22 ágúst 2024

/

Úrskurður nr. 848/2024


Hinn 22. ágúst 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 848/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24030110

Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 16. mars 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita […], vera fæddur […] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 12. mars 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnun sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd 25. febrúar 2023. Kvaðst kærandi koma hingað til lands sökum slæms ástands í heimaríki.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 20. mars 2023 og 15. febrúar 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Þar greindi kærandi frá því að vera fæddur og uppalinn í bænum […] í Southwest umdæmi í Sómalíu. Fjölskylda hans væru bændur og þau hafi haft það ágætt áður en hann flúði. Kærandi kvaðst tilheyra Marehan ættbálkinum sem sé í meirihluta þar sem hann hafi búið en litið sé á hann sem minnihlutahóp í Sómalíu. Kærandi kvaðst vera heilsuhraustur, hafa gengið í grunnskóla og eiga eiginkonu í heimaríki. Kærandi kvað ástæðu flótta hans frá heimaríki var að tekin hafi verið mynd af honum og vinkonu hans að borða saman. Fjölskylda stúlkunnar hafi fengið afrit myndarinnar og brugðist illa við. Hafi þau meðal annars ráðist að heimili kæranda og fjölskyldu hans, kveikt í húsi þeirra og grýtt móður og bróður kæranda. Þá hafi fjölskyldan sett sig í samband við Al Shabaab og sagt kæranda hafa átt vingott við stúlkuna þrátt fyrir að vera giftur. Al Shabaab hafi í kjölfarið dæmt kæranda til dauða og haft í hótunum við kæranda og fjölskyldumeðlimi hans. Kærandi hafi flúið til Mógadisjú og að lokum frá landinu með aðstoð smyglara.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 16. mars 2024.

3 Greinargerð til kærunefndar

Kærandi skilaði ekki inn greinargerð til kærunefndar.

4 Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. sömu laga sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Þá kemur fram í 1. mgr. 74. gr. laganna að heimilt sé að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins. Af athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga verður jafnframt ráðið að rétturinn til alþjóðlegrar verndar nái ekki til flóttamanna sem eru utan marka landsins. Verða ákvæðin ekki skilin öðruvísi en svo að réttur umsækjenda til alþjóðlegrar verndar og dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé háður því ófrávíkjanlega skilyrði að umsækjandi sé utan heimaríkis og staddur hér á landi eða komi hér að landi.

Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Ljóst er því að kæranda var heimilt að dvelja á landinu á meðan mál hans var til meðferðar hjá kærunefnd.

Með tölvubréfi dags. 15. apríl 2024 bárust þær upplýsingar frá Útlendingastofnun að kærandi væri skráður horfinn í kerfum stofnunarinnar frá 26. mars 2024. Með vísan til þess hafði kærunefnd samband við talsmann kæranda 2. ágúst 2024 og greindi honum frá því að nefndinni hefði borist upplýsingar um að kærandi væri skráður horfinn. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum frá talsmanni um hvort kærandi væri staddur hér á landi og ef svo væri var kæranda veittur frestur til að gefa sig fram við lögreglu eða kærunefnd til þess að sýna fram á veru sína á landinu. Í svari frá talsmanni kæranda sem barst kærunefnd 2. ágúst 2024 kom fram að talsmaður ætlaði að setja sig í samband við kæranda og koma þessum skilaboðum til hans. Engin frekari samskipti eða upplýsingar bárust kærunefnd frá talsmanni eða kæranda. Þar sem kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann sé staddur hér á landi verður, með vísan til framangreindra upplýsinga, lagt til grundvallar að kærandi hafi yfirgefið landið.

Líkt og að framan er rakið nær rétturinn til alþjóðlegrar verndar ekki til umsækjanda sem er utan marka landsins. Ekkert bendir til annars en að brottför kæranda af landinu hafi verið sjálfviljug en eins og áður hefur komið fram frestaði kæra til kærunefndar réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar. Það er því niðurstaða kærunefndar að vísa beri kæru kæranda frá nefndinni þar sem ekki hefur verið staðfest að hann sé staddur innan marka landsins.

Samantekt

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er kæru kæranda vísað frá.


Úrskurðarorð:

Kæru kæranda er vísað frá.

The Appeal is dismissed.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Þorsteinn Gunnarsson

formaður