25 júlí 2024

/

Ólympíuleikar í París

{image.Description}


Ólympíuleikarnir fara fram í París í Frakklandi 26. júlí til 11. ágúst 2024. Fimm Íslendingar hafa tryggt sér þátttökurétt á leikunum og viðbúið að fjöldinn allur ferðist til borgarinnar til að fylgjast með og hvetja sitt fólk áfram. Við minnum ferðafólk á að athuga gildistíma á vegabréfum og bendum á að gott er að kynna sér upplýsingasíðu franskra stjórnvalda fyrir brottför.

Áfram Ísland!