10 október 2024

/

Sigurður Páll Ólafsson skipaður skrifstofustjóri skrifstofu efnahagsmála

{image.Description}
Silla Páls
Sigurður Páll Ólafsson

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur skipað Sigurð Pál Ólafsson í embætti skrifstofustjóra skrifstofu efnahagsmála hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Staðan var auglýst í ágúst sl. Sigurður Páll var valinn í embættið að fengnum tillögum frá ráðgefandi hæfnisnefnd. Hann tók við embættinu 9. október.

Sigurður Páll útskrifaðist með B.A. gráðu í hagfræði 2015 frá Háskóla Íslands, meistarapróf í þjóðhagfræði og fjármálamörkuðum 2016 frá Barcelona Graduate School of Economics og hefur skilað inn doktorsritgerð í hagfræði við Copenhagen Business School og er áætluð útskrift í október 2024. Sigurður Páll hefur um átta ára skeið starfað sem sérfræðingur og settur skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála.