13 ágúst 2024

/

Umsækjendur um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar

{image.Description}
Hugi Ólafsson
Lundi með síli.

Í kjölfar breytinga á stofnunum umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins auglýsti ráðuneytið embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar laust til umsóknar í byrjun júlí sl.

Sex umsækjendur eru um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar:

  • Eydís Líndal Finnbogadóttir, settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar
  • Guðmundur Þórðarson, samningamaður og sérfræðingur
  • Jón Einar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi
  • Kristófer S. Arnar P. Júlíusson, líftæknir
  • María Ester Guðjónsdóttir, ferðamála- og viðskiptafræðingur
  • Rakel Rún Karlsdóttir, jarðfræðingur

Hæfnisnefnd sem skipuð hefur verið af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra mun meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Upplýsingar um hæfnisnefndina er að  finna hér.