31 júlí 2024
/
Úrskurður nr. 770/2024
Hinn 31. júlí 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 770/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24050016
Kæra [...] og barna hennar á ákvörðunum Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 2. maí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Nígeríu (hér eftir kærandi), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 17. apríl 2024, um að synja henni og börnum hennar, [...], fd. [...] (hér eftir A) og [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgurum Nígeríu, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Eiginmaður kæranda sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi 14. september 2022 og eignuðust kærandi og maður hennar tvær dætur hér á landi annars vegar [...] og hins vegar [...]. Hefur mál hans verið unnið samhliða máli kæranda og barna þeirra. Fjallað er um niðurstöðu kærunefndar í máli hans í úrskurði nefndarinnar nr. 769/2024 frá 31. júlí 2024. Úrskurður í máli kæranda og barna þeirra hjóna tekur mið af því í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og börn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi barnshafandi til landsins frá Ítalíu og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 2. apríl 2022. Kærandi kvaðst hafa búið á Ítalíu frá árinu 2009, en hún hafi verið seld þangað af foreldrum sínum. Kvaðst kærandi eiga tvö börn, átta og sex ára að aldri, sem höfðu verið tekin af henni af ítölskum yfirvöldum. Kærandi greindi jafnframt frá því að hafa setið í fangelsi á Ítalíu þar sem hún hafi dvalið ólöglega þar í landi. Kærandi hafi ekki verið frjáls frá því að foreldrar hennar seldu hana. Þá væri hún á flótta frá fólkinu sem hafi keypt hana af foreldrum hennar. Kærandi kvaðst hafa betlað pening fyrir flugfargjaldinu til Íslands.
Kærandi kvaðst hafa dvalið á Ítalíu frá árinu 2009 og að hún hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd sama ár, en að nígeríska mafían á Ítalíu hafi sótt hana í flóttamannabúðirnar og því hafi umsókn hennar ekki verið tekin til meðferðar. Kærandi hafi aftur lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd á Ítalíu árið 2014 en hafi stuttu síðar verið tilkynnt til lögreglunnar [...] og hlotið átta ára fangelsisdóm. Við leit að fingraförum kæranda í Eurodac gagnagrunninum, 5. apríl 2022, kom í ljós að fingraför hennar höfðu verið skráð í grunninn af yfirvöldum á Ítalíu. Hinn 11. maí 2022 var beiðni um viðtöku kæranda og umsóknar hennar um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. b-lið 1. mgr. 18. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin). Þar sem ekkert svar barst innan tilskilins tímafrests litu íslensk stjórnvöld svo á að ítölsk stjórnvöld hefðu samþykkt viðtöku kæranda, sbr. 2. mgr. 25. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar, og sendi Útlendingastofnun ítölskum yfirvöldum bréf þess efnis, dags. 31. maí 2022. Hinn 3. ágúst 2022 var beiðni um upplýsingar um stöðu kæranda beint til yfirvalda á Ítalíu, sbr. 34. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá ítölskum yfirvöldum, dags. 4. ágúst 2022, kom fram að kæranda hefði verið veitt dvalarleyfi af læknisfræðilegum ástæðum með gildistíma til 2. ágúst 2022. Þá staðfestu ítölsk yfirvöld að kæranda hafi verið synjað um alþjóðlega vernd á Ítalíu en ætti ekki yfir höfði sér brottvísun. Kærandi kom fyrst til viðtals hjá Útlendingastofnun 25. maí 2022 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 4. október 2022, hafnaði Útlendingastofnun því að taka umsókn kæranda og barnsins A um alþjóðlega vernd til efnislegrar meðferðar hér á landi og voru þær ákvarðanir staðfestar með úrskurði kærunefndar útlendingamála nr. 525/2022, dags. 15. desember 2022. Kærandi lagði fram endurtekna umsókn hjá kærunefnd 13. apríl 2023. Með úrskurði kærunefndar nr. 337/2023, dags. 1. júní 2023, var fallist á endurupptöku í máli kæranda þar sem frestur til að flytja hana til Ítalíu var liðinn og var Útlendingastofnun gert að taka mál kæranda til efnismeðferðar. Kærandi kom í síðara viðtal sitt hjá Útlendingastofnun 15. nóvember 2023 ásamt talsmanni sínum.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun 15. nóvember 2023 kvað kærandi helstu ástæður flótta síns vera að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna föður hennar sem hafi selt hana til nígerísku mafíunnar. Mafían hafi látið kæranda stunda vændi á Ítalíu og síðar gert hana ábyrga fyrir öðrum stelpum. Jafnframt óttist hún nígerísku mafíuna og fjölskyldu stúlku sem einnig hafi verið seld til mafíunnar, en látist í þeirra umsjá. Kærandi greindi frá því að vera fædd og uppalin borginni [...] í Edo fylki í Nígeríu. Hafi hún búið þar áður en hún hafi flúið heimaríki árið 2008. Kærandi greindi frá því að eiga fjögur börn, en að tvö eldri börn hennar hafi verið tekin af henni af ítölskum yfirvöldum þar sem hún hafi þurft að afplána átta ára fangelsisdóm þar í landi. Kvað hún börnin hafa verið ættleidd og að hún hafi ekki frekari upplýsingar um afdrif þeirra. Þá hafi hún fætt tvö yngri börn sín hér á landi og dvelji þau með henni og eiginmanni hennar, sem einnig sé staddur hér á landi. Kærandi kvaðst eiga móður, föður og 32 systkini í heimaríki, en að aðeins átta þeirra séu alsystkini hennar. Í kringum 16 ára aldur hafi kærandi kynnst stúlku sem hafi boðið henni að þrífa húsið sitt gegn greiðslu. Stúlkan hafi verið samkynhneigð, sem sé ólöglegt í Nígeríu. Eftir að hafa unnið fyrir stúlkuna í einhvern tíma hafi hún sagst vilja vera með kæranda. Kærandi hafi ekki viljað það, en stúlkan hafi þá hótað að hætta að borga kæranda ef hún myndi ekki vera með henni. Kærandi kvaðst hafa samþykkt að vera með stúlkunni vegna slæms fjárhags fjölskyldu sinnar. Fjölskylda stúlkunnar og faðir kæranda hafi fljótlega komist að sambandi þeirra. Í kjölfarið hafi faðir kæranda selt hana til nígerísku mafíunnar og fjölskylda stúlkunnar hafi einnig selt hana. Stúlkan hafi orðið ófrísk og mafían þá gefið henni lyf til að binda enda á meðgönguna, en hún hafi látist. Kvaðst kærandi óttast fjölskyldu stúlkunnar þar sem þau séu haldin gremju gagnvart kæranda þar sem stúlkan hafi látist en ekki kærandi. Kærandi greindi frá því að hafa ekkert heyrt frá föður sínum síðan árið 2015. Á meðan hún hafi verið í fangelsi hafi faðir hennar ítrekað sagt við hana að þegar afplánun hennar lyki ætti hún að fara aftur að vinna fyrir mafíuna. Kærandi kvað foreldra sína vera í hættu þar sem hún sé komin hingað til lands og snúi hún ekki aftur til mafíunnar muni faðir hennar þurfa senda önnur börn sín í hennar stað. Kærandi kvaðst ekki getað leitað aðstoðar lögreglu í heimaríki þar sem hún eigi ekki pening til að borga þeim til að aðstoða sig. Auk framangreinds greindi kærandi frá því að vera umskorin og að hún hafi verið múslimatrúar en sé nú kristinnar trúar.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kæranda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við þau með vísan til ungs aldurs þeirra og framburðar foreldra þeirra.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 17. apríl 2024, var kæranda og börnum hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem henni hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 2. maí 2024. Greinargerð barst kærunefnd 16. maí 2024.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er m.a. vísað til tveggja greinargerða kæranda til Útlendingastofnunar og viðtals hennar 15. nóvember 2023 hjá stofnuninni, hvað málavexti varðar sem og fyrirliggjandi gagna sem úrskurður kærunefndar útlendingamála nr. 525/2022 frá 15. desember 2022 byggist á. Í greinargerðum kæranda til Útlendingastofnunar og kærunefndar kemur m.a. fram að kærandi hafi nú alið tvö börn hér á landi og að liðin séu rúm tvö ár síðan kærandi kom fyrst til landsins án þess að endanleg niðurstaða liggi fyrir í máli hennar. Kærandi þrái að geta hafið nýtt líf á Íslandi. Þá séu félagslegar aðstæður og heimilisaðstæður kæranda og eiginmanns hennar á viðkvæmu stigi. Umsóknarferli þeirra um alþjóðlega vernd hér á landi sé búið að reyna á hjónabandið, sem hafi einnig haft áhrif á börn þeirra. Skömmu fyrir framlagningu greinargerðar kæranda til kærunefndar hafi eiginmaður kæranda flutt út af heimilinu en sé nú aftur fluttur inn á heimilið.
Kærandi krefst þess að henni og börnum hennar verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga eða dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. eða 2. mgr. 74. gr. sömu laga.
Kærandi telur einsýnt að hún eigi rétt á alþjóðlegri vernd á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, einkum þar sem hún sé með tvö börn sín hér á landi. Kærandi byggir á því að þar sem hún lagði umsókn sína fram fyrir gildistöku laga nr. 14/2023 um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 beri að horfa á heildar umsóknartími umsóknar hennar um alþjóðlega vernd samfellt frá því að umsóknin barst fyrst íslenskum stjórnvöldum, þ.e. 2. apríl 2022. Eigi að miða 16 eða 18 mánaða málsmeðferðartíma frá þeim degi.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefst kærandi þess að henni og börnum hennar verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að heildarmat á aðstæðum hennar leiði til þess að hún teljist hafa ríka þörf fyrir vernd í skilningi ákvæðisins. Hún hafi lengi búið við erfiðar félagslegar aðstæður og telur að A og B muni búa við enn erfiðari félagslegar aðstæður verði fjölskyldunni gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá sé almennt ástand í heimaríki kæranda afar bágborið og áframhaldandi ofsóknir bíði hennar snúi hún aftur til baka, einkum þar sem þjóðfélagsstaða hennar í heimaríki væri ekki góð.
Kærandi telur að með endursendingu hennar og barna hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að kærandi hafi haft réttmætar væntingar til fyrri framkvæmdar um málsmeðferðartíma sem hafi verið í gildi fyrir gildistöku laga nr. 14/2023 um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016. Kærandi vísar til þess að áður en breytingarlög nr. 14/2023 tóku gildi hafi sú framkvæmd verið við lýði að heildar umsóknartími umsókna um alþjóðlega vernd var reiknaður samfellt og varðaði það hvort umsækjendur um alþjóðlega vernd gætu átt rétt á mannúðarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Vísar hún einnig til þess að ákvæði 10. gr. breytingarlaga nr. 14/2023, sem breytti ákvæði 36. gr. laga um útlendinga, gildi ekki um umsóknir sem bárust fyrir gildistöku laganna, en umsókn kæranda hafi borist fyrir gildistöku laganna og því eigi eldra ákvæði 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga að gilda um málsmeðferðartíma í máli hennar. Kærandi telur því að nýr 16 eða 18 mánaða frestur hafi ekki átt að byrja að líða þegar hún lagði fram endurtekna umsókn 13. apríl 2023, heldur hafi átt að miða við 16 eða 18 mánuði frá 2. apríl 2022, þ.e. frá því að umsókn kæranda um alþjóðlega vernd barst fyrst íslenskum stjórnvöldum. Þá telur kærandi að í öllu falli beri að miða við umsóknardag hennar þegar hún lagði fram endurtekna umsókn hjá kærunefnd, en ekki það tímamark þegar kærunefnd féllst á að mál hennar yrði tekið til efnismeðferðar. Væri slíkt andstætt því hvernig tímafrestir hafa verið reiknaðir út til þessa. Máli sínu til stuðnings vísar kærandi til álits umboðsmanns Alþingis nr. 3307/2001.
Ákvæði 35. gr. a laga um útlendinga, um endurteknar umsóknir, kom nýtt inn í lög um útlendinga með 9. gr. laga nr. 14/2023 um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016, en breytingarlögin öðluðust gildi 6. apríl 2023. Með 10. gr. sömu breytingarlaga voru m.a. gerðar breytingar á 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í 1. mgr. 23. gr. breytingarlaganna kemur fram að lögin öðlist þegar gildi. Í 2. mgr. segir að þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. komi 8. gr. ekki til framkvæmda fyrr en 30 dagar eru liðnir frá gildistöku laganna. Þá segir að lokum að 10. gr. laganna gildi ekki um meðferð umsókna sem bárust fyrir gildistöku laganna. Í 23. gr. breytingarlaganna er ekki að finna sérstök fyrirmæli um lagaskil hvað varðar 9. gr. laganna. Með vísan til þess hefur verið litið svo á að rétt sé að beita ákvæðinu um endurteknar umsóknir frá gildistöku þess.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað nígerísku vegabréfi. Þá kemur fram í gögnum málsins að A og B hafi fæðst hér á landi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og börn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti.
Samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu öðlast einstaklingur ríkisborgararétt þar í landi við fæðingu ef a.m.k. annað foreldri hefur nígerískan ríkisborgararétt. Ljóst er að kærandi og eiginmaður hennar eru nígerískir ríkisborgarar.
Leggur kærunefnd því til grundvallar að kærandi og börn hennar séu nígerískir ríkisborgarar.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Nígeríu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 16 Facts About Violence Against Women and Girls in Nigeria (UNICEF, 22. nóvember 2022);
- 2016 Strategic Conflict Assessment of Nigeria (Institute for Peace and Conflict Resolution, 2017);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Nigeria (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2023 Trafficking in Persons Report – Nigeria (U.S. Department of State, 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – Nigeria (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual report on religious freedom (covering 2021) (USCIRF, apríl 2022);
- Childs Rights Act Tracker (Partners West Africa Nigeria, https://www.partnersnigeria.org/childs-rights-law-tracker/ sótt 22. nóvember 2023);
- Country Guidance: Nigeria – Common analysis and guidance note (EUAA, 19. október 2021);
- Country of origin information report Nigeria (The Netherlands, Ministry of Foreign Affairs, júní 2021);
- Country Profile, FGM in Nigeria (28 Too Many, október 2016);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Actors of Protection (U.K. Home Office, október 2021);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Female Genital Mutilation (FGM) (UK Home Office, júlí 2022);
- Country Policy and Information Note- Nigeria: Medical treatment and healthcare (U.K. Home Office, desember 2021);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Country Background Note (U.K. Home Office, 7. janúar 2020);
- Country Policy and Information Note – Nigeria: Trafficking of women (U.K. Home Office, apríl 2022);
- Country Policy and Information Note: Nigeria: Women fearing gender-based harm or violence (UK Home Office, ágúst 2016);
- DFAT Country Information Report - Nigeria (Austalian Department of Foreign Affairs and Trade, 3. desember 2020);
- EASO COI Report – Nigeria - Actors of Protection (EASO, nóvember 2019);
- EASO COI Report – Nigeria – Country Focus (EUAA, 4. júní 2017);
- EASO COI Report – Nigeria – Key socio-economic indicators (EUAA, nóvember 2018);
- EASO COI Report – Nigeria – Targeting of individuals (European Asylum Support Office, nóvember 2018);
- EASO COI Report – Nigeria – Trafficking in human beings (EUAA, 25. apríl 2021);
- Freedom in the World 2023 – Nigeria (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Nigeria (Freedom House, febrúar 2024);
- Health care in Nigeria, Challenges and recommendations (Socialprotection.org, 7. febrúar 2019);
- Information on trafficking including situation for returness of previous trafficking and risk og re-trafficking (Refugee Documentation Centre, RDC, Legal Aid Board, 17. júní 2019);
- Nigeria: Country Guidance note and common analysis (European Asylum Support Office, febrúar 2019);
- Nigeria: Delstaten Edo – det nigerianska navet för migration och mannskohandel (1.0) (Migrationsverket, 16. desember 2019);
- Nigeria – Country Focus (EUAA, júlí 2024);
- Nigeria 2021 International Religious Freedom Report (U.S. Department of State, 2. júní 2022);
- Nigeria Police Effectiveness (Ireland – Refugee Documentation Centre (RDC), 25. apríl 2019);
- Nigeria: Psykisk helsevern (Landinfo, 23. júní 2017);
- Nigeria – Practical Cooperation Meeting 12-13 June 2017 Rome (EUAA, 21. ágúst 2017);
- Nigeria: Security Situation – Country of Origin Information Report (EUAA, 3. júní 2021);
- Nigeria – Trafficking and re-trafficking (Ireland – Refugee Documentaion Centre (RDC), 16. júní 2019);
- Nigeria: Whether women who head their own household, without male or family support, can obtain housing and employment in Abuja, Lagos, Ibadan and Port Harcourt; government support services available to female-headed households (2017-November 2019) (Immigration and Refugee Board of Canada, 29. nóvember 2019);
- Ninth Report on Violence in Nigeria (Nigeria Watch, 2019);
- Medical Country of Origin Information Report: Nigeria (EUAA, apríl 2022);
- Responses to Information Requests (Immigration and Refugee Board of Canada, 20. nóvember 2019);
- The Law and FGM (28 Too Many, júní 2018);
- Social Institutions and Gender Index 2019 - Nigeria (Organisation for Economic Co-operation and Development (OECD), 7. desember 2018);
- Stjórnarskrá Nígeríu (Constitution of the Federal Republic of Nigeria 1999, https://www.wipo.int/edocs/lexdocs/laws/en/ng/ng014.en.pdf);
- The World Factbook – Nigeria (CIA, uppfært 8. júlí 2023);
- Upplýsingar af vefsíðu samstarfsverkefnis Evrópusambandsins og alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (https://www.migrationjointinitiative.org/countries/sahel-and-lake-chad/nigeria, sótt 23. nóvember 2023);
- Violent Extremist in West Africa (Denmark – Immigration Service, COI Division, 28. júní 2020);
- World Directory of Minorities and Indigenous Peoples – Nigeria (Minority rights group International, janúar 2018);
- Vest-Afrika: Nettverk (Landinfo, 15. maí 2019) og
- World Report 2024 – Nigeria: Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Nígería er sambandslýðveldi með um 237 milljónir íbúa. Nígería var nýlenda Bretlands fram að sjálfstæði þess árið 1960 og sama ár gerðist Nígería aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti bæði alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1993. Þá fullgilti ríkið mannréttindasáttmála Afríku árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991. Ríkið fullgilti sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu árið 2004, samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 2001 og valfrjálsa viðbótarbókun við þann samning árið 2009. Samkvæmt skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna um trúfrelsi frá árinu 2022 er talið að um helmingur íbúa landsins séu múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Þar kemur fram að trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta. Bæði kristnir og múslimar hafi greint frá mismunun á grundvelli trúar sinnar á þeim svæðum þar sem þeir séu í minnihluta.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Alþjóðasambands sakamálalögreglu (e. Interpol) er löggæsla ríkisins aðallega í höndum ríkislögreglu Nígeríu sem talin er samanstanda af rúmlega 350.000 lögregluþjónum. Ríkislögreglan annist löggæslustörf í öllum 36 fylkjum Nígeríu og höfuðborginni Abuja. Hlutverk ríkislögreglunnar sé að vernda einstaklinga og eignir, koma í veg fyrir afbrot, upplýsa og rannsaka glæpi auk þess að sækja afbrotamenn til saka. Samkvæmt skýrslum EUAA frá 2018 eru nokkrar sérhæfðar deildir innan ríkislögreglunnar sem annist sértæk brot. Ríkislögreglan hafi verið gagnrýnd fyrir spillingu og mannréttindabrot af ýmsum rannsakendum og samtökum. Dæmi séu um að lögregluþjónar hafi orðið uppvísir að því að kúga fé af almennum borgurum og sleppa sakborningum gegn mútugreiðslum. Þá sé talið að allt að 80% lögreglumanna einblíni á að veita efnamiklum einstaklingum persónulega þjónustu. Þá sé mikill skortur á lögreglumönnum í ríkinu auk þess sem þjálfun lögreglumanna sé ábótavant og skortur sé á fjármagni frá ríkinu. Í ríkinu séu þó til staðar formlegar kvörtunarleiðir vegna misferlis lögreglu í starfi eða spillingar, t.d. mannréttindanefndin NHRC. Þá skorti skilvirkar leiðir til að eiga við, rannsaka og refsa vegna ofbeldis eða spillingar öryggissveita. Fram kemur í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 að yfirvöld í Nígeríu hafi tekið skref í átt að því að rannsaka, ákæra og refsa meðlimum lögreglu- og öryggissveita sem ásakaðir hafi verið um brot. Þó hafi refsileysi og spilling verið áframhaldandi vandamál.
Fram kemur í framangreindum gögnum, t.a.m. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins fyrir árið 2023, að töluverð spilling sé innan dómkerfisins, auk þess sem skortur sé á þjálfun dómara. Þó kemur fram í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá október 2021 að þrátt fyrir veikleika í stjórnkerfinu hafi yfirvöld almennt getu og vilja til að veita vernd. Komið hafi verið á fót embætti umboðsmanns í Nígeríu árið 2004 (e. The Public Complaints Commission) en um sé að ræða sjálfstæða og óháða stofnun sem taki á móti kvörtunum borgara og tryggi rétt þeirra gagnvart nígerískum stjórnvöldum endurgjaldslaust. Hægt sé að nálgast skrifstofur umboðsmanns í öllum 36 fylkjum Nígeríu. Þá kemur fram að ýmsar eftirlitsnefndir starfi í Nígeríu sem almenningur geti beint kvörtunum sínum til, s.s. mannréttindanefndin (e. The National Human Rights Council (NHRC)) sem hefur það hlutverk að rannsaka meint brot gegn mannréttindum. Þá geti almennir borgarar beint kvörtunum til umboðsmanns í Nígeríu ef þeir eru ósáttir við málsmeðferð stjórnvalda. Jafnframt geti almenningur leitað til nígeríska lögregluráðsins (e. The Nigeria Police Council) og framkvæmdastjórnar lögreglunnar (e. Police Service Commission) sem hafi eftirlit með störfum lögreglunnar. Í skýrslu Amnesty International fyrir árið 2021 kemur fram að í Lagos hafi sérstakt viðbragðsteymi gegn heimilis- og kynferðisofbeldi verið gert að sérstakri stofnun til þess að efla baráttu í fylkinu gegn kynferðis- og heimilisofbeldi. Stofnunin (e. Domestic and Sexual Violence Agency (DSVA)) fari með rannsókn, eftirlit og stuðning vegna mála er lúta að ofbeldi.
Í skýrslu EASO frá árinu 2022 kemur fram að Nígería hafi gerst aðili að Maputo viðaukanum við mannréttindasáttmála Afríkuríkja árið 2003. Þar með hafi ríkið gengist undir skyldu til þess að tryggja þolendum kynbundins ofbeldis aðgengi að innlendum og svæðisbundnum dómstólum til þess að leita réttar síns. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins sem gefin var út í mars 2022 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú að í mörgum tilfellum erfi konur ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Þá sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá júlí 2024 má rekja helstu orsakir dauðsfalla og ofbeldis í Nígeríu til glæpastarfsemi. Þar á eftir komi pólitísk átök, trúarleg málefni og umferðaslys. Öryggisástandið sé hvað verst í norðurhluta Nígeríu vegna átaka hryðjuverkahópa, landátaka og aðgerða nígerískra stjórnvalda gegn uppreisnarmönnum. Í suðurhluta Nígeríu megi aðallega rekja dauðsföll til glæpa og þjóðernis- og samfélagslegs ágreinings. Á tímabilinu desember 2022 til júní 2023 hafi Sameinuðu þjóðirnar greint frá fækkun hryðjuverkaárása og dauðsfalla sem rekja megi til sameiginlegra aðgerða nígerískra stjórnvalda og Multinational Joint Task Force MNJTF gegn Boko Haram, afvopnunar fyrrverandi hermanna og stuðningsmanna Boko Haram og átaka á milli Boko Haram og ISWAP. Heimildir bendi þó til þess að stórfelldar árásir haldi áfram að eiga sér stað og vopnaðar vígasveitir starfi áfram í norðurhluta Nígeríu. Árásir íslamskra hryðjuverkahópa á borð við Boko Haram, ISWAP og Ansaru og aðgerðir nígerískra stjórnvalda gegn þessum hópum hafi valdið 2.212 dauðsföllum árið 2023, þ. á m. dauðsföllum óbreyttra bargara. Það sé þó fækkun um 898 dauðsföll frá árinu 2022. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2021 og ACLED frá 2024 var hryðjuverkahópurinn Boko Haram, einnig þekktur sem JAS, stofnaður árið 2002 og er einn valdamesti vopnaði vígahópurinn í Nígeríu. Markmið hópsins sé að skipta nígeríska ríkinu út fyrir íslamskt ríki og byggir hópurinn á strangri túlkun á Sharia-lögum. Meginhluti starfsemi hópsins hafi verið friðsæl og ofbeldislaus fyrir árið 2009 en í kjölfar þess að skólastúlkum hafi verið rænt í Chibok árið 2014, hafi hópurinn vakið heimsathygli og verið þekktur sem banvænasti hryðjuverkahópur heims. Síðan þá hafi hópurinn stækkað til nágrannalanda Nígeríu, Kamerún, Tsjad og Níger og hertekið landsvæði. Hópurinn hafi verið í uppreisn á árunum 2014 til 2015 og náð stjórn yfir mikilvægum landsvæðum í norðausturhluta Nígeríu. Nígerísk stjórnvöld og samstarfsmenn þeirra hafi allt frá árinu 2015 barist gegn vígahópnum sem hafi leitt til þess að dregið hafi úr starfsemi hópsins og hann misst yfirráðasvæði. Árið 2016 hafi Boko Haram skipst í tvær fylkingar, JAS og ISWAP og í maí 2021 hafi leiðtogi Boko Haram/JAS verið drepinn í átökum milli JAS og ISWAP. Allt frá þeim tíma hafi átt sér stað átök á milli beggja fylkinga vegna yfirráða landsvæða.
Fram kemur í framangreindum gögnum að ofbeldi gegn börnum sé útbreitt í Nígeríu. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna hafi unnið í samvinnu með yfirvöldum í Nígeríu, m.a. við að bæta lagaumgjörð um vernd barna gegn ofbeldi, breyta viðurkenndum félagsháttum sem feli í sér hættulegar hefðir líkt og kynfæralimlestingar og barnahjónabönd, auk þess sem unnið hafi verið að styrkingu félagslegrar þjónustu og barnaverndarstarfs þar í landi. Þá hafi yfirvöld samþykkt aðgerðaráætlun, National Strategy to End Child Marriage in Nigeria (2016-2021), með það að markmiði að útrýma barnahjónaböndum fyrir árið 2030. Jafnframt vinni yfirvöld hörðum höndum að aðgerðaráætlun sem feli m.a. í sér forvarnarstarf meðal ráðuneyta og stofnana með það að markmiði að stöðva ofbeldi gagnvart börnum. Þá kemur fram í framangreindum gögnum að Nígería hafi fullgilt samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1991 og stofnskrá Afríkusambandsins um velferð og réttindi barnsins (e. The African Charter on the Rights and Welfare of the Child) árið 2000. Hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt árið 2003 lög um réttindi barnsins (e. The Child Rights Act) og tóku þau gildi sama ár. Þar sem Nígería sé sambandslýðveldi sé ekki nóg að þjóðþingið lögfesti reglurnar heldur þurfi bæði fylkisþing og landstjóri hvers fylkis einnig að færa regluverkið í fylkislöggjöf svo löggjöfin taki gildi í hverju fylki. Samkvæmt vefsíðu Partners West Africa Nigeria hafa nú 34 af 36 fylkjum Nígeríu tekið lögin í gildi þ. á m. Edo fylki og Lagos fylki. Lögin kveði á um að allar ákvarðanir eða ráðstafanir er varða börn skuli byggðar á því sem sé barninu fyrir bestu. Í lögunum komi einnig fram að öll börn eigi rétt á að njóta menntunar. Árið 2004 hafi þjóðþing Nígeríu samþykkt löggjöf sem kveði á um ókeypis grunnskólagöngu (e. The Universal Basic Education (UBE) Programme). Hafi þessi nýjung verið leidd í lög með því markmiði að fjölga nemendum í grunnskóla og koma á fót ókeypis og skyldubundnu skólakerfi fyrir öll börn í Nígeríu.
Samkvæmt framangreindum gögnum, þ. á m. skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá júlí 2022 og EASO frá 2019, er umskurður á konum og stúlkubörnum útbreiddur í Nígeríu en talið sé að um 10% umskurða í Afríku eigi sér stað í Nígeríu. Algengt sé að stúlkur yngri en fimm ára séu þolendur umskurða. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-20%. Eftir 15 ára aldur minnki líkurnar á því að þær verði þolendur umskurðar. Samkvæmt nígerískum alríkislögum er umskurður á konum og stúlkum þó refsiverður verknaður. Lögin gildi hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafi samþykkt svipuð lög sem leggi bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi hafði búsetu. Þá mæli lög fyrir um a.m.k. þriggja ára fangelsisvist, sekt sem samsvari rúmlega átta þúsund bandaríkjadollurum eða hvoru tveggja ef fólk framkvæmir umskurð á konum eða stúlkum. Fram kemur að í sumum tilvikum álíti lögreglan í Nígeríu umskurð kvenna vera einkamál fjölskyldunnar og í öðrum tilfellum styðji lögreglufulltrúar jafnvel aðgerðina. Aftur á móti hafi lögregluyfirvöld í Nígeríu hafið samstarf bæði með stjórnvöldum og frjálsum félagasamtökum við að bæta viðhorf og viðbrögð lögreglu við umskurði kvenna og öðrum hættulegum hefðum. Meðal annars hafi verið stofnuð sérstök deild innan lögreglunnar sem rannsaki kynbundið ofbeldi, komið hafi verið á fót athvörfum fyrir konur, auk þess sem gerendur hafi verið ákærðir. Þá séu flestir íbúar Nígeríu andsnúnir umskurði á konum og stúlkum og hafi m.a. ýmsir leiðtogar hvatt til afnáms á hefðinni. Komið hafi verið á fót aðgerðaráætlun, The National Policy and Plan of Action for the Elimination of FGM in Nigeria (2013-2017), með það að markmiði að afnema umskurð kvenna en aðgerðirnar hafi m.a. falið í sér fræðslu innan heilbrigðisstofnana, stjórnvalda, skóla, mismunandi samfélaga og víðar um bann gegn umskurði. Þá geti konur leitað til lögreglu, umboðsmanns, kirkna eða moskna, frjálsra félagasamtaka og athvarfa eigi þær á hættu umskurð. Þá sé afnám umskurðar eitt af markmiðum aðgerðaráætlunar til ársins 2030 um sjáflbærni (e. 2030 Agenda for Sustainable Development) sem samþykkt var árið 2015. Þrátt fyrir framfarir sé erfitt að afnema umskurð kvenna og stúlkna í Nígeríu, m.a. vegna þess að verknaðurinn sé enn löglegur í sumum fylkjum, skortur sé á fræðslu meðal íbúa og á eftirliti með framkvæmd laganna. Fram kemur að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra en ömmur og afar stúlknanna, ásamt elstu konunni í ætt fjölskyldu föður stúlkunnar, geti einnig haft áhrif á þá ákvörðun. Þó sé mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra hennar og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis.
Samkvæmt skýrslu UNICEF frá 2022 sætir ein af hverjum fjórum stúlkum í Nígeríu kynferðisofbeldi. Talið sé að tæplega eitt prósent gerenda kynferðisbrota, sem tilkynntir séu til lögreglu, endi á að verða leiddir fyrir dóm og nánast engin mál endi með sakfellingu þeirra. Þolendur treysti margir hverjir ekki réttarkerfinu í Nígeríu og tilkynni því ekki brotin. Algengara sé að málin séu leyst utan réttarkerfisins. Ástæðu þess megi m.a. rekja til þekkingarskorts þolenda á lögunum og réttindum sínum, auk þess sem samfélagsleg viðhorf réttlæti misnotkun, ofbeldi og skömm þolenda. Slíkt leiði til refsileysis gerenda. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Nigeria Health Watch skorti sálfræðinga og annað fagfólk til að styðja við börn sem séu þolendur kynferðisofbeldis í Nígeríu.
Í skýrslu utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna sem gefin var út í mars 2023 kemur fram að þótt konur og karlar njóti sömu réttinda samkvæmt stjórnarskrá Nígeríu sé raunin ekki alltaf sú og ógiftar konur eigi sérstaklega undir högg að sækja. Konur verði fyrir margskonar mismunun þegar komi að efnahagslegum réttindum, en til að mynda tryggi lög konum ekki jöfn laun og körlum fyrir sambærileg störf. Auk þess sé mismunun byggð á kyni ekki óheimil við ráðningu í störf. Þá sé venjan sú að konur geti ekki eignast land nema í gegnum eiginmann sinn eða fjölskyldu. Venjan sé jafnframt sú í mörgum tilfellum að konur erfi ekki eiginmenn sína og sitji þá uppi allslausar við fráfall þeirra. Þá sé kynbundið ofbeldi gagnvart konum útbreitt vandamál í Nígeríu og séu ógiftar konur enn líklegri til þess að verða fyrir ofbeldi. Það sé engin alhliða löggjöf sem verndi konur gegn kynbundnu ofbeldi í Nígeríu en einhver fylki, aðallega í suðurhluta Nígeríu, séu með löggjöf sem eigi að veita vernd gegn tilteknu kynbundnu ofbeldi. Heimilisofbeldi í landinu sé útbreitt vandamál og í sumum ríkjum sé það félagslega samþykkt. Þá tíðkist einnig afskiptaleysi meðal lögreglunnar í slíkum málum.
Í skýrslum breska innanríkisráðuneytisins frá því í júlí 2019 og apríl 2022 kemur fram að Nígería sé upprunaland, viðkomustaður og áfangastaður mansals og nauðungarvinnu. Flestir þolendur mansals komi frá borginni Benín í Edo fylki. Fram kemur að nígerísk stjórnvöld uppfylli ekki enn lágmarksviðmið ríkja vegna baráttu gegn mansali en hafi þó tekið mikilvæg skref til að auka vernd borgara sinna og koma í veg fyrir mansal. Gerðar hafi verið ýmsar stefnubreytingar í þessum málum og sérstök löggjöf sett til að koma í veg fyrir, uppræta og refsa fyrir mansal. Þá hafi stjórnvöld, í samvinnu við alþjóðlög samtök og önnur ríki, þjálfað lögreglulið landsins, starfsmenn ríkisins og stofnanir til að gera þeim betur kleift að rannsaka, sækja til saka og sakfella gerendur mansals. Árið 2003 hafi tekið gildi lög sem komu stofnuninni NAPTIP (e. the National Agency for the Prohibition of Traffic in Persons and Other Related Matters) á laggirnar. Markmið NAPTIP sé að vekja athygli á málefninu, fræða þjóðina og með þeim hætti að reyna að koma í veg fyrir frekara mansal, vernda þolendur mansals ásamt því að sækja gerendur til saka. Einnig hafi verið samþykkt sérstök lög gegn mansali árið 2015 en þau hafi gert það refsivert að stunda mansal og mæli ennfremur fyrir um fangelsisvist allt að fimmtán árum fyrir brot gegn þeim. Starf NAPTIP felist í því að stuðla að framfylgni laga og reglugerða gegn mansali í Nígeríu, rannsaka mansalsmál og fræða og efla lögreglu og aðra aðila sem komi að upprætingu mansals í Nígeríu. Einnig aðstoði stofnunin þolendur mansals með því að veita þeim skjól, ráðgjöf, hafa uppi á fjölskyldumeðlimum þeirra, aðstoða við heimkomu og aðlögun að samfélaginu á ný. Samkvæmt skýrslu Landinfo og skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá því í apríl 2022 hafi NAPTIP þekkingu og reynslu af því að sinna þolendum mansals sem eigi börn. NAPTIP hafi til umráða húsnæði fyrir þolendur mansals í borgunum Abuja, Lagos, Benín, Uyo, Enugu, Kano, Sokoto, Maiduguri og Markudi. Þá kemur fram í skýrslu frá EASO frá árinu 2021 að dvöl í húsnæði NAPTIP sé ekki langtímalausn og dvelji þolendur þar í um tvær til sex vikur. NAPTIP vinni með frjálsum félagasamtökum sem geti útvegað þolendum mansals langtímahúsnæði og andlegan stuðning. Þá verði konur sem dvelji hjá NAPTIP í einhverjum tilvikum fyrir aðkasti í samfélaginu þar sem gert sé ráð fyrir að þær hafi unnið við vændi erlendis. Af þeim sökum hafi NAPTIP reynt að senda konur eins fljótt og verða megi til fjölskyldu sinnar eða í annað húsnæði. Skortur á fjármagni takmarki getu NAPTIP og frjálsra félagasamtaka við að aðstoða þolendur mansals við að aðlagast samfélaginu og standa á eigin fótum. Nígerísk yfirvöld hafi komið til móts við umræddan fjárskort hjá NAPTIP og veitt þolendum mansals fjárstyrk sem aðstoði við aðlögun að samfélaginu.
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna um mansal frá apríl 2019 kemur fram að í ágúst 2017 hafi í Edo fylki verið sett á fót sérstakt aðgerðarteymi gegn mansali (e. Edo State task force against human trafficking (ETAHT)), sem leitt sé af dómsmálaráðherra fylkisins (e. State Attorney-General and Commissioner of Justice). Megin verkefni aðgerðarteymisins séu rannsókn og saksókn í mansalsmálum, forvarnir og vitundarvakning, aðstoð við þolendur með því að bjóða sálfræðiaðstoð, skammtíma og langtíma húsnæði, kennslu og þjálfun í iðngreinum og stuðningur og aðstoð við aðlögun þolenda sem snúa aftur heim. Þá vilji teymið vinna að því að uppræta rót vandans sem birtist í mansali og kynjamisrétti. Aðgerðarteymið sé byggt á þörfinni til að styrkja aðgerðir stjórnvalda og félagasamtaka í baráttunni gegn mansali í Nígeríu og nú hafi einnig verið komið á fót slíkum teymum í öðrum fylkjum s.s. Cross-river, Lagos, Ondo, Delta og Ekiti í samstarfi við UNODC og NAPTIP. Í gögnunum kemur þá fram að þolendur mansals séu líklegri til þess að sæta endurteknu mansali heldur en að sæta líkamlegu ofbeldi vegna hefndaraðgerða þeirra aðila sem staðið hafi að baki mansalinu. Lögreglan í ríkinu hafi þá almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Samkvæmt skýrslu EASO frá apríl 2021 benda ýmsar heimildir til þess að mansalsgerendur einblíni frekar á að finna nýja þolendur mansals í stað þess að beita þolendur ofbeldi, sem enn standi í skuld við þá, þar sem þeir vilji síður draga að sér athygli lögregluyfirvalda í Nígeríu. Þrátt fyrir að dæmi séu um að fjölskyldur þolenda verði fyrir ofbeldi eða árásum af hálfu mansalsgerenda bendi heimildir til þess að slíkar hefndaraðgerðir séu sjaldgæfar samkvæmt framangreindri skýrslu EASO. Oft sé ástæðan sú að fjölskyldur þolenda komi að mansalinu sjálfu.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá desember 2021 og skýrslu EUAA frá apríl 2022 er heilbrigðiskerfinu í Nígeríu skipt í fyrsta, annað og þriðja stig og skiptist jafnframt í opinberan og einkageira. Fyrsta stig heilbrigðiskerfisins sé á vegum sveitarfélaga, annað stigið sé á vegum ráðuneyta í hverju og einu fylki og þriðja stigið á vegum alríkisins. Almenn heilbrigðisþjónusta sé almennt illa skipulögð og innviðir hennar veikburða. Aðgengi sé þá ekki gott sökum skorts á heilbrigðisstofnunum og heilbrigðisstarfsfólki víða um Nígeríu. Þá sé lækniskostnaður almennt hár og aðgengi að lyfjum slæmt. Heilbrigðisþjónusta sé fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli. Heilbrigðisþjónusta innan einkageirans sé almennt betri og skipulagðari en lækniskostnaður sé að meðaltali hærri en hjá opinbera geiranum. Allt að 60% íbúa Nígeríu hafi ekki haft fullnægjandi aðgang að lyfjum en aðgengi sé þó betra á þéttbýlli svæðum landsins. Þá komi fram að heilbrigðisþjónusta sé töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess.
Í skýrslu sérstaks skýrslugjafa Sameinuðu þjóðanna frá 2019 kemur fram að Evrópusambandið og alþjóða fólksflutningsstofnunin (IOM) starfi saman í sérstöku átaksverkefni er lúti að endursendingu fólks til Nígeríu. Fólksflutningsstofnunin í samstarfi við ýmsar innlendar stofnanir, svo sem innflytjendaþjónustu Nígeríu (e. Nigerian Immigration Service), nefnd ríkisins fyrir flóttamenn, innflytjendur og fólk á innri flótta (e. the National Commission for Refugees, Migrants and Internally Displaced Persons), NAPTIP, almannavarnir ríkisins og ETAHT (e. Edo State Taskforce against Human Trafficking) veiti ýmsa þjónustu vegna móttöku og aðlögunar einstaklinga sem snúi aftur til Nígeríu. Grunnþjónusta sé veitt, m.a. ferðir áfram til heimabæjar eða þorps, símar til frekari samskipta, matur, skammtímahúsnæði, heilbrigðisþjónusta og vernd. Þá sé einstaklingum með sérþarfir jafnframt vísað til heilbrigðisstofnana, sálfræðinga, í ráðgjöf og veitt aðstoð við fjölskyldusameiningu. Í frétt á heimasíðu neyðarsjóðs Evrópusambandsins fyrir Afríku frá 16. desember 2021 kemur fram að verkefnið hafi aðstoðað um 106 þúsund manns við að snúa aftur til heimkynna sinna í Afríku á öruggan hátt.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína á því að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna föður hennar sem hafi selt hana til nígerísku mafíunnar. Jafnframt óttist hún nígerísku mafíuna og fjölskyldu stúlku sem einnig hafi verið seld til mafíunnar, en látist í þeirra umsjá.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, dags. 15. nóvember 2023 og 25. mars 2022, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Við meðferð málsins kvað kærandi helstu ástæður flótta síns vera að hún sé í hættu í heimaríki sínu vegna föður hennar sem hafi selt hana til nígerísku mafíunnar. Mafían hafi látið kæranda stunda vændi á Ítalíu og síðar gert hana ábyrga fyrir öðrum stelpum. Jafnframt óttist hún nígerísku mafíuna og fjölskyldu stúlku sem einnig hafi verið seld til mafíunnar, en látist í þeirra umsjá. Kærandi hafi verið að vinna fyrir umrædda stúlku við að þrífa heimili hennar og þær átt í kynferðislegu sambandi. Fjölskylda stúlkunnar og faðir kæranda hafi komist að þessu. Í kjölfarið hafi faðir kæranda selt hana til nígerísku mafíunnar og sama gerði fjölskylda stúlkunnar. Stúlkan hafi orðið ófrísk og mafían þá gefið henni lyf til að binda enda á meðgönguna, en hún hafi látist. Kvaðst kærandi óttast fjölskyldu stúlkunnar þar sem þau séu haldin gremju gagnvart kæranda því stúlkan hafi látist en ekki kærandi. Kærandi greindi frá því að hafa ekkert heyrt frá föður sínum síðan árið 2015. Á meðan hún hafi verið í fangelsi hafi faðir hennar ítrekað sagt við hana að þegar afplánun hennar lyki ætti hún að fara aftur að vinna fyrir mafíuna. Kærandi kvað foreldra sína vera í hættu þar sem hún sé komin hingað til lands og snúi hún ekki aftur til mafíunnar muni faðir hennar þurfa að senda önnur börn sín í hennar stað. Kærandi kvaðst ekki geta leitað aðstoðar lögreglu í heimaríki þar sem hún eigi ekki pening til að borga þeim til að aðstoða sig. Þá kvað kærandi ýmist fjölskyldu eins viðskiptavinar, sem hafði keypt vændi, eða viðskiptavininn sjálfan hafa tilkynnt hana til lögreglunnar á Ítalíu.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 25. maí 2022, greindi kærandi frá því að faðir hennar hafi selt hana til nígerísku mafíunnar á Ítalíu en hún hafi í kjölfarið verið þvinguð í vændi. Í kjölfarið hafi hún verið neydd til að sjá um aðrar nígerískar konur í vændi. Kvaðst kærandi hafa verið 16 ára gömul þegar hún kom til Ítalíu ásamt fólki tengdu mafíunni. Hún hafi ekki fengið að tala við fjölskylduna sína í heimaríki. Jafnframt kvað hún meðlimi mafíunnar hafa beitt hana ofbeldi og að faðir hennar myndi drepa hana ef hún myndi snúa aftur til Nígeríu. Þá óttist kærandi nígerísku mafíuna á Ítalíu. Kærandi kvaðst hafa verið heimilislaus eftir að hún losnaði úr fangelsi.
Kærandi lagði fram ýmis gögn við meðferð málsins. Meðal annnars afrit af tveimur fæðingarvottorðum meintra barna hennar sem hafi verið ættleidd á Ítalíu, afrit af dómsúrlausn vegna umsóknar kæranda um reynslulausn, dags. 12. maí 2020, afrit af lögregluskýrslu, dags. 29. mars 2022, afrit af ítölsku hjónavígsluvottorði, sem sýni að kærandi sé í hjúskap með nígerískum manni sem einnig sé umsækjandi um alþjóðlega vernd hér á landi, samskiptaseðla heilbrigðisstofnanna hér á landi, dags. 20. apríl til 26. maí 2022, 26. apríl til 23. maí 2022 og 26. apríl til 30. maí 2022, og niðurstöður blóðrannsókna, dags. 20. apríl til 20. maí 2022.
Í þýðingu af dómsúrlausn vegna umsóknar kæranda um reynslulausn, dags. 12. maí 2020, kemur fram að kærandi hafi verið fundin sek fyrir ítölskum dómstólum fyrir [...]. Með öðrum orðum hafi kærandi, í samverknaði við aðra einstaklinga, m.a. föður hennar sem sé búsettur í Nígeríu, [...] frá Nígeríu til Ítalíu. Kærandi og samverkamenn hennar hafi [...]. Hafi brotin átt sér stað allt frá árinu 2011 og þar til kærandi var handtekin 1. október 2015. Við ákvörðun refsingar var m.a. tekið tillit til þess að kærandi hafi viðurkennt brot sín að hluta. Í dóminum kemur einnig fram að ekkert hafi bent til þess að um hafi verið að ræða skipulagða brotastarfsemi heldur fjölskyldustarfsemi (e. family-type organisational structure). Yngri systur kæranda hafi einnig tekið þátt í starfseminni og fjölskyldumeðlimir kæranda hafi [...]. Auk framangreinds kemur fram að kærandi hafi komið til Ítalíu á aldrinum 20 til 21 árs í þeim tilgangi að stunda vændi.
Í afriti af lögregluskýrslu, dags. 29. mars 2022, kemur fram að kærandi hafi leitað til lögreglunnar vegna hótana sem hún hafði fengið sama morgun af hálfu þriggja ótilgreindra manna, tveggja af nígerískum uppruna og eins ítalsks manns. Um hafi verið að ræða sömu nígerísku mennina og hún hafi unnið fyrir áður en hún var handtekin árið 2015. Samkvæmt kæranda hafi þeir komið að heimili hennar og eiginmanns hennar og hótað henni að hún þyrfti að snúa aftur til fyrri starfa, þ.e. að hýsa ungar nígerískar konur og þvinga þær í vændisstarfsemi, ella myndu þeir myrða móður hennar í heimaríki. Í framangreindri lögregluskýrslu kemur jafnframt fram að kærandi hafi við komuna til Ítalíu, þá 16 ára gömul, verið sótt í flóttamannabúðirnar og tilneydd til að stunda vændi af hálfu nígerísku mannanna. Þeir hafi tilkynnt henni að faðir hennar hafi selt þeim hana og hún hafi þá hringt í föður sinn sem hafi staðfest það. Kærandi hafi stundað vændi á árunum 2009 til 2011 til að greiða niður skuld sína við mennina. Frá árinu 2011 og þar til kærandi var handtekin í október 2015 hafi mennirnir neytt hana til að halda ungum nígerískum konum á heimili hennar þar sem þær hafi verið þvingaðar til vændis. Kærandi hafi ekki getað nafngreint mennina, en hafi lýst þeim. Hún hafi ekki heldur getað gefið upp símanúmer þeirra. Þá hafi kærandi greint frá því að konurnar hafi tilkynnt hana til lögreglunnar. Umrædd lögregluskýrsla ber með sér að vera einhliða frásögn kæranda hjá lögreglu og ekkert sem þar kemur fram staðfestir að kærandi hafi raunverulega fengið hótanir frá áðurnefndum mönnum.
Verulegt misræmi er milli frásagna kæranda í viðtölum hjá Útlendingastofnun og upplýsinga í framangreindum gögnum sem kærandi hefur lagt fram til stuðnings frásögnum sínum. Dregur það m.a. úr trúverðugleika kæranda að hún hafi greint frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 25. maí 2022, og lögregluskýrslu, dags. 29. mars 2022, að hafa verið 16 ára gömul þegar hún hafi komið til Ítalíu, en í viðtali hjá stofnuninni, dags. 15. nóvember 2023, hafi hún greint frá því að hafa verið 16 ára gömul þegar hún hafi hætt að betla á mörkuðum í heimaríki og fengið vinnu við að þrífa. Þá ber frásögn kæranda ekki saman við fæðingarár hennar í vegabréfi, en það kemur heim og saman við þann aldur sem kemur fram í áðurnefndri dómsúrlausn ítalskra dómstóla. Í dómsúrlausninni kemur einnig fram að kærandi hafi m.a. lýst brotum sínum og gengist við þeim að hluta, og greint frá því að hafa komið til Ítalíu til þess að stunda vændi. Kærandi hafi hvorki fyrir ítölskum dómstólum né í lögregluskýrslu greint frá tengslum við nígerísku mafíuna líkt og er áberandi í frásögnum hennar í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þá hafi rannsókn ítalskra yfirvalda bent til þess að ekki hafi verið um skipulagða brotastarfsemi að ræða, heldur samverknað kæranda og fjölskyldu hennar, m.a. föður hennar. Framburður kæranda við meðferð máls hennar hjá ítölskum stjórnvöldum og þær upplýsingar sem fram koma í framlögðum dómi ítalskra dómstóla rýra verulega trúverðugleika frásagnar kæranda hjá íslenskum stjórnvöldum og þá fullyrðingu hennar að hún eigi á hættu ofsóknir af hálfu nígerísku mafíunnar í heimaríki.
Í ljósi heimilda um heimaríki kæranda er þó ekki hægt að útiloka að kærandi kunni á einhverjum tímapunkti að hafa verið þolandi mansals og vændis. Fram kemur í ákvæði d-liðar 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga að þolendur mansals skuli teljast til sérstaks þjóðfélagshóps. Samkvæmt skýrslu EUAA frá október 2021 geta þolendur mansals átt á hættu athafnir sem eru af slíku alvarleikastigi að þær jafngildi ofsóknum, t.d. ofbeldi eða endurtekið mansal. Ekki séu allir þolendur mansals taldir standa frammi fyrir slíkri hættu að þeir geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir. Fram kemur að einstaklingsbundið mat þurfi að fara fram þar sem tekið sé mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafna eða hvort um sé að ræða samsafn athafna sem talist geti til ofsókna. Við mat á því hvort líklegt sé að þolandi mansals eigi á hættu ofsóknir beri að taka tillit til ýmissa áhættuþátta, svo sem upphæðar skuldar þolanda gagnvart geranda sínum, þ.e. þeim sem standi að baki mansalinu, hvort þolandi hafi borið vitni gegn geranda sínum, valda og getu geranda, þekkingu geranda á fjölskyldu og bakgrunni þolanda, aldurs þolanda, fjölskylduaðstæðna þolanda, t.d. hvort um sé að ræða einstæða konu, félags- og efnahagslegan bakgrunn þolanda, aðgangs þolanda að stuðningsneti í heimaríki og þátttöku fjölskyldu þolanda í mansalinu. Ekki er fjallað um vægi hvers og eins áhættuþáttar við mat á því hvort þolandi mansals geti talist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir eða hversu margir áhættuþættir verði að vera til staðar svo að leggja megi slíkt mat til grundvallar.
Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 15. nóvember 2023, að hafa síðast reynt að hafa samband við föður sinn árið 2015 þegar hún hafi verið í fangelsi, en að hann hafi ítrekað sagt henni að snúa aftur til að vinna fyrir mafíuna að lokinni afplánun. Hafi þau ekki verið í sambandi síðan þá. Upplýsingar sem koma fram í framlögðum dómi ítalskra dómstóla benda til þess að kærandi hafi framið þau brot sem hún hafi verið sakfelld fyrir undir stjórn föður síns.
Að mati kærunefndar verður ekki talið að kæranda stafi hætta af föður sínum í dag enda verður ekki ráðið af frásögn hennar eða gögnum málsins að faðir kæranda hafi slík völd eða ítök í Nígeríu að kæranda sé ómögulegt að leita aðstoðar þarlendra yfirvalda telji hún þörf á því. Varðandi bakgrunn kæranda í heimaríki liggur fyrir að maki kæranda er staddur hér á landi og nýtur hún stuðnings hans. Þrátt fyrir að þolendur mansals geti átt erfitt uppdráttar við endurkomu til Nígeríu benda gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér til þess að þeir sæti almennt ekki ofsóknum við heimkomu og að til staðar séu innviðir í heimaríki kæranda sem sérhæfi sig í þjónustu og aðstoð við þolendur mansals og að sækja gerendur til saka. Þá sé mansal refsivert í Nígeríu og hafa lögregluyfirvöld og stofnunin NAPTIP almennt getu til þess að aðstoða þolendur mansals, jafnvel þótt þolendur standi enn í skuld við smyglarann sinn. Það er mat kærunefndar að kærandi eigi þess kost að leita aðstoðar og verndar yfirvalda, hjá stofnuninni NAPTIP, aðgerðarteyminu ETAHT og lögreglu, telji hún þörf á því. Að mati kærunefndar hefur því ekki verið sýnt fram á að kærandi eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sem rekja megi til þess að hún kunni að hafa verið þolandi mansals.
Kærandi greindi jafnframt frá því að í kringum 16 ára aldur hafi hún kynnst stúlku sem hafi boðið henni að þrífa húsið hennar gegn greiðslu. Stúlkan hafi verið samkynhneigð, sem sé ólöglegt í Nígeríu. Eftir að hafa unnið fyrir stúlkuna í einhvern tíma hafi hún sagst vilja vera með kæranda. Kærandi hafi ekki viljað það, en stúlkan hafi þá hótað að hætta að borga kæranda ef hún myndi ekki vera með henni. Kærandi kvaðst hafa samþykkt að vera með stúlkunni vegna slæms fjárhags fjölskyldu sinnar. Stúlkan hafi síðar látist í kjölfar þess að hafa verið gefið lyf til að binda enda á meðgöngu hennar í Líbíu. Frásögn kæranda ber ekki með sér að hún sé samkynhneigð en hún hafi átt í kynferðislegu sambandi við aðra konu þar sem hún hafi ekki viljað missa starf sitt og þurfa fara aftur á götuna að betla. Stúlkan sem kærandi hafi verið með sé látin og kærandi hefur ekki lýst yfir vilja um að vera í samkynhneigðu sambandi í heimaríki. Þá er kærandi í hjúskap með manni og eiga þau saman tvær dætur. Að framangreindu virtu telur kærunefnd ekkert benda til þess að hún eigi á hættu ofsóknir á grundvelli þess að hún verði talin samkynhneigð í heimaríki sínu.
Kærandi byggir jafnframt á því að óttast fjölskyldu stúlkunnar þar sem þau séu haldin gremju gagnvart henni því stúlkan hafi látist en ekki kærandi. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi eigi á hættu ofsóknir vegna tengsla við framangreinda stúlku. Þá kemur fram í þeim gögnum sem kærunefnd hefur tekið til skoðunar að borgurum landsins standi almennt raunhæf vernd yfirvalda til boða þurfi þeir á slíkri aðstoð að halda , m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur ekki lagt fram gögn sem leiða líkur að því að hún geti ekki notið verndar lögreglu telji hún þörf á því.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi einnig frá því að hafa verið múslimatrúar en sé nú kristinnar trúar. Að teknu tilliti til upplýsinga um heimaríki kæranda er um helmingur íbúa landsins múslimar og hinn helmingurinn kristinn. Trúfrelsi sé verndað í stjórnarskrá Nígeríu og einnig sé að finna ákvæði sem banni stjórnvöldum að koma á ríkistrú. Flestir íbúar svæða í Norður-Nígeríu séu múslimar og í Suður-Nígeríu séu kristnir í meirihluta, þ. á m. í [...] borg í Edo fylki þar sem kærandi sé fædd og uppalin. Í [...] borg er um helmingur íbúa kristinn og fjórðungur múslimar. Með vísan til framangreinds og þess að kærandi sé nú kristinnar trúar er að mati kærunefndar engin ástæða til að ætla að kærandi sé í hættu á sínum heimaslóðum vegna trúar sinnar. Þá hefur kærandi ekki lýst neinu sem talist gæti til ofsókna gagnvart henni eða börnum hennar eða á annan hátt leitt að því líkur að nígerísk yfirvöld beini sjónum sínum sérstaklega að þeim eða þau séu á annan hátti í verri stöðu í heimaríki en aðrir einstaklingar sem aðhyllist sömu trúarbrögð. Á kærandi því ekki á hættu að sæta ofsóknum á grundvelli trúar sinnar í heimaríki.
Auk framangreinds greindi kærandi frá því að hafa sætt kynfæralimlestingum í heimaríki sínu að fyrirskipan föður síns. Með tölvubréfi, dags. 18. júlí 2024, óskaði kærunefnd eftir afstöðu kæranda til kynfæralimlestinga. Í svörum frá kæranda, dags. 19. júlí 2024, kvaðst hún sjálf vera umskorin og að hún viti hve sársaukafullar kynfæralimlestingar séu. Kvaðst hún mótfallin kynfæralimlestingum og vilji ekki láta gera það við A og B. Aftur á móti kvað hún óumskorna einstaklinga bannaða í samfélaginu hennar í heimaríki og í stærstum hluta landsins, og að dætur hennar muni ekki komast undan slíkum athöfnum þar sem þær séu kvenkyns. Auk þess greindi kærandi frá því að konur sem ekki hafa verið umskornar verði fyrir miklum fordómum í heimaríki. Þá kvaðst kærandi ekki geta komið í veg fyrir kynfæralimlestingar á dætrum sínum yrði fjölskyldan send til heimaríkis. Í hinum kærðu ákvörðunum var lagt til grundvallar að eiginmaður kæranda væri faðir A og B. Hinn 12. apríl 2024 sendi Útlendingastofnun tölvubréf á eiginmann kæranda og óskaði eftir upplýsingum um hvort hann myndi koma í veg fyrir kynfæralimlestingar á A og B yrði fjölskyldan send til heimaríkis. Í svörum frá eiginmanni kæranda, sem bárust samdægurs, kemur fram að hann sé mótfallinn kynfæralimlestingum og myndi ekki vilja láta gera það við A og B. Aftur á móti kvað hann óumskorna einstaklinga bannaða í samfélaginu hans í heimaríki og í stærstum hluta landsins, og að konur geti ekki komist undan slíkum athöfnum. Þá kvaðst hann ekki geta komið í veg fyrir kynfæralimlestingar á dætrum sínum yrði fjölskyldan send til heimaríkis. Auk framangreinds greindi hann frá því að kærandi hafi sætt kynfæralimlestingum gegn vilja sínum og að hún sé ekki enn búin að jafna sig á því.
Líkt og að framan greinir er umskurður á konum og stúlkum refsiverður verknaður samkvæmt nígerískum alríkislögum. Lögin gilda hins vegar einungis í höfuðborg Nígeríu, Abuja, en 13 fylki í Nígeríu hafa samþykkt svipuð lög sem leggja bann við verknaðinum, m.a. Edo-fylki þar sem kærandi og eiginmaður hennar höfðu síðast búsetu. Þrátt fyrir að tíðni umskurða fari lækkandi milli ára er talið að tíðni umskurða á stúlkum í Nígeríu sem séu á aldursbilinu 1-14 ára sé um 15-25%. Þá kemur fram í framangreindum skýrslum að ákvörðun um að umskera stúlkur liggi nær alltaf hjá foreldrum þeirra. Þrátt fyrir að aðrir ættingjar geti haft áhrif á þá ákvörðun sé það mjög sjaldgæft að ættingjar stúlkna hunsi ákvörðun foreldra og framkvæmi aðgerðina án þeirra leyfis. Fyrir liggur að kærandi og eiginmaður hennar séu mótfallin kynfæralimlestingum og af framburði þeirra og með vísan til landaupplýsinga verður ekki ráðið að ástæða sé til að ætla að A og B hafi ástæðuríkan ótta við að verða þolendur umskurðar í heimaríki sínu gegn vilja foreldra sinna. Það er því mat kærunefndar að A og B eigi ekki á hættu kynfæralimlestingar.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda, föður þeirra og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu að sæta ofsóknum í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að vera fædd og uppalin í borginni [...] í Edo fylki og hafa verið búsett þar alla tíð þar til hún hafi yfirgefið heimaríki sitt árið 2009. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í Nígeríu sé ótryggt á sumum svæðum, þá einkum í norðurhluta landsins. Þótt hryðjuverkahópar starfi í landinu er það engu að síður mat kærunefndar að þau gögn og heimildir sem nefndin hefur yfirfarið við meðferð málsins bendi ekki til þess að aðstæður í [...] borg eða Edo fylki séu slíkar að kærandi eða börn hennar eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði þeim gert að snúa aftur til Nígeríu.
Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að frásögn kæranda um að hún eigi á hættu að verða fyrir ofsóknum eigi ekki við rök að styðjast og vísast til þeirrar umfjöllunar. Að öðru leyti er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður hennar leiði til þess að hún eða börn hennar eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og barna hennar er ljóst að þau atvik sem kærandi hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi og börn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún og börnin hennar muni búa við erfiðar félagslegar aðstæður verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Almennt ástand í heimaríki sé afar bágborið og áframhaldandi ofsóknir bíði kæranda snúi hún aftur til baka, einkum þar sem þjóðfélagsstaða hennar í heimaríki væri ekki góð.
Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafa ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þessum athugasemdum.
Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríki á ákveðnum landsvæðum í heimaríki kæranda þá teljist svæðið þar sem kærandi hafði búsetu öruggt svæði. Kærandi á fjölskyldumeðlimi, m.a. móður, föður og fjölda systkini í heimaríki. Þrátt fyrir að samband hennar og föður hennar sé ekki gott og kærandi muni ekki njóta stuðnings hans má ráða af gögnum málsins að kærandi hafi verið í sambandi við systur sínar eftir að hún kom til Ítalíu. Verður því lagt til grundvallar að hún eigi ættingja í heimaríki. Þá er eiginmaður kæranda og tvær yngri dætur þeirra, öll nígerískir ríkisborgarar, stödd hér á landi og mun fjölskyldan snúa saman aftur til heimaríkis og njóta stuðnings hvors annars. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að kærandi sé heilsuhraust og vinnufær. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og barna hennar er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar og félagslegar aðstæður sem bíði kæranda og barna hennar í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að andleg heilsa hennar sé ekki góð. Þá sé hún með [...] og [...], en taki ekki lyf vegna berklanna. Kærandi hafi fengið lyf við [...] á Ítalíu og hafi verið í meðferð vegna berklanna í sex ár þar í landi. Þá hafi kærandi verið hjá sálfræðingi í átta ár á Ítalíu. Kærandi sé taugaóstyrk og sífellt grátandi vegna aðstæðna sinna. Kvað hún að sér líði illa þegar hún hugsi um börnin og geti ekki borðað. Þá kvað kærandi börnin sín vera við góða heilsu. Í samskiptaseðli mæðraverndar á fæðingarvakt Landspítalans, dags. 27. apríl 2022, kemur fram að blóðprufur hafi bent til virkrar sýkingar [...] hjá kæranda. Kærandi hafi fengið tíma hjá fæðingalækni til að ræða [...] á meðgöngu. Í læknanótu sérfræðilæknis á smitsjúkdómadeild, dags. 3. maí 2022, kemur fram að kærandi hafi greint frá því að hafa fengið lyf vegna [...] á fyrri meðgöngu til að koma í veg fyrir að barnið smitaðist. Hún hafi verið í eftirliti á Ítalíu í kjölfarið. Kærandi sé almennt hraust en [...] sé í hærra lagi. Samkvæmt yfirlækni smitsjúkdómalækninga, dags. 24. maí 2022, hafi magnmæling á [...] veiru mælst undir meðferðarmörkum á meðgöngu og því ekki þörf á meðferð fyrir kæranda. Samkvæmt skráningu ljósmóður í mæðravernd, dags. 26. maí 2022, hafi kærandi verið í smitgát frá 26. maí 2022 vegna smithættu. Þá kemur fram í samskiptaseðli ljósmóður sama dag að kærandi hafi látið betur af sér andlega eftir að hafa byrjað að taka inn lyfið [...]. Samkvæmt samskiptaseðli sálfræðings, dags. 30. maí 2022, hafi kærandi fyllt út skimunarlista sem bent hafi til miðlungsalvarlegra einkenna [...] og alvarlegra einkenna [...]. Niðurstöður hafi bent til þess að kærandi uppfylli ekki öll áfallastreitueinkenni. Þá hafi kærandi greint frá því að vera hrædd við mafíuna og að hún muni finna kæranda á Íslandi. Áfallaatburðir hafi verið ræddir lauslega.
Engin nýlegri heilbrigðisgögn hafa verið lögð fram, en af framburði kæranda, föður barnanna og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að hún eða börn hennar glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi eða börn hennar þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Líkt og fram hefur komið er öllum ríkisborgurum Nígeríu tryggður aðgangur að heilbrigðiskerfinu í landinu og er það mat kærunefndar að kærandi og börn hennar muni hafa aðgang að heilbrigðisþjónustu og lyfjum sem þeim eru nauðsynleg þar í landi. Samkvæmt skýrslu EUAA um lyf í Nígeríu frá apríl 2022 er hægt að fá meðferð og lyf við [...] í Nígeríu. Samkvæmt framangreindum landaupplýsingum er heilbrigðisþjónusta fjórfalt aðgengilegri í þéttbýli heldur en í strjálbýli og töluvert aðgengilegri í suðurhluta landsins en í norðurhluta þess, en kærandi kveðst hafa verið búsett í [...] borg sem er staðsett í suðvesturhluta Nígeríu. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún eða börn hennar hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda og barna hennar í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi eða börn hennar hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd á Íslandi 2. apríl 2022. Meðferð umsóknar hennar fór samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga, enda var umsóknin lögð fram fyrir gildistöku breytingarlaga nr. 14/2023, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 23. gr. breytingarlaganna. Það þýðir að 12 mánaða lögbundinn málsmeðferðartími kæranda hófst er hún lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd og hefði lokið við flutning kæranda úr landi en ekki við endanlega niðurstöðu í máli kæranda á stjórnsýslustigi.
Kærandi lagði fram endurtekna umsókn 13. apríl 2023, nánar tiltekið eftir gildistöku breytingarlaga nr. 14/2023. Í 2. málsl. 2. mgr. 35. gr. a segir að endurtekin umsókn teljist ekki framhald fyrri umsóknar í skilningi 2. mgr. 36. gr. og 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Í 4. mgr. 35. gr. a kemur fram að ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993 um endurupptöku gildi ekki um ákvarðanir í málum er varða alþjóðlega vernd. Í ljósi þess að endurtekin umsókn kæranda barst stjórnvöldum eftir gildistöku breytingarlaganna fellur mál kæranda undir ákvæði 35. gr. a laga um útlendinga. Hér er því um tvær aðgreindar umsóknir að ræða, annars vegar málsmeðferð umsóknar um alþjóðlega vernd, sbr. þágildandi 2. mgr. 36 gr. laga um útlendinga, og hins vegar málsmeðferð endurtekinnar umsóknar á grundvelli 35. gr. a laga um útlendinga, sbr. breytingarlög nr. 14/2023. Samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga var umsókn kæranda tekin til efnismeðferðar þegar ekki tókst að flytja hana til viðtökuríkis innan 12 mánaða enda voru tafir í málinu ekki taldar á hennar ábyrgð. Kærandi naut hagræðis af þeim lagaskilum sem kveðið var á um í breytingarlögunum varðandi umrætt ákvæði. Við framlagningu endurtekinnar umsóknar hennar hafði ákvæði 35. gr. a laga um útlendinga leyst af hólmi 24. gr. stjórnsýslulaga um endurupptöku, en hið nýja ákvæði hefur að geyma sambærilegar efnisreglur hvað varðar endurskoðun á umsókn og endurupptökuákvæðið að undanskilinni kröfunni um að aðili þurfi að vera staddur á landinu auk útreiknings á þeim sérstöku tímafrestum sem finna má í lögum um útlendinga. Kærandi gat og af öllu framangreindu virtu ekki haft réttmætar væntingar til þess að samanlagður tími vegna umsóknar hennar, sem fór samkvæmt þágildandi 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga og samkvæmt 35. gr. a, sbr. 2. mgr. 74. gr. laganna, yrði reiknaður saman. Skoðast framangreint og í ljósi þess að kærandi uppfyllir engin efnisleg skilyrði laga sem umsóknir hennar hafa lotið að, þ.e. alþjóðleg vernd og mannúðarvernd. Ljóst er að nýr 16 mánaða málsmeðferðartími hófst 13. apríl 2023 þar sem börn kæranda séu stödd með henni hér á landi. Eru því ekki forsendur fyrir hendi til þess að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda og barna hennar. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda og barna hennar þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kæranda og barna hennar til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 15. nóvember 2023, leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í svörum kæranda kom fram að hún hafi ekki sérstök tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins og svaraði spurningu Útlendingastofnunar um hvort hún teldi brottvísun og endurkomubann hingað til lands og alls Schengen-svæðisins ósanngjarna ráðstöfun gagnvart sér eða fjölskyldumeðlimum sínum neitandi.
Af gögnum í máli kæranda er að finna afrit fæðingarvottorða tveggja barna sem fæddar hafi verið á Ítalíu, engar frekari upplýsingar er að finna um afdrif þessara barna. Kærandi greindi frá því að eldra barnið hafi verið tekið af þeim hjónum þegar hún hafi hafið afplánun í fangelsi og yngra barnið hafi fæðst þegar hún hafi verið í afplánun og einnig verið tekið. Þá kvað kærandi að börnin hafi verið ættleidd. Verður því ekki talið að þau börn séu nánustu aðstandendur kæranda í skilningi laga um útlendinga, sbr. 17. tölul. 3. gr. laganna.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kæranda og barna hennar og endurkomubann kæranda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kæranda veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið og tekið fram að yfirgefi hún landið sjálfviljug innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður. A og B var brottvísað frá landinu.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda og barna hennar til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi hún landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, her re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir