13 júní 2024

/

Úrskurður nr. 606/2024


Hinn 13. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 606/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU23120081 og KNU23120082

Mál [...], [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 19. desember 2023 barst kærunefnd útlendingamála sjálfkrafa kæra, samkvæmt 3. málsl. 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, á ákvörðun Útlendingastofnunar um að taka ekki til efnismeðferðar hér á landi umsóknir einstaklingar er kveðast heita [...], vera fæddur [...]og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir M) og [...], vera fædd [...]og vera ríkisborgari Nígeríu (hér eftir K) og barna þeirra [...], fd. [...] (hér eftir A), [...], fd. [...] (hér eftir B) og [...], fd. [...] (hér eftir C), ríkisborgarar Nígeríu, um alþjóðlega vernd og vísa þeim frá landinu.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju til þeirrar stofnunar sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar, sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort taka eigi mál kærenda til efnismeðferðar hér á landi á grundvelli 36. gr. laganna. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt.

Kærendur gera kröfu um að hinar kærða ákvarðanir verði felldar úr gildi og að umsóknir þeirra verði teknar til efnismeðferðar samkvæmt ákvæðum 36. gr. laga um útlendinga. Til vara er þess krafist að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi og Útlendingastofnun verði gert að taka þær til meðferðar að nýju.

2 Málsmeðferð

Kærendur ásamt A og B lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi 8. október 2023 fyrir sig og börn sín. Á grundvelli frásagnar kærenda um að þau væru með dvalarleyfi á Ítalíu var 13. október 2023 beiðni um viðtöku kærenda og umsókna þeirra beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 2. mgr. 13. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 5. og 6. desember 2023 kom fram að þau samþykktu viðtöku kærenda og barna þeirra á grundvelli 2. mgr. 13. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 6. nóvember 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. Útlendingastofnun ákvað 18. desember 2023 að taka umsóknir kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi ekki til efnismeðferðar og að þeim skyldi vísað frá landinu. Ákvarðanirnar voru birtar fyrir kærendum sama dag og barst nefndinni greinargerðir kærenda 2. janúar 2024 ásamt fylgigögnum. Þá bárust frekari gögn 29. apríl 2024.

3 Málsástæður og rök kærenda

Farið hefur verið yfir greinargerðir kærenda og mat lagt á öll sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðum kærenda er vísað til greinargerða þeirra til Útlendingastofnunar hvað varðar atvik, málsástæður og önnur atriði. Þar kemur m.a. fram að kærendur hafi yfirgefið Ítalíu en þau hafi ekki haft dvalarleyfi þar í landi. Kærendur hafi verið í mikilli hættu á Ítalíu vegna aðstæðna M en hann hafi, í gegnum eldri bróður sinn, um tíma haft tengsl við skipulagða glæpastarfsemi nígerískra innflytjenda. M hafi hins vegar snúist á sveif með yfirvöldum og vitnisburður hans í fjölda mála leitt til sakfellingar tuga glæpamanna. Ítölsk yfirvöld hafi gengist við því að líf M og fjölskyldunnar væri í hættu vegna mögulegra hefndaraðgerða en þeim mistekist að vernda þau. Kærendur hafi mátt sæta árásum og hótunum af hálfu glæpagengis sem hafi það að markmiði að ráða þau af dögum.

Í greinargerðum kærenda eru færð rök fyrir því að aðstæður þeirra falli ekki undir 1. mgr. 36. gr. laganna. Í því sambandi vísa kærendur til þess að meginregla sé sú að taka beri umsóknir til efnismeðferðar hér á landi og endursending sé því undantekning frá þeirri reglu. Slíkar undantekningar skuli túlka þröngt. Kærendur vísa til þess að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga feli í sér heimild en ekki skyldu til að endursenda einstaklinga.

Í greinargerðum kærenda eru færð rök fyrir því að aðstæður þeirra falli undir 2. mgr. 36. gr. laganna. Vísa kærendur til þess að fjölskyldan hafi átt og muni áfram eiga erfitt uppdráttar á Ítalíu og staða þeirra þar verði verulega síðri en staða almennings. Því beri að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar.

Kærendur byggja þá á því að hinar kærðu ákvarðanir séu haldnar ógildingarannmörkum. Í fyrsta lagi hafi Útlendingastofnun komist að rangri niðurstöðu um að K teljist ekki vera í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. K hafi verið þunguð við komuna til landsins og fætt C hér á landi eftir áhættumeðgöngu. Þungaðar konur séu taldar upp í dæmaskyni í fyrrnefndu lagaákvæði. Útlendingastofnun hefði borið að meta umsókn K sérstaklega m.t.t. þess sem fram komi í 1. mgr. 25. gr. laga um útlendinga. Framangreindur annmarki varði ógildingu ákvörðunar í máli K að mati kærenda. Í öðru lagi hafi rannsókn Útlendingastofnunar verið áfátt og rökstuðningur í hinum kærðu ákvörðunum verið ófullnægjandi. Vísa kærendur til 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga í þessu samhengi. Kærendur telja að ekki hafi verið litið nægjanlega til sérstakra aðstæðna kærenda á Ítalíu. Kærendur telji sannað með fyrirliggjandi gögnum að fjölskyldan hafi verið í mikilli hættu vegna framburðar M í dómsmálum sem leitt hafi til sakfellingar fjölda glæpamanna á Ítalíu. Kærendur hafi ekki fengið fullnægjandi vernd í kjölfarið frá ítölskum stjórnvöldum. Kærendur vísa til framlagðra gagna hvað þessa frásögn varðar. Kærendur geri athugasemd við að hvorki hafi verið fjallað um þessi skjöl í hinum kærðu ákvörðunum né aðstæður kærenda yfir höfuð. Kærendur telja skorta á að fjallað sé um og tekin sé afstaða til frásagna þeirra og framlagðra gagna. Telja kærendur að framangreint skuli leiða til ógildingar ákvarðananna. Kærendur telja í þriðja lagi að skort hafi á umfjöllun um að C hafi fæðst hér á landi og haft fasta búsetu hér frá fæðingu og því sé óheimilt að vísa henni á brott, sbr. 1. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Telja kærendur slíkt varða ógildingu ákvarðananna.

4 Umsókn um alþjóðleg vernd

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Ákvæði laga um útlendinga, reglugerðar um útlendinga sem og önnur sem máli skipta við úrlausn umsókna kærenda um alþjóðlega vernd verða reifuð í viðeigandi köflum hér að neðan.

4.2 Aðstæður kærenda og barna þeirra

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur par á [...]sem komu hingað til lands ásamt A og B sem eru [...]og [...]ára. K eignaðist C hér á landi [...]. M kvaðst hafa dvalið á Ítalíu frá árinu 2008 og K frá árinu 2012. Kærendur telji sig vera í hættu á Ítalíu þar sem M hafi áður verið viðriðin skipulagða glæpastarfsemi en ákveðið að vinna með yfirvöldum og borið vitni gegn meðlimum glæpahóps frá heimaríki. Samvinna M hafi leitt til sakfellingar fjölda glæpamanna og í kjölfarið hafi M orðið fyrir ofbeldi og hótunum. Kærendur kveði að ítölsk yfirvöld hafi svikið loforð um lögregluvernd í kjölfar uppljóstrana M. K greindi frá því að hafa orðið fyrir líkamsárás á Ítalíu þar sem henni hafi verið hótað og farsími hennar eyðilagður í hefndaraðgerð gegn henni og M. Kærendur kveði að þau hafi ekki haft möguleika á að endurnýja dvalarleyfi sín hjá ítölskum stjórnvöldum. Kærendur hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu eftir að dvalarleyfi þeirra runnu út. Kærendur hafi upplifað fordóma á Ítalíu. M kvaðst glíma við [...] og upplifa [...]. M hafi verði [...] fyrir tíu árum og glími enn við heilsukvilla af þeim sökum. K hafi komið barnshafandi hingað til lands en hún hafi verið í áhættumeðgöngu. K kvað andlega heilsu sína vera í lagi. Kærendur greindu frá því að A og B væru að mestu heilsuhraust en B væri með [...] og hafi átt erfitt með að borða. Þá er ekkert í málinu sem bendir til annars en að C sé við góða heilsu. Samkvæmt upplýsingum úr lögregluskýrslu vegna umsókna kærenda um alþjóðlega vernd eru kærendur bæði ólæs.

4.3 Réttarstaða barna kærenda

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og að tekið sé tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni. Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra skuli það almennt viðurkennt að hagsmunum barns sé best borgið með því að tryggja fjölskylduna sem heild og rétt hennar til að vera saman.

Kærunefnd hefur farið yfir gögn málsins, þ. á m. viðtöl við kærendur hjá Útlendingastofnun og gögn málsins sem bera með sér að börn kærenda hafi góð tengsl við báða foreldra sína og finni hjá þeim öryggi. Allt bendir til þess að hagsmunum barnanna sé best borgið með því að tryggja rétt fjölskyldunnar til að vera saman og að réttarstaða þeirra verði ákveðin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Börnin A, B og C eru í fylgd foreldra sinna og verður því tekin afstaða til mála fjölskyldunnar í einum úrskurði.

4.4 Niðurstaða um 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema:

c. heimilt sé að krefja annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Ábyrgð Ítalíu á umsóknum kærenda og barna þeirra er byggð á 2. mgr. 13. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem gögn málsins bera með sér að kærendur hafi dvalið á Ítalíu í a.m.k. fimm mánuði. Samkvæmt framansögðu er heimilt að krefja ítölsk stjórnvöld um að taka við kærendum og börnum þeirra, sbr. c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerðum kærenda er vísað til þess að 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga feli í sér heimild en ekki skyldu til að endursenda einstaklinga. Ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar kveða á um undanþáguákvæði frá meginreglu reglugerðarinnar um að ákvarða skuli hvaða ríki beri ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd á grundvelli þeirra viðmiða sem fram komi í reglugerðinni. Kærunefnd hefur í eftirfarandi umfjöllun lagt mat á einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og aðstæður í viðtökuríki um hvort taka beri umsóknir kærenda til efnismeðferðar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt orðalagi 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal umsókn um alþjóðlega vernd skv. 37. gr. laganna tekin til efnismeðferðar nema aðstæður í a – d-lið ákvæðisins eigi við um umsóknina. Af því orðalagi er ljóst að stjórnvöldum beri skylda til að beita ákvæðum a – d-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eigi þau við. Þá eru íslensk stjórnvöld jafnframt bundin af jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga við mat á því hvort umsókn skuli tekin til efnismeðferðar.

4.5 Landaupplýsingar

Nefndin hefur lagt mat á aðstæður á Ítalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum og gögnum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Italy (United States Department of State, 22. apríl 2024);
  • Amnesty International Report 2022/2023 – Italy (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report on the Situation of Asylum in the European Union 2021 (European Asylum Support Office, 28. júní 2022);
  • Asylum Information Database. Country Report – Italy (European Council on Refugees and Exiles, uppfært 31. maí 2023);
  • Asylum Information Database. Housing out of reach. The reception of refugees and asylum seekers in Europe (European Council on Refugees and Exiles, 31. maí 2019);
  • Concluding observations of the Committee on the Elimination of Racial Discrimination (UN Committee on the Elimination of Racial Discrimination, 17. febrúar 2017);
  • ECRI Report on Italy (European Commission against Racism and Intolerence, 7. júní 2016);
  • Freedom in the World 2023 – Italy (Freedom House, mars 2023);
  • Italy: A new system of reception and integration (European Web Site on Integration - Migrant Integration Information and good practices, 25. janúar 2021);
  • Italy: How has the reception system for asylum seekers and refugees changed (European Web Site on Integration - Migration Integration Information and good practices, 4. febrúar 2021);
  • The Journey of Hope: Education for Refugee and Unaccompanied Children in Italy (Education International Research, 31. maí 2017);
  • Mutual Trust is Still Not Enough. The situation of persons with special reception needs transferred to Italy under the Dublin III Regulation (Danish Refugee Council og Swiss Refugee Council, 12. desember 2018);
  • Parental responsibility – child custody and contact rights – Italy (European Judicial Network in civil and commercial matters, síðast uppfært 21. júlí 2022),
  • Reception conditions in Italy. Updated report on the situation of asylum seekers and beneficiaries of protection, in particular Dublin returnees, in Italy (Swiss Refugee Council, janúar 2020);
  • Report of mission to Italy on racial discrimination, with a focus on incitement to racial hatred and discimination (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights, 2019);
  • Submission by the United Nations High Commissioner for Refugees. For the Office of the High Commissioner for Human Rights‘ Compilation Report – Universal Periodic Review: Italy (UNHCR, desember 2019);
  • The ELENA Index (Elena, European legal network on asylum og European Council on Refugees and Exiles, uppfært febrúar 2019);
  • Upplýsingar af vefsíðu European Union Agency for Asylum (https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_23_4503);
  • Upplýsingar af vefsíðu Flóttamannastofnunar (https://help.unhcr.org/italy/services/violence/);
  • Upplýsingar af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (https://ec.europa.eu/commission/presscorner/detail/en/ip_23_4503);-
  • UNHCR Guidelines L’identificazione delle vittime di tratta tra i richiedenti protezione internazionale e procedure di referral (UNCHR, janúar 2021)
  • Country profiles – Italy: Policies and progress towards investing in children: (European Commission, 11. júní 2021);
  • Upplýsingar af vefsíðu Amnesty International (www.amnesty.org);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska flóttamannaráðsins (í. Consiglio Italiano per I Rifugiati – (http:www.cir-onlus.org/en/);
  • Upplýsingar af vefsíðu ítalska menntamálaráðuneytisins (https://www.miur.gov.it/web/ guest/scuola-dell-infanzia);
  • Upplýsingar af vefsíðu OSCE Office for Democratic Institutions and Human Rights(www.hatecrime.osce.org/italy) og
  • World Report 2024 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Ítalía er eitt af aðildarríkjum Evrópusambandsins og því bundið af reglum sambandsins við málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, t.a.m. tilskipunum sambandsins um meðferð umsókna um alþjóðlega vernd nr. 2013/32/EU, um móttökuaðstæður nr. 2013/33/EU og um lágmarksviðmið til þess að teljast flóttamaður nr. 2011/95/EU. Þá hefur Ítalía verið aðili að Evrópuráðinu frá 5. maí 1949 og fullgilti mannréttindasáttmála Evrópu 16. október 1955. Ítalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri illri og ómannlegri eða vanvirðandi meðferð 12. janúar 1989 og fullgilti samninga Sameinuðu þjóðanna um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978 og barnasáttmálann árið 1991. Þá gerðist ríkið aðili að Flóttamannasamningnum 15. nóvember 1954.

Í skýrslu European Council on Refugee and Exciles (ECRE) kemur fram að þegar umsækjendur um alþjóðlega vernd séu sendir til Ítalíu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar geti þeir lagt fram umsókn hjá lögreglunni (í. Questura) eða hjá landamæralögreglunni (í. Polizia di Frontiera) hafi þeir ekki áður lagt fram umsókn þar í landi. Fái umsækjandi um alþjóðlega vernd synjun á umsókn sinni geti hann áfrýjað þeirri niðurstöðu. Þá eigi hann kost á því að bera synjunina undir dómstóla (í. Tribunale Civile). Jafnframt eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þess kost að leggja fram beiðni fyrir Mannréttindadómstól Evrópu um bráðabirgðaráðstöfun samkvæmt 39. gr. málsmeðferðarreglna dómstólsins, telji þeir endanlega niðurstöðu um synjun á umsókn um alþjóðlega vernd og brottvísun til heimaríkis hafa í för með sér hættu á ofsóknum eða að um meðferð sé að ræða sem brjóti í bága við ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu. Þá kemur fram í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins að umsækjendur um alþjóðlega vernd, sem fengið hafi endanlega synjun á umsókn sinni hjá ítölskum yfirvöldum, eigi þess kost að leggja fram viðbótarumsókn á grundvelli nýrra gagna í máli þeirra hjá lögreglunni og njóti þá sömu almennu réttinda og aðrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Fyrir liggur að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Íslandi sem falla undir ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar eru sendir til baka til meginlandsins með flugi. Í framangreindum gögnum, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, kemur fram að á stærstu flugvöllum landsins, í Róm og Mílanó, séu frjáls félagasamtök til staðar sem veiti umsækjendum um alþjóðlega vernd ráðgjöf og þjónustu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu eigi almennt ekki rétt á gjaldfrjálsri lögfræðiaðstoð þegar þeir leggi fram umsókn um alþjóðlega vernd en frjáls félagasamtök veiti gjaldfrjálsa lögfræðiaðstoð í umsóknarferlinu.

Í skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Ef engin pláss séu til staðar í slíkum móttökumiðstöðvum séu til staðar gistirými í móttökumiðstöðvum sem nefnist CAS (í. Centro di accoglienza straordinaria). CAS miðstöðvarnar hafi upphaflega einungis verið ætlaðar til tímabundinnar dvalar en vegna mikils fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu nýtur meirihluti umsækjenda um alþjóðlega vernd eingöngu þjónustu í CAS miðstöðvunum. Gagnrýnt hefur verið að umræddar miðstöðvar séu yfirfullar, staðsettar á afskekktum svæðum og að þar skorti hreinlæti. Samkvæmt upplýsingum af vefsíðu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tóku ný lög nr. 130/2020 gildi árið 2020 á Ítalíu sem kveða á um breytingar á móttökumiðstöðvum og búsetuúrræðum fyrir flóttamenn og umsækjendur um alþjóðlega vernd. Samkvæmt ákvæðum laganna hefur móttöku- og húsnæðiskerfið SIPRIOMI, sem áður var einungis ætlað þeim sem hlotið hafa alþjóðlega vernd og fylgdarlausum börnum, verið endurskipulagt og fengið nýtt nafn, SAI (e. System of reception and integration). Búsetuúrræðinu hafi verið skipt í tvennt; annars vegar móttökumiðstöðvar og búsetuúrræði fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og hins vegar búsetuúrræði og þjónustu fyrir þá sem hlotið hafa alþjóðlega vernd á Ítalíu. Samkvæmt lagabreytingum sem tóku gildi í maí 2023 verður móttökukerfinu SAI breytt í undirkerfi og er einungis ætlað handhöfum alþjóðlegrar verndar.

Af framangreindum gögnum, s.s. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins, má sjá að ítölsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd vegna aðbúnaðar umsækjenda um alþjóðlega vernd og flóttamanna þar í landi. Af skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins má ráða að í ítalska hæliskerfinu sé ekki skimað kerfisbundið eftir því hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd teljist vera viðkvæmir einstaklingar. Hins vegar geti greining á þolendum pyndinga eða alvarlegs ofbeldis átt sér stað á öllum stigum umsóknarferlisins um alþjóðlega vernd. Svokallaðar svæðisnefndir (í. Commissione territoriale per il riconoscimento della protezione internazionale) taki ákvörðun á fyrsta stigi málsmeðferðar og geti þær m.a. óskað eftir því að umsækjandi fari í sérstaka læknisskoðun þar sem fram fari mat á því hvaða áhrif ofsóknir og ofbeldi hafi haft á umsækjanda. Slíkt mat sé framkvæmt í samræmi við leiðbeiningarreglur heilbrigðisráðuneytis Ítalíu um þjónustu handa flóttamönnum sem þjást af andlegum veikindum og/eða eru þolendur pyndinga, nauðgana eða annars konar andlegs, líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis.

Á grundvelli framangreindra skýrslna og gagna sem kærunefnd hefur kynnt sér, s.s. skýrslum ECRE og svissneska flóttamannaráðsins, verður ráðið að umsækjendur um alþjóðlega vernd á Ítalíu, bæði börn og fullorðnir, eigi sama rétt og ítalskir ríkisborgarar til lögboðinnar heilbrigðisþjónustu, þ. á m. geðheilbrigðisþjónustu. Þeir þurfi þó að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið en við slíka skráningu fái þeir útgefið tryggingarkort sem veiti þeim m.a. rétt á meðferð sérfræðilækna, s.s. val á barnalækni. Þá geri tryggingakortið umsækjendum kleift að verða sér út um tiltekið vottorð til þess að fá aðgang að leikskóla. Fyrir útgáfu tryggingarkortsins eigi umsækjendur um alþjóðlega vernd þó rétt á nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Skortur á sérhæfingu í málefnum flóttamanna og tungumálakunnátta geri þó sumum umsækjendum um alþjóðlega vernd erfitt fyrir að sækja sér viðunandi heilbrigðisþjónustu, einkum einstaklingum í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Umsækjendur um alþjóðlega vernd fái aðgang að ítalska vinnumarkaðnum tveimur mánuðum eftir að þeir hafi lagt fram umsókn sína. Þó kemur fram í framangreindum gögnum að atvinnuleysi á Ítalíu hafi verið mikið á undanförnum árum og erfitt hafi reynst fyrir marga, jafnt ítalska ríkisborgara sem og umsækjendur um alþjóðlega vernd, að finna atvinnu.

Á heimasíðu ítalska menntamálaráðuneytisins kemur fram að foreldrar barna á aldrinum þriggja mánaða til tveggja ára geti sótt um aðgang að vöggustofum en aðgengi að þeim sé stjórnað af hverju sveitarfélagi fyrir sig. Börn á aldrinum þriggja til sex ára hafi aðgang að leikskólum sem séu hluti af samfelldri menntastefnu landsins og opinberir leikskólar séu gjaldfrjálsir. Í skýrslu ECRE og skýrslu samtakanna Education International Research kemur m.a. fram að ítölsk lög kveði á um skólaskyldu til 16 ára aldurs. Öll börn sem dvelja á ítölsku yfirráðasvæði eigi því rétt á skyldubundinni menntun frá sex til 16 ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá eigi erlend börn rétt á sérstakri aðstoð hafi þau sérþarfir og jafnframt bjóði sumir skólar upp á sérstakt undirbúningsnámskeið til að aðstoða erlenda nemendur við að aðlagast skólanum. Þegar erlend börn leggi fram umsókn um skólavist þá sé krafist sömu upplýsinga um barnið og hjá ítölskum börnum en skortur á framlagningu gagna komi ekki í veg fyrir að barn sé skráð í skólann.

Af fyrrnefndum skýrslum, s.s. skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins og samtakanna Human Rights Watch, verður jafnframt ráðið að fordómar í garð fólks af erlendum uppruna séu vandamál á Ítalíu. Í skýrslu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, sem gefin var út í kjölfar sendifarar til Ítalíu sem farið var í árið 2019 til þess að meta aukna mismunun á grundvelli kynþáttar, kemur fram að í ítalskri löggjöf sé kveðið á um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Þá sé í stjórnarskrá landsins kveðið á um vernd ákveðinna hópa, þ. á m. útlendinga. Ítölsk yfirvöld hafi tekið mikilvæg skref í þá átt að vinna gegn kynþáttafordómum, mismunun á grundvelli kynþáttar og hatursglæpum. Á Ítalíu sé starfrækt stofnun (í. Ufficio Nazionale Antidiscriminazioni Razziali (UNAR)) sem hafi það hlutverk að berjast gegn hvers kyns mismunun. Einstaklingar sem telji sig hafa orðið fyrir mismunun þ. á m. vegna kynþáttar eða kynhneigðar og þurfa á aðstoð eða ráðgjöf að halda geti leitað til stofnunarinnar og tilkynnt hvers kyns mismunun í gegnum vefsíðu hennar. Þá reki lögreglan stofnun sem hafi það hlutverk að bæta forvarnir og aðgerðir lögreglu við hatursglæpum (í. Osservatorio per la Sicurezza Contro gli Atti Discriminatori (OSCAD)) sem vinni náið með UNAR. Stofnuninni sé m.a. ætlað að auka þjálfun lögreglufólks og stuðla að því að hatursglæpir séu tilkynntir og skráðir. Stofnunin sé með netfang þar sem unnt sé að tilkynna mismunun á grundvelli m.a. kynþáttar, ríkisfangs og trúar. Þær tilkynningar sem teljist geta falið í sér glæpsamlegt athæfi séu áframsendar lögreglu til rannsóknar en aðrar séu áframsendar til UNAR. Þá standi dómstólar landsins styrkum fótum sem hafi stuðlað að virkri framkvæmd hluta löggjafar um vernd gegn mismunun á grundvelli kynþáttar. Framangreindar skýrslur bera enn fremur með sér að almenningur á Ítalíu geti leitað sér aðstoðar ítalskra löggæsluyfirvalda vegna ofbeldisbrota og hótana. Þá kemur fram á vefsíðu Flóttamannastofnunar að séu stuðningsþjónustur fyrir þolendur afbrota óháð ríkisborgararétti, stöðu, kyni, kynþætti eða trú. Þá séu frjáls félagasamtök sem veiti þolendum afbrota stuðning og húsaskjól. Jafnframt eru starfræktar neyðarlínur sem eru opnar allan sólarhringinn, fyrir þolendur ofbeldis sem þurfi aðstoð og tímabundinn dvalarstað. Þá séu jafnframt starfrækt sérstök neyðarlína fyrir þolendur mansals.

Ítölsk stjórnvöld sendu frá sér beiðni 5. desember 2022, þar sem aðildarríki Dyflinnarsamstarfsins voru beðin um að stöðva tímabundið endursendingar til Ítalíu vegna álags á móttökukerfið þar í landi. Í samræmi við ákvæði Dyflinnarreglugerðarinnar hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sett fram tíu skrefa aðgerðaráætlun, dags. 17. september 2023, vegna aðstæðna á eyjunni Lampedusa á Ítalíu. Í henni felist m.a. aukinn stuðningur frá stofnun Evrópusambandsins um alþjóðlega vernd (European Union Asylum Agency, EUAA) og evrópsku landamæra- og strandgæslunni (Frontex) til að stjórna miklum fjölda umsækjenda um alþjóðlega vernd og styðja við flutning fólks frá Lampedusa til annarra aðildarríkja, sem lýst hafi yfir vilja til að taka yfir ábyrgð umsókna. Þá vinni EUAA að undirbúningi aukins viðbúnaðar m.a. með fjölgun starfsfólks á Suður-Ítalíu og öðrum stöðum sem þörf sé á.

4.6 Niðurstaða um 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 1. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef svo stendur á sem greinir í 1. mgr. skal þó taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef útlendingurinn hefur slík sérstök tengsl við landið að nærtækast sé að hann fái hér vernd eða ef sérstakar ástæður mæla annars með því.

Í 1. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur fram að með sérstökum ástæðum samkvæmt 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga sé átt við einstaklingsbundnar ástæður er varða umsækjanda sjálfan. Þá eru í 2. og 3. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar talin upp viðmið í dæmaskyni sem leggja skuli til grundvallar við mat á því hvort sérstakar ástæður séu fyrir hendi en þau viðmið varða aðallega alvarlega mismunun eða alvarleg veikindi. Þar segir:

Ef umsækjandi mun eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar, eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða ef umsækjandi getur vænst þess að staða hans, í ljósi framangreindra ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, ef umsækjandi glímir við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum er aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki. Meðferð telst, að öllu jöfnu, ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð er til í viðtökuríkinu en viðkomandi muni ekki standa hún til boða, eða ef umsækjandi, vegna þungunar, stendur ekki til boða fullnægjandi fæðingaraðstoð í viðtökuríki.

Að öðru leyti en talið er upp hér að framan hefur heilsufar umsækjanda takmarkað vægi við mat á því hvort umsókn hans verði tekin til efnislegrar meðferðar hér á landi nema ástæðan sé talin það einstaklingsbundin og sérstök að ekki verði fram hjá henni litið. Efnahagslegar ástæður geta ekki talist til sérstakra ástæðna.

Orðalagið „muni eiga“ í 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar felur ekki í sér kröfu um afdráttarlausa sönnun þess að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun sem leiði til þess að hann muni eiga erfitt uppdráttar heldur að leitt sé í ljós að tilteknar líkur séu á að umsækjandi verði fyrir alvarlegri mismunun. Verður því að sýna fram á að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir mismunun af þeim toga, með þeim afleiðingum, og af því alvarleikastigi sem ákvæðið lýsir. Ekki nægir að aðeins sé til staðar möguleiki á að slíkri mismunun. Af því leiðir að þó svo að dæmi séu um að einstaklingar í sambærilegri stöðu og umsækjandi í viðtökuríki hafi orðið fyrir alvarlegri mismunun af þeim toga sem 32. gr. a reglugerðar um útlendinga mælir fyrir um telst umsækjandi ekki sjálfkrafa eiga slíkt á hættu heldur þarf að sýna fram á að verulegar ástæður séu til að ætla að umsækjandi, eða einstaklingur í sambærilegri stöðu og umsækjandi, verði fyrir slíkri meðferð.

Við mat á því hvort umsækjandi glími við mikil og alvarleg veikindi í skilningi 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar, verður m.a. litið til heilsufarsgagna málsins og hlutlægra og trúverðugra gagna um hvort sú heilbrigðisþjónusta sem umsækjandinn þarfnast sé honum aðgengileg í viðtökuríki.

Samkvæmt gögnum málsins eru kærendur par á [...]sem komu hingað til lands ásamt A og B sem eru [...]og [...]ára. K eignaðist C hér á landi [...]. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að glíma við [...] og upplifa [...]. M hafi verið [...] fyrir tíu árum og glími enn við heilsukvilla af þeim sökum. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 17. október til 2. nóvember 2023, kemur m.a. fram að M noti að staðaldri lyf vegna [...]. M hafi verið sendur í blóðprufu og ráðlagt að koma í endurmat eftir mánuð vegna [...]. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 4. desember 2023 til 24. apríl 2024, kemur m.a. fram að M hafi komið í eftirlit vegna [...]. M hafi átt að fara í blóðprufu næst í febrúar til að athuga mælingar. M hafi þá mætt í skoðun á Göngudeild sóttvarna vegna áhyggja af [...] og greint frá höfuðverk.

K hafi komið barnshafandi hingað til lands en hún hafi verið í áhættumeðgöngu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað K andlega heilsu sína vera í lagi. K hafi greinst með [...] árið 2015 en rannsókn sem hún hafi undirgengist á síðasta ári hafi leitt í ljós að hún væri laus við sjúkdóminn. Í komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 10. til 20. október 2023, kemur m.a. fram að K hafi greint frá því að hafa lagst inn á sjúkrahús á [...] í tíu daga vegna meðgöngunnar. Í læknisvottorði Meðgöngu- og fæðingar, dags. 21. nóvember 2023, kemur m.a. fram að K sé með [...] og hafi því fengið bráða [...] á Ítalíu vegna sögu um fósturmissi og til að koma í veg fyrir fyrirburafæðingu. Þá hafi leghálssaumur verið fjarlægður á 37. viku en meðgangan hafi að öðru leyti gengið vel. Kærendur greindu frá því að A og B væru að mestu heilsuhraust en B væri með [...] og ætti erfitt með að borða. Þá er ekkert í málinu sem bendir til annars en að C sé við góða heilsu. Í málinu liggja fyrir læknisvottorð frá Göngudeild sóttvarna, dags. 19. og 20. október 2023, þar sem fram kemur að læknisskoðun hafi farið fram á kærendum, A og B.

Kærendum var leiðbeint í viðtali hjá Útlendingastofnun, 6. nóvember 2023, um mikilvægi öflunar gagna um heilsufar, sem þau teldu hafa þýðingu fyrir mál sitt, og um að afla skriflegra upplýsinga og leggja fram við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun. Þá var kærendum jafnframt leiðbeint með tölvubréfi nefndarinnar 19. desember 2023 um framlagningu frekari gagna í málinu. Frekari heilsufarsgögn bárust kærunefnd 29. apríl 2024. Með vísan til fyrrgreindrar málsmeðferðar og þeirra gagna sem liggja fyrir í málinu eru mál kærenda og barna þeirra nægjanlega upplýst hvað varðar heilsufar þeirra og aðra þætti varðandi einstaklingsbundnar aðstæður þeirra. Þá er ekkert sem bendir til þess að frekari gögn um heilsufar kærenda og barna þeirra geti haft áhrif á niðurstöðu málsins.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið að heilsufar kærenda og barna þeirra sé með þeim hætti að þau teljist glíma við mikil og alvarleg veikindi, s.s. skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm og meðferð við honum sé aðgengileg hér á landi en ekki í viðtökuríki, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðarinnar. Meðferð telst að jafnaði ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana, sbr. 2. mgr. 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Heilsufar kærenda og barna þeirra er ekki þess eðlis að ástæða sé til að víkja frá þessari meginreglu. Af þeim gögnum sem fyrir liggja um aðstæður á Ítalíu verður ráðið að kærendur hafi aðgang að heilbrigðisþjónustu þar í landi. Samkvæmt gögnum málsins hafi kærendur haft aðgang að heilbrigðisþjónustu á Ítalíu og K m.a. undirgengist aðgerð á meðgöngu. Kærendur greindu frá því að þau hafi ekki haft aðgang að heilbrigðisþjónustu eftir að dvalarleyfisskírteini þeirra runnu út. Verður að líta svo á að aðstæður kærenda og barna þeirra tengdar heilsufari séu ekki þess eðlis að þær teljist til sérstakra ástæðna í skilningi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga eða samkvæmt þeim viðmiðum sem talin eru upp í dæmaskyni í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þá geta heilbrigðisaðstæður kærenda ekki talist til ástæðna sem séu svo einstaklingsbundnar og sérstakar að ekki verði fram hjá þeim litið, sbr. 3. mgr. sömu greinar. Kærunefnd áréttar að samkvæmt 31. og 32. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar skuli miðla upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd til yfirvalda í viðtökuríki, að uppfylltum skilyrðum ákvæðanna, þannig að flutningur viðkomandi fari fram með þeim hætti að heilsufari verði ekki stefnt í hættu. Kærunefnd telur ekki forsendur til annars en að leggja til grundvallar að kærendur séu fær um að sækja sér þá þjónustu sem þau þurfa á að halda í viðtökuríki þrátt fyrir það að þau séu ólæs.

Í framangreindum skýrslum og gögnum um aðstæður á Ítalíu kemur fram að umsækjendur um alþjóðlega vernd sem sendir séu til baka á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eigi rétt á þjónustu og gistirýmum í tilteknum móttökumiðstöðvum. Það er jafnframt mat kærunefndar með hliðsjón af þeim heimildum sem nefndin hefur kynnt sér að þær aðstæður sem hafi verið til staðar í móttökukerfinu á Ítalíu undanfarið séu tímabundnar. Þá bendi umræddar heimildir ekki til annars en að ítölsk stjórnvöld vinni að lausn á vandanum og muni standa við alþjóðlegar skuldbindingar sínar varðandi móttöku, þjónustu og aðbúnað umsækjenda um alþjóðlega vernd þar í landi. Kærunefnd telur að gögn málsins, að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda og barna þeirra, beri ekki með sér að þau muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar eða að þau geti af sömu ástæðu vænst þess að staða þeirra verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. áðurnefnd viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda m.a. til þess að telji kærendur sér mismunað eða óttist þau um öryggi sitt að einhverju leyti geti þau leitað aðstoðar hjá þar til bærum stjórnvöldum.

Kærendur hafa borið fyrir sig að óttast um líf sitt á Ítalíu vegna ofsókna frá glæpagengi að nafni [...]. M hafi áður haft tengsl við skipulagða glæpastarfsemi og hafi afplánað fangelsisdóm. M hafi ákveðið að aðstoða yfirvöld á Ítalíu við að nafngreina fólk úr framangreindu glæpagengi en samvinna hans við yfirvöld hafi leitt til sakfellingar fjölda glæpamanna frá genginu. Kærendur hafi af þeim sökum orðið fyrir ofbeldi og hótunum á Ítalíu. Hafa kærendur lagt fram talsvert magn gagna, m.a. ljósmyndir af skjáskotum af samfélagsmiðlum, ljósrit úr dagblaði þar sem fjallað er um glæpagengið [...] og blaðagrein nígerísks fjölmiðils. Kærendur hafi jafnframt greint frá því að hafa orðið fyrir fordómum vegna uppruna síns á Ítalíu. Af fyrirliggjandi gögnum má ráða að óttist kærendur um öryggi sitt geti þau leitað til lögregluyfirvalda eða annarra þar til bærra stjórnvalda sökum þess. Gögn málsins bera ekki með sér að kærendur muni eiga erfitt uppdráttar í viðtökuríki vegna alvarlegrar mismununar, s.s. ef ríkið útilokar viðkomandi frá menntun, nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu, nauðsynlegri þjónustu vegna fötlunar eða atvinnuþátttöku á grundvelli kynhneigðar, kynþáttar eða kyns eða þau geti vænst þess að staða þeirra, í ljósi sömu ástæðna, verði verulega síðri en staða almennings í viðtökuríki, sbr. viðmið í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að aðrar aðstæður þeirra í viðtökuríki séu slíkar að önnur viðmið tengd alvarlegri mismunun, sambærileg þeim sem 32. gr. a reglugerðarinnar lýsir, leiði til þess að taka beri umsóknir þeirra til efnismeðferðar hér á landi.

Í greinargerðum kærenda er vísað til þess að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið áfátt og að rökstuðningur í hinum kærðu ákvörðunum hafi verið ófullnægjandi, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærendur telja að ekki hafi verið litið nægjanlega til sérstakra aðstæðna kærenda á Ítalíu. Kærendur telji sannað með fyrirliggjandi gögnum að fjölskyldan hafi verið í mikilli hættu vegna framburðar M í dómsmálum. Kærendur telja skorta á að fjallað sé um og tekin sé afstaða til frásagna þeirra og framlagðra gagna. Telja kærendur að framangreint skuli leiða til ógildingar ákvarðananna.

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur m.a. fram að löggæslumálum á Ítalíu sé stýrt með árangursríkum hætti og ljóst þyki að til staðar séu skilvirkar aðferðir til að rannsaka og refsa fyrir lögbrot í landinu. Jafnframt kemur fram að telji kærendur á sér brotið eða ef þau óttist um öryggi sitt á Ítalíu séu þarlend yfirvald vel í stakk búin til þess að veita þeim fullnægjandi vend. Kærunefnd gerir þó athugasemd við skort á umfjöllun um framangreind gögn sem kærendur lögðu fram og telur að Útlendingastofnun hafi borið að taka afstöðu til þeirra. Með vísan til heildarmats í máli kærenda og barna þeirra hefur framangreindur annmarki þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins og leyst hefur verið úr honum á kærustigi. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar kærunefndar um löggæslumál á Ítalíu telur kærunefnd að kærendur geti fengið fullnægjandi vernd þar í landi. Kærunefnd fellst því ekki á með kærendum að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið áfátt, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerðum kærenda er gerð athugasemd við að Útlendingastofnun hafi ekki talið K vera einstakling í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sbr. 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd áréttar að ákvörðun um hvort umsækjandi sé einstaklingur í sérstaklega viðkvæmri stöðu í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga, lýtur að því hvort þörf sé á sérstökum stuðningi við umsækjanda í gegnum umsóknarferlið á meðan á dvöl hans stendur hér á landi. Með vísan til 1. og 2. mgr. 25. gr. laga um útlendinga telur kærunefnd ljóst að það mat samkvæmt 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga sem fram fer hjá Útlendingastofnun, sé ekki kæranlegt til kærunefndar og hafi ekki önnur réttaráhrif en sérstaklega er getið um í lögum og reglugerð. Fellst kærunefnd því ekki á með kærendum að framangreint leiði til ógildingar hinna kærðu ákvarðana.

Í 32. gr. a reglugerðar um útlendinga koma jafnframt fram sérviðmið er varða börn og ungmenni. Þar segir m.a. að við mat á því hvort taka skuli umsókn til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna skuli hagsmunir barnsins hafðir að leiðarljósi. Þá segir að við mat á hagsmunum barns skuli meðal annars líta til þess hvort flutningur til viðtökuríkis hafi í för með sér hættu á að fjölskyldan aðskiljist eða muni aðskiljast. Sem fyrr segir eru fjölskyldur sem leggja fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu almennt vistaðar saman. Þá verður ráðið af framangreindum gögnum að leyst sé úr umsóknum þeirra m.t.t. meginreglunnar um einingu fjölskyldunnar.

Samkvæmt framangreindum heimildum kveða ítölsk lög á um að öll börn á ítölsku yfirráðasvæði eigi rétt á skyldubundinni menntun frá sex til sextán ára aldurs, til jafns við ítalska ríkisborgara, án tillits til réttarstöðu þeirra á Ítalíu og án endurgjalds. Þá hafi börn á aldrinum þriggja til sex ára aðgang að leikskólum sem séu hluti af samfelldri menntastefnu landsins og opinberir leikskólar séu gjaldfrjálsir. Líkt og komið hefur fram þurfa umsækjendur um alþjóðlega vernd að skrá sig inn í heilbrigðiskerfið og njóta þá sömu réttinda til heilbrigðisþjónustu og ítalskir ríkisborgarar. Samkvæmt skýrslu ECRE veitir skráning m.a. aðgang að barnalæknum, ljósmæðrum og kvensjúkdómalæknum. Þá eiga börn á Ítalíu rétt á heilbrigðisþjónustu, þ. á m. bólusetningum og er almenn læknisþjónusta tryggð fyrir börn til 16 ára aldurs. Samkvæmt framburði kæranda hafi A gengið í skóla og haft aðgang að heilbrigðisþjónustu. Þá vísar kærunefnd til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu, m.a. í máli M.T. og aðrir gegn Svíþjóð nr. 22105/18 frá 20. október 2022, þar sem vísað er til þeirrar meginreglu að þrátt fyrir að barni muni vegna betur í einu aðildarríki mannréttindasáttmálans en öðru teljist það ekki falla undir hugtakið bestu hagsmunir barnsins.

Að öðru leyti og með vísan til niðurstöðu í máli kærenda og umfjöllunar um aðstæður barna sem sækja um alþjóðlega vernd á Ítalíu er það mat kærunefndar að flutningur fjölskyldunnar til Ítalíu samrýmist hagsmunum barnanna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska, sbr. 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga.

Í ljósi alls ofangreinds er það niðurstaða kærunefndar að rétt sé að synja beiðni um að taka til efnismeðferðar umsóknir barna kærenda um alþjóðlega vernd hér á landi, og fallist á að senda þau til Ítalíu með vísan til c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga enda er það niðurstaða nefndarinnar að það sé ekki andstætt réttindum barna kærenda að umsóknir þeirra verði ekki teknar til efnismeðferðar hér á landi.

Að teknu tilliti til einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda verða umsóknir þeirra ekki teknar til efnismeðferðar vegna sérstakra ástæðna, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Kærendur kváðust í viðtölum hjá Útlendingastofnun 6. nóvember 2023 ekki hafa sérstök tengsl við Ísland. Þar að auki er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að kærendur hafi slík tengsl við landið að beita beri ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

Í 2. málsl. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Þá skal einnig taka umsókn til efnismeðferðar hafi umsækjandi ekki fengið endanlega niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 12 mánaða frá því að umsókn var lögð fram, enda hafi umsækjandi sjálfur, maki eða sambúðarmaki hans eða annar sem kemur fram gagnvart stjórnvöldum fyrir hans eða þeirra hönd ekki átt þátt í því að niðurstaða hafi ekki fengist innan tímamarka.

Kærendur lögðu fram umsóknir sínar um alþjóðlega vernd hér á landi 8. október 2023 og eru því ekki liðnir 12 mánuðir samkvæmt framangreindu. Verða umsóknir kærenda ekki teknar til efnismeðferðar á þeim grundvelli.

4.7 Niðurstaða um 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga

Í 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga segir:

Ef beiting 1. mgr. mundi leiða til þess að brotið væri gegn 42. gr., t.d. vegna aðstæðna í því landi sem senda á umsækjanda til, skal taka umsókn til efnismeðferðar.

Í 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga segir að ekki sé heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Þá segir í 2. mgr. ákvæðisins að 1. mgr. eigi einnig við um sendingu útlendings til svæðis þar sem ekki sé tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr. Við túlkun á inntaki 42. gr. laga um útlendinga er rétt að líta til þess að ákvörðun um brottvísun eða frávísun, sem setur einstakling í raunverulega hættu á að verða fyrir pyndingum, ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, er í andstöðu við 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. jafnframt 68. gr. stjórnarskrárinnar.

Við túlkun 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga skal líta til dómaframkvæmdar Mannréttindadómstóls Evrópu varðandi túlkun hans á 3. gr. sáttmálans. Þá skal hafa hliðsjón af þeim meginreglum sem Evrópudómstóllinn setur fram í dómum sínum að því leyti sem þær eru til skýringar á alþjóðlegum skuldbindingum íslenska ríkisins og eru samhljóma þeim, en með þeim skýra fyrirvara að dómar Evrópudómstólsins á þessu réttarsviði eru ekki bindandi fyrir íslenska ríkið.

Í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu er vísað til þeirrar meginreglu að með fyrirvara um alþjóðlegar skuldbindingar hafi ríki rétt til að stjórna hverjir ferðist yfir landamæri þeirra, hverjir dvelji á landsvæði þeirra og hvort útlendingi skuli vísað úr landi, sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli F.G. gegn Svíþjóð (nr. 43611/11) frá 23. mars 2016, 111. mgr., ákvörðun Samsam Mohammed Hussein o.fl. gegn Hollandi og Ítalíu (nr. 27725/10) frá 2. apríl 2013, 65. mgr., og dóm í máli Üner gegn Hollandi (nr. 46410/99) frá 18. október 2006, 54. mgr. Dómstóllinn hefur engu að síður talið að flutningur einstaklings til annars ríkis geti leitt til brots á 3. gr. mannréttindasáttmálans ef viðkomandi einstaklingur geti á viðhlítandi hátt sýnt fram á að veruleg ástæða sé til að ætla, verði hann fluttur úr landi, að hann sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé andstæð 3. gr. sáttmálans, sbr. m.a. F.G. gegn Svíþjóð, 111. - 113. mgr. Í dómaframkvæmd dómstólsins er jafnframt byggt á því að annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans þurfi að ná tilteknu lágmarks alvarleikastigi (e. „must attain a minimum level of severity“ sbr. m.a. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi (nr. 30696/09) frá 21. janúar 2011, 219. mgr.) til að ákvörðun um brottvísun eða frávísun hans verði talin brot á 3. gr. mannréttindasáttmálans. Horfa verði til allra aðstæðna í fyrirliggjandi máli, svo sem lengdar og eðlis meðferðar, andlegra og líkamlegra áhrifa hennar auk stöðu einstaklings hverju sinni, svo sem kyns, aldurs og heilsufars, sbr. m.a. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 219. mgr. Í því sambandi hefur dómstóllinn lagt ákveðna áherslu á að umsækjendur um alþjóðlega vernd tilheyri jaðarsettum og viðkvæmum þjóðfélagshóp sem þurfi sérstaka vernd, sbr. t.d. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 251. mgr., og dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Tarakhel gegn Sviss (nr. 29217/12) frá 4. nóvember 2012, 97. mgr.

Mannréttindadómstóll Evrópu hefur talið ómannlega meðferð vera m.a. þá sem beitt er að yfirlögðu ráði, í margar klukkustundir í senn og veldur annað hvort líkamlegu tjóni eða alvarlegum andlegum eða líkamlegum þjáningum, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Kudła gegn Póllandi (nr. 30210/96) frá 26. október 2000, 92. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Þá hefur dómstóllinn talið meðferð vera vanvirðandi í skilningi 3. gr. mannréttindasáttmálans þegar meðferðin niðurlægir eða lítillækkar einstakling, sýnir skort á virðingu fyrir eða gerir lítið úr mannlegri reisn hans, eða skapar ótta, angist eða vanmátt, sem er til þess fallin að brjóta niður líkamlegt eða andlegt mótstöðuafl viðkomandi, sbr. t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Pretty gegn Bretlandi (nr. 2346/02) frá 29. apríl 2002, 52. mgr., og M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 220. mgr. Dómurinn hefur talið að þó að líta verði til þess hvort meðferðin sé veitt af ásetningi sé það ekki að öllu leyti útilokað að hún teljist brot á 3. gr. þó svo hafi ekki verið, sbr. dóm Mannréttindadómstóls Evrópu í máli Peers gegn Grikklandi (nr. 28524/95) frá 19. apríl 2001, 74. mgr.

Dómstóllinn hefur talið að 3. gr. mannréttindasáttmálans verði ekki túlkuð á þann hátt að í greininni felist skylda aðildarríkja til að sjá umsækjendum um alþjóðlega vernd fyrir húsnæði eða fjárhagsaðstoð sem geri þeim kleift að viðhalda ákveðnum lífskjörum, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 249. mgr.

Í dómaframkvæmd Evrópudómstólsins er vísað til þess að framkvæmd Dyflinnarreglugerðarinnar verði að vera í samræmi við sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi og er þar fyrst og fremst vísað til 4. gr. sáttmálans sem, í þeim atriðum sem máli skipta, er sambærileg 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Samkvæmt dómaframkvæmd Evrópudómstólsins eru lög Evrópusambandsins byggð á þeirri grundvallarforsendu að aðildarríki þess deila þeim sameiginlegu gildum sem Evrópusambandið byggist á. Sú forsenda leggur grunn að gagnkvæmu trausti um að þessi gildi séu viðurkennd, að lög Evrópusambandsins verði virt og að réttarkerfi aðildarríkjanna geti veitt sambærilega og virka vernd þeirra grundvallarréttinda sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi mælir fyrir um, sbr. t.d. dóma Evrópudómstólsins í Jawo, C-163/17, frá 19. mars 2019, 80. mgr., og Minister for Justice and Equality (Deficiencies in the system of justice), C-216/18 PPU, frá 25. júlí 2018, 35.-37. mgr. Dyflinnarreglugerðin er byggð á nefndri meginreglu um gagnkvæmt traust og miðar að því að hraða og straumlínulaga afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd til hagsbóta fyrir umsækjendur og aðildarríki samstarfsins. Því verði að gera ráð fyrir því að meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd í aðildarríkjum Dyflinnarsamstarfsins samrýmist þeim kröfum sem sáttmáli Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, flóttamannasáttmálinn og Mannréttindasáttmáli Evrópu gera, sbr. dóm Evrópudómstólsins í N. S. o.fl., C-411/10 og C-493/10, frá 21. desember 2011, 78.-80. mgr. Það er hins vegar ekki útilokað að viðtökuríki kunni að glíma við meiriháttar erfiðleika við framkvæmd reglugerðarinnar sem gæti skapað verulega hættu á að umsækjandi sæti meðferð sem samrýmist ekki sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. áðurnefndan dóm í máli N. S. o.fl., 81. mgr. Af þeim sökum verður ekki byggt á því skilyrðislaust að aðildarríki Evrópusambandsins tryggi grundvallarmannréttindi, svo sem samkvæmt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, sbr. N. S. o.fl., 99., 100. og 105. mgr., og Ibrahim o.fl., 87. mgr. Evrópudómstóllinn hefur talið, m.a. í Jawo, 85. mgr., að ekki megi flytja umsækjanda um alþjóðlega vernd til viðtökuríkis ef veigamikil rök standa til þess að raunveruleg hætta sé á að hann sæti ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í skilningi 4. gr. sáttmála Evrópusambandsins um grundvallarréttindi, verði hann fluttur til viðtökuríkis. Þeir annmarkar sem eru á meðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd verða hins vegar að ná sérstaklega háu alvarleikastigi til að endursending á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar teljist andstæð 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og 4. gr. sáttmálans um grundvallarréttindi. Þessu alvarleikastigi er náð þegar sinnuleysi stjórnvalda aðildarríkis Dyflinnarsamstarfsins hefur þær afleiðingar að einstaklingur sem að öllu leyti er háður stuðningi ríkisins, t.d. vegna sérstaklega viðkvæmrar stöðu, verður í slíkri stöðu sárafátæktar að hann geti ekki mætt grundvallarþörfum sínum, og sem grefur undan líkamlegri og andlegri heilsu hans eða setur hann í aðstöðu sem er ósamrýmanleg mannlegri reisn, sbr. M.S.S. gegn Belgíu og Grikklandi, 252.-263. mgr., og Jawo, 92. og 95. mgr., og Ibrahim o.fl., 90. mgr.

Hátt stig óöryggis eða veruleg hnignun lífsskilyrða viðkomandi umsækjanda myndi þar af leiðandi ekki ná þessu alvarleikastigi nema framangreindar aðstæður efnislegrar sárafátæktar séu fyrir hendi. Sama á við þó að umsækjanda skorti það félagslega stuðningsnet, eins og t.d. fjölskyldutengsl, sem vegur á móti afleiðingum ófullnægjandi félagslegs kerfis aðildarríkis, sbr. Jawo, 93. og 94. mgr. Ennfremur, það eitt að lífsskilyrði séu ákjósanlegri í endursendingarríki en í viðtökuríki getur heldur ekki leitt til þess að um brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sé að ræða, sbr. til hliðsjónar Jawo, 97. mgr.

Eins og ráða má af framangreindu þurfa annmarkar á meðferð viðtökuríkis á umsækjanda og aðbúnaði hans að ná háu alvarleikastigi til að endursending teljist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu og tekur beiting 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga mið af því.

Til að endursending geti talist brot á 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu þarf að sýna fram á, með vísan til hlutlægra og trúverðugra upplýsinga sem eru nægilega nákvæmar og uppfærðar, að umsækjandi sé í raunverulegri hættu á að sæta meðferð sem sé ósamrýmanleg ákvæðinu, sbr. fyrri umfjöllun. Ekki er nægilegt að aðeins sé um að ræða möguleika á slíkri meðferð, sbr. Vilvarajah o.fl. gegn Bretlandi (mál nr. 13163/87; 13164/87; 13165/87; 13447/87; 13448/87) frá 30. október 1991, 111. mgr., N. gegn Finnlandi (mál nr. 38885/02) frá 26. júlí 2005, 167. mgr., og NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008, 109.-110. mgr.

Að mati kærunefndar bera gögn málsins jafnframt með sér að í viðtökuríki sé veitt raunhæf vernd gegn því að fólki sé vísað brott eða það endursent til ríkja þar sem einstaklingar eiga á hættu að verða fyrir ofsóknum eða þar sem lífi þeirra og frelsi er ógnað. Í því sambandi hefur kærunefnd einkum litið til þess að gögnin benda til þess að meðferð stjórnvalda viðtökuríkis á umsóknum um alþjóðlega vernd sé með þeim hætti að lagt sé einstaklingsbundið mat á aðstæður einstaklinga. Telur kærunefnd að gögn málsins gefi ekki til kynna að endursending kæranda til viðtökuríkis sé í andstöðu við 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. mgr. ákvæðisins.

Þá benda öll gögn til þess að kærendur hafi raunhæf úrræði á Ítalíu, bæði að landsrétti og fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sbr. jafnframt 13. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sem tryggja að þau verði ekki send áfram til annars ríkis þar sem líf þeirra eða frelsi kann að vera í hættu, sbr. 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til framangreindra viðmiða, umfjöllunar um aðstæður og móttökuskilyrði umsækjenda um alþjóðlega vernd á Ítalíu og einstaklingsbundinna aðstæðna kærenda, er það niðurstaða kærunefndar að ekki hafi verið sýnt fram á að þau eigi á hættu meðferð sem gangi gegn 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Synjun á efnismeðferð umsókna kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og flutningur þeirra til viðtökuríkis leiðir því ekki til brots gegn 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga, sbr. jafnframt 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu.

Samkvæmt framansögðu verða mál kærenda og barna þeirra ekki tekin til efnismeðferðar á grundvelli 3. mgr. 36. gr. laga um útlendinga.

5 Frávísun

Kærendur ásamt A og B komu hingað til lands 8. október 2023 og sóttu um alþjóðlega vernd sama dag. Þá hafi C fæðst hér á landi [...]. Eins og að framan greinir hefur umsóknum þeirra um alþjóðlega vernd verið synjað um efnismeðferð og hafa þau því ekki tilskilin leyfi til dvalar. Verður kærendum og börnum þeirra því vísað frá landinu á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. 2. og 5. mgr. 106. gr. laganna, enda höfðu þau verið hér á landi í innan við níu mánuði þegar málsmeðferð umsókna þeirra hófst hjá Útlendingastofnun.

Kærendur og börn þeirra skulu flutt til Ítalíu innan tilskilins frests nema ákveðið verði að fresta réttaráhrifum úrskurðar þessa að kröfu kærenda, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga.

6 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Kærendur telja að skort hafi á umfjöllun um að C hafi fæðst hér á landi og haft fasta búsetu hér frá fæðingu og því sé óheimilt að vísa henni á brott. Vísa kærendur til 1. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Einstaklingar sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi eru ekki skráðir á tiltekið lögheimili eða eru með fasta búsetu hjá þjóðskrá, nema máli þeirra ljúki með útgáfu dvalarleyfis. Hið sama gildir um börn þeirra sem fæðast hér á landi á meðan málsmeðferð stendur. Föst búseta er bundin við lögheimili, sbr. 2. gr. laga nr. 80/2016 um lögheimili og aðsetur. Því á 1. mgr. 102. gr. laga um útlendinga ekki við um mál kærenda eða börn þeirra.

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið þykir rétt að staðfesta ákvarðanir Útlendingastofnunar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur nefndin þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum frá birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur nefndin tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.

Valgerður María Sigurðardóttir

Bjarnveig Eiríksdóttir

Gunnar Páll Baldvinsson