24 maí 2024

/

Arctica Finance til ráðgjafar vegna sölu eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka

{image.Description}
Hari

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Arctica Finance hf. sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa til að veita ráðuneytinu þjónustu og ráðgjöf varðandi skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.

Útboð verða opin bæði almennum fjárfestum og fagfjárfestum í skilningi laga um markaði um fjármálagerninga. Fyrirvari er um að samningur aðila um fyrrgreinda þjónustu muni falla niður ef frumvarp um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka verður ekki að lögum.