16 ágúst 2024

/

Úrskurður nr. 816/2024


Hinn 16. ágúst 2024 er kveðinn upp svohljóðandi úrskurður

nr. 816/2024 í stjórnsýslumálum

nr. KNU23100051 og KNU23100052 í málum

[...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 13. október 2023 kærðu [...], fd. [...], ríkisborgari El Salvador (hér eftir K) og [...], fd. [...], ríkisborgari El Salvador (hér eftir M) ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 29. september 2023, um að synja þeim og barni þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgara El Salvador (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal nefndin meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru fer því fram sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik og frásagnir kærenda

Samkvæmt lögregluskýrslu, dags. 25. apríl 2023, komu kærendur til landsins frá El Salvador og báru upp beiðni um alþjóðlega vernd. Kváðust kærendur hafa flúið frá El Salvador vegna spillingar og hættuástands á svæðinu þar sem þau hafi búið. Hermenn og glæpagengi ráði þar ríkjum og þar sé ekki öruggt að búa, sérstaklega með barn. Þau hafi komið til Íslands þar sem frænka K búi hér og hún hafi greitt fyrir miðana þeirra hingað. Kærendur greindu frá því að þau hafi ekki komist í kast við lögin og K hafi verið heimavinnandi í heimaríki og M starfað í símaveri.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 5. júní 2023 og kváðu helstu ástæður flótta síns vera áreiti frá lögreglumönnum og hermönnum sem hafi elt M á röndum. Þau hafi búið á svokölluðu rauðu svæði, [...] sem sé sveitarfélag í nágrenni höfuðborgar landsins San Salvador. Á síðasta ári hafi lögreglumenn og hermenn verið úti um allt svæðið og það væri hættulegt. Herinn hafi umkringt rauðu svæðin og lokað þeim. Hermenn hafi m.a. farið inn í hús á svæðinu og safnað upplýsingum og stöðvað einstaklinga úti á götu og spurt um persónuupplýsingar. M hafi verið stöðvaður ítrekað hvort sem hann hafi verið á rölti úti á götu eða á leið í vinnu í strætó. Hann hafi verið krafinn um skilríki og stundum haldið um tíma. M hafi alltaf verið hræddur en að hann hafi ekki verið að gera neitt. Kærendur hafi þekkt marga sem hafi verið handteknir fyrir smávægilega hluti eins og að vera með húðflúr og ekki væri vitað um afdrif þeirra. Í byrjun kváðu kærendur að þeim hafi fundist eftirlitið í lagi enda talið að yfirvöld væru að passa almenning en þetta hafi orðið of mikið, allir séu stöðvaðir og ekki sé tekið tillit til skilríkja eða frásagna heldur vilji hermennirnir bara stjórna. Tveimur vikum áður en þau hafi komið til Íslands hafi M komið seint heim eftir að hafa sagt upp starfi sínu. Hermenn hafi komið að rannsaka hann og reynt að fá upplýsingar frá honum um hvort hann tilheyrði glæpahópi. Hann hafi neitað því. Aðilarnir hafi skoðað símann hans og leyft honum að fara en sagt að þeir gætu alltaf handtekið hann síðar. Kærendur óttist að verða handtekin og haldið án réttlátrar málsmeðferðar. Þau óttist um örlög dóttur sinnar fari svo. Kærendur greindu frá því að hverfið þeirra væri skráð rautt vegna yfirráða glæpagengja þar. Kváðu þau glæpagengið Las Maras vera allsráðandi og að þau hafi þurft að greiða verndargjald til að lifa í friði. M kvað þau hafa verið laus við áreiti glæpagengisins en hafa þurft að haga lífi sínu á ákveðinn veg til að forðast áreiti. K greindi frá því að hafa verið beitt kynferðislegri áreitni af lögreglumönnum og að konur, sérstaklega ungar konur séu í sérstakri hættu. Kærendur kváðust hafa tekið dóttur sína úr skóla vegna þessara aðstæðna og óttast um öryggi hennar. K kvaðst þá hafa misst vinnu sína af sömu sökum og hafi verið heima að hugsa um dóttur sína síðasta árið. Kærendur telji sig ekki geta búið annars staðar í heimaríki þar sem fram komi á skilríkjum þeirra hvaðan þau koma og lögreglan myndi telja að þau væru að flýja auk þess sem að miklir fordómar séu gagnvart fólki frá þessu svæði og hafi K t.a.m ekki fengið störf eftir að hafa greint frá því hvar hún væri búsett.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli barns kærenda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við það með vísan til ungs aldurs þess og framburðar kærenda.

Með ákvörðunum, dags. 29. september 2023, synjaði Útlendingastofnun kærendum og barni þeirra um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var jafnframt brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Barni kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 13. október 2023 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 27. október 2023.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og tekið tillit til allra sjónarmiða er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að það að Útlendingastofnun fallist ekki á kröfur þeirra um alþjóðlega vernd fái illa samrýmst upplýsingum og ályktunum stofnunarinnar um stöðu mannréttinda í heimaríki kærenda og þess veruleika sem bíði þeirra m.t.t. félagslegra aðstæðna, öryggis þeirra, mannréttindabrota stjórnvalda og dómskerfisins í víðtækum skilningi sem virði hugmyndina um réttarríki að vettugi. Kærendur gera athugasemdir við rannsókn Útlendingastofnunar sem hafi ekki náð til þess svæðis innan El Salvador sem kærendur komi frá, [...] og að tengsl svæðisins við glæpagengi geri þeim ófært um að lifa mannsæmandi lífi í El Salvador þó svo að þau séu með hreint sakavottorð. Kærendur byggja á því að rökstuðningi fyrir þeirri afstöðu Útlendingastofnunar að kærendum stafi ekki sérstök hætta af yfirvöldum vegna kyns, aldurs og búsetu þeirra í [...], sé verulega ábótavant. Þá skorti á fullnægjandi umfjöllun um stöðu ungra stúlkna, stöðu barna almennt þar á meðal m.t.t. öryggis þeirra og félagslegrar stöðu við endurkomu til El Salvador. Þá vísa kærendur til greinargerðar þeirra til Útlendingastofnunar og viðbótarathugasemda kærenda til kærunefndar. Kærendur mótmæli forsendum sem Útlendingastofnun hafi lagt til grundvallar ákvörðunum sínum. Í viðbótarathugsemdum kærenda, dags. 23. október 2023 kemur fram að kærendur óttist að vera send til baka til El Salvador vegna undantekningarástands stjórnvalda sem brjóti gegn alþjóðalögum auk þess sem kærendur uppfylli skilyrði til að teljast flóttamenn. Þau hafi búið í [...] sem sé miðstöð fíkniefnastarfsemi og eftir að stjórnvöld hafi ákveðið að setja á undantekningarástand í mars 2022 hafi margir verið handteknir, glæpamenn en einnig aðrir sem hafi engin tengsl við glæpastarfsemi. Þau óttist að vera handtekin að ósekju.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir 1. mgr. 37. gr. laganna þar sem þau séu utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsótt vegna aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi, þ.e. hópi fólks sem hefur unnið sér það eitt til sakar að vera frá [...] í El Salvador.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir 2. mgr. 37. gr. laganna þar sem mikil óöld ríki í El Salvador og sjálfsögð mannréttindi séu fótum troðin á degi hverjum. Ljóst sé að stjórnvöld séu ekki í aðstöðu til að veita fjölskyldunni viðeigandi vernd, enda séu það stjórnvöld og þungvopnaðir fulltrúar þeirra sem þeim stafi einna mest hætta af.

Í greinargerð eru færð rök fyrir því að aðstæður kærenda falli undir ákvæði 74. gr. laganna þar sem þau hafi ríka þörf fyrir vernd og staða þeirra nái því alvarleikastigi að sanngjarnt og eðlilegt sé að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Þá byggja kærendur á því að þau geti ekki fengið vernd í öðrum landshlutum enda komi fram að þau séu frá [...] í skilríkjum þeirra og þau séu beðin um að framvísa þeim hvarvetna.

Kærendur telja að innri flutningur sé hvorki raunhæfur né sanngjarn fyrir þau. Með því að senda kærendur og barn þeirra til El Salvador sé brotið gegn meginreglunni um non-refoulement, sbr. 42. gr. laga um útlendinga og að auki myndi slík ákvörðun brjóta í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrárinnar, 2. og 2. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu (MSE), 6. og 7. gr. samnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. Flóttamannasamnings Sameinuðu þjóðanna.

4 Alþjóðleg vernd

4.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga nr. 80/2016 um útlendinga, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Verður því við mat á umsóknum að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram þegar metið er hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

4.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

4.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað salvadorskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og barn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu salvadorskir ríkisborgarar.

4.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í El Salvador, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights practices: El Salvador (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights practices: El Salvador (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Report: El Salvador (Bertelsmann Stiftung, 10. nóvember 2022).
  • Acled. Dashboard, El Salvador (23. ágúst 2023);
  • Amnesty International Report 2023/24 – El Salvador (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Amnesty International Report 2022/23 – El Salvador (Amnesty International, 28. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2021/22 – El Salvador (Amnesty International, 29. mars 2022);
  • Annual report on the human rights situation in 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2014);
  • Barrio 18 (InSight Crime, 11. mars 2019);
  • Concluding observations on the combined eighth and ninth periodic reports of El Salvador (United Nations Committee on the Elimination of Discrimination against Women, 9. mars 2017);
  • Country Policy and Information Note. El Salvador: Actors of protection (UK Home Office, febrúar 2021);
  • Country Policy and Information Note. El Salvador: Fear of gangs (UK Home Office, janúar 2021);
  • Country Policy and Information Note. El Salvador: Gangs (UK Home Office, desember 2022);
  • El Salvador‘s Bukele claims landslide election win (Aljazeera, 4. febrúar 2024);
  • El Salvador Deplooys Security Forces to Contain Criminal Groups (Diálogo Américas, 11. janúar 2023);
  • El Salvador: Information Gathering Mission Report: Gangs in El Salvador and the Situation of Witnesses of Crime and Corruption (Immigration and Refugee Board of Canada, september 2016);
  • El Salvador: Information Gathering Mission Report: The Situation of Women Victims of Violence and of Sexual Minorities in El Salvador (Immigration and Refugee Board of Canada, september 2016);
  • El Salvador Travel Advisory (US Department of State, Bureau of Consular Affairs, síðast uppfært 17. júlí 2023);
  • El Salvador Escalates Gang Crackdown with New Measures (InSight Crime, 4. ágúst 2023);
  • Foreign travel advice: El Salvador (gov.uk, síðast uppfært 17. júní 2024);
  • Freedom in the World 2023 - El Salvador (Freedom House, 2023);
  • Freedom in the World 2024 – El Salvador (Freedom House, 2024);
  • Gender discrimination is plaguing El Salvador (Institute of Current World Affairs, 7. júní 2021);
  • Gang Presence in San Salvador (InSight Crime, 26. apríl 2019);
  • Gang Violence and Growing Abuses by State Security Forces (Latin America Working Group, 13. nóvember 2017);
  • „Too Many Soldiers“: How Bukele‘s Crackdown succeeded where others failed (InSight Crime, 6. desember 2023);
  • InSight Crime´s 2021 Homicide Round-Up (InSight Crime, 1. febrúar 2022);
  • InSight Crime´s 2022 Homicide Round-Up (InSight Crime, 8. febrúar 2023);
  • Left in the Dark: Violence Against Women and LGBTI Persons in Honduras and El Salvador (Latin America Working Group, 7. mars 2018);
  • List of issues and questions in relation to the combined eighth and ninth periodic reports of El Salvador. Replies by El Salvador (United Nations Committee on the Elimination of Discrimination against Women, 11. janúar 2017);
  • Mental Health Atlas 2020 Country Profile: El Salvador (World Health Organization, 15. apríl 2022);
  • MS13 (InSight C rime, 11. mars 2019);
  • National report submitted in accordance with paragraph 5 of the annex to Human Rights Council resolution 16/21 El Salvador (United Nations Human Rights Council, 20. ágúst 2019);
  • Observaciones finales sobre el sexto informe periódico de El Salvador (United Nations Economic and Social Council, 9. nóvember 2022);
  • Report of the Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (United Nations Human Rights Council, 22. ágúst 2019);
  • Report of the Special Rapporteur on extrajudicial, summary or arbitrary executions on her mission to El Salvador (United Nations Human Rights Council, 7. desember 2018);
  • Report of the Special Rapporteur on the promotion of truth, justice, reparation and guarantees of non-recurrence on his visit to El Salvador (United Nations Human Rights Council, 9. júlí 2020);
  • Salvadoran troops besiege two cities in gang crackdown (France 24, 12. október 2023);
  • Situation of human rights in El Salvador (Inter-American Commission on Human Rights, 14. október 2021);
  • Sixth periodic report submitted by El Salvador under articles 16 and 17 of the Covenant (United Nations Economic and Social Council, 2. desember 2019);
  • Social Security Throughout the World, The Americas, 2019 – El Salvador (Social Security Administration. Office of Retirement and Disability Policy. Office of Research, Evaluation and Statistics, mars 2020);
  • Summary of Stakeholders’ submissions on El Salvador (United Nations Human Rights Council, 21. ágúst 2019);
  • The Problem With El Salvador‘s Crime numbers (fréttamiðillinn FP, 8. ágúst 2024);
  • The World Factbook: El Salvador (CIA, síðast uppfært 8. júlí 2024);
  • Third periodic report submitted by El Salvador under article 19 of the Convention, due in 2013 (United Nations Committee against Torture. CAT/S/SLV/3, 17. mars 2020) og
  • UNHCR Eligibility Guidelines for Assessing the International Protection Needs of Asylum-Seekers from El Salvador (United Nations High Commissioner for Refugees, 15. mars 2016)).

Lýðveldið El Salvador er forsetalýðveldi með um 6.6 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 85% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 24. október 1945 gerðist El Salvador aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1979. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1981 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1996. El Salvador fullgilti mannréttindasáttmála Ameríku 20. júní 1978. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kemur fram að árið 2019 hafi Nayib Bukele verið kjörinn forseti El Salvador. Forsetakosningarnar og kosningar til sveitastjórnar- og þingkosningar í febrúar 2021 hafi verið taldar frjálsar samkvæmt eftirlitsaðilum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2024 kemur fram að forseti El Salvador og þingið hafi kerfisbundið veikt lýðræðislegt eftirlit og stofnanir. Í október 2023 hafi forsetinn tilkynnt að hann hygðist sækjast eftir endurkjöri árið 2024 þrátt fyrir að stjórnarskráin leggi bann við því. Í nóvember hafi honum verið veitt sex mánaða leyfi frá störfum og Claudia Rodriguez komið í hans stað. Hinn 4. febrúar 2024 var Bukele kjörinn forseti á ný með meirihluta atkvæða og tók á ný við embætti 1. júní 2024.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024 kemur fram að helstu vandamál á sviði mannréttinda í landinu séu m.a. handahófskennd morð, pyndingar, þvinguð mannshvörf, ómannúðleg meðferð og refsing af hálfu öryggissveita, lífshættulegur aðbúnaður í fangelsum, víðtæk spilling, takmarkanir á tjáningar- og fjölmiðlafrelsi, skortur á rannsóknum og réttlátri málsmeðferð vegna kynbundins ofbeldis, takmarkanir á aðgengi að kynheilbrigðisþjónustu og ofbeldi gegn hinsegin einstaklingum. Spilling og refsileysi sé umtalsverð í stjórnsýslunni og innan lögreglu landsins. Í skýrslunni kemur fram að stjórnvöld hafi í sumum tilvikum gert ráðstafanir til að lögsækja og refsa embættismönnum fyrir mannréttindabrot. Glæpahópar, þ.m.t. staðbundin og fjölþjóðleg glæpagengi og eiturlyfjasalar fremji morð, stundi fjárkúganir, mannrán, mansal, hótanir og aðrar ógnir og ofbeldi. Þeir beini aðgerðum gegn lögreglu, dómurum, aðilum viðskiptalífsins og meðlimum viðkvæmra hópa. Yfirvöld rannsaki og ákæri í slíkum málum.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að lögreglan, undir umsjón dómsmálaráðuneytis, beri ábyrgð á að viðhalda almannaöryggi. Varnarmálaráðuneytið beri ábyrgð á þjóðaröryggi. Þó svo að stjórnarskrá ríkisins aðskilji hernaðaraðgerðir og öryggisaðgerðir í þágu almannaöryggis, hafi forseti heimild til að beita herafla í undantekningartilvikum, þegar önnur úrræði hafi verið fullreynd. Í skýrslu sama aðila frá árinu 2023 kemur fram að 27. mars 2022 hafi þingið lýst yfir undantekningarástandi (e. state of exception) vegna stórfelldrar aukningar morða sem framin hafi verið af meðlimum glæpagengja 25. til 27. mars s.á. Á meðan það ástand sé í gildi hafi herlið landsins heimild til að handtaka alla þá sem grunaðir séu um að tilheyra glæpagengi eða styðja gengi. Heimilt sé að takmarka ýmis almenn réttindi grunaðra, svo sem til þess að gæta rannsóknarhagsmuna á fyrstu sigum rannsóknar og takmarka samskipti grunaðra. Þessari yfirlýsing hafi verið endurnýjuð mánaðarleg síðan og skv. skýrslunni frá 2024 var hún enn í gildi í desember 2023. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að fjölmargar tilkynningar um handahófskenndar handtökur og óréttláta málsmeðferð fyrir dómstólum og dauðsföll fanga, hafi fylgt þessum aðgerðum. Mannréttindasamtök hafi tekið við yfir 3000 kvörtunum vegna ásakana um ýmis brot gegn frelsissviptum, þ.á m. um handahófskenndar handtökur, að handteknir hafi ekki fengið að vita ástæðu fyrir handtöku eða hafa samband við fjölskyldumeðlimi í tengslum við aðgerðir stjórnvalda. Lögin kveði á um réttinn til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar, en undantekningarákvæðið geti frestað hluta þessara réttinda, svo sem réttinum til að fá tafarlaust upplýsingar um sakarefni og önnur réttindi. Stjórnvöld hafi haldið því fram að þau hafi gagnagrunn með meira en 76 þúsund gengjameðlimum og að þeir sem hafi verið handteknir hafi verið á þeim lista eða að trúverðugar ábendingar hafi leitt til gruns um að viðkomandi væri gengjameðlimur. Á fyrstu mánuðum, þar sem ákvæðinu um undantekningarástand hafi verið beitt, hafi lögregla og herinn farið inn í fátæk hverfi og framkvæmt fjöldahandtökur. Fréttamiðlar og mannréttindasamtök hafi sakað öryggissveitir um að handtaka einstaklinga fyrir gengjaaðild á veikum grunni, s.s. fyrir að vera með húðflúr eða fyrir að vera „grunsamlegir í útliti“.

Í framangreindri skýrslu kemur fram að 3. júní s.á. hafi framkvæmdastjórn Mannréttindanefndar Ameríku (e. Inter American Commission on Human Rights) áréttað fyrir stjórnvöldum mikilvægi alþjóðlegra skuldbindinga til að tryggja framfylgd réttarfarsreglna, réttláta málsmeðferð og aðgengi einstaklinga að raunhæfu úrræði til að leita réttar síns sem séu ófrávíkjanleg samkvæmt alþjóðlegum mannréttindalögum. Lögin kveði á um réttinn til réttlátrar og opinberrar málsmeðferðar og undantekningarákvæði sem salvadorsk stjórnvöld hafi beitt afnemi hluta þessara réttinda. Nefndin hafi fordæmt þá framkvæmd að halda réttarhöld fyrir allt að 500 einstaklinga samtímis, án þess að heimila stefndum að flytja sín mál.

Í framangreindum skýrslum, m.a. Freedom House frá 2024má ráða að ofbeldi og áreitni, oft í tengslum við skipulagða glæpastarfsemi sé alvarlegt vandamál í El Salvador. Þar kemur fram að víðtæk spilling grafi undan lýðræði og réttarríkinu á meðan framkvæmdarvaldið hafi aukið umsvif sín. Yfirvöld haldi uppi hörðum og hervæddum viðbrögðum í baráttu við glæpahópa landsins, sem hafi leitt til handahófskenndra drápa, fjöldahandtaka og annarrar misnotkunar á valdi. Þá eigi virkir samfélagsrýnar og fjölmiðlar á hættu áreiti og ofbeldi í tengslum við umfjöllun um spillingu eða gagnrýni á aðgerðir og aðferðir stjórnvalda. Í júlí 2023 hafi fjöldi þeirra sem höfðu verið handteknir í tengslum við aðgerðir stjórnvalda numið meira en 70 þúsund manns. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að dregið hafi verulega úr morðum í landinu en þau hafi farið úr 366 fyrri helming ársins 2022 í 32 fyrri helming ársins 2023 eða um 2,4 á hverja tíu þúsund einstaklinga. Þessar tölur séu þó umdeildar en ljóst sé þó að dregið hafi verulega úr morðum af hálfu glæpasamtaka í landinu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024 kemur fram að glæpastarfsemi sé megin ástæða innri flótta Í El Salvador. Þar kemur fram að nýjustu tölur um einstaklinga á innri flótta í El Salvador séu frá 2022 og þá hafi um 52 þúsund verið á innri flótta í landinu vegna átaka glæpagengja og um 4600 einstaklingar í viðbót vegna hitabeltisstormsins Júlíu.

Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að stjórnarskrá El Salvador kveði á um jafna lagalega stöðu kvenna og karla varðandi fjölskyldu-, trúmál og þjóðernislög. Lög kveði á um jafnan rétt á sviði eignaréttinda, erfða, atvinnu, aðgengi að lánsfé og eignarhaldi á fyrirtækjum og húsnæði. Konur standi hins vegar frammi fyrir mismunun á atvinnumarkaði. Konur veigri sér við að tilkynna um mismunun af ótta við afleiðingar. Ofbeldi gegn konum sé vandamál í ríkinu og þrátt fyrir að lög leggi refsingu við nauðgun og heimilisofbeldi sé sakfellingarhlutfall lágt í slíkum málum. Kvenmorð eigi sér stað og á fyrrihluta ársins 2023 hafi þarlend kvenréttindasamtök skráð 26 tilvik slíkra morða. Lög banni kynferðislega áreitni og sé vinnuveitendum skylt að útbúa og framfylgja áætlunum til að koma í veg fyrir áreitni á vinnustað. Yfirvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum á skilvirkan hátt. Mannréttindasamtök hafi í ágúst 2023 skráð hjá sér 21 kvörtun um kynferðislega áreitni af hálfu lögreglumanna.

Í skýrslu Bertelsmann Stiftung frá 2023 kemur fram að á undanförnum árum hafi salvadorsk stjórnvöld lagt áherslu á að efla ungmenni og tækifæri þeirra, fyrst og fremst með því að bæta opinbera menntakerfið og möguleika á starfsþjálfun. Hefur læsi aukist jafnt og þétt og læsi sé yfir 90%. Þá hafi hlutfall kvenna aukist á öllum menntastigum. Konur séu nokkru fleiri en karlar á háskólastigi. Félagsleg og efnahagsleg staða hafi þó áhrif á tækifæri salvadorskra ríkisborgara til menntunar. Tæplega 95% allra barna á grunnskólastigi stundi nám, 71,7% sæki framhaldsskólamenntun og aðeins 29,5% menntun á háskólastigi. Í skýrslunni kemur fram að margt ungt fólk þurfi að vinna og íbúar á landsbyggðinni standi höllum fæti í því sambandi. Í skýrslunni kemur fram að eitt helsta samfélagsmein í landinu sé að þrátt fyrir lækkaða morðtíðni sé hún enn há meðal ungmenna í þéttbýli og ungs fólks í glæpagengjum. Börn sjái aðild að slíkum hópum sem síðasta úrræði, njóti þau ekki stuðnings frá fjölskyldu, aðgangs að menntun eða atvinnu eða tækifæri til að vera samþykkt í samfélaginu. Ofbeldi gegn börnum sé bannað með lögum og viðurlög við slíkum brotum geta verið frá sviptingu forræðis í allt að 26 ára fangelsisrefsingu.

Í skýrslu Bertelsmann Stiftung frá 2023 kemur fram að félagslegt kerfi sé til staðar í landinu en aðgengi sé takmarkað fyrir suma hópa. Ríkisstyrktar sjúkratryggingar séu skyldubundnar fyrir alla skráða launþega. Árið 2019 hafi 28.5% starfandi íbúa verið skráðir í sjúkratryggingakerfið. Þeir sem falli ekki þar undir s.s. sjálfstætt starfandi einstaklingar verði að reiða sig á einkareknar heilsugæslustöðvar eða gjaldfrjáls almenn sjúkrahús, sem séu yfirleitt fullnægjandi fyrir minniháttar heilsufarsvanda en oft séu biðtímar töluverðir eftir aðgerðum, ef undan er skilin bráðaheilbrigðisþjónusta.

4.5 Mat á trúverðugleika frásagna

Mat á trúverðugleika frásagna kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki kærenda.

4.6 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur hafa borið fyrir sig að óttast áreiti af hálfu lögreglu og hermanna í heimaríki sínu vegna aðgerða stjórnvalda til að berjast gegn starfsemi glæpasamtaka í landinu. Kærendur óttist að verða handtekin að ósekju vegna búsetu sinnar á svokölluðu rauðu svæði og þá óttist þau um afdrif barns síns vegna almenns óöryggis í landinu.

Kærendur telja sig tilheyra sérstökum þjóðfélagshópi þar sem þau séu búsett á svokölluðu „rauðu svæði“ í [...] í San Salvador. Auk framangreinds greindu kærendur frá því í viðtölum að þau óttist glæpahópa í heimaríki sem hafi verið ráðandi á heimasvæði þeirra og neyði alla sem þar búi til að greiða verndargjald. Þá hafi M verið stöðvaður ítrekað af hermönnum og lögreglu. Með vísan til þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í El Salvador telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga frásagnir kærenda í efa og verða þær lagðar til grundvallar.

Af skýrslum um heimaríki kærenda er ljóst að stjórnvöld hafa skorið upp herör gegn glæpagengjum og hafa í þeirri baráttu gripið til róttækra aðgerða sem hafi bitnað á almennum borgurum með ýmsum hætti. Heimildir benda til þess að einstaklingar hafi sætt handahófskenndum handtökum án þess að fá tækifæri til þess að leita aðstoðar verjanda eða hafa samband við fjölskyldumeðlimi eða ættingja. Þá hafi einstaklingum verið haldið um tíma án þess að vitað hafi verið um afdrif þeirra. Þá séu dæmi um að einstaklingar hafi látist í haldi lögreglu. Nýlegar heimildir um aðgerðir stjórnvalda á heimasvæði kærenda [...] benda til þess að verulega hafi dregið úr ítökum glæpagengja á svæðinu og borgarar hafi í kjölfarið hafið uppbyggingu á svæðinu m.a. með því að taka yfir afþreyingarmiðstöðvar sem hafi verið undir yfirráðum glæpagengja, borgarar séu lausir undan fjárkúgunum og geti ferðast óhindrað á milli svæða án ótta við hefndaraðgerðir glæpagengja. Verður ekki ráðið af heimildum að almennir borgarar sæti slíku áreiti af hálfu lögreglu eða hermanna á svæðinu að það nái því marki að teljast ofsóknir. Er að mati kærunefndar ekkert sem bendir til þess að kærendur sem hafa greint frá því að þau séu með hrein sakavottorð séu í sérstakri hættu á að vera fangelsuð vegna gruns um þátttöku í glæpastarfsemi eða eigi á hættu áreiti af hálfu lögreglu eða hermanna á svæðinu sem nái því marki að teljast ofsóknir skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. b-lið 2. mgr. 38. gr. laganna.

Kærendur hafa greint frá því að þau óttist meðlimi glæpasamtaka, sérstaklega Los Maras sem séu í öllum hverfum í heimaríki þeirra og áreiti þau. Í þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað, m.a. í skýrslu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu um stöðu mannréttinda frá árinu 2023, kemur fram að lögregluyfirvöld í El Salvador séu virk og veiti þegnum sínum vernd. Skýrslur og önnur gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í El Salvador bera m.a. með sér að stjórnvöld hafi virkjað svokallað „undantekningarástand“ til að bregðast við glæpum og ofbeldi í landinu. Þrátt fyrir að gögn um aðstæður í El Salvador bendi til þess að glæpahópar séu áhrifamiklir á sumum svæðum í El Salvador, er það mat kærunefndar að salvadorsk yfirvöld geti almennt verndað grundvallarmannréttindi ríkisborgara sinna. Heimildir benda ennfremur ekki til þess að ítök og áhrif glæpa- eða skæruliðahópa séu slík í San Salvador að ómögulegt sé fyrir kærendur að leita aðstoðar yfirvalda telji þau þörf á því. Þá er það mat kærunefndar að af frásögn kærenda verði ekki ráðið að þau eða fjölskylda þeirra hafi verið eða séu sérstök skotmörk glæpahópa í heimaríki umfram aðra borgara. Ennfremur verði ekki talið að þau geti ekki leitað aðstoðar yfirvalda af þeim sökum. Hafa kærendur ekki sýnt fram á að stjórnvöld í El Salvador geti ekki eða vilji ekki veita þeim og barni þeirra vernd, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir þær athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur hafa því raunhæfan möguleika á því að leita sér ásjár stjórnvalda þar í landi, ef þau telji sig þurfa á aðstoð þeirra að halda.

K greindi frá því að óttast að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu lögreglumanna eða hermanna í heimaríki sínu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2024 njóta konur sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og megi vinnuveitendur ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Þá sé kynbundið ofbeldi refsivert í landinu og geti konur leitað eftir aðstoð lögreglu og dómstóla verði þær fyrir ofbeldi. Að mati kærunefndar verður hvorki af landaupplýsingum né frásögn K ráðið að hún verði í erfiðari stöðu en aðrar konur í Venesúela á grundvelli kyns. Verður því ekki lagt til grundvallar að K eigi á hættu að sæta mismunun eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á grundvelli kyns síns.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Að mati kærunefndar var sjónarmiðum barnsins A nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Kærunefnd telur að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd, að engin rök standi í vegi fyrir því að A fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Kærunefnd horfir m.a. til þess að barn það sem um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Líkt og áður greinir stendur barni kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá beri gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar, að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins, að það sé því fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur og barn þeirra hafi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga. Er því ljóst að kærendur og barn þeirra uppfylla ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

4.7 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur hafa greint frá því að þau telji sig og barn sitt í hættu í heimaríki vegna almenns óöryggis og ítaka glæpahópa þar í landi. Þá hafa kærendur vísað til þess að þau óttist um öryggi barns síns. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér benda til þess að ástandið í El Salvador sé víða ótryggt og að íbúar landsins kunni að eiga á hættu að vera beittir ofbeldi af hálfu glæpa- og skæruliðahópa. Að jafnaði hafi salvadorsk stjórnvöld og öryggissveitir þeirra þó góða stjórn á svæðum í El Salvador. Þá séu lögregluyfirvöld að öllu jöfnu öflug og fagleg í landinu. Að virtum framburði kærenda, gögnum málsins og landaupplýsingum um ástandið í San Salvador og [...] er það mat kærunefndar að kærendur og barn þeirra eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði þeim gert að snúa aftur til El Salvador.

Þrátt fyrir að kærunefnd leggi frásagnir kærenda um ástandið í El Salvador til grundvallar þá er ljóst, með vísan til framangreinds mats á því hvaða aðstæður eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í [...] sem er sveitarfélag í úthverfi höfuðborgar landsins San Salvador. Samkvæmt landaheimildum er höfuðborgin, San Salvador staðsett í miðju landi El Salvador. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og A hafa tengsl við eða í El Salvador almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum verði þau send aftur til heimaríkis.

Í ljósi þess sem að framan er rakið og þeirra gagna sem liggja fyrir um heimaríki kærenda telur kærunefnd að aðstæður þeirra þar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laganna. Er því ljóst að kærendur uppfylla heldur ekki skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi.

5 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

5.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

5.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur hafa greint frá erfiðum aðstæðum í heimaríki vegna starfsemi glæpahópa og að yfirvöld geti ekki veitt þeim fullnægjandi vernd. Kærendur telji m.a. ljóst að þau geti ekki lifað öruggu og eðlilegu lífi fjarri ofbeldi í heimaríki sínu og að ástand mannréttindamála þar í landi sé slæmt og félagslegar aðstæður bágbornar. Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður í El Salvador telur kærunefnd að almennar aðstæður kærenda og barns þeirra séu ekki slíkar að grundvöllur sé til veitingar dvalarleyfis á grundvelli erfiðra almennra aðstæðna.

Kærendur eru ung og eru með ungt barn. Þau hafa greint frá því að þau eiga fjölskyldumeðlimi í heimaríki. Þó svo að þau búi við bágar efnahagslegar aðstæður hafa kærendur greint frá því að M hafi verið starfandi í heimaríki en sagt upp vinnu sinni vegna vinnutíma. Þá hafi K einnig unnið en misst vinnuna þegar aðgerðir stjórnvalda hafi byrjað þar sem það hafi verið erfitt að ferðast á milli staða. Þau séu í sambandi við fjölskyldumeðlimi sína. Af gögnum málsins er ljóst að barn kærenda hafi aðgang að menntun og heilbrigðisþjónustu í heimaríki. Kærendur hafa greint frá því að þau og barn þeirra eigi bakland og þrátt fyrir erfiðleika þá verði talið að kærendur geti fengið atvinnu í heimaríki. Kærendur hafa greint frá því að þau hafi búið í leiguhúsnæði og að M hafi verið starfandi en misst vinnuna áður en þau hafi flúið. Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau séu heilsuhraust og vinnufær. Kærunefnd telur því að félagslegar aðstæður kærenda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að kærendur og barn þeirra séu heilsuhraust og að þau geti framfleytt sér og barni sínu. Kærendur greindu frá því að þeim liði illa andlega vegna [...] en að þau og barn þeirra væru við góða líkamlega heilsu.

Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki séð að þau glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða barn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki séð að kærendur hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Því er fallist á það með Útlendingastofnun að aðstæður kærenda og barns þeirra í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærenda og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

5.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 25. apríl 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

6 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

6.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda telur kærunefnd að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Kærunefnd telur því að ákvæði 42. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.

7 Brottvísun og endurkomubann

7.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

7.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Samkvæmt gögnum málsins sóttu kærendur um alþjóðlega vernd hér á landi 25. apríl 2023. Eins og að framan greinir hafa umsóknir kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa kærendur því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinum kærðu ákvörðunum var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun var kærendum leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. K kvaðst eiga frænku hér á landi en ekki hafa önnur tengsl innan Schengen-svæðisins. Aðspurð hvort hún teldi ákvarðanir um brottvísun og endurkomubann ósanngjarnar ráðstafanir gagnvart þeim kvaðst hún ekki geta svarað þessu enda væru þetta bara reglurnar hér. M kvaðst vilja að fjölskyldan væri örugg.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun þeirra og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Í ákvörðunarorðum í ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum brottvísað og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið auk þess sem tekið var fram að yfirgefi þau landið innan þess frests verði endurkomubannið fellt niður.

Að mati kærunefndar og með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi kærendur landið innan framangreinds frests.

8 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru ákvarðanir Útlendingastofnunar staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.

Valgerður María Sigurðardóttir


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir