02 ágúst 2024
/
Úrskurður nr. 805/2024
Hinn 2. ágúst 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 805/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU24050148 og KNU24050149
Beiðni um frestun réttaráhrifa í máli [...]og [...]
Málsatvik
Hinn 16. maí 2024 staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 12. og 13. desember 2023, um að synja [...], fd. [...], og [...], fd. [...], ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016. Úrskurðir kærunefndar voru birtir fyrir aðilum 16. maí 2024 og 23. maí 2024 barst kærunefnd beiðni aðila um frestun réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar. Hinn 30. maí 2024 barst kærunefnd greinargerð aðila ásamt umboði lögmanns.
Aðilar krefjast þess að réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar útlendingamála verði frestað á meðan þau fara með mál sitt fyrir dómstóla, sbr. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Málsástæður aðila
Kærendur telja að mál þeirra hafi m.a. ekki verið full rannsakað hvorki á æðra né lægra stjórnsýslustigi og telja mikilvægt að málið verði endurskoðað af dómstólum. Ýmsum spurningum sé ósvarað, einkum varðandi efnisreglur stjórnsýsluréttar og áhrif þeirra á mál kærenda sem nauðsynlegt sé að fá svör við svo málið teljist fullrannsakað. K hafi verið birt hin kærða ákvörðun á síðasta degi 18 mánaða frests sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sem geri málið enn erfiðara fyrir hann.
Kærendur byggja á því að efnisreglur stjórnsýsluréttar hafi áhrif á hvenær breyting á stjórnsýsluframkvæmd geti tekið gildi. Ekki hafi verið málefnalegt að stöðva afgreiðslu umsókna um hálfs árs skeið á meðan beðið hafi verið eftir því hvort landaupplýsingar hafi breyst og að tilviljun ein hafi ráðið því hvort viðkomandi umsækjandi hafi verið svo heppinn eða óheppinn að fá viðtalsboðun fyrir eða eftir mánaðarmótin október/nóvember2022 eða nokkrum vikum síðar. Í því sambandi telji kærendur afar mikilvægt að fá úr því skorið hvort lægra sett stjórnvald sé bundið af málsmeðferðar- og efnisreglum stjórnsýsluréttar eða hvort lægra sett stjórnvald hafi algjöra hentisemi um það í framkvæmd hvort og þá hvenær það hafi málsmeðferðar- og efnisreglur stjórnsýsluréttar til hliðsjónar ákvörðunum sínum. Þá telja kærendur mikilvægt að fá úr því skorið hvort kærunefnd útlendingamála hafi borið að rannsaka þann þátt sjálfstætt hvenær breytingin á stjórnsýsluframkvæmdinni hafi getað tekið gildi. Kærendur viti til þess að sambærileg mál séu á leið fyrir dóm en kærendur fari þess vinsamlegast á leit við kærunefnd að fallast á beiðni þeirra um frestun réttaráhrifa þar sem þau séu ekki byrði á íslensku samfélagi. Kærendur telja að ekki verði séð að kærunefnd útlendingamála hafi vikið að því hvenær heimilt væri að láta breytingu á stjórnsýsluframkvæmd taka gildi. Útlendingastofnun hafi í ákvörðunum sínum ekki talið að um breytta stjórnsýsluframkvæmd hafi verið að ræða. Kærendur telja enn skorta á rökstuðning fyrir því að hin breytta framkvæmd geti öðlast gildi gagnvart þeim sem búnir voru að sækja um alþjóðlega vernd áður en fyrirhuguð breyting á stjórnsýsluframkvæmd var kynnt á heimasíðu Útlendingastofnunar 14. apríl 2023.
Kærendur byggja á því að vegabréf K sé útrunnið og verði aðeins endurnýjað með aðstoð venesúelskra stjórnvalda. Með því myndu venesúelsk stjórnvöld fá vitneskju um að K og M hafi sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi. Það geri þau enn útsettari fyrir ofsóknum stjórnvalda, ekki síst vegna frumvarps sem liggi fyrir venesúelska þinginu sem virðist eiga að gera stjórnvöldum auðveldara með að hegna föðurlandssvikurum. Kærendur vísa til fréttar af vefsíðu CNN, dags. 20. mars 2024, um téð frumvarp.
Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Í íslenskum rétti gildir sú meginregla að málskot til dómstóla frestar ekki réttaráhrifum endanlegra ákvarðana stjórnvalda, sjá til hliðsjónar 2. málsl. 60. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Reglan er áréttuð í 1. málsl. 6. mgr. 104. laga um útlendinga nr. 80/2016 en þar segir að málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun á stjórnsýslustigi um að útlendingur skuli yfirgefa landið fresti ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess, sbr. 2. málsl. 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga. Frestun á réttaráhrifum skal bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir að málið hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Niðurstaða um hvort ástæða sé til að fresta réttaráhrifum úrskurðar kærunefndar ræðst af heildstæðu mati á hagsmunum aðila af því að réttaráhrifum úrskurðarins verði frestað og sjónarmiðum sem mæla gegn slíkri frestun. Meðal þeirra sjónarmiða sem líta ber til við þetta mat er hvort framkvæmd úrskurðarins valdi aðila óafturkræfum skaða, hvort framkvæmdin feli í sér verulegar hindranir á aðgengi aðila að dómstólum, hvort aðstæður sem þýðingu geta haft fyrir málið hafi breyst verulega eða hvort þörf sé á sérstakri varúð, m.a. með tilliti til hagsmuna barna. Þá lítur kærunefnd til þess hlutverks stjórnvalda að tryggja skilvirka framkvæmd laga um útlendinga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til þess að heimild til frestunar réttaráhrifa á úrskurði nefndarinnar er undantekning frá meginreglu sem aðeins sé ætlað að ná til tilvika þar sem ástæða er til þess að fresta framkvæmd. Réttaráhrifum úrskurðar verði því ekki frestað af þeirri ástæðu einni að úrskurðurinn verði borinn undir dómstóla heldur þurfi að liggja fyrir tilteknar ástæður í fyrirliggjandi máli svo kærunefnd fallist á slíka beiðni.
Af beiðni aðila um frestun réttaráhrifa má ráða þá afstöðu þeirra að framkvæmd úrskurðar kærunefndar útlendingamála um að þau skuli yfirgefa landið takmarki möguleika þeirra til að fá endurskoðun úrskurðarins hjá dómstólum og njóta þar réttlátrar málsmeðferðar, sbr. 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar. Ljóst er að vera aðila á landinu er ekki forsenda fyrir því að mál sem þau höfða til ógildingar á úrskurði kærunefndar sé tækt til meðferðar hjá dómstólum. Þá hafa aðilar möguleika á að gefa skýrslu fyrir dómi þótt þau séu ekki hér á landi, sbr. 2. mgr. 49. gr. og 3. og 4. mgr. 51. gr. laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Í því ljósi og með vísan til aðstæðna aðila að öðru leyti er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé ástæða til að fresta réttaráhrifum úrskurðar í máli aðila á þeim grundvelli að framkvæmd úrskurðarins valdi tjóni á málatilbúnaði þeirra fyrir dómstólum eða skerði réttindi sem þeim eru tryggð samkvæmt 70. gr. stjórnarskrárinnar, sbr. einnig dóma Héraðsdóms Reykjavíkur í málum nr. E-2434/2017, frá 23. maí 2018, og E-6830/2020, frá 15. desember 2020.
Með úrskurði kærunefndar útlendingamála, sem er sjálfstæð stjórnsýslunefnd, hefur verið tekin afstaða til málsástæðna aðila varðandi umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi og dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða og komist að niðurstöðu um að synja umsóknum þeirra. Kærunefnd ítrekar það sem kemur fram í úrskurði í máli aðila að athugun nefndarinnar hefur ekki leitt í ljós gögn sem gefa tilefni til að ætla að aðstæður í heimaríki séu þess eðlis að endursending aðila þangað sé í andstöðu við 1. og 2. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Kærunefnd telur að gögn sem aðilar lögðu fram með beiðni um frestun réttaráhrifa séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að þau breyti niðurstöðu nefndarinnar varðandi þetta mat.
Tiltölulega skammur tími er liðinn síðan nefndin úrskurðaði í málum aðila. Ekkert í gögnum málsins þ.m.t. þeim gögnum sem fylgdu beiðni aðila um frestun réttaráhrifa, bendir til þess að aðstæður aðila eða aðstæður í ríkinu, sem vísa á aðilum til, hafi breyst verulega síðan nefndin úrskurðaði í málinu á þann hátt að nefndin telji að það gæti haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Eftir skoðun á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa telur kærunefnd að athugasemdir sem þar koma fram varðandi málsmeðferð og efnislegt mat kærunefndar í málinu séu ekki þess eðlis að ástæða sé til að ætla að niðurstaða kærunefndar í málinu sé haldin annmarka sem leitt gæti til ógildingar úrskurðarins.
Samkvæmt framansögðu er það mat kærunefndar að ekki sé ástæða til að fallast á beiðni aðila um frestun réttaráhrifa úrskurðar kærunefndar í máli þeirra.
Úrskurðarorð:
Kröfu aðila er hafnað.
The appellant’s request is denied.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Þorsteinn Gunnarsson, formaður.