sem hann hafi hætt störfum. Þá var óskað eftir upplýsingum um hvernig kærandi hafi ítrekað getað útvegað sér nýtt símanúmer þegar hann hafi dvalið á hóteli í Mógadisjú eftir að hann flúði Al-Shabaab og hvernig samstarfsmaður hans hafi vitað símanúmerið hans þegar hann hringdi í kæranda 30. september 2021 til að tilkynna kæranda að yfirmaður hans og bílstjóri hans hafi orðið fyrir sprengingu. Svör kæranda voru á þann veg að frændi hans hafi útvegað kæranda ný símanúmer í hvert skipti sem hann hafi þurft á því að halda. Þegar kærandi hafi skipt um símanúmer hafi hann haldið áfram samskiptum við fjölskyldu sína og samstarfsfélaga. Kærandi hafi haft símanúmer þeirra vistuð í símanum sínum en hafi þau ekki lengur. Þá kvaðst kærandi aðspurður ekki hafa nein gögn um dvöl sína á hótelinu.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis gögn til stuðnings frásögn sinni, m.a. afrit af nafnskírteini, afrit af skólagögnum, ljósmyndir af sér við útskrift og á byggingarsvæðum. Til stuðnings frásögn sinni um að hann hafi unnið hjá fyrirtækinu Hansan Engineering og að uppbyggingu skóla í Waajid í Sómalíu lagði kærandi m.a. fram afrit af starfsmannakorti sínu með nafni fyrirtækisins og skjöl með upplýsingum og teikningum af byggingu í Waajide. Fram kemur í skjölunum að viðskiptavinur fyrirtækisins séu sómölsk stjórnvöld og að umboðsaðili verkefnisins sé Save the Children. Auk þess kemur fram að styrktaraðili verkefnisins sé Global Partnership for Education, hvergi á skjalinu má finna nafn þess fyrirtækis sem kærandi kveðst hafa starfað fyrir.

Að mati kærunefndar eru atriði í framlögðum gögnum sem eru til þess fallinn að draga úr trúverðugleika kæranda. Ber þar helst að nefna tilvist fyrirtækisins Hansan Engeeneering sem kærandi kveðst hafa starfað fyrir. Við meðferð máls kæranda hjá kærunefnd hefur hann lagt fram tölvubréf, dags. 21. mars 2024, frá netfanginu [email protected], þar sem fram kemur að kærandi hafi starfað sem „site engineer“ hjá fyrirtækinu Hansen Engineering, m.a. við verkefni við uppbyggingu skóla í Waajid í Sómalíu sem hafi verið fjármagnað af félagasamtökunum Save the Children. Fyrirtækið er að finna á samfélagsmiðlinum Facebook og hefur kærandi staðfest að það sé síða fyrirtækisins sem hann hafi starfað fyrir. Á Facebook síðunni kemur fram að hún hafi verið stofnuð 12. mars 2022 en fyrirtækið hafi verið starfandi frá árinu 2014. Þá er að finna hlekk á heimasíðu fyrirtækisins en á þeirri heimasíðu er ekki að finna neinar upplýsingar nema merki fyrirtækisins og nafn auk þess sem fram kemur að heimasíðan hafi verið stofnuð 16. febrúar 2022. Þá er að finna netfangið [email protected] og símanúmer. Á starfsmannakorti kæranda er að finna netfangið [email protected] en kærandi greindi frá því í viðtali að netfangið væri ranglega ritað á starfsmannakorti hans. Athygli vekur að símanúmer fyrirtækisins sem fram kemur á starfsmannakortinu er heldur ekki í samræmi við eða sambærilegt því símanúmeri sem er uppgefið á Facebook síðu fyrirtækisins. Að mati kærunefndar er ótrúverðugt að fyrirtæki af þeirri stærðargráðu sem kærandi hefur lýst gefi út starfsmannakort með röngum upplýsingum. Þá kemur fram í hinni kærðu ákvörðun að Útlendingastofnun hafi við rannsókn málsins rekist á fyrirtæki sem beri nafnið Hansan Consulting LTD og er starftækt í Mógadisjú, nánar tiltekið í sömu götu og það fyrirtæki sem kærandi kveðst hafa starfað fyrir. Það fyrirtæki heldur úti vandaðri heimasíðu þar sem m.a. koma fram upplýsingar um verkefni fyrirtækisins. Að mati kærunefndar er athyglisvert að þessi tvö fyrirtæki hafi engin tengsl, fyrir utan að bera mjög áþekk nöfn, vera staðsett í sömu götu í Mógadisjú og starfa á sama starfsvettvangi.

Auk framangreinds er misræmi í frásögn kæranda um atriði sem varða ástæður flótta hans frá heimaríki. Þar má helst nefna að kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann hafi ekki treyst samstarfsfélögum sínum eftir að Al-Shabaab hafi rænt honum. Kærandi hafi verið tortryggin gagnvart samstarfsfélögum sínum og hafi ákveðið að tala ekki við neinn þeirra. Í svörum kæranda til kærunefndar greindi kærandi þó frá því að hafa ítrekað skipt um símanúmer en hafa samt sem áður haldið samskiptum við samstarfsfélaga sína og þannig hafi þeir haft símanúmer hans. Þá greindi kærandi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hann viti ekki hvort eitthvað hafi gerst við opnunarhátíð skólans þar sem hann hafi ekki heyrt frá samstarfsmönnum sínum síðan 27. September 2021. Kærandi greindi þó síðar frá því að yfirmaður hans hafi heimsótt hann á hótelið 30. September 2021 og að hann hafi heyrt í samstarfsmanni sínum sama dag sem hafi tilkynnt honum að yfirmaður hans og bílstjóri hafi orðið fyrir sprengingu. Þá dregur jafnframt úr trúverðugleika kæranda að hann geti ekki lagt fram nein gögn um dvöl sína á hóteli í Mógadisjú frá 28. September til 8. Október 2021 eða gögn sem staðfesti að hann hafi unnið náið með félagasamtökunum Save the Children. Þá hefur kærandi ekki getað lagt fram gögn frá umræddu fyrirtæki, Hansan Engeeneering, s.s. ráðningarsamning eða launaseðla þrátt fyrir að hafa verið inntur eftir því. Með vísan til tölvubréfssamskipta kæranda við fyrirtækið sem hann kveðst hafa starfað hjá ætti honum að vera í lófa lagið að afla þeirra gagna. Auk framangreinds benda heimildir og fréttir ekki til þess að sprenging hafi átt sér stað í Mógadisjú 30. September 2021 líkt og kærandi hefur greint frá. Þá lítur kærunefnd til þess að meintar hótanir sem kæranda hafi borist af hálfu samtakanna hafi átt sér stað í september 2021, fyrir tæplega fjórum árum síðan, en honum hafi ekki borist hótanir síðan. Í ljósi framangreinds misræmis verður ekki lagt til grundvallar að kærandi hafi unnið við uppbyggingu á skóla í Waajid á vegum stjórnvalda og Save the Children og sætt afskiptum og hótunum af hálfu meðlima Al-Shabaab vegna starfa sinna þar.

Með hliðsjón af gögnum málsins, þ.e. gögnum um menntun kæranda og ljósmyndir af kæranda á byggingarsvæði í vestum merktum háskóla er þó ekki unnt að útiloka að kærandi hafi stundað nám við verkfræði og starfað sem verkfræðingur í heimaríki. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé af. Þrátt fyrir að kærandi kunni að hafa starfað sem verkfræðingur í heimaríki hefur kærandi ekki sýnt fram á að hann sé sérstakt skotmark Al-Shabaab umfram aðra í heimaríki vegna atvinnu hans eða að hann hafi mátt þola eða eigi á hættu ofsóknir af þeirra hálfu. Þá lítur kærunefnd til þess að kærandi hefur greint frá því að tilheyra meirihlutaættbálk í heimaríki auk þess sem hann hafi veri búsettur á svæði þar sem sómölsk stjórnvöld fara með yfirráð og benda heimildir til þess að ástandið í Mógadisjú sé slíkt að stjórnvöld hafi almennt stjórn á svæðinu.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna.

Er því ljóst að kærandi uppfyllir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. útlendingalaga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga ber að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar frásögn kæranda um að hann sé í hættu í heimaríki vegna hættu á ofsóknum af hálfu meðlima hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar við úrlausn máls kæranda að uppruna kæranda megi rekja til Mógadisjú og hann hafi verið búsettur þar þangað til hann hafi yfirgefið heimaríki sitt. Verður því horft til aðstæðna í Mógadisjú við mat á því hvort aðstæður kæranda geti fallið undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu í máli K.A.B. gegn Svíþjóð (mál nr. 886/11) frá 17. febrúar 2014 og R.H. gegn Svíþjóð (mál nr. 4601/14) frá 1. febrúar 2016 kemur fram að almennt öryggisástand í Mógadisjú hafi farið batnandi á undanförnum árum eftir að stjórnvöld höfðu náð yfirráðum í borginni. Þá var það afstaða dómsins að aðgengilegar landaupplýsingar bentu ekki til þess að aðstæður í borginni væru slíkar að íbúar í borginni væru almennt í hættu á að sæta meðferð sem færi gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Því myndi endursending einstaklinga til Sómalíu ekki brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins benda ekki til þess að aðstæður í Mógadisjú hafi breyst til hins verra eða séu slíkar að kærandi muni eiga á hættu meðferð sem brjóti gegn 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Þá er það jafnframt mat kærunefndar að með vísan til trúverðugleikamats að ekkert gefi tilefni til að ætla að sérstakar aðstæður kæranda leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð snúi hann til baka til heimaríkis.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að aðstæður hans þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærandi uppfyllir heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi.

Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærunefnd hefur komist að þeirri niðurstöðu að kærandi uppfylli ekki skilyrði 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu. Með vísan til niðurstöðu kærunefndar að framan verður ekki talið að aðstæður kæranda nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hann sé almennt við góða líkamlega heilsu en honum hafi verið tjáð að hann gæti verið með þvagfærasýkingu. Þá hafi kærandi fundið fyrir bakverkjum. Kærandi greindi frá því að hann væri við góða andlega heilsu en hann hafi fundið fyrir streitu og svima. Þá greindi kærandi frá því að hann hann hafi hitt lækni í heimaríki og að hann hafi farið í apótek og fengið lyf. Í máli kæranda liggur fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 22. desember 2022 en engin frekari heilsufarsgögn. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Verður því ekki talið að kærandi hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Auk þess hefur kærandi greint frá því við meðferð máls hann hafi fengið heilbrigðisþjónustu í heimaríki.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli. Kærandi er karlmaður og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé vinnufær og fær um að framfleyta sjálfum sér. Við meðferð málsins hefur kærandi greint frá því og lagt fram gögn um að hann hafi gengið í skóla og sé menntaður verkfræðingur. Þá hefur kærandi greint frá því að hann eigi tvær systur og ættingja sem séu búsett í Mógadisjú. Auk þess benda heimildir til þess að ættbálkur kæranda sé einn af höfuðættbálkum Sómalíu. Með vísan til alls framangreinds verður ekki talið að félagslegar aðstæður kæranda séu slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar upplýsingar um heimaríki kæranda og gögn málsins eru virt í heild er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að hann teljist hafa ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kæranda í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.


 

Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd 1. nóvember 2022 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til ekki eiga við í máli hans. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

Brottvísun og endurkomubann

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

Samkvæmt gögnum málsins sótti kærandi um alþjóðlega vernd hér á landi 1. nóvember 2022. Eins og að framan greinir hefur umsókn hans um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur hann því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa honum úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Hinn 1. febrúar 2023 var kæranda tilkynnt að Útlendingastofnun væri með það til skoðunar hvort brottvísa bæri honum með endurkomubanni til tveggja ára. Var kæranda gefið færi á að tjá sig um það og hafa uppi andmæli. Í andmælum kæranda, dags. 3. febrúar 2023, kvaðst kærandi ekki hafa tengsl við lönd á Schengen-svæðinu. Þá taldi kærandi brottvísun og endurkomubann hingað til lands og alls Schengen-svæðisins ósanngjarna ráðstöfun gagnvart sér þar sem Al-Shabaab sem muni ná til kæranda í gegnum frænda hans sem sé meðlimur í samtökunum og lífi hans yrði stefnt í hættu.

Af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun hans og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og honum ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hann landið sjálfviljugur innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að skv. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann sjálfviljugur frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

 

Þorsteinn Gunnarsson

 

Sindri M. Stephensen                                                Þorbjörg I. Jónsdóttir