23 maí 2024
/
Nr. 528/2024 Úrskurður
Hinn 23. maí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 528/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24020102
Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar
Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 14. febrúar 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. febrúar 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Ítalíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 28. nóvember 2022. Kvaðst kærandi hafa komið til Íslands ásamt systur sinni frá Róm. Kærandi hafi farið frá heimaríki til Tyrklands með aðstoð fylgdarmanns sem hafi ekki ferðast með henni hingað til lands.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. febrúar 2023 ásamt löglærðum talsmanni. Þar greindi kærandi frá því að vera fædd í Mógadisjú en uppalin í Sabuuni í Jowhar umdæmi í Mið-Shabelle. Kærandi kvaðst tilheyra Gaaljecel ættbálknum sem hún kvað ekki vera í minnihluta. Kærandi hafi flúið heimaríki af ótta við ofsóknir af hálfu hryðjuverkasamtanna Al-Shabaab. Kærandi kvað samtökin stjórna heimaþorpi hennar og meðlimir samtakanna hafi áreitt föður hennar og krafið hann um greiðslu skatta og tekið afurðir af bóndabýli hans. Á endanum hafi þeir tekið allt af föður hennar, eyðilagt býlið hans og meinað honum aðgang að landinu. Þeir hafi jafnframt áreitt systur kæranda sem hafi rekið veitingastað og krafið hana um greiðslu skatta. Þá hafi þeir krafið föður kæranda um að gefa kæranda til hjúskapar við meðlim Al-Shabaab en hann hafi ekki viljað verða við því. Samtökin hafi þá tekið kæranda með valdi í júlí 2022 og hún hafi verið neydd til þess að giftast karlmanni á vegum samtakanna. Sá maður hafi beitt hana ítrekuðu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi og hótað henni og fjölskyldu hennar lífláti. Kærandi hafi verið í haldi samtakanna í mánuð þegar átök hafi brotist út á milli Al-Shabaab og sómalskra stjórnvalda sem hafi skapað ringulreið. Við það tækifæri hafi kærandi flúið og á flóttanum hafi hún rekist á kunningja sinn sem hafi aðstoðað hana við að komast heim til sín. Þegar kærandi hafi komið heim til sín hafi faðir hennar falið hana og systur hennar hjá nágrönnum sínum þar sem þær væru allar skotmark Al-Shabaab. Þaðan hafi þær farið til Mógadisjú og síðan flúið heimaríki til Tyrklands, þaðan til Grikklands, Ítalíu og loks til Íslands.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 14. febrúar 2024. Greinargerð barst kærunefnd 15. apríl 2024 ásamt fylgiskjölum. Frekari upplýsingar bárust frá kæranda 10. maí 2024.
Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að hún hafi fæðst í Mógadisjú en hafi alist upp í þorpi sem beri nafnið Sabuun í Jowhar umdæmi í Mið-Shabelle í Suður-Sómalíu og tilheyri Gaaljecel ættbálknum. Kærandi hafi ekki fengið menntun og hafi skilið föður sinn eftir í þorpinu en hann hafi verið í haldi Al-Shabaab síðast þegar hún vissi. Kærandi hafi lagt á flótta af ótta við Al-Shabaab en samtökin hafi krafið föður kæranda og eldri systur hennar um skattgreiðslur og hrakið þau af landi fjölskyldunnar. Þá hafi samtökin krafið föður kæranda um að hann gæfi þeim hönd kæranda. Þegar faðir hennar hafi neitað því hafi meðlimir Al-Shabaab kallað hann trúleysingja og rænt kæranda. Kærandi hafi verið þvinguð til að giftast meðlimi samtakanna sem hafi ítrekað nauðgað kæranda, ógnað henni með skotvopni og beitt hana ofbeldi. Vegna átaka þegar stjórnarhermenn réðust á bækistöð samtakanna, þar sem kæranda hafi verið haldið nauðugri, hafi kæranda tekist að flýja og komist aftur til síns heima. Kærandi hafi nær samstundis flúið þorp sitt og síðar landið ásamt systrum sínum sem hafi einnig verið hótað af Al-Shabaab. Kærandi sé jafnframt þolandi kynfæralimlestinga líkt og aðrar konur í fjölskyldu hennar.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Sómalíu mótmælt. Þá gerir kærandi ýmsar athugasemdir við ákvörðun Útlendingastofnunar í máli hennar, þ. á m. við umfjöllun um kynfæralimlestingar í heimaríki hennar, að trúverðugleikamat sé m.a. byggt á tölfræði ACLED um öryggisatvik á heimasvæði hennar og trúverðugleikamat stofnunarinnar á frásögn kæranda og systra hennar. Þá gerir kærandi athugasemdir við meint misræmi á frásögn hennar og systra hennar og vísar m.a. til þess að rangt hafi verið haft eftir henni í viðtali um að henni hafi verið rænt í júlí. Henni hafi réttilega verið rænt í júní sem hafi mátt leiðrétta hefði viðtalið verið lesið yfir.
Kærandi krefst þess aðallega að henni verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi orðið fyrir ofsóknum af hálfu Al-Shabaab í heimaríki og megi gera ráð fyrir að verða fyrir ofsóknum verði henni gert að snúa aftur til Sómalíu. Kærandi hafi flúið hjónaband við meðlim Al-Shabaab. Þá séu þeir sem ekki greiði skatt til Al-Shabaab í sérstakri hættu og sem kona sé hún í hættu vegna endurtekinna og ítrekaðra kynfæralimlestinga.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi raunhæfa hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð vegna gríðarlegrar óaldar og þeirra víðtæku mannréttindabrota sem viðgangist almennt í landinu, verði hún send aftur til Sómalíu sem og þeirrar raunhæfu hættu á að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldis vegna vopnaðra átaka í landinu.
Til þrautavara krefst kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi ríka þörf fyrir vernd vegna heilbrigðisástæðna og erfiðra félagslegra aðstæðna.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi hvað varðar brottvísun og endurkomubann hennar og að henni verði ekki gert að sæta slíku.
Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi.
Alþjóðleg vernd
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á sér deili og því ekki sannað hver hún sé með fullnægjandi hætti. Var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hennar væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari.
Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 2. júní 2022);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – The State of the World’s Human Rights (Amnesty International, 27. mars 2023)
- BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
- Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
- Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
- Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
- Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
- Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
- Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
- DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
- EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
- EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
- Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
- Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, . september 2022);
- Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
- Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
- Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
- Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mogadishu, Somalia (UNHCR, 25. . september 2013);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
- Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
- Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
- Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
- Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
- Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia country profile (BBC, 20. desember 2022);
- Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
- Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
- Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
- Somalia: Health system (The Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
- Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
- Somalia: Klan, familie, migrasjon og bistand ved (re)etablering (Landinfo, 24. júní 2020);
- Somalia: The Security situation in Mogadishu and al-shabaab’s influence in the city, (Landinfo, 8. september 2022);
- Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
- Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
- Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, . september 2023);
- Somalia: Violence in Mogadishu and developments since 2012 (Landinfo, 30. október 2020);
- Somalia: UN expert warns health care standards “dangerously low“ (UNHRC, 5. apríl 2022);
- South and Central Somalia – Security Situation, Al-Shabaab Presence, and Target Groups (Danish Refugee Council, mars 2017);
- South and Central Somalia – Security situation, forced recruitment, and conditions for returnees (The Danish Immigration Service, júlí 2020);
- The World Factbook – Somalia (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 24. apríl 2024);
- UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum -Seekers from Somalia (UNHCR, 5. maí 2010);
- UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I) (UNHCR, maí 2016);
- Vefsíða Minority Rights Group – Somalia (https://minorityrights.org/country/somalia/, síðast uppfært í júní 2019);
- Voices Somalia – A Qualitative Assessment (UNFPA, . september 2021) og
- World Report 2024 – Somalia: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 kemur fram að Al-Shabaab hafi borið ábyrgð á um 60% dauðsfalla almennra borgara á tæplega 9 mánaða tímabili árin 2020 og 2021.
Í skýrslu EUAA frá 2021 og júní 2023 kemur fram að konur og stúlkur standi frammi fyrir margs konar áskorunum í Sómalíu, m.a. þvinguðum hjónaböndum á barnsaldri, kynfæralimlestingum, heimilisofbeldi, kynferðis- og kynbundnu ofbeldi, auk takmarkana á skólagöngu. Samkvæmt skýrslunni eru konur sérstaklega berskjaldaðar gagnvart kynbundnu ofbeldi. Sómölsk lög og réttarkerfið veiti takmarkaða vernd gegn mismunun á grundvelli kyns. Konur eigi erfitt uppdráttar á mörgum sviðum, m.a. á sviði húsnæðis, menntunar og atvinnu. Þá njóti þær ekki jafnréttis þegar komi að því að erfa eignir og sé þeim oft neitað um þær eignir sem þær eigi lagalegan rétt á vegna félagslegra viðhorfa sem mismuni konum. Þá séu nauðganir, og annað kynferðisofbeldi, mjög útbreiddar og algengar í Sómalíu, einkum í Suður- og Mið-Sómalíu og á svæðum innan Puntlands. Meirihluti brotanna sé ekki tilkynntur til lögreglu, einkum sökum víðtæks refsileysis innan réttarkerfisins og ótta og skömm þolenda. Heimilisofbeldi í garð kvenna í Sómalíu sé jafnframt lýst sem „hömlulausu“. Konur séu berskjaldaðar fyrir kynferðislegu ofbeldi á vinnumarkaði og sé algengt að karlmenn, sem sjái um ráðningar innan bæði einkageirans og hins opinbera, krefjist einhvers konar kynlífsþjónustu gegn ráðningu. Konur hafi litla möguleika á að kvarta yfir slíku ofbeldi, en nær öruggt sé að konur missi vinnuna geri þær það. Fyrir vikið neyðist margar konur til að þola kynferðislega misnotkun til að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Þá sé þátttaka kvenna í stjórnmálastörfum takmörkuð vegna viðhorfa sem einkennist af mismunun og fjandskap í garð þeirra. Einstæðar konur séu almennt í viðkvæmari stöðu en giftar konur, en skortur á vernd í bland við viðhorf feðraveldisins í Sómalíu leiði til mismununar og útilokunar einstæðra kvenna. Einstæðar konur standi t.a.m. frammi fyrir erfiðleikum við að leigja eigið húsnæði þar sem þær þurfi karlmann til að ábyrgjast leigufyrirkomulagið. Þá eigi einstæðar konur sérstaklega á hættu að sæta kynbundnu ofbeldi þar sem þær neyðist til að vera á vinnumarkaði til að geta mætt grunnþörfum fjölskyldu sinnar og vegna staðalímynda í samfélaginu sem álíti konur og stúlkur veikburða. Almennt sé ætlast til þess af samfélaginu að konur gangi í hjúskap ungar, þ.e. á unglingsárunum, eignist mörg börn og sjái um uppeldi þeirra og sinni húsverkum innan heimilisins. Í samfélögum sem eru undir áhrifum Al-Shabaab geti það verið hluti af stjórnunaraðferð samtakanna að beita konur kynferðisofbeldi. Þá séu konur sem tilheyri minnihlutaættbálkum eða komi frá brotnum samfélögum í aukinni hættu á að þola kynferðis- og kynbundið ofbeldi. Í skýrslu óháðs sérfræðings mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mannréttindamála í Sómalíu frá 14. júlí 2021 kemur m.a. fram að staða kvenna og barna hafi versnað vegna Covid-19 faraldursins og ofbeldi, einkum inni á heimilum, hafi aukist verulega. Einnig hafi orðið aukning í kynfæralimlestingum kvenna og stúlkna. Þá hafi aðgerðir stjórnvalda í málefnum kvenna ekki fengið þá framgöngu sem ætlað hafi verið og lagafrumvarp um glæpi tengda kynmökum boði afturför og fari gegn alþjóðlegum og svæðisbundnum skuldbindingum Sómalíu í þessum málaflokki.
Í skýrslu EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að konur geti átt á hættu að vera þvingaðar til liðs við Al-Shabaab í gegnum hjónaband. Þá kunni þær að vera beittar þrýstingi frá fjölskyldu sinni og/eða ættbálki til að ganga í hjónband með meðlimum samtakanna. Fram kemur að Al-Shabaab hafi rænt og neytt konur á aldrinum 14 til 20 ára til að ganga í hjónaband með meðlimum samtakanna og hótað fjölskyldum þeirra með ofbeldi. Konur sem tilheyri Bantu/Jareer minnihlutahópnum eigi í sérstakri hættu á að þola þvingað hjónaband með meðlimum Al-Shabaab og að vera beittar þrældómi við heimilisstörf og kynlífsþrældómi. Konur sem hafi flúið þvingað hjónaband með meðlimum Al-Shabaab geti átt yfir höfði sér fangelsisvist eða jafnvel aftöku.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í skýrslunni kemur fram að í Sómalíu séu fjórir stærstu ættbálkarnir Darod, Hawiye, Isaaq og Dir. Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 er Gaaljecel, ættbálkurinn sem kærandi kveðst tilheyra, undirættbálkur höfuðættbálksins Hawiye og er aðallega staðsettur í Mið-Shabelle.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2020, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2024 kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.
Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína á því að hún eigi á hættu ofsóknir af hálfu Al-Shabaab. Kærandi hafi verið þvinguð til að ganga í hjónaband með meðlimi samtakanna og verið beitt ítrekuðu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi af hans hálfu.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hennar.
Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera fædd í Mógadisjú en uppalin í þorpinu Sabuun í Jowhar umdæmi í Mið-Shabelle í Sómalíu. Hjá Útlendingastofnun var kærandi ekki látin þreyta tungumála- og staðháttapróf en systur hennar þrjár hafi gengist undir slíkt próf. Hafi niðurstöður þeirra bent til þess að systur kæranda væru frá því svæði sem þær kváðust vera frá. Stæðu því líkur til þess að kærandi væri einnig þaðan auk þess hafi kærandi getað lýst staðháttum ágætlega. Var það mat Útlendingastofnunar að ekkert í máli kæranda benti til annars en að hún kunni að hafa verið alin upp á því svæði sem hún kvaðst vera frá. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja niðurstöðu Útlendingastofnunar að þessu leyti og verður því gengið út frá því að kærandi hafi a.m.k. dvalið hluta ævi sinnar í Sabuun í Jowhar umdæmi í Mið-Shabelle í Sómalíu og verður það því talið heimasvæði kæranda. Mið-Shabelle er staðsett í suðausturhluta Sómalíu og samanstendur af fjórum umdæmum þar sem höfuðborgin er Jowhar. Landaupplýsingar benda til þess að í Mið-Shabelle fari sómölsk yfirvöld með yfirráð yfir stærri bæjum og borgum en Al-Shabaab fari frekar með yfirráð í dreifbýlum. Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now bæði frá því í desember 2021 og frá því í janúar 2023, fara ATMIS eða sómölsk yfirvöld með yfirráð yfir borgunum Jowhar og Mahaday í Mið-Shabelle. Heimaþorp kæranda, Sabuun, er samkvæmt ítarlegum landakortum af umdæmi Jowhar staðsett mitt á milli borganna Jowhar og Mahaday og af framangreindum kortum og öðrum upplýsingaveitum, s.s. EUAA er ekki ljóst hver fari með yfirráð í dreifbýli á svæðinu.
Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun 8. febrúar 2023 að hún hafi flúið heimaríki vegna ofsókna af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab. Til að byrja með hafi samtökin áreitt föður kæranda og krafið hann um greiðslu skatta og tekið afurðir af landareign hans. Þá hafi þeir eyðilagt bóndabýli hans og meinað honum aðgang að landareign sinni. Al-Shabaab hafi jafnframt áreitt systur kæranda sem hafi selt mat og krafið hana um greiðslu skatta. Þá hafi Al-Shabaab farið fram á það við föður kæranda að hann gæfi kæranda til hjónabands með meðlimi Al-Shabaab en faðir kæranda hafi neitað því. Samtökin hafi þá tekið kæranda með valdi og farið með hana í húsnæði á þeirra vegum. Þar hafi kærandi verið þvinguð til að ganga í hjónaband með meðlimi samtakanna. Sá maður hafi miðað skotvopni að höfði kæranda og hótað að verða henni og föður hennar að bana. Þá hafi hann beitt kæranda ítrekuðu ofbeldi, m.a. kynferðislegu. Þegar kærandi hafi verið í haldi samtakanna hafi brotist út óvænt átök milli Al-Shabaab og sómalskra stjórnvalda sem hafi skapað ringulreið sem kærandi hafi nýtt sér til þess að flýja. Faðir kæranda hafi þá falið kæranda hjá nágranna þeirra ásamt þremur systrum kæranda. Þaðan hafi kærandi og systur hennar farið til frænku sinnar í Mógadisjú og loks flúið heimaríki sitt í ágúst 2022. Þá kemur fram í viðtali við systur kæranda að faðir kæranda og föðursystir hans hafi selt landsvæði í þeirra eigu til að fjármagna flótta þeirra. Hinn 7. maí 2024 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda m.a. um landsvæði föður hennar. Í svörum sem bárust 10. maí 2024 greindi kærandi frá því að faðir hennar hafi ræktað sítrustré í útjaðri þorpsins þar sem þau hafi verið búsett, n.t.t. á landspildu sem hann hafi átt þar. Al-Shabaab hafi brennt trén og þannig eyðilagt land hans og hrakið föður hennar af því. Faðir kæranda hafi svo átt, ásamt systur sinni, frænku kæranda, aðra landspildu í nágrenni Mógadisjú og hann hafi selt hana til þess að fjármagna flótta kæranda og systra hennar. Kærandi hafi aldrei búið á landspildunni sem Al-Shabaab brenndi eða eyðilagði. Þau hafi þó búið það nálægt henni að eldurinn hafi næstum náð til kofans þeirra en þau hafi ekki þurft að flýja vegna brunans.
Samkvæmt skýrslu á vegum EUAA frá ágúst 2023 heldur Al-Shabaab úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgar fé af fyrirtækjum, skattleggur búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu. Skattheimta samtakanna eigi sér helst stað á svæðum sem séu undir stjórn samtakanna en hafi einnig náð til svæða sem séu undir stjórn sómalskra yfirvalda, t.a.m. í Mógadisjú og Jowhar. Þá kemur fram í skýrslu EUAA frá 2021 og júní 2023 að konur og stúlkur standi frammi fyrir margs konar áskorunum í Sómalíu, m.a. þvinguðum hjónaböndum á barnsaldri, kynfæralimlestingum, heimilisofbeldi, kynferðis- og kynbundnu ofbeldi, auk takmarkana á skólagöngu. Samkvæmt skýrslunni séu konur sérstaklega berskjaldaðar gagnvart kynbundnu ofbeldi og sómölsk lög og réttarkerfið veiti takmarkaða vernd gegn mismunun á grundvelli kyns. Samkvæmt skýrslu á vegum EUAA frá september 2021 og uppfærði skýrslu frá ágúst 2023 eru dæmi þess að konur og stúlkur séu þvingaðar til að ganga til liðs við Al-Shabaab í gegnum hjónabönd. Algengast sé að slík hjónabönd séu ákveðin af fjölskyldumeðlimum og ættbálkum stúlknanna en einnig séu dæmi um Al-Shabaab þvingi fram slík hjónabönd og á svæðum sem séu undir stjórn samtakanna sé það algengt. Þá hafi samtökin notað hjónaband sem tálbeitu til að fá hermenn til að ganga til liðs við sig á svæðum sem séu undir áhrifum samtakana. Í skýrslu á vegum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að Al-Shabaab hafi beitt kynbundnu ofbeldi og þvingað konur á aldrinum fjórtán til tuttugu ára, á svæðum sem séu undir stjórn samtakanna, til að ganga í hjónaband með meðlimum þeirra. Konurnar og fjölskyldur þeirra hafi almennt ekki annarra kosta völ en að sætta sig við það ellegar eiga á hættu ofbeldi af hálfu samtakanna.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar er byggt á því, m.a. með vísan til tölfræðiupplýsinga frá ACLED, að draga megi þá ályktun að frá árinu 2022 hafi ástandið í heimaþorpi kæranda, Sabuun, og návígi við það verið með kyrrum kjörum. Í kjölfarið er byggt á því að ástandið í tilteknu þorpi sem sé staðsett í tveggja kílómetra fjarlægð frá Sabuun sé með öðrum hætti og hafi séð inn skerf af átökum, t.a.m. sprengjuárásir af hálfu Al-Shabaab þar sem m.a. óbreyttir borgarar hafi látið lífið. Kærunefnd gerir athugasemd við framangreinda umfjöllun Útlendingastofnunar enda ljóst af umfjöllun stofnunarinnar að ástandið í návígi við Sabuun hafi ekki verið með kyrrum kjörum og því erfitt að fullyrða að engin öryggistilvik hafi átt sér stað í heimaþorpi kæranda eða að þau átök sem hafi átt sér stað í næsta nágrenni hafi ekki haft áhrif þar. Sérstaklega er gerð athugasemd við framangreint í því ljósi að stofnunin óskaði ekki eftir nákvæmari upplýsingum um hvar húsnæði kæranda og fjölskyldur hennar var staðsett en af frásögn kæranda má ætla að það hafi verið í útjaðri þorpsins. Þá spurði Útlendingastofnun ekki frekar út í það hvar það hús sem kæranda kvaðst hafa verið haldið af Al-Shabaab hafi verið staðsett. Heimaþorp kæranda, Sabuun, er sem fyrr segir á milli tveggja borga sem eru undir yfirráðum sómalskra stjórnvalda en ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um hver fari með stjórn í heimaþorpi kæranda. Landaupplýsingar benda til þess að Al-Shabaab hafi frekar stjórn yfir dreifbýlli svæðum og með vísan til þess er ekki unnt að útiloka að Al-Shabaab fari með stjórn í heimaþorpi kæranda eða hafi a.m.k. ítök þar. Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að nokkrir öryggisatburðir hafi átt sér stað í heimaþorpi kæranda eða návígi við hann samkvæmt tölfræðiupplýsingum frá ACLED. T.d. hafi Al-Shabaab rænt ótilgreindum fjölda drengja úr þorpinu 6. maí 2022. Þeir atburðir sem kærandi hefur greint frá að hafi átt sér stað í heimaþorpi hennar, þ. á m. skattlagning Al-Shabaab og eyðilegging á landsvæði föður hennar, þvingað hjónaband kæranda og átök sem hafi átt sér stað milli Al-Shabaab og sómalskra stjórnvalda í heimaþorpi hennar eru ekki skráð í gagnagrunn ACLED. Þrátt fyrir það er ekki unnt að útiloka að þeir hafi átt sér stað. Þá ber að líta til þess hvað varðar þvingað hjónaband kæranda að heimildir benda til þess að nauðganir og annað kynferðisofbeldi sé mjög útbreitt vandamál og algengt í Sómalíu, einkum í Suður- og Mið-Sómalíu en meirihluti brotanna sé ekki tilkynnt til lögreglu, einkum sökum víðtæks refsileysis innan réttarkerfisins og ótta og skömm þolenda. Sama á við um skattlagningu Al-Shabaab sem sé jafnframt útbreitt vandamál í heimaríki kæranda en oft ekki tilkynnt til lögreglu af ótta við hótanir og ofbeldi af hálfu samtakanna.
Frásögn kæranda hefur að mestu leyti verið stöðug og í samræmi við frásagnir systra hennar um ástæður flótta þeirra. Landaupplýsingar benda til þess að þvinguð hjónabönd á vegum Al-Shabaab eigi sér stað í Sómalíu en fari helst fram á svæðum sem séu undir yfirráðum samtakanna. Að framangreindu virtu, með tilliti til trúverðugleika kæranda, landaupplýsinga um þvinguð hjónabönd, starfshætti Al-Shabaab og þess að meta skuli vafa kæranda í hag, er ekki ástæða til annars en að leggja til grundvallar að kæranda hafi verið rænt og þvinguð til að ganga í hjónaband með meðlimi Al-Shabaab sem hafi beitt kæranda ofbeldi. Þá má ætla að þau afskipti sem Al-Shabaab hafi haft af kæranda geti leitt til þess að hún sé í aukinni hættu á að verða fyrir ofsóknum af hálfu samtakanna verði henni gert að fara aftur til heimaríkis en heimildir benda til þess, m.a. skýrsla EUAA frá ágúst 2023, að konur sem hafi yfirgefið Al-Shabaab eigi ekki möguleika á að snúa aftur til svæða þar sem Al-Shabaab fari með yfirráð enda eigi þær á hættu aftöku sem svikarar. Frásögn kæranda um að ekki sé hægt að fá vernd stjórnvalda í heimaríki hennar fær jafnframt stoð í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað. Bera gögnin með sér að í mið- og suðurhluta Sómalíu sé réttarvörslukerfið veikburða og óskilvirkt og að einstaklingar geti ekki notið verndar yfirvalda vegna hættu af hálfu Al-Shabaab. Með vísan til þess og heildstæðs mat á aðstæðum kæranda í heimaríki telur kærunefnd að kærandi hafi með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún kunni að eiga á hættu ofsóknir sem rekja megi til aðstæðna hennar í heimaríki og að hún teljist því flóttamaður í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Mat á möguleika á flutningi innanlands
Þó svo að umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi sýnt fram á ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum á því landsvæði sem hann býr, er heimilt að synja umsókn um alþjóðlega vernd ef umsækjandi getur fengið raunverulega vernd í öðrum landshluta heimalands síns en hann flúði frá, viðkomandi getur ferðast þangað á öruggan og löglegan hátt og hægt er með sanngirni að ætlast til þess af viðkomandi að hann setjist að á því svæði, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpi til laga um útlendinga segir að niðurstaða um hvort útlendingur geti fengið raunverulega vernd í öðrum hluta heimalands skuli byggð á einstaklingsbundnu mati á persónulegum aðstæðum útlendingsins og þeim aðstæðum sem séu í því landi. Við mat á því hvort hægt sé með sanngirni að ætlast til þess að útlendingur setjist að á því svæði sem talið er öruggt samkvæmt ákvæði þessu skuli tekið tillit til ýmissa þátta, svo sem aldurs, kyns, heilsu, fjölskylduaðstæðna, trúar, menningar sem og möguleika viðkomandi útlendings á vinnu eða menntun. Við mat samkvæmt ákvæðinu skuli m.a. höfð hliðsjón af leiðbeiningum flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna (Guidelines on International Protection: „Internal Flight or Relocation Alternative“ within the Context og Article 1A(2) of the 1951 Convention and/or 1967 Protocol relating to the Status of Refugees, frá 23. júlí 2003).
Í leiðbeiningunum, sem varða möguleika á flutningi innanlands þegar einstaklingur hefur flúið heimaríki af ástæðuríkum ótta við ofsóknir, er lagt til grundvallar að mat á því hvort möguleiki sé á að einstaklingur geti flust búferlum til annars svæðis í heimaríki sé tvíþætt. Annars vegar verði að kanna hvort flutningur innanlands sé raunhæft úrræði. Að því er mál kæranda varðar kemur í þessu sambandi einkum til athugunar hvort það svæði sem lagt er til að hann flytjist til sé aðgengilegt á öruggan og löglegan hátt og hvort flutningur hans þangað skapi hættu á að kærandi verði fyrir ofsóknum eða alvarlegum skaða. Hins vegar beri að kanna hvort viðkomandi geti, með hliðsjón af aðstæðum í heimaríki hans, lifað tiltölulega eðlilegu lífi án þess að standa frammi fyrir óþarfa erfiðleikum. Við þann þátt matsins verður m.a. að horfa til persónulegra aðstæðna viðkomandi, t.a.m. félags- og efnahagslegra aðstæðna á því svæði sem lagt er til. Í leiðbeiningunum segir m.a. um síðastnefnt atriði að það sé ósanngjarnt að ætlast til þess að lífsviðurværi einstaklings verði verra en það sem talist geti viðunandi eða að viðkomandi búi við eymd.
Líkt og fram hefur komið kveðst kærandi vera uppalin í Sabuun í Jowhar héraði í Mið-Shabelle. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar að kærandi eigi á hættu ofsóknir af hálfu Al-Shabaab í Sabuun. Kemur þá til skoðunar hvort raunhæft og sanngjarnt sé að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í heimaríki sínu. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur hvatt ríki til að endursenda ekki einstaklinga til Mið-Sómalíu eða suðurhluta landsins, einkum vegna hernaðaraðgerða af hálfu vopnaðra hópa sem þar hafi átt sér stað lengi, sbr. skýrsla stofnunarinnar frá 2016, UNHCR Position on Returns to Southern and Central Somalia (Update I). Í leiðbeiningum stofnunarinnar um mat á innri flutningi í Sómalíu frá 2022 er fjallað um mögulegan innri flutning til ákveðinna svæða í Sómalíu, s.s. Mógadisjú, Puntlands og Sómalílands. Þá sé innri flutningur vegna mögulegra ofsókna af hálfu Al-Shabaab ekki tækur til svæða sem eru að hluta til eða að öllu leyti undir stjórn Al-Shabaab og ef einstaklingur eigi á hættu ofsóknir af hálfu Al-Shabaab þurfi að meta hvort líkur séu á því að samtökin geti haft uppi á aðilanum á hinum nýja stað.
Innri flutningur, m.a. til hina fyrrgreindu svæða, sé þó afar erfiður og almennt sé ekki sanngjarnt að ætlast til þess að einstaklingur setjist að annars staðar í Sómalíu nema ljóst sé að hann muni njóta stuðnings fjölskyldu sinnar eða ættbálkar. Þá sé staða einstaklinga sem tilheyri minnihlutahópum eða minnihlutaættbálkum sérstaklega erfið.
Systir kæranda greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hún, kærandi og tvær yngri systur þeirra hafi flúið frá Sabuun til Mógadisjú og dvalið þar hjá frænku sinni þar til þær hafi yfirgefið Sómalíu. Al-Shabaab hafi hringt í systur kæranda eftir að þær komu til Mógadisjú og hótað þeim. Faðir kæranda og frænka þeirra hafi selt land til þess að fjármagna flótta þeirra. Eftir það hafi faðir kæranda verið handsamaður af Al-Shabaab. Í svörum við fyrirspurn kærunefndar, dags. 10. maí 2024, greindi kærandi frá því að þær hafi síðast heyrt í fjölskyldu sinni þegar þær hafi verið staddar í Grikklandi og að þær viti ekkert um afdrif fjölskyldumeðlima sinna. Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið búsett meirihluta ævi sinnar í Sabuun í Mið-Shabelle. Þrátt fyrir að gögn málsins bendi til þess að kærandi eigi frænku í Mógadisjú er það mat kærunefndar að ekki sé hægt að ætla að kærandi njóti stuðnings fjölskyldu sinnar í Mógadisjú. Við það mat er litið til þess að kærandi er einstæð kona en heimildir benda til þess að konur eigi erfitt uppdráttar á mörgum sviðum, m.a. á sviði húsnæðis, menntunar og atvinnu. Þá séu einstæðar konur almennt í viðkvæmari stöðu en giftar konur, en skortur á vernd í bland við viðhorf feðraveldisins í Sómalíu leiði til mismununar og útilokunar einstæðra kvenna. Einstæðar konur standi t.a.m. frammi fyrir erfiðleikum við að leigja eigið húsnæði þar sem þær þurfi karlmann til að ábyrgjast leigufyrirkomulagið. Þá eigi einstæðar konur sérstaklega á hættu að sæta kynbundnu ofbeldi þar sem þær neyðist til að vera á vinnumarkaði til að geta mætt grunnþörfum fjölskyldu sinnar og vegna staðalímynda í samfélaginu sem álíti konur og stúlkur veikburða.
Með vísan til framangreinds er það mat kærunefndar að ekki sé hægt með sanngirni að ætlast til þess að kærandi setjist að annars staðar í Sómalíu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að skilyrði 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um flutning innanlands séu ekki uppfyllt og telst kærandi því flóttamaður.
Samantekt
Að öllu framangreindu virtu er fallist á aðalkröfu kæranda um að fella úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar og veita kæranda alþjóðlega vernd á Íslandi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. útlendingalaga, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðsamnings um stöðu flóttamanna.
Í ljósi þess að kærunefnd útlendingamála hefur fallist á aðalkröfu kæranda verða aðrar kröfur kæranda ekki teknar til umfjöllunar í máli þessu.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Kæranda er veitt alþjóðleg vernd á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 40. gr. s.l. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 73. gr. laga um útlendinga.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The appellant is granted international protection in accordance with Article 37, paragraph 1, and Article 40, paragraph 1, of the Act on Foreigners. The Directorate is instructed to issue him residence permit on the basis of Article 73 of the Act on Foreigners.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir