27 ágúst 2024

/

Úrskurður nr. 865/2024


Hinn 27. ágúst 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 865/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24060142-3

Kæra [...]og [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 14. júní 2024 kærði [...], fd. [...], og [...], fd. [...], ríkisborgarar Pakistan (hér eftir kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 30. maí 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritanir til Íslands.

Af kæru má ráða að kærendur krefjist þess að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og fallist verði á beiðnir þeirra um vegabréfsáritanir til Íslands.

Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsóknum, dags. 16. maí 2024 óskuðu kærendur eftir vegabréfsáritunum til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 1. til 6. júní 2024. Umsóknum kærenda var synjað með ákvörðunum Útlendingastofnunar, dags. 30. maí 2024. Hinn 14. júní barst kærunefnd kæra frá kærendum.

III. Málsástæður og rök kæranda

Á kærustigi lögðu kærendur fram nýja ferðaáætlun fyrir annað tímabil en upphaflega hafði verið sótt um, ásamt nýjum fylgigögnum.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Pakistan þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðunum í málum kærenda er merkt í reiti 10 til 11, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar. Í íslenskri útgáfu synjunarformsins hefur gleymst að tilgreina efni þeirra yfirlýsinga sem dregnar voru í efa. Kærunefnd gerir athugasemd við vinnubrögð Útlendingastofnunar hvað það varðar, sbr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir, þar sem segir að umsækjanda skuli tilkynnt um ákvörðun og synjun og ástæður fyrir henni á íslensku og öðru opinberu tungumáli meginstofnana Evrópusambandsins. Í enskri útgáfu eyðublaðsins kemur þó fram að rökstudd ástæða sé til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ætlun til að ferðast til Íslands séu áreiðanlegar. Kærunefnd telur því ekki ástæðu til að ógilda ákvörðun Útlendingastofnunar þótt rökstuðning í lið 11 hafi vantað í íslensku útgáfu synjunarformsins.

Ákvörðunum Útlendingastofnunar fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að kærendur hafi staðfest áreiðanleika upphaflegra flug- og hótelbókana. Icelandair hafi á hinn bóginn staðfest að flugbókun væri ekki til. Þar að auki hafði hótelbókun verið afpöntuð. Í viðtali hafi kærendur verið óupplýstir um skipulag fyrirhugaðrar ferðar og ekki getað lýst ferðaáætlun. Rökstuddur grunur sé því fyrir hendi um að kærendur hafi ekki í hyggju að ferðast til Íslands. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvarðana í máli kærenda.

Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá utanríkisráðuneytinu en umsóknirnar voru lagðar fram á skrifstofu VFS global í Lundúnum, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Meginmarkmið stjórnsýslukæru er að tryggja réttaröryggi borgara með því að gera þeim kleift að fá umfjöllun um mál sín á tveimur stjórnsýslustigum. Í ljósi þess að nú liggja fyrir gögn í máli kærenda sem áhrif geta haft á niðurstöðu mála þeirra, er það mat kærunefndar að nauðsynlegt sé að mál kærenda hljóti nýja meðferð hjá Útlendingastofnun þar sem lagt sé mat á þau nýju gögn sem nú hafa verið lögð fram.

Að framangreindu virtu eru ákvarðanir Útlendingastofnunar felldar úr gildi og lagt fyrir stofnunina að taka mál kærenda til nýrrar meðferðar.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi. Lagt er fyrir stofnunina að taka mál kærenda til meðferðar á ný.

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate is instructed to re-examine the appellants’ cases.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður