09 júlí 2024
/
Úrskurður nr. 743/2024
Hinn 9. júlí 2024 kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 743/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24060139
Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 19. júní 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela, (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 3. júní 2024, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og barn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins ásamt dóttur sinni og barnabarni frá Argentínu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 22. mars 2023. Kvaðst kærandi vera að sækja um alþjóðlega vernd vegna þess að tengdasonur hennar hafi þegar sótt um vernd á Íslandi. Kærandi sé endurskoðandi og sé með heilsubrest. Kærandi, sem sé venesúelskur ríkisborgari, hafi verið með dvalarleyfi í Argentínu og hafi framvísað útrunnu kennivottorði sínu þaðan.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 18. apríl 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. Kærandi greindi frá því að vera fædd […] í [...] í Venesúela. Hún hafi síðar flutt til Karakas og Miranda fylkis. Þegar kærandi hafi eignast barn sitt, þá hafi hún flutt til Aragua fylkis þar sem hún hafi verið búsett þegar hún hafi farið frá heimaríki. Kærandi greindi frá því að hafa farið til Argentínu í júní 2019, einu ári og nokkrum mánuðum eftir að tengdasonur hennar hafi farið frá Venesúela. Kærandi hafi verið með tímabundið dvalarleyfi í Argentínu sem hafi runnið út árið 2022. Kærandi hafi sótt um ótímabundið dvalarleyfi þar en það hafi tekið langan tíma og hafi ekki verið afgreitt áður en kærandi hafi farið til Íslands. Í Venesúela hafi kærandi unnið í banka og rekið sitt eigið fyrirtæki en hafi hætt að vinna nokkrum árum áður en hún hafi farið frá heimaríki. Í Argentínu hafi hún ekki verið að vinna heldur aðstoðað dóttur sína með barnið hennar. Kærandi greindi frá því að vera með [...] og [...]. Kærandi greindi frá því dóttir hennar, tengdasonur og barn þeirra hafi búið hjá henni í Venesúela. Tengdasonur hennar hafi átt í miklum vandræðum í Venesúela vegna stjórnvalda. Tengdasonur hennar hafi verið í hernum, hafi fengið hótanir og hafi haft vitneskju um ólöglegt athæfi yfirvalda. Þegar hann hafi farið frá Venesúela þá hafi yfirvöld farið að fylgjast með henni, dóttur hennar og barnabarni. Nokkrum dögum eftir að tengdasonur hennar hafi farið frá Venesúela hafi herlögreglan byrjað að hringja í kæranda og hóta henni. Lögreglan hafi m.a. spurt hana um nafn, skilríki og tengsl hennar við tengdason hennar. Lögreglan hafi viljað vita hvar hann væri, sagt að hann væri að brjóta lög og ætti að gefa sig fram við lögreglu. Þeir hafi hringt oft og alltaf spurt sömu spurninga, hvar tengdasonur hennar væri og hvar dóttir hennar væri. Lögreglan hafi hótað lífi kæranda og að hún yrði bendluð við mál tengdasonar síns og fangelsuð. Slíkar hótanir hafi verið mikið vandamál í Venesúela. Lögreglan hafi vitað að tengdasonur hennar hafi verið búið hjá kæranda. Kærandi greindi frá því að það hafi verið herlögreglan sem hafi verið að hóta henni en þeir hafi ekki sagt hverjir þeir væru í símann. Kærandi hafi ekki getað talað frjálslega í símann því að hann hafi verið hleraður og hún hafi heyrt samtöl annarra einstaklinga á línunni. Kærandi kvaðst ekki geta lagt neitt fram framangreindri frásögn sinni til stuðnings, ekki hafi verið til tæki til að taka upp símtöl og þetta hafi verið gömul símalína. Kærandi greindi frá því að hótanir hafi hætt eftir nokkra mánuði en símtöl hennar hafi enn verið hleruð. Aðspurð kvaðst kærandi óttast að lenda í fangelsi ef hún sneri til baka til Venesúela því að fólk sem er á móti stjórnvöldum lendi í fangelsi, þeir búi til svartan lista og ef hún lenti á flugvelli í Venesúela þá gæti hún verið á svörum lista, endað í fangelsi eða verið drepin. Þá greindi kærandi frá því að hún gæti ekki búið annars staðar í heimaríki þar sem lögreglan væri að leita af þeim alls staðar í landinu og það kæmi strax upp í kerfinu að þau væru á svörum lista. Kærandi greindi frá því að lífið hafi verið erfitt síðan hún, dóttir hennar og fjölskylda hafi farið frá Venesúela. Yfirvöld væru enn að leita af þeim öllum, ekki bara tengdasyni hennar, og ef þau færu til baka yrðu þau drepin.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 19. júní 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 3. júlí 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Kærunefnd hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu nefndarinnar verður greinargerð kæranda ekki reifuð hér.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telji kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn 10. gr. stjórnsýslulaga og réttmætisreglu stjórnsýsluréttarins. Kærandi vísar til þess að Útlendingastofnun hafi ekki rannsakað og fjallað með fullnægjandi hætti um málsástæður kæranda hvað varðar stjórnmálaskoðanir í ákvörðun sinni og þar af leiðandi hafi rökstuðningi stofnunarinnar verið ábótavant hvað þetta varðar. Kærandi gerir athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á framlögðum gögnum og niðurstöðu stofnunarinnar hvað varðar þýðingu sem gögn hafi. Kærandi mótmælir harðlega þeim ómálefnalegu sönnunarkröfum og aðdróttunum um fölsun ljósmynda sem kærandi hafi lagt fram máli sínu til stuðnings sem fram komi í ákvörðun Útlendingastofnunar. Kærandi gerir athugasemdir við þá ályktun sem fram kemur í ákvörðun Útlendingastofnunar um að kærandi sé óhult í heimaríki þar sem tengdasonur hennar sé einhleypur samkvæmt framlögðum gögnum án frekari rannsóknar.
Samkvæmt 10. gr. stjórnsýslulaga skal stjórnvald sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því og afla í því skyni nauðsynlegra gagna og upplýsinga. Þá mælir 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga fyrir um að Útlendingastofnun skuli afla nauðsynlegra og aðgengilegra upplýsinga við meðferð mála. Mál telst nægilega rannsakað þegar þeirra upplýsinga hefur verið aflað sem nauðsynlegar eru til þess að hægt sé að taka efnislega rétta ákvörðun í því. Kröfur til rannsóknar í hverju máli ráðast af lagagrundvelli málsins og einstaklingsbundnum aðstæðum kæranda, þ.m.t. þeim málsástæðum sem hann ber fyrir sig.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda leggur stofnunin mat á fylgigögn sem kærandi lagði fram til stuðnings frásögn sinni um ástæður flótta frá heimaríki. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að gögn er varða menntun og starfsreynslu tengdasonar kæranda í hernum hafi takmarkað gildi við úrlausn máls kæranda. Í ákvörðun Útlendingastofnunar er einnig tekin afstaða til framlagðs gagns sem ber með sér að vera mynd af tölvuskjá sem kærandi kveður vera af innra kerfi lögreglunnar í Venesúela og sýna á fram á að tengdasonur hennar sé eftirlýstur fyrir að hafa vikið sér undan herskyldu. Að mati Útlendingastofnunar hafi gagnið takmarkað gildi við úrlausn máls kæranda. Í ákvörðuninni kemur þó fram að ef litið yrði til framangreinds gagns við úrlausn málsins beri það með sér að tengdasonur kæranda sé einhleypur svo að ekki yrði hægt að fallast á kröfu kæranda um að yfirvöld í heimaríki séu sérstaklega á eftir henni eða séu að veita henni sérstaka eftirtekt.
Með vísan til þess sem að framan greinir úr ákvörðun Útlendingastofnunar er ekki fyllilega ljóst hvaða forsendur stofnunin lagði til grundvallar við afgreiðslu máls kæranda. Ekki verður séð að stofnunin hafi fjallað um þá málsástæðu kæranda að henni hafi borist hótanir frá lögregluyfirvöldum í Venesúela vegna aðstæðna tengdasonar kæranda í heimaríki og afleiðingar þess fyrir kæranda að öðru leyti en að leggja mat á framlögð gögn og komast að þeirri niðurstöðu að þau hafi ekki þýðingu við úrlausn málsins.
Af viðtali við kæranda hjá Útlendingastofnun verður heldur ekki séð að hún hafi verið spurð til hlítar um ástæður flótta hennar frá heimaríki. Kærandi hafi ekki verið spurð um hvaða stjórnmálalegu ástæður hafi legið að baki flótta kæranda frá heimaríki. Kærandi hafi ekki verið spurð nægilega ítarlega út í störf tengdasonar hennar í hernum og ástæður flótta hans frá heimaríki. Þá hafi kærandi ekki verið spurð nægilega um helstu atburði sem leiddu til flótta hennar frá heimaríki og tímasetningu þeirra, einkum hvað varðar eftirlit sem kærandi greindi frá að hafa verið undir ásamt dóttur sinni og barnabarni, hótanir sem kæranda hafi borist frá lögregluyfirvöldum, hlerun á síma kæranda, svartan lista sem kærandi greindi frá og mögulega veru hennar á listanum, atburðarrás í kjölfar þess að hótanir lögregluyfirvalda hættu þangað til kærandi hafi flúið frá heimaríki og af hverju kærandi telur yfirvöld enn vera að leita af henni í heimaríki. Þá verður ekki séð að Útlendingastofnun hafi leitað upplýsinga til staðfestingar á hjúskaparstöðu dóttur kæranda enda hafði dóttir kæranda greint frá því að hótanir gegn henni hafi hætt þegar hún hafi tilkynnt lögregluyfirvöldum að þau væru skilin. Auk þess hafi tengdasonur kæranda verið skráður einhleypur á ljósmynd sem kærandi kveður vera af innra kerfi lögreglunnar í Venesúela. Við meðferð málsins lagði kærandi fram gögn er varða menntun og störf tengdasonar kæranda í hernum. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram án frekari rökstuðnings að umrædd gögn hafi takmarkaða þýðingu við úrlausn máls kæranda.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 18. apríl 2023, kvaðst kærandi vera með [...] […] (s. […]) og [...]. Kærandi hafi farið í rannsóknir í Argentínu og þar hafi verið talið að hún gæti verið með [...]. Kærandi hafi fengið lyf í Argentínu við verkjum. Kærandi hafi ekki hitt lækni í Venesúela vegna ástandsins í heilbrigðiskerfinu en hún hafi fengið lyf þar í gegnum lækni sem hafi starfað með dóttur hennar á spítala. Kærandi hafi fengið einkenni eftir að hún hafi komið til Íslands og fengið aðstoð við því hér á landi. Kærandi greindi frá því að hafa ekki verið í launuðu starfi síðustu árin sem hún hafi verið búsett í heimaríki vegna aðstæðna þar og að hún hafi selt húsið sitt til að borga flótta hennar frá heimaríki. Svör kæranda bera einnig með sér að dóttir hennar og fjölskylda hafi búið hjá kæranda og að kærandi hafi verið á framfæri þeirra áður en hún flúði frá heimaríki. Af ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda verður ekki séð að stofnunin hafi tekið fyllilega afstöðu til heilsufars- og félagslegra aðstæðna kæranda í heimaríki. Í ákvörðun stofnunarinnar er ekki að finna umfjöllun um [...] sem kærandi kveðst vera með. Að framangreindu virtu er ljóst að málsmeðferð og ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda var ekki í samræmi við reglur stjórnsýsluréttar, m.a. 10. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Ákvörðun og gögn Útlendingastofunnar í máli kæranda bera ekki með sér að fram hafi farið viðhlítandi mat á aðstæðum hennar á lægra stjórnsýslustigi. Voru því annmarkar á málsmeðferð Útlendingastofnunar sem kunna að hafa haft áhrif á efnislega niðurstöðu máls kæranda. Ljóst er að um verulega annmarka er að ræða sem ekki er unnt að bæta úr á kærustigi og rétt að mál kæranda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki ástæða til umfjöllunar um aðra þætti ákvörðunar Útlendingastofnunar.
Samantekt
Með vísan til þess sem að framan hefur verið rakið er það niðurstaða kærunefndar að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda til nýrrar meðferðar.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar eru felld úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kæranda til meðferðar á ný.
The decision of the Directorate of Immigration is vacated. The Directorate is instructed to re-examine the case.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga.
Valgerður María Sigurðardóttir
varaformaður