19 júní 2024

/

Nr. 646/2024 Úrskurður

Hinn 19. júní 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 646/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24020080

 

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

 

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 12. febrúar 2024 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Bretlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2024 um að synja umsókn hans um dvalarleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar, sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Með ákvörðuninni var kæranda enn fremur brottvísað og gert að sæta tveggja ára endurkomubanni.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á umsókn hans um dvalarleyfi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.            Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi er breskur ríkisborgari og hafði áður dvalið hér á landi á grundvelli réttar til frjálsrar farar á EES-svæðinu. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands var lögheimili hans skráð hér á landi 23. apríl 2007, en 15. febrúar 2012 var lögheimili kæranda flutt aftur til Bretlands. Kærandi lagði fram umsókn um dvalarleyfi hér á landi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar 2. júní 2023. Hinn 24. janúar 2024 synjaði Vinnumálastofnun umsækjanda um atvinnuleyfi hér á landi. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. janúar 2024, var umsókn kæranda um dvalarleyfi synjað, sbr. b-lið 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga.

Í hinni kærðu ákvörðun var tekið fram að ef kærandi væri enn staddur hér á landi síðan 28. apríl 2023 væri dvöl hans þá þegar ólögmæt. Hefði kærandi hins vegar yfirgefið landið væri hann beðinn um að koma afriti flugseðils, brottfararspjaldi og ljósmynd af útstimpli af Schengen-svæðinu úr vegabréfi sínu til Útlendingastofnunar. Kæranda var vísað brott frá Íslandi á grundvelli 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga með fyrirvara um að hann legði ekki fram andmæli eða gögn varðandi 3. mgr. 102. gr. sömu laga. Jafnframt var með sama fyrirvara ákveðið að kæranda væri bönnuð endurkoma til Íslands í tvö ár, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Útlendingastofnun benti á að kæranda hafi ekki verið gefinn kostur á að leggja fram andmæli gegn ákvörðun stofnunarinnar um brottvísun varðandi 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga og veitti kæranda því sjö daga frest til að leggja fram andmæli eða önnur gögn. Voru kæranda einnig gefnir 15 dagar til að yfirgefa landið, að öðrum kosti hlyti hann endurkomubann inn á landsvæði allra Schengen-ríkjanna.

Af gögnum málsins verður ekki ráðið hvenær hin kærða ákvörðun var móttekin. Með hliðsjón af stjórnsýslukæru, sem m.a. innihélt afrit hinnar kærðu ákvörðunar, verður þó lagt til grundvallar að hún hafi verið móttekin eigi síðar en 12. febrúar 2024, sbr. 1. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga og 7. gr. laga um útlendinga. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 13. febrúar 2024, var kæranda veittur frestur til 26. febrúar 2024 til þess að leggja fram greinargerð vegna málsins. Með tölvubréfi kæranda, dags. 5. mars 2024, óskaði kærandi eftir því að frestur til þess að leggja fram greinargerð yrði framlengdur um eina viku. Kærunefnd féllst á framlengdan frest með tölvubréfi, dags. 6. mars 2024. Kærandi lagði ekki fram greinargerð eða frekari gögn vegna málsins.

Kæra frestaði ekki framkvæmd ákvörðunarinnar, sbr. 1. mgr. 103. gr. laga um útlendinga. Í kæru óskaði kærandi eftir frestun réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar á meðan málið væri til meðferðar hjá kærunefndinni, sbr. 2. mgr. 29. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Að teknu tilliti til málsatvika og niðurstöðu nefndarinnar þykir ekki þörf á því að taka afstöðu til frestunar réttaráhrifa á ákvörðun Útlendingastofnunar.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram greinargerð eða aðrar röksemdir vegna málsins.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Umsókn um dvalarleyfi

Í 61. gr. laga um útlendinga er fjallað um heimildir til útgáfu dvalarleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar. Samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna eru skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis skv. ákvæðinu m.a. þau að útlendingur fullnægi grunnskilyrðum 1. og 2. mgr. 55. gr. laganna, sbr. a-lið 1. mgr. 61. gr., og að tímabundið atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar hafi verið veitt á grundvelli laga nr. 97/2002 um atvinnuréttindi útlendinga, sbr. b-lið 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga.

Í ákvæði 1. mgr. 52. gr. laga um útlendinga er mælt svo fyrir um að Útlendingastofnun taki ákvörðun um veitingu dvalarleyfis en Vinnumálastofnun um veitingu atvinnuleyfis. Vinnumálastofnun annast m.a. framkvæmd laga atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002, þ.m.t. hvort útlendingi skuli veitt atvinnuleyfi.

Samkvæmt gögnum málsins er ljóst að Vinnumálastofnun synjaði því að kæranda yrði veitt atvinnuleyfi vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar með ákvörðun, dags. 24. janúar 2024. Kærandi uppfyllir því ekki ófrávíkjanlegt skilyrði b-liðar 1. mgr. 61. gr. laga um útlendinga fyrir veitingu dvalarleyfis.

Brottvísun og endurkomubann

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kærandi hafi ekki lengur heimild til dvalar og var honum því gert að sæta brottvísun, sbr. 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga, eins og ákvæðinu var breytt með lögum um landamæri nr. 136/2022. Samhliða því var kæranda gert að sæta tveggja ára endurkomubanni, sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Kæranda var þó veittur 15 daga frestur frá birtingu ákvörðunar til þess að yfirgefa landið sjálfviljugur, en innan þess tímafrests yrði endurkomubann hans fellt niður, sbr. 1. málsl. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga. Samhliða ákvörðun um brottvísun var kæranda veittur sjö daga frestur til þess að leggja fram andmæli gegn ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun og endurkomubann, með hliðsjón af 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga.

Ákvarðanir stjórnvalda um brottvísun og endurkomubann eru stjórnvaldsákvarðanir sem mæla fyrir um íþyngjandi skyldur fyrir aðila máls og bundnar íþyngjandi stjórnsýsluviðurlögum. Gera verður ríkar kröfur til málsmeðferðar í slíkum málum, einkum varðandi tilkynningu um meðferð máls og andmælarétt, sbr. 13. og 14. gr. stjórnsýslulaga, auk annarra málsmeðferðarreglna stjórnsýsluréttarins og laga um útlendinga. Sú tilhögun Útlendingastofnunar að taka ákvörðun um brottvísun og endurkomubann kæranda, án þess að tilkynna honum um að stofnunin hefði slíkt til skoðunar og veita honum ekki tækifæri á að koma á framfæri andmælum sínum áður en ákvörðun var tekin, felur í sér alvarlegan annmarka á meðferð málsins. Þar að auki fær kærunefnd ekki séð að málið hafi verið nægjanlega upplýst áður en ákvörðun var tekin, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, s.s. með því að fá svör við spurningum sem hafa það að markmiði að upplýsa hvort takmarkanir geta verið á ákvörðun á brottvísun, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur slíka annmarka á meðferð málsins að ekki sé unnt að bæta úr þeim á kærustigi. Verður því að fella úr gildi þann hluta ákvörðunar Útlendingastofnunar er varðar brottvísun kæranda og endurkomubann.

Samantekt

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest hvað varðar synjun á dvalarleyfi á grundvelli 61. gr. laga um útlendinga. Sá hluti hinnar kærðu ákvörðunar sem lýtur að brottvísun kæranda og endurkomubanni er felldur úr gildi.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar um synjun á dvalarleyfi er staðfest. Ákvörðun um brottvísun og endurkomubann er felld úr gildi.

The decision of the Directorate of Immigration regarding the residence permit is affirmed. The Directorate’s decision regarding the appellant‘s expulsion and entry ban is vacated.

 

Valgerður María Sigurðardóttir 

 

Gunnar Páll Baldvinsson                                                                  Sandra Hlíf Ocares