30 september 2024

/

Úrskurður nr. 825/2024


Hinn 30. september 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 825/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24070052 og KNU24070053

Endurteknar umsóknir í málum [...], [...] og barns þeirra

  1. Málsatvik

Með úrskurði nr. 287/2024, dags. 21. mars 2024, staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 17. október 2023, um að taka umsóknir [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir M) og [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir K) og barns þeirra, [...], fd. [...], ríkisborgara Palestínu (hér eftir A), um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki til efnismeðferðar og vísa þeim frá landinu. Niðurstaða kærunefndar var birt kærendum 22. mars 2024.

Kærendur lögðu fram endurteknar umsóknir og beiðnir um frestun réttaráhrifa 3. maí 2024 og var þeim vísað frá með úrskurði kærunefndar nr. 645/2024, dags. 14. júní 2024. Kærendur lögðu öðru sinni fram endurteknar umsóknir 4. júlí 2024 ásamt greinargerð og fylgigögnum. Þá barst tölvubréf frá réttindagæslumanni A sama dag sem fylgdi sömu gögn og kærendur lögðu fram með endurtekinni umsókn sinni. Með tölvubréfi til nefndarinnar 31. júlí 2024 óskaði réttindagæslumaður A eftir því að koma fyrir nefndina og ræða þau sjónarmið sem fram komi í umræddum gögnum. Með vísan til 7. mgr. 8. gr. laga um útlendinga var ekki talin ástæðu til að fá réttindagæslumann til viðtals hjá nefndinni.

Upplýsingar um málsmeðferð í máli kærenda bárust kærunefnd frá Útlendingastofnun 5. júlí og 24. september 2024, stoðdeild ríkislögreglustjóra 19. júlí og 12., 13., 20. og 26. ágúst 2024, Vinnumálastofnun 22. ágúst 2024, Reykjavíkurborg 26. ágúst 2024 og Barnavernd Reykjavíkur 25. júlí 2024. Viðbótargögn bárust frá kærendum 25. júlí, 13. og 14. ágúst 2024. Viðbótarathugasemdir bárust frá kærendum 23. september 2024.

Endurteknar umsóknir kærenda byggja á 35. gr. a laga um útlendinga nr. 80/2016. Krefjast kærendur þess að hinar kærðu ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og lagt verði fyrir stofnunina að taka umsóknir þeirra til efnismeðferðar hér á landi með vísan til þess að sérstakar ástæður séu uppi í máli fjölskyldunnar, sbr. 2. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Þá byggja kærendur á tímafresti 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

  1. Málsástæður og rök kærenda

Í greinargerð gera kærendur kröfu á grundvelli 35. gr. a laga um útlendinga um að endurteknar umsóknir þeirra verði teknar til meðferðar í ljósi nýrra upplýsinga varðandi heilsufar og umönnunargetu M og K og aðstæðna fjölskyldunnar vegna veikinda og fötlunar A. Með vísan til niðurstöðu málsins er ekki tilefni til að reifa frekar efnistök greinagerðar kærenda.

Í tölvubréfi frá kærendum, dags. 23. september 2024, kemur fram að það liggi núna fyrir að Spánn beri ekki lengur ábyrgð á umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd. Þau fari þess á leit við nefndina að umsóknir þeirra verði teknar til efnismeðferðar hér á landi þar sem sex mánaða frestur íslenskra stjórnvalda til þess að flytja þau til Spánar sé runninn út, sbr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar.

  1. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga skal endurtekinni umsókn vísað frá. Þó skal taka endurtekna umsókn til meðferðar að nýju ef umsækjandi er staddur hér á landi og nýjar upplýsingar liggja fyrir í máli hans sem leiða til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsókn hans samkvæmt 24. gr. laganna.

Í 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er mælt fyrir um að umsókn um alþjóðlega vernd skuli tekin til efnismeðferðar nema undantekningar sem greindar eru í a-, b- og c-liðum ákvæðisins eigi við. Samkvæmt c-lið 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga er stjórnvöldum heimilt að synja því að taka umsókn um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar ef krefja má annað ríki, sem tekur þátt í samstarfi á grundvelli samninga sem Ísland hefur gert um viðmiðanir og fyrirkomulag við að ákvarða hvaða ríki skuli fara með beiðni um alþjóðlega vernd sem lögð er fram hér á landi eða í einhverju samningsríkjanna, um að taka við umsækjanda. Í samræmi við samning ráðs Evrópusambandsins og Íslands og Noregs um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna samþykkti Ísland Dyflinnarreglugerðina, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 1/2014.

Í III. kafla Dyflinnarreglugerðarinnar koma fram viðmið, í ákveðinni forgangsröð, um hvaða ríki skuli bera ábyrgð á umsókn um alþjóðlega vernd. Hinn 6. júní 2023 var beiðni um viðtöku kærenda, barns þeirra og umsókna þeirra um alþjóðlega vernd beint til yfirvalda á Spáni á grundvelli 2. eða 3. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Í svari frá spænskum yfirvöldum, dags. 15. júní 2023, samþykktu þau viðtöku kærenda á grundvelli 2. mgr. 12. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar þar sem kærendur höfðu fengið útgefnar vegabréfsáritanir af hálfu spænskra yfirvalda.

Við rekstur máls sem fer samkvæmt fyrirkomulagi Dyflinnarreglugerðarinnar þurfa stjórnvöld að gæta að tilteknum tímafrestum, sbr. m.a. 1. og 2. mgr. 29. gr. reglugerðarinnar sem fjallar um fyrirkomulag og fresti. Í því ákvæði felst m.a. að flutningur á umsækjanda skal fara fram innan sex mánaða frá því að lokaákvörðun var tekin um kæru eða endurskoðun. Þó er heimilt í undantekningartilvikum að framlengja frest til flutnings í að hámarki 18 mánuði ef hlutaðeigandi einstaklingur hleypst á brott (e. abscond). Ef umræddir frestir líða leiðir það til þess að ábyrgð á viðkomandi umsókn um alþjóðlega vernd færist sjálfkrafa yfir til þess aðildarríkis sem leggur fram beiðni, sbr. til hliðsjónar dómur Evrópudómstólsins í máli [...], C-201/16, frá 25. október 2017 (26.-34. mgr. dómsins). Ef frestir samkvæmt 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar líða er íslenskum stjórnvöldum því ekki lengur heimilt að krefja viðkomandi ríki um viðtöku einstaklings í skilningi c-liðar 1. mgr. 36. gr. laga um útlendinga. Í úrskurði kærunefndar í máli nr. 237/2019 ákvað kærunefnd að þegar mál hefur verið kært til kærunefndar og réttaráhrifum frestað yrði upphafstími þessa frests miðaður við dagsetningu birtingar úrskurðar kærunefndar. Eins og að framan greinir samþykktu spænsk stjórnvöld endurviðtökubeiðni íslenskra stjórnvalda 15. júní 2023. Þá var endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi birt fyrir kærendum 22. mars 2024. Rann því upphaflegur sex mánaða frestur til þess að flytja kærendur úr landi út 23. september 2024.

Hinn 23. september 2024 óskaði kærunefnd eftir upplýsingum frá Útlendingastofnun um flutning kærenda og barns þeirra til viðtökuríkis, s.s. hvort frestur til flutnings hafi verið framlengdur úr sex mánuðum í 18 mánuði, sbr. 2. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Svar Útlendingastofnunar við fyrirspurn kærunefndar barst 24. september 2024 en þar kemur fram að frestur til flutnings hafi ekki verið framlengdur í máli kærenda. Þá telji stofnunin að kærendur séu enn stödd hér á landi.

Samkvæmt framangreindu er frestur til að flytja kærendur og barn þeirra til viðtökuríkis liðinn samkvæmt 1. mgr. 29. gr. Dyflinnarreglugerðarinnar. Af því leiðir að ábyrgð á umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd fluttist yfir á íslensk stjórnvöld þegar umræddur frestur leið og því er ekki lengur hægt að krefja viðtökuríkið um að taka við fjölskyldunni á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar.

Í ljósi framangreinds, samfelldrar dvalar kærenda hér á landi síðan þau lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd og þeirrar staðreyndar að kærendur séu stödd á landinu, er það mat kærunefndar að nýjar upplýsingar liggi fyrir í máli þeirra sem leiði til þess að sýnilega auknar líkur séu á því að fallist verði á fyrri umsóknir þeirra samkvæmt 24. gr. laganna, sbr. 1. mgr. 35. gr. a laga um útlendinga. Er það því niðurstaða kærunefndar að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka umsóknir kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd til efnismeðferðar.


Úrskurðarorð:

Endurteknar umsóknir kærenda og barns þeirra eru teknar til meðferðar.

Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru felldar úr gildi og lagt er fyrir Útlendingastofnun að taka mál kærenda og barns þeirra til efnismeðferðar.

The appellants’ and their child’s subsequent applications shall be examined.

The decisions of the Directorate of Immigration are vacated. The Directorate shall examine the merits of the appellants’ and their child’s application for international protection in Iceland.

F.h. kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður.