31 júlí 2024

/

Úrskurður nr. 769/2024


Hinn 31. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 769/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24050015

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 2. maí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. apríl 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Eiginkona kæranda sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi 2. apríl 2022 og eignuðust kærandi og kona hans tvær dætur hér á landi annars vegar [...] og hins vegar [...]. Hafa mál þeirra verið unnin samhliða máli kæranda. Fjallað er um niðurstöðu kærunefndar í málum þeirra í úrskurði nefndarinnar nr. 770/2024 frá 31. júlí 2024. Úrskurður í máli kæranda tekur mið af því í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Ítalíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 14. september 2022. Kærandi kvaðst hafa farið frá heimaríki sínu árið 2005 og farið til Ítalíu. Kvaðst kærandi hafa farið frá Ítalíu vegna vandamála sem hann hafi verið að eiga við þar í landi. Kærandi hafi komið hingað til lands með nígerískt vegabréf sem hann hafi fengið útgefið í sendiráði Nígeríu á Ítalíu. Kærandi greindi frá því að eiginkona hans væri á Íslandi, en að hann hafi ekki verið í neinu sambandi við hana. Þá sé kærandi á sakaskrá á Ítalíu fyrir [...]. Kærandi kvaðst vera við góða heilsu.

Kærandi kvaðst hafa dvalið á Ítalíu allt frá árinu 2008, en hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd þar í landi árið 2013 og fengið synjun á umsókn sinni sama ár. Þá hafi kæranda verið brottvísað frá Ítalíu árið 2014 og hlotið sektargreiðslu árið 2016 vegna ólögmætrar dvalar hans þar í landi. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, 14. september 2022, kom í ljós að fingraför hans höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 29. september 2022 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hans um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekkert svar barst innan tilskilins tímafrests litu íslensk stjórnvöld svo á að ítölsk stjórnvöld hefðu samþykkt viðtöku kæranda, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar og sendi Útlendingastofnun ítölskum yfirvöldum bréf þess efnis, dags. 3. janúar 2023. Kærandi kom fyrst til viðtals hjá Útlendingastofnun 10. nóvember 2022 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 13. janúar 2023, hafnaði Útlendingastofnun því að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi og var sú ákvörðun staðfest með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 225/2023 hinn 19. apríl 2023. Kærandi lagði fram endurtekna umsókn hjá kærunefnd hinn 15. september 2023. Með úrskurði kærunefndar nr. 604/2023, dags. 23. október 2023, var fallist á endurupptöku í máli kæranda þar sem frestur til að flytja hann til Ítalíu var liðinn og var Útlendingastofnun gert að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Kærandi kom í síðara viðtal sitt hjá Útlendingastofnun 16. nóvember 2023 ásamt talsmanni sínum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun 16. nóvember 2023 kvað kærandi helstu ástæður flótta síns mega rekja til þess að hann hafi ekki viljað taka við stöðu föður síns í vígahópnum [...] eftir að hann hafi látist árið 2004 og því sé vígahópurinn á eftir honum, ásamt bræðralaginu [...], sem faðir kæranda hafi jafnframt tilheyrt. Frá andláti föður kæranda hafi hóparnir á árunum 2004 til 2013 reglulega haft í hótunum við kæranda. Kærandi greindi frá því að vera fæddur og uppalinn í litlu þorpi sem beri heitið [...] og sé í Delta fylki í Nígeríu. Hann hafi búið í borginni Benín í Edo fylki í Nígeríu áður en hann hafi endanlega flúið heimaríki í mars 2008. Frá um 12 ára aldri og þar til faðir hans hafi látist árið 2004 hafi kærandi einnig verið meðlimur [...], en sem eini strákurinn úr systkinahópnum hafi faðir hans þvingað hann til þess að berjast með hópnum. Kærandi kvað [...] hafa barist fyrir frelsi og yfirráðasvæði Ijaws þjóðarbrotsins í Nígeríu, sem kærandi tilheyri. Kærandi greindi frá því að vígahópurinn væri á móti stjórnvöldum og að þeir hafi m.a. verið að stela olíu og flytja hana frá Nígeríu. Árið 1999 hafi stjórnvöld í Nígeríu lýst yfir stríði á hendur vígahópnum og faðir kæranda hafi þá flúið með fjölskylduna á Bakassi svæðið nálægt Kamerún. Þaðan hafi þau flutt til borgarinnar Ekeremor í Bayelsa fylki í Nígeríu og um ári seinna til borgarinnar Warri í Delta fylki þar sem kærandi og faðir hans hafi haldið áfram að berjast. Kærandi kvaðst ekki hafa tekið þátt í starfsemi [...] eftir andlát föður síns. Honum hafi hins vegar verið hótað af hópnum að hann gæti ekki hætt auk þess sem annar hópur eða bræðralag, sem beri nafnið [...], hafi einnig reynt að neyða kæranda til þess að gerast meðlimur. Eftir andlát föður kæranda hafi kærandi flutt ásamt móður sinni og systrum til Benín borgar. Þar hafi hann búið í rúmlega ár, en árið 2005 flúið til Líbíu þar sem honum hafði ítrekað borist hótanir frá bræðralaginu [...] og skotið hafði verið að honum. Yfirvöld í Líbíu hafi síðan sent kæranda aftur til Benín borgar í janúar 2008, en kærandi hafi snúið aftur til Líbíu í mars sama ár, dvalið þar í nokkra mánuði og haldið þaðan til Ítalíu. Kærandi hafi endanlega yfirgefið Nígeríu vegna hótana bræðralagsins [...]. Kærandi telur að meðlimir [...] hafi myrt systur hans árið 2013 til þess eins að ná til hans. Þá viti kærandi ekki hvar móðir hans og önnur systir séu niðurkomnar, en hann hefur ekki heyrt í þeim í áratug. Þá geti kærandi hvorki leitað aðstoðar yfirvalda né lögreglu í heimaríki og kvað lögregluna hvorki geta tryggt öryggi hans gagnvart [...] né [...] vegna ítaka bræðralagsins í samfélaginu. Auk framangreinds greindi kærandi frá því að hann væri í hættu í heimaríki vegna trúar sinnar. Hann hafi verið múslimatrúar en gerst kristinnar trúar árið 2018 þegar hann hafi verið í fangelsi á Ítalíu. Óttist kærandi föðursystkini sín vegna trúskiptanna, en viti þó ekki hvort þau séu á lífi.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. apríl 2024, var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljugur innan frests sem honum hefði verið veittur yrði endurkomubann hans fellt niður. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 2. maí 2024. Greinargerð barst kærunefnd 16. maí 2024.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er m.a. vísað til greinargerðar kæranda til Útlendingastofnunar hvað málavexti varðar og fyrirliggjandi gagna sem úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. 225/2023 frá 19. apríl 2023 byggist á. Í greinargerðum kæranda til Útlendingastofnunar og kærunefndar kemur m.a. fram að kærandi hafi ekki verið öruggur í heimaríki sínu og hafi þess vegna flúið til Ítalíu hvar hann hafi kynnst eiginkonu sinni. Hann hafi jafnframt setið í fangelsi á Ítalíu. Í því sambandi vísar kærandi til máls eiginkonu sinnar. Dómsúrlausn varðandi hennar þátt í málinu liggi fyrir í gögnum málsins hjá Útlendingastofnun, en kærandi sé ekki með eigin dómsúrlausn. Hann hafi þó setið skemur en eiginkona sín í fangelsi. Í heimaríki hafi kærandi, þá á barnsaldri, tilheyrt hópi vígamanna að nafni [...] þar sem faðir hans hafi verið háttsettur í hópnum, en hann hafi látið lífið í átökum við annan vígahóp. Eftir andlát föður kæranda hafi meðlimir [...] ætlast til þess að kærandi héldi áfram þátttöku sinni í hópnum. Hann hafi neitað og í kjölfarið verið ofsóttur og honum og fjölskyldu hans verið hótað. Árið 2013 hafi þeir myrt systur kæranda og fjölskylda kæranda hafi þá tilkynnt atvikið til lögreglu. Fjölskyldan hafi einnig leitað aðstoðar lögreglu árið 2005 vegna umræddra hótana. Þá séu félagslegar aðstæður og heimilisaðstæður kæranda og eiginkonu hans á viðkvæmu stigi. Umsóknarferli þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi sé búið að reyna á hjónabandið, sem hafi einnig haft áhrif á börn þeirra. Skömmu fyrir framlagningu greinargerðar kæranda til kærunefndar hafi kærandi flutt út af heimilinu en sé nú aftur fluttur inn á heimilið. Þá vísar kærandi til þess að hann sé í dag faðir og telur það andstætt hagsmunum barna sinna að endursenda fjölskylduna til Nígeríu.

Kærandi krefst þess aðallega að fá veitta alþjóðlega vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu að verða fyrir áframhaldandi ofsóknum í heimaríki sem stafi einkum frá vígahópnum sem hann áður tilheyrði, sbr. einkum a-, b-, og c-liðir 2. mgr., sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Ofsóknirnar felist fyrst og fremst í andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum frá vígahópnum, en kærandi fái enga vernd frá stjórnvöldum í heimaríki. Kærandi hafi heldur ekkert bakland í heimaríki þar sem hann viti ekkert um móður sína og systur.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að hann muni eiga það á hættu að sæta meðferð í heimaríki sem heimfæra megi undir framangreint ákvæði enda hafi systir hans verið myrt þar í landi.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að heildarmat á aðstæðum hans leiði til þess að hann teljist hafa ríka þörf fyrir vernd í skilningi ákvæðisins. Hann hafi lengi búið við erfiðar félagslegar aðstæður og telur að börnin hans mun búa við enn erfiðari félagslegar aðstæður verði fjölskyldunni gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá sé almennt ástand í heimaríki kæranda afar bágborið og áframhaldandi ofsóknir bíði hans snúi hann aftur til baka.

Kærandi telur að með endursendingu hans til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að kærandi hafi haft réttmætar væntingar til fyrri framkvæmdar um málsmeðferðartíma sem hafi verið í gildi fyrir gildistöku laga nr. 14/2023 um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016. Kærandi vísar til þess að áður en breytingarlög nr. 14/2023 tóku gildi hafi sú framkvæmd verið við lýði að heildar umsóknartími umsókna um alþjóðlega vernd var reiknaður samfellt og varðaði það hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd gætu átt rétt á mannúðarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísar hann einnig til þess að ákvæði 10. gr. breytingarlaga nr. 14/2023, sem breytti ákvæði 36. gr. laga um útlendinga, gildi ekki um umsóknir sem bárust fyrir gildistöku laganna, en umsókn kæranda hafi borist fyrir gildistöku laganna og því eigi eldra ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga að gilda um málsmeðferðartíma í máli hans. Kærandi telur því að nýr 18 mánaða frestur hafi ekki átt að byrja að líða þegar hann lagði fram endurtekna umsókn 15. september 2023, heldur hafi átt að miða við 18 mánuði frá 14. september 2022, þ.e. frá því að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum. Þá telur kærandi að í öllu falli beri að miða við umsóknardag hans þegar hann lagði fram endurtekna umsókn hjá kærunefnd, en ekki það tímamark þegar kærunefnd féllst á að mál hans yrði tekið til efnismeðferðar. Væri slíkt andstætt því hvernig tímafrestir hafa verið reiknaðir út til þessa. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til álits umboðsmanns Alþingis nr. 3307/2001.

Ákvæði 35. gr. a laga um útlendinga, um endurteknar umsóknir, kom nýtt inn í lög um útlendinga með 9. gr. laga nr. 14/2023 um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016, en breytingarlögin öðluðust gildi 6. apríl 2023. Með 10. gr. sömu breytingarlaga voru m.a. gerðar breytingar á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 1. mgr. 23. gr. breytingarlaganna kemur fram að lögin öðlist þegar gildi. Í 2. mgr. segir að þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. komi 8. gr. ekki til framkvæmda fyrr en 30 dagar eru liðnir frá gildistöku laganna. Þá segir að lokum að 10. gr. laganna gildi ekki um meðferð umsókna sem bárust fyrir gildistöku laganna. Í 23. gr. breytingarlaganna er ekki að finna sérstök fyrirmæli um lagaskil hvað varðar 9. gr. laganna. Með vísan til þess hefur verið litið svo á að rétt sé að beita ákvæðinu um endurteknar umsóknir frá gildistöku þess.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki tilefni til að draga framangreint í efa og leggur til grundvallar að kærandi sé nígerískur ríkisborgari.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Nigeria (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • 2021 Report on International Religious Freedom: Nigeria (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
  • 2023 Trafficking in Persons Report – Nigeria (U.S. Department of State, 2023);
  • Actors of Protection – Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
  • Amnesty International Report 2021/22 – Nigeria (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Assessment for Ijaw in Nigeria (Minorities at Risk (MAR), 31. desember 2006);
  • Country Guidance: Nigeria (EUAA, október 2021);
  • Country Information Note – Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
  • Country of Origin report – Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, 22. júní 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
  • Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
  • DFAT Country Information Report – Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
  • DFAT Country Information Report – Nigeria (Australian Department of Foreign Affairs and Trade, 9. mars 2018);
  • EASO COI Meeting Report: Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 – Rome (European Asylum Support Office, 22. ágúst 2017);
  • EU-IOM Joint Initiative marks five years of supporting migrants and their communities across Africa (Neyðarsjóður Evrópusambandsins fyrir Afríku, frétt sótt af heimasíðu 9. febrúar 2023, https://ec.europa.eu/trustfundforafrica/all-news-and-stories/eu-iom-joint-initiative-marks-five-years-supporting-migrants-and-their_en);
  • Freedom in the World 2022 – Nigeria (Freedom House, 24. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2024 – Nigeria (Freedom House, febrúar 2024);
  • Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
  • Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
  • Nigeria – Country Focus (EUAA, júlí 2024);
  • Nigeria – Country Focus (EUAA, júní 2017);
  • Nigeria: Ogboni society, including structure, rituals, ceremonies, and current status; membership and the consequences of refusing to join or trying to leave; relationship with police and judicial authorities (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. júní 2019);
  • Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 9. september 2019);
  • Nigeria Security Situation (EUAA, júní 2021);
  • Nigeria. Social Institutions and Gender Index 2019 (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
  • Politics as War: The Human Rights Impact and Causes of Post-Election Violence in Rivers State, Nigeria (Human Rights Watch, mars 2008);
  • Rivers and Blood: Guns, Oil and Power in Nigeria’s Rivers State (Human Rights Watch, 4. febrúar 2005);
  • Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, http://www.wipo.int/edocs/lexdoc/lawa/en/ng/ng014en.pdf);
  • Targeting of individuals – Nigeria (EUAA, nóvember 2018);
  • The World Factbook (CIA, uppfært 8. júlí 2024);
  • Understanding the Armed Groups of the Niger Delta (Council on Foreign Relations (CFR), september 2009) og
  • World Report 2024 – Nigeria: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Nígería er sambandslýðveldi með um 237 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðsamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2022 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.

Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu, auk þess sem þjálfun á lögreglumönnum sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2022 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.

Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023, að töluverð spilling sé innan dómskerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Commission (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmannsins í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórn lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar.

Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna frá apríl 2022 búa yfir 250 mismunandi þjóðarbrot í Nígeríu. Þrjú stærstu þjóðarbrotin séu Hausa, Igbo og Yoruba, en saman myndi þau um helming íbúafjölda landsins. Önnur stór þjóðarbrot eru Ijaw og Fulani. Heimildir bera með sér að 1,8% fólks í Nígeríu tilheyri Ijaw þjóðarbrotinu og að mikill fjöldi þeirra dvelji í Bayelsa, Delta, Rivers auk Edo og Ondo fylkis. Einstaklingar Ijaw þjóðarbrotsins verði ekki fyrir mismunun, en upplifi efnahagslega og pólitíska útilokun. Þá eru einstaklingar Ijaw þjóðarbrotsins annað hvort kristinnar trúar eða andatrúar (e. animist). Meðlimir úr öllum þjóðarbrotum hafi orðið fyrir mismunun en mismununin hafi einkum birst í ráðningum innan einkageirans og hverfaskiptingu í þéttbýli. Fram kemur að spenna milli ákveðinna þjóðarbrota í Nígeríu eigi sér langa sögu. Stjórnvöld í Nígeríu hafi gert tilraunir til að sporna við slíkri mismunun og hafi slíkar tilraunir yfirleitt samanstaðið af öryggisaðgerðum, þar á meðal lögregluaðgerðum og aðgerðum á vegum hersins. Lög í Nígeríu banni mismunun á grundvelli þjóðarbrots. Engu að síður hafi aðilar flestra þjóðarbrota greint frá því að vera jaðarsettir þegar komi að fulltrúum í stjórnmálum landsins og/eða tekjuúthlutun stjórnvalda.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá árinu 2021 kemur fram að átök hafi verið viðvarandi árið 2020 milli Fulani herdsmen, sem séu að mestu múslimar, og bænda, sem séu að mestu kristnir, í Norður og Mið-Nígeríu. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá árinu 2022 að samkvæmt frjálsu félagasamtökunum International Crisis Group hafi óöryggi og ofbeldi milli framangreindra hópa aukist árið 2021. Þó sé erfitt að rekja orsök átakanna eingöngu til trúarbragða. Alþjóða- og félagasamtök hafi gagnrýnt stjórnvöld í Nígeríu fyrir getuleysi til að koma í veg fyrir eða draga úr ofbeldi milli kristinna og múslimskra samfélaga. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá janúar 2020 og skýrslu International Crisis Group frá september 2017 kemur fram að þessi átök snúist fyrst og fremst um baráttu þessara tveggja hópa um landsvæði, þar sem að þurrkar hafi leitt til skorts á beitilandi í norðri og vaxandi landbúnaður hafi leitt til aukinnar þarfar á ræktarlandi í svokölluðu miðjubelti Nígeríu.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá júlí 2024 má rekja helstu orsakir dauðsfalla og ofbeldis í Nígeríu til glæpastarfsemi. Þar á eftir komi pólitísk átök, trúarleg málefni og umferðaslys. Öryggisástandið sé hvað verst í norðurhluta Nígeríu vegna átaka hryðjuverkahópa, landátaka og aðgerða nígerískra stjórnvalda gegn uppreisnarmönnum. Í suðurhluta Nígeríu megi aðallega rekja dauðsföll til glæpa og þjóðernis- og samfélagslegs ágreinings. Á tímabilinu desember 2022 til júní 2023 hafi Sameinuðu þjóðirnar greint frá fækkun hryðjuverkaárása og dauðsfalla sem rekja megi til sameiginlegra aðgerða nígerískra stjórnvalda og Multinational Joint Task Force MNJTF gegn Boko Haram, afvopnunar fyrrverandi hermanna og stuðningsmanna Boko Haram og átaka á milli Boko Haram og ISWAP. Heimildir bendi þó til þess að stórfelldar árásir haldi áfram að eiga sér stað og vopnaðar vígasveitir starfi áfram í norðurhluta Nígeríu. Árásir íslamskra hryðjuverkahópa á borð við Boko Haram, ISWAP og Ansaru og aðgerðir nígerískra stjórnvalda gegn þessum hópum hafi valdið 2.212 dauðsföllum árið 2023, þ. á m. dauðsföllum óbreyttra bargara. Það sé þó fækkun um 898 dauðsföll frá árinu 2022. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2021 og ACLED frá 2024 var hryðjuverkahópurinn Boko Haram, einnig þekktur sem JAS, stofnaður árið 2002 og er einn valdamesti vopnaði vígahópurinn í Nígeríu. Markmið hópsins sé að skipta nígeríska ríkinu út fyrir íslamskt ríki og byggir hópurinn á strangri túlkun á Sharia-lögum. Meginhluti starfsemi hópsins hafi verið friðsæl og ofbeldislaus fyrir árið 2009 en í kjölfar þess að skólastúlkum hafi verið rænt í Chibok árið 2014, hafi hópurinn vakið heimsathygli og verið þekktur sem banvænasti hryðjuverkahópur heims. Síðan þá hafi hópurinn stækkað til nágrannalanda Nígeríu, Kamerún, Tsjad og Níger og hertekið landsvæði. Hópurinn hafi verið í uppreisn á árunum 2014 til 2015 og náð stjórn yfir mikilvægum landsvæðum í norðausturhluta Nígeríu. Nígerísk stjórnvöld og samstarfsmenn þeirra hafi allt frá árinu 2015 barist gegn vígahópnum sem hafi leitt til þess að dregið hafi úr starfsemi hópsins og hann misst yfirráðasvæði. Árið 2016 hafi Boko Haram skipst í tvær fylkingar, JAS og ISWAP og í maí 2021 hafi leiðtogi Boko Haram/JAS verið drepinn í átökum milli JAS og ISWAP. Allt frá þeim tíma hafi átt sér stað átök á milli beggja fylkinga vegna yfirráða landsvæða.

Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá desember 2021 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan- og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið á vegum alríkisins. Almenn heilbrigðisþjónusta sé almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.

Í skýrslu utanríkis- og viðskiptaráðuneytis Ástralíu frá mars 2018 kemur fram að The Movement for the Emancipation of the Niger Delta (MEND) sé einn stærsti vígahópurinn á Niger Delta svæðinu (e. Niger Delta region). Þrátt fyrir að sumir sérfræðingar skilgreini hópinn sem Ijaw vígahóp þá tilheyri fleiri þjóðarbrot hópnum og þess vegna sé litið á MEND sem eins konar regnhlífarsamtök. Aðrir þekktir hópar á svæðinu séu Niger Delta People's Volunteer Force (NDPVF) og Niger Delta Strike Force (NDSF). Árið 2016 hafi enn einn vígahópurinn, Niger Delta Avengers (NDA), litið dagsins ljós. Sá hópur kenni sig ekki við MEND. Yfirvöld í Nígeríu hafi haft misgóðan árangur af því að vinna gegn starfsemi framangreindra hópa. Nígerískar öryggissveitir hafi í einhverjum tilfellum beint sjónum sínum að óbreyttum borgurum á Niger Delta svæðinu og m.a. skemmt eignir þeirra, og sært og myrt þá sem þeir telji að séu að hýsa meðlimi vígahópa. Vígahópurinn [...] hafi haldið til á Niger Delta svæðinu. Maður að nafni [...] hafi stofnað hópinn árið 2003 en hann hafi áður verið leiðtogi gengisins [...] og sé [...] afsprengi þess hóps. [...] hafi aðallega staðið saman af einstaklingum sem tilheyrt hafi þjóðarbroti Ijaw frá og við [...] í [...] fylki. Markmið hópsins hafi fyrst og fremst verið að stjórna miklum olíuauðlindum svæðisins. Samkvæmt heimildum Human Rights Watch hafi [...] og [...] eytt mestum hluta ársins 2004 í stigvaxandi átökum sem hafi lokið þegar stjórnvöld hafi gripið inn í átökin og tekið afstöðu með [...]. Í átökunum hafi [...] notið stuðnings yfirvalda í [...] fylki í formi peninga og vopna. Stuðningur nígerískra stjórnvalda við [...] hafi síðar ýtt undir olíukreppuna sem hófst í október árið 2004. Þá bera heimildir með sér að einstaklingar sem tengist stærsta vígahóp Niger Delta svæðisins, MEND, og öðrum vígahópum verði ekki fyrir kerfisbundnu áreiti eða ofbeldi af hálfu stjórnvalda eða annarra aðila.

Í skýrslu EUAA frá október 2021 kemur fram að bræðralög í Nígeríu líkist glæpasamtökum. Algengt sé að bræðralög starfi innan skólasamfélaga en þau stundi einnig umfangsmikla glæpastarfsemi fyrir utan háskólasvæðin, þá einkum í suðurhluta Nígeríu. Bræðralögin séu þekktust fyrir ógnandi hegðun og ofbeldi gagnvart nemendum, kennurum, lögreglu og öðrum samtökum. Dæmi séu jafnvel um að stjórnmálamenn ráði bræðralög til þess að beita andstæðinga sína ofbeldi. Innganga nýrra meðlima í bræðralög einkennist af ofbeldisfullum vígsluathöfnum og slík félög séu þekkt fyrir að stunda m.a. mansal, þrælahald, fjárkúgun, mannrán og kynferðisofbeldi. Þekktustu bræðralögin í Nígeríu séu Black Axe og Eiye. Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2018 hafi með lagasetningu árið 2004 (e. Secret Cult and Cult Related Activities (Prohibition) Bill) verið lagt bann við starfsemi bræðralaga af þessu tagi. Jafnframt hafi meðlimir bræðralaga verið handteknir eða vikið úr skóla vegna ofbeldisbrota, en að í sumum tilvikum hafi spilling innan lögreglu, hótanir gegn vitnum eða skortur á sönnunargögnum leitt til þess að mál hafi verið látin niður falla. Í fyrrnefndri skýrslu EUAA frá október 2021 kemur fram að fáeinar heimildir bendi til þess að erfitt geti verið fyrir meðlimi að yfirgefa bræðralög og að fyrrum meðlimir séu jafnvel myrtir til að koma í veg fyrir að þeir uppljóstri leyndarmálum bræðralagsins. Þrátt fyrir framangreint séu engar nýlegar eða áreiðanlegar heimildir sem staðfesta það. Sú heimild sem vísað er til í skýrslu EUAA hvað þetta varðar er, að því er virðist, grein frá árinu 2013 á bloggsvæði og er hvorki höfundar né heimilda getið. Þá kemur fram að engar upplýsingar séu fyrir um hendi um afleiðingar þess að neita því að ganga til liðs við bræðralag.

Í skýrslu flóttamannaráðs Kanada frá 2019 kemur fram að lítið sé um áþreifanlegar heimildir um [...] samfélagið í Nígeríu. Upplýsingarnar sem séu fyrir hendi byggist á getgátum og staðarþekkingu í Abuja og Lagos. Fram kemur að [...] samfélagið sé öldungaráð sem hafi verið stofnað af [...] þjóðfélagshópnum. Áhrif samfélagsins gæti ekki víða í Nígeríu. Meðlimir samfélagsins séu flestir staðsettir í suðvesturhluta landsins þar sem fólk tali [...] og [...], þ. á m. í Lagos, Ogun og Oyu en einnig í hluta Edo fylkis. Einstaklingar séu að jafnaði ekki tilneyddir til að ganga til liðs við samfélagið, en ef foreldri barns, sem sé meðlimur [...], skuldbindi það áður en það fæðist eða á unglingsárum þess verði barnið að taka við aðild foreldris síns við andlát þess. Fyrir karla gerist þetta við tuttugasta og fyrsta aldursár, en konur þurfi að vera orðnar fertugar. Börn undir lögaldri gangi ekki í félagið. Aðild að bræðralaginu gangi oftast í erfðir til elsta sonar látins föður sem hafi verið meðlimur félagsins. Heimildarmaður sem flóttamannaráð Kanada hafi rætt við telji að börn meðlima sem neiti að ganga til liðs við samfélagið eftir andlát foreldris geti átt á hættu að verða fyrir áreiti vegna þess. Þá geti einstaklingar sem yfirgefi samfélagið eða greini frá leyndarmálum þess átt á hættu að vera drepnir. Hins vegar séu engar nýlegar heimildir sem renni stoðum undir þessar getgátur. Enn fremur hafi áhrif bræðralagsins farið minnkandi á síðustu áratugum og búi það nú á dögum hvorki við völd né hafi sérstök áhrif í Nígeríu. Auk þess sé ekkert sem bendi til þess að tengsl séu á milli umrædds bræðralags og nígerískra yfirvalda, þ. á m. lögreglu og dómsmálayfirvalda.

Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningsstofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningsstofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu. Í frétt á heimasíðu neyðarsjóðs Evrópusambandsins fyrir Afríku frá 16. desember 2021 kemur fram að verkefnið hafi aðstoðað um 106 þúsund manns við að snúa aftur til heimkynna sinna í Afríku á öruggan hátt.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína á því að hann eigi á hættu að verða fyrir áframhaldandi ofsóknum í heimaríki sem stafi einkum frá vígahópnum, [...], sem hann áður tilheyrði. Ofsóknirnar felist fyrst og fremst í andlegu og líkamlegu ofbeldi og hótunum frá vígahópnum, en kærandi fái enga vernd frá stjórnvöldum í heimaríki. Kærandi hafi heldur ekkert bakland í heimaríki þar sem hann viti ekkert um afdrif móður sinnar og systur. Að auki vísar kærandi til þess að annar hópur, [...] bræðralagið, hafi reynt að neyða hann til þess að gerast meðlimur í kjölfar andlát föður hans, en kærandi neitað. Hafi bræðralagið haft í hótunum við kæranda, skotið að honum og myrt aðra systur hans árið 2013.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 16. nóvember 2023, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Við meðferð málsins greindi kærandi frá því að helstu ástæður flótta hans mega rekja til þess að hann hafi ekki viljað taka við stöðu föður síns í vígahópnum [...] eftir andlát hans og því sé vígahópurinn á eftir honum, ásamt bræðralaginu [...], sem faðir kæranda hafi jafnframt tilheyrt. Frá andláti föður kæranda hafi hóparnir á árunum 2004 til 2013 reglulega haft í hótunum við kæranda. Frá um 12 ára aldri og þar til faðir hans hafi látist árið 2004 hafi kærandi einnig verið meðlimur [...], en sem eini strákurinn úr systkinahópnum hafi faðir hans þvingað hann til þess að berjast með hópnum. Kærandi kvaðst ekki hafa tekið þátt í starfsemi [...] eftir andlát föður síns. Honum hafi hins vegar verið hótað af hópnum að hann gæti ekki hætt auk þess sem annar hópur eða bræðralag, sem beri nafnið [...], hafi einnig reynt að neyða hann til þess að gerast meðlimur. Eftir að faðir kæranda hafi látist hafi kærandi flutt ásamt móður sinni og systur til Benín borgar í Edo fylki. Þar hafi hann búið í rúmlega ár, en árið 2005 flúið til Líbíu vegna þess að honum hafi ítrekað borist hótanir frá bræðralaginu [...] og skotið hafði verið að honum. Kærandi hafi snúið aftur til Nígeríu í janúar 2008 en farið aftur til Líbíu í mars sama ár, dvalið þar í nokkra mánuði, og haldið þaðan til Ítalíu. Kærandi hafi endanlega yfirgefið heimaríki vegna hótana umrædds bræðralags. Kærandi telur að [...] hafi myrt systur hans árið 2013 til þess eins að ná til hans. Þá viti kærandi ekki hvar móðir hans og önnur systir séu niðurkomnar, en hann hefur ekki heyrt í þeim í áratug. Þá geti kærandi hvorki leitað aðstoðar yfirvalda né lögreglu í heimaríki og kvað lögregluna hvorki geta tryggt öryggi hans gagnvart [...] né [...] vegna ítaka bræðralagsins í samfélaginu.

Við meðferð málsins lagði kærandi fram ítalskt hjónavígsluvottorð, sem sýni að hann sé í hjúskap með nígerískri konu sem einnig sé umsækjandi um alþjóðlega vernd hér á landi, læknisvottorð frá Heilsugæslunni [...], afrit af tveimur lögregluskýrslum, dags. 25. febrúar 2005 og 13. apríl 2013, og afrit af tveimur blaðagreinum úr nígerísku dagblaði, dags. 15. febrúar 2008 og 13. apríl 2013. Blaðagreinin frá 2008 fjalli um meinta leit [...] bræðralagsins að kæranda og hótanir þeirra í garð hans. Blaðagreinin frá árinu 2013 fjalli um meint morð á systur kæranda, ásamt ljósmynd af meintu líki hennar.

Í afriti af lögregluskýrslu, dags. 13. apríl 2013, kemur fram að faðir kæranda hafi verið leiðtogi vígahópsins [...] í Delta fylki og kjörinn meðlimur í bræðralaginu [...]. Frásögn kæranda um að faðir hans hafi verið leiðtogi í vígahópnum [...] ber því ekki saman við upplýsingar úr framangreindri lögregluskýrslu. Þá eru engar heimildir að finna um tilvist [...]. Hins vegar bera landaupplýsingar með sér að [...] hafi verið leiðtogi [...] frá árinu 2003 fram til ársins 2009, þ.e. í þann tíma sem vígahópurinn starfaði, en engar upplýsingar eru að finna um tengsl föður kæranda við framangreindan hóp. Í framangreindri lögregluskýrslu kemur jafnframt fram að ótilgreindir einstaklingar hafi ráðist inn á heimili móður kæranda í leit að kæranda með þeim afleiðingum að systir hans hafi látið lífið í skotárás. Taldi móðir kæranda að umræddir einstaklingar hafi verið meðlimir [...] bræðralagsins. Umrædd lögregluskýrsla ber með sér að vera einhliða frásögn móður kæranda hjá lögreglu og ekkert sem þar kemur fram staðfestir að systir kæranda hafi raunverulega látist vegna skotárásar sem megi rekja til bræðralagsins og ofsókna sem tengist kæranda. Máli sínu til stuðnings lagði kærandi fram afrit af blaðagrein, dags. 13. apríl 2013, sem fjalli um andlát systur hans. Umrædd blaðagrein hefur takmarkað sönnunargildi í málinu en að mati kærunefndar er hún einföld að gerð og ótraustvekjandi þar sem m.a. ljósmynd, sem fylgir fréttinni, er afar óskýr og ekki er möguleiki að átta sig af hverjum hún er eða þeim áverkum sem myndin eigi að sýna. Þá virðist sem átt hafi verið við dagsetningu og aðrar upplýsingar um blaðið, sem fréttin á að hafa verið birt í, eftir að búið hafi verið að prenta forsíðu blaðsins.

Í afriti af lögregluskýrslu, dags. 25. febrúar 2005, kemur fram að faðir kæranda hafi verið áhrifamikill meðimur [...] bræðralagsins og að eftir andlát hans hafi meðlimir félagsins krafist þess að kærandi myndi taka við aðild föður síns. Kærandi hafi þó neitað og meðlimir [...] byrjað að hóta og áreita fjölskylduna. Umrædd lögregluskýrsla ber einnig með sér að vera einhliða frásögn móður kæranda hjá lögreglu og ekkert sem þar kemur fram staðfestir að [...] bræðralagið hafi verið að hóta og áreita kæranda. Auk þess kemur fram í framangreindri lögregluskýrslu að lögreglan hafi ætlað að skoða málið. Máli sínu til stuðnings lagði kærandi fram afrit af blaðagrein, dags. 15. febrúar 2008, sem fjalli um leit [...] bræðralagsins að kæranda, hótanir þeirra í garð hans og hvernig þeir hafi náð kæranda, en hann náð að flýja þá á meðan þeir hafi skotið að honum. Fjallað hefur verið í opinberum skýrslum um hættuna sem hafi stafað af slíkum bræðralögum á þeim tíma sem kærandi kveðst hafa þurft að þola ofangreint áreiti. Hefur t.a.m. verið vísað til sambærilegrar fréttar og kærandi lagði fram við meðferð málsins. Umrædd frétt beri heitið „Cultists Vow to Eliminate Man for Refusing Initiation“, dags. 19. febrúar 2009 og var birt í dagblaðinu The Nigerian Observer líkt og framlögð frétt.

Með vísan til framagreinds verður ekki útilokað að faðir kæranda kunni að hafa verið meðlimur í tilteknum vígahópi og bræðralaginu [...] og að kærandi hafi verið beittur þrýstingi um að taka við stöðu föður síns í hópunum. Samkvæmt landaupplýsingum hafi [...] bræðralagið lítil sem engin áhrif í nígerísku nútímasamfélagi og yfirvöld hafi unnið að því að uppræta slík samtök. Enn fremur séu tveir áratugar liðnir frá andláti föður kæranda og því afar ólíklegt að framangreint bræðralag muni hafa áfram í hótunum við kæranda. Verður því ekki fallist á að ítök og völd bræðralagsins séu slík í heimaríki kæranda að hann hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu meðlima þess. Heimildir bera einnig með sér að vígahópurinn [...] hafi verið leystur upp fyrir um fimmtán árum síðan og stafi kæranda því ekki lengur ógn af hópnum.

Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar kemur fram að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda , m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hann geti ekki notið verndar lögreglu telji hann þörf á því.

Kærandi greindi jafnframt frá því að hann væri í hættu í heimaríki vegna trúar sinnar. Hann hafi verið múslimatrúar en gerst kristinnar trúar árið 2018 þegar hann hafi verið í fangelsi á Ítalíu. Kvað kærandi meirihluta samfélagsins sem hann sé frá vera múslimatrúar. Óttist kærandi föðursystkini sín vegna trúskiptanna, en viti þó ekki hvort þau séu á lífi. Þá tilheyri kærandi þjóðarbroti Ijaw og telur sig þess vegna vera í minnihlutahópi. Kærandi hafi þó ekki greint frá mismunun né annars konar ofbeldi vegna trúar sinnar eða uppruna.

Að teknu tilliti til upplýsinga um heimaríki kæranda er um helmingur íbúa landsins múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Lög í landinu banni einnig alla mismunun á grundvelli þjóðarbrots. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta, þ. á m. á Niger Delta svæðinu þar sem kærandi sé fæddur og uppalinn og hafi búið þegar hann hafi verið búsettur í heimaríki. Í Nígeríu búa yfir 250 mismunandi þjóðarbrot og er Ijaw meðal stærstu þjóðarbrotanna. Enn fremur séu einstaklingar Ijaw þjóðarbrotsins annað hvort kristinnar trúar eða andatrúar. Renna heimildir ekki stoðum undir þann framburð kæranda að vera frá framangreindu svæði og hafa verið múslimatrúar, en það sé þó ekki útilokað og er að mati kærunefndar ekki tilefni til að draga fæðingar- og uppeldisstað kæranda í efa. Með vísan til framangreinds og þess að kærandi sé nú kristinnar trúar er að mati kærunefndar engin ástæða til að ætla að kærandi sé í hættu á sínum heimaslóðum vegna trúar sinnar. Þá hefur kærandi ekki lýst neinu sem talist gæti til ofsókna gagnvart honum eða á annan hátt leitt að því líkur að nígerísk yfirvöld eða föðursystkini hans beini sjónum sínum sérstaklega að honum eða hann sé á annan hátti í verri stöðu í heimaríki en aðrir einstaklingar sem aðhyllist sömu trúarbrögð eða séu af sama þjóðernisuppruna. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa ekki til kynna að einstaklingar sem tilheyri Ijaw verði fyrir mismunun, en gætu þó upplifað efnahagslega og pólitíska útilokun. Ekkert í þeim gögnum gefur þó til kynna að sú útilokun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Þá er ekkert í frásögn kæranda sem bendir til þess að hann muni vera í hættu sökum trúar sinnar. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður kæranda vegna uppruna hans séu ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í litlu þorpi sem ber heitið [...] og er í Delta fylki í Nígeríu. Á árunum 1999 til 2008 hafi kærandi búið á ýmsum stöðum í Nígeríu, m.a. í Ekeremor borg í Bayelsa fylki, Warri borg í Delta fylki, Benín borg í Edo fylki, Líbíu og á Bakassi svæðinu nálægt Kamerún. Kærandi hafi búið í Benín borg áður en hann hafi endanlega flúið heimaríki í mars 2008. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt vígahópar og bræðralög starfi í suðurhluta landsins er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í Benín séu slíkar að kærandi eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Nígeríu.

Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að frásögn kæranda um að hann eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eigi ekki við rök að styðjast og vísast til þeirrar umfjöllunar. Að öðru leyti er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hans leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hans leiði til þess að hann eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi hann til baka. Er horft til þess að kærandi hafi endanlega yfirgefið heimaríki sitt árið 2008 og að landaupplýsingar bendi til þess að þeir hópar sem hann óttist hafi lítil sem engin áhrif í nígerísku nútímasamfélagi.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á hann ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann og fjölskylda hans muni búa við erfiðar félagslegar aðstæður verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Almennt ástand í heimaríki sé afar bágborið og áframhaldandi ofsóknir bíði kæranda snúi hann aftur til baka.

Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þessum athugasemdum.

Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. Með vísan til frásagnar kæranda sé óljóst hvort hann eigi fjölskyldu í heimaríki en hann kveðst ekki hafa heyrt frá móður sinni né systur í yfir tíu ár. Hins vegar séu eiginkona hans og tvær yngri dætur, sem séu einnig nígerískir ríkisborgarar, staddar hér á landi með honum og muni þær snúa með honum aftur til heimaríkis. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi sé heilsuhraustur og vinnufær. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar og félagslegar aðstæður sem bíða kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Kærandi kveður sig vera við góða heilsu en að andleg heilsa hans sé ekki góð og að hann sé hjá [...] sökum þess. Þá greindi kærandi frá því að hann eigi við [...] að stríða, hann væri búinn að vera hjá sjúkraþjálfara og tæki verkjalyf vegna þess. Í málinu liggur fyrri læknisvottorð frá Heilsugæslunni [...], dags. 3. nóvember 2022, þar sem fram kemur að kærandi hafi þurft að fara í myndgreiningu vegna verkja í baki eftir að hafa verið þolandi líkamsárásar á Ítalíu, og að beiðni þess efnis hafi verið send samdægurs auk lyfseðils. Að mati læknis á heilsugæslunni hafi skoðun bent til þess að kærandi væri með [...]. Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi 14. september 2022. Meðferð umsóknar hans fór samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda var umsóknin lögð fram fyrir gildistöku breytingarlaga nr. 14/2023, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 23. gr. breytingarlaganna. Það þýðir að 12 mánaða lögbundinn málsmeðferðartími kæranda hófst er hann lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd og hefði lokið við flutning kæranda úr landi en ekki við endanlega niðurstöðu í máli kæranda á stjórnsýslustigi.

Kærandi lagði fram endurtekna umsókn 15. september 2023, nánar tiltekið eftir gildistöku breytingarlaga nr. 14/2023. Í 2. málsl. 2. mgr. 35. gr. a segir að endurtekin umsókn teljist ekki framhald fyrri umsóknar í skilningi 2. mgr. 36. gr. og 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í 4. mgr. 35. gr. a kemur fram að ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 um endurupptöku gildi ekki um ákvarðanir í málum er varða alþjóðlega vernd. Í ljósi þess að endurtekin umsókn kæranda barst stjórnvöldum eftir gildistöku breytingarlaganna fellur mál kæranda undir ákvæði 35. gr. a laga um útlendinga. Hér er því um tvær aðgreindar umsóknir að ræða, annars vegar málsmeðferð umsóknar um alþjóðlega vernd, sbr. þágildandi 2. mgr. 36 gr. laga um útlendinga, og hins vegar málsmeðferð endurtekinnar umsóknar á grundvelli 35. gr. a laga um útlendinga, sbr. breytingarlög nr. 14/2023. Samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga var umsókn kæranda tekin til efnismeðferðar þegar ekki tókst að flytja hann til viðtökuríkis innan 12 mánaða enda voru tafir í málinu ekki taldar á hans ábyrgð. Kærandi naut hagræðis af þeim lagaskilum sem kveðið var á um í breytingarlögunum varðandi umrætt ákvæði. Við framlagningu endurtekinnar umsóknar hans hafði ákvæði 35. gr. a laga um útlendinga leyst af hólmi 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku, en hið nýja ákvæði hefur að geyma sambærilegar efnisreglur hvað varðar endurskoðun á umsókn og endurupptökuákvæðið að undanskilinni kröfunni um að aðili þurfi að vera staddur á landinu auk útreiknings á þeim sérstöku tímafrestum sem finna má í lögum um útlendinga. Kærandi gat og af öllu framangreindu virtu ekki haft réttmætar væntingar til þess að samanlagður tími vegna umsóknar hans, sem fór samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og samkvæmt 35. gr. a, sbr. 2. mgr. 74. gr. laganna, yrði reiknaður saman. Skoðast framangreint og í ljósi þess að kærandi uppfyllir engin efnisleg skilyrði laga sem umsóknir hans hafa lotið að, þ.e. alþjóðleg vernd og mannúðarvernd. Ljóst er að nýr 18 mánaða málsmeðferðartími hófst 15. september 2023. Eru því ekki forsendur fyrir hendi til þess að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 16. nóvember 2023, leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi greindi frá því að hann hefði tengsl við Ítalíu þar sem tvö eldri börn hans voru fædd þar í landi og séu þar enn, en þau hafi verið tekin af kæranda og eiginkonu hans af ítölskum yfirvöldum þegar þau hafi afplánað fangelsisrefsingu þar í landi. Aðspurður hvort hann teldi umrædda brottvísun og endurkomubann ósanngjarnar ráðstafanir kvað kærandi svo vera og kvaðst ekki geta tryggt öryggi barna sinna.

Af gögnum í máli kæranda og eiginkonu hans er að finna afrit fæðingarvottorða tveggja barna sem fædd hafi verið á Ítalíu, engar frekari upplýsingar er að finna um afdrif þessara barna. Eiginkona kæranda greindi frá því að eldra barnið hafi verið tekið af þeim þegar hún hafi hafið afplánun í fangelsi og yngra barnið hafi fæðst þegar hún hafi verið í afplánun og einnig verið tekið. Þá kvað eiginkona kæranda að börnin hafi verið ættleidd. Verður því ekki talið að þau börn séu nánustu aðstandendur kæranda í skilningi laga um útlendinga, sbr. 17. tölul. 3. gr. laganna.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir