24 maí 2024

/

Nr. 555/2024 Úrskurður

Hinn 24. maí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 555/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24050049

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.       Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 6. maí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Filippseyja (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. apríl 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hennar um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II.        Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 2. apríl 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 21 dags dvöl frá 13. júní til 3. júlí 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 24. apríl 2024. Hinn 6. maí 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda ásamt fylgigögnum.

III.    Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda er vísað til fyrirliggjandi ákvörðunar Útlendingastofnunar. Kærandi sé ríkisborgari Filippseyja en búsett í Bandaríkjunum. Kærandi kveðst hafa lagt fram öll nauðsynleg fylgigögn við meðferð umsóknar sinnar, eftir bestu vitund. Samhliða stjórnsýslukæru hafi kærandi þó lagt fram afrit allra gistibókana og ferðaáætlunar vegna ferðar sinnar. Þá biðst kærandi afsökunar á því að hafa ekki svarað símtali fulltrúa sendiráðsins en hún kveðst hafa verið á vinnufundi og ekki haft símann sinn við hendina. Kærandi kveðst hafa komið til Íslands í fyrsta skipti árið 2017 og hafi hún viljað ferðast hingað aftur og óski því endurskoðunar á ákvörðun Útlendingastofnunar.

Meðal fylgigagna sem kærandi lagði fram á kærustigi er ferðaáætlun ásamt yfirliti yfir gistibókanir.

IV.    Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Filippseyja þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2 og 10, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar auk þess sem upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru óáreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að hótelbókanir fyrir nokkrar nætur hafi skort auk þess sem kærandi hafi ekki svarað símtölum. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá Utanríkisráðuneytinu en umsóknin var lögð fram á skrifstofu VFS global í San Francisco, Bandaríkjunum, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Samkvæmt hinni kærðu ákvörðun lagði kærandi ekki fram gistibókanir fyrir allar nætur á fyrirhuguðum dvalartíma. Á kærustigi lagði kærandi fram viðbótargögn vegna málsins en þar kemur fram að kærandi verði í skemmtisiglingu sem hefst í Reykjavík 21. júní 2024, fer til Noregs, og lýkur aftur í Reykjavík 1. júlí 2024. Í hinni kærðu ákvörðun er einnig vísað til símtals utanríkisþjónustunnar sem kærandi hafi ekki svarað. Í málatilbúnaði sínum vísar kærandi til þess að hafa verið á vinnufundi og ekki með símann á sér og því ekki getað svarað símtalinu. Samkvæmt 8. mgr. 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er sendiskrifstofum og miðlægum yfirvöldum heimilt að taka viðtöl við umsækjendur þegar ástæða þykir til og fara fram á framlagningu viðbótargagna. Í gögnum málsins er ekki að finna upplýsingar eða skýringu á því hvers vegna tekin var ákvörðun um að taka símaviðtal við kæranda. Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum hafi verið reynt að hringja í kæranda einu sinni, nánar tiltekið 18. apríl 2024, en kærandi hafi ekki svarað. Útlendingastofnun byggir synjun á umsókn kæranda um vegabréfsáritun annars vegar á því að kærandi hafi ekki svarað umræddu símtali. Sú ákvörðun er í eðli sínu íþyngjandi fyrir kæranda og þar af leiðandi verður að gera þá kröfu að ástæðan fyrir ákvörðun um símaviðtal sé skráð meðal gagna málsins. Kærunefnd gerir athugasemd við umræddan annmarka á málsmeðferð Útlendingastofnunar.

Hins vegar byggir Útlendingastofnun ákvörðun um synjun á umsókn kæranda um vegabréfsáritun á því að hótelbókanir fyrir nokkrar nætur hafi skort meðal fylgigagna með umsókn. Á kærustigi hefur kærandi lagt fram bókun fyrir skemmtisiglingu og mun kærandi gista í káetu á meðan siglingunni stendur. Um er að ræða gögn sem kærunefnd leggur ekki mat á.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi framangreinds og með vísan til þess að nú liggja fyrir gögn í máli kæranda sem áhrif geta haft á niðurstöðu máls hennar, er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.

Að framangreindu virtu er ákvörðun Útlendingastofnunar felld úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kæranda til nýrrar meðferðar.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er felld úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kæranda til meðferðar á ný.

The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellant‘s case.

 

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður