10 október 2024

/

Úrskurður nr. 1009/2024


Hinn 10. október 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1009/2024

í stjórnsýslumálum nr. KNU24060183 og KNU24060184

Kæra […] og […] þeirra á ákvörðunum Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 28. júní 2024 kærðu […], fd. […] (hér eftir M) og […], fd. […] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 14. júní 2024, um að synja þeim og barni þeirra, […], fd. […] (hér eftir A), ríkisborgara Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og barn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 19. júní 2023. Kváðust kærendur hafa flúið frá Venesúela af því að fulltrúar stjórnarinnar í heimaríki séu að leita að þeim til að drepa þau. Fulltrúar stjórnarinnar vilji finna þau vegna þess að þau hafi þurft að múta þeim, þeir hafi stolið bíl frá M. Lögreglan hafi tekið af þeim bifreið þeirra. M hafi starfað við að þrífa lestar og K hafi verið heimavinnandi. Kærendur kváðust ekki hafa sinnt herþjónustu, unnið hjá lögreglu eða í öryggisfyrirtæki. Kærendur og barn þeirra kváðust vera heilsuhraust. Kærendur kváðust eiga fjölskyldu hér á landi og þess vegna hafi þau valið að koma til Íslands.

Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. M greindi frá því að vera fæddur og uppalinn til 19 ára aldurs í Karakas og hafa búið í […] í Bolívar fylki þegar hann hafi flúið frá heimaríki. M greindi frá því að hann hafi flúið heimaríki í júní 2023 en að vandamál sem hann hafi lent í hafi átt sér stað 23. febrúar 2023. M greindi frá því að hann og fjölskylda hans hafi búið í einbýlishúsi í hans eigu í Venesúela og að börn hans hafi gengið í skóla. M greind frá því að eiga móður og systkini í Venesúela og 16 ára barn úr fyrra sambandi. M kvaðst þjást af [...] og að börn hans séu heilsuhraust. M tilheyri hvorki sérstöku þjóðarbroti né minnihluta í heimaríki. Þá væri hann hvorki verið aðili að stjórnmálaflokki né virkur í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. M greindi frá því að hafa starfað hjá nafngreindu ríkisreknu járnnámufyrirtæki. Y, og hafi verið forvarnarfulltrúi innan fyrirtækisins þar sem þeir hafi verið með einhvers konar stéttarfélag. Það hafi þurft að kjósa á tveggja ára fresti í það hlutverk. Starf hans hafi annars falist í að keyra lest í námunni. Síðar í viðtali greindi M frá því að starf hans hafi falist í að skoða pappíra og yfirfara lestarvagna áður en hann heimilaði lestum að fara af stað. Ef ekki hafi verið viðeigandi gögn til staðar þá hafi lestin ekki mátt fara af stað. Glæpahópurinn Colectívos hafi verið að skipta sér af í starfi hans og viljað að tilteknar lestir færu af stað án þess að hafa tilskilin leyfi og þá hafi þeir viljað að ferðir tiltekinna lesta væru ekki skráðar. Þar sem M hafi ekki viljað heimila för lesta sem ekki hefðu tilskilin leyfi hafi hann fengið hótanir m.a. frá nafngreindum yfirmanni sínum, X, sem hafi verið bróðir forseta fyrirtækisins. Hann hafi þrýst á M að heimila lestunum að fara sína leið. M hafi hins vegar alltaf neitað því þegar hann hafi verið á vakt allt þar til hann hafi fengið skipun um að heimila lestum að fara því annars yrðu meðlimir Colectívos reiðir. Forseti fyrirtækisins hafi einnig verið að skipta sér af og M hafi verið fyrir þeim. M greindi frá því að þegar hann hafi neitað að gera eitthvað í vinnunni hafi yfirmennirnir sent meðlimi glæpahópsins Colectívos að hóta honum. Ef M hafi ekki verið í vinnu hafi meðlimir glæpahópsins komið heim til hans og skipað honum að gera það sem hann hafi verið beðinn um. Þessar hótanir hafi átt sér stað á tímabilinu september til desember 2022. Hótanirnar hafi óbeint beinst að fjölskyldu hans þar sem tekið hafi verið fram að þeir vissu hvar fjölskylda hans væri og hvar þau byggju. M hafi verið verið settur í önnur verkefni í vinnunni og hann hafi ákveðið að segja starfi sínu lausu í janúar 2023 þar sem hann hafi verið hræddur um að hann yrði settur í fangelsi ef upp kæmist að þessir ólöglegu hlutir væru að gerast á hans vakt. M hafi lagt fram fyrsta uppsagnarbréfið 18. janúar 2023 en þeir hafi neitað að taka við því og hafi sagt að hann yrði að halda áfram að vinna. Vandamálin hafi haldið áfram og M hafi lagt fram annað uppsagnarbréf 10. febrúar 2023. Hinn 14. febrúar hafi M verið rænt er hann hafi verið á leið úr vinnu. Honum hafi verið rænt á stórri götu og settur inn í bíl og fluttur á annan stað þar sem kvenmaður hafi beitt hann ofbeldi. Konan hafi sagt að þetta væru afleiðingarnar af því að starfa ekki með Colectívos. Meðlimir glæpahópsins hafi krafið M um bifreið hans. M hafi skrifað skilaboð til K um að koma með pappírana fyrir bílinn en gefið henni merki, sem þau hafi verið búin að ákveða áður, um að hann væri í hættu. K hafi farið beint til lögreglunnar og K og lögreglan hafi mætt á staðinn þar sem hann hafi verið í haldi. Lögreglan hafi tekið allt fólkið og handtekið M, K og A og haldið þeim þangað til daginn eftir. Lögreglan hafi látið M skrifa undir eigandaskipti á bifreiðinni. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að það hafi verið group CONA (s. Comando Nacional Antiextorsión y Secuestro de la GNB, e. National Anti-Extortion and Kidnapping Command of the Bolivarian National Guard) sem hafi látið hann gera það. Daginn eftir, á sunnudegi, hafi meðlimir Colectívos og lögreglan farið með M og fjölskylduna heim til þeirra og honum hafi verið sagt að mæta aftur til vinnu á miðvikudeginum. M hafi einnig verið sagt að þetta hafi verið fyrsta viðvörun, næst myndu þeir drepa þau. M greindi frá því að hafa ekki gögn um áverka eftir ofbeldið né skilaboð sem hann hafi sent til K þar sem þau hafi farið strax daginn eftir og síminn sem hann hafi sent skilaboð til K hafi verið tekin af honum strax. M greindi frá því að hafi misst hús fjölskyldunnar strax eftir að þeim hafi verið rænt og allar þeirra eignir vegna þess að þau hafi þurft að flýja. Kærendur hafi farið ásamt A til Karakas og verið þar í tvo daga. Þá hafi þau farið að landamærum Kólumbíu og Venesúela. Á leiðinni hafi þau þurft að fara í gengum margar eftirlitsstöðvar og þar hafi bæði lögreglan og Colectívos haft upplýsingar um alla og þess vegna hafi þau fengið far með öðrum til að komast í gegn á eftirlitsstöðvunum. Þegar M hafi verið á landamærunum hafi hann fengið sent myndband þar sem fram hafi komið að þeir hafi vitað hvert hann væri að fara með fjölskylduna sína. M hafi fengið meðmæli til að starfa á sveitabæ þar sem hann hafi getað unnið sér inn pening til að flýja land og þá hafi þau fengið fjárhagsaðstoð frá fjölskyldunni. Kærendur og A hafi dvalið á sveitabænum í kringum þrjá mánuði, þar til í júní, en þá hafi þau farið til Kólumbíu og síðan til Íslands. Þegar þau hafi dvalið á sveitabænum hafi M fengið annað myndband þar sem þeir hafi sagt að þeir hafi vitað að hann væri nálægt Kólumbíu. M hafi svo fengið þriðja myndabandið þegar hann hafi verið kominn til Íslands. Á myndböndunum hafi m.a. komið fram að þeir starfi fyrir Colectívos og hafi starfsemi innan og utan Venesúela. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að fyrsta myndbandið hafi verið sent á móður hans, annað á bróður hans og það þriðja á K þegar þau hafi verið komin til Íslands. M greindi frá því að hafa fengið fréttir af því að staðan í fyrirtækinu sem hann starfaði hjá væri óbreytt og þessir sem hafi haldið áfram að starfa þar hafi verið fangelsaðir. M greindi frá því að þeir sem væru á eftir þeim séu glæpasamtök sem hafi náð til margra landa og heiti Tren de Aragua. M greindi frá því að ríkisstjórnin hefði her sinn, Tren de Aragua, við hlið sér. Þetta séu fyrrum fangar sem fái svo skilríki í þessum samtökum. Þeir starfi hvað mest austar í landinu vegna þess að þar sé að finna gull, demanta og önnur efni og þeir séu að passa upp á svæðið sem þeir haldi fram að sé þeirra eign. Þar ráði samtökin ríkjum og stjórni stjórnvöldum. M hafi starfað á þessu svæði. M kvaðst óttast að fjölskyldan yrði drepin ef þau sneru aftur til heimaríkis. Fjölskyldan geti ekki búið annar staðar í landinu þar sem þeir sem eigi námusvæðin séu í beinum samskiptum og samstarfi við öll önnur landsvæði og fylki og á námusvæðum komi fólk úr öllum áttum og svæðum og því sé auðvelt að fá upplýsingar um allt og alla. M greindi frá því að hafi hann leitað til CONA og að einstaklingar sem þau hafi talað við þar hafi ráðlagt þeim að fara frekar en að kæra þar sem um leið og lögð væri fram kæra fengju samtökin vitneskju þar um. Síðar í viðtalinu greindi M frá því að það hafi verið vinur hans hjá CONA sem hann hafi hringt í til að fá ráðleggingar. M greindi frá því að hann vissi ekki á hvern bíllinn hans hafi verið skráður en hann gerði ráð fyrir því að það hafi verið meðlimur Colectívos.

M kvaðst ekki hafa nein gögn um að hann hafi verið settur í fangelsi. M kvað aðra starfsmenn fyrirtækisins hærra setta en hann, sem barist hafi fyrir réttindum starfsmanna og neitað að leyfa tilteknum lestum að fara, hafa verið fangelsaða. Lögreglan hafi sakað þá um brot líkt og föðurlandssvik og hryðjuverk. Þeir hefni sín á öllum sem hugsi öðruvísi en þeir, fangelsi þá eða drepi. M greindi frá tveimur nafngreindum einstaklingum sem hafi starfað hjá Y og hafi verið fangelsaðir. M greindi frá því að það hafi verið tvö mismunandi stéttarfélög hjá Y, annars vegar fyrir þá sem séu meðlimir Colectívos og tengist yfirvöldum og annað fyrir hina sem séu andstæðingar þeirra og verji réttindi starfsfólksins. M kvaðst ekki vita hvort hann ætti að segja í hvoru stéttarfélagi hann hafi verið, þar sem hann hafi bara verið starfsmaður Y en það hafi verið kosningar á tveggja ára fresti og starfsmennirnir hafi verið að verja réttindi þeirra sem séu í fangelsi og að passa upp á að allt færi rétt fram. Starfsmennirnir hafi verið að styðja stéttarfélagið sem hafi viljað gera hlutina rétt. M hafi verið kosinn í það hlutverk að vera forvarnarfulltrúi og að hann teldi það vera pólitískt hlutverk þar sem það hafi verið hlutverk hans að stöðva allskonar sem hafi eyðilagt fyrir hinum sem séu meðlimir Colectívos, og hafi verið í sama hóp og stjórnvöld. M greindi frá því að öll fyrirtæki hafi sitt stéttarfélag, meðlimir Colectívos hafi verið með sitt stéttarfélag sem hafi verið stutt af ríkisstjórninni og þannig séu tvö stéttarfélög innan allra fyrirtækja. Aðspurður um hvort M hafi verið í hinu stéttarfélaginu, kvaðst hann hafa verið 100% sammála þeim sem hafi verið að gera hlutina rétt. M greindi frá því að ótilgreindir meðlimir Colectívos séu að nota húsið hans í dag undir störf sín. Glæpahópurinn sé að nota húsið sem starfsstöð þegar þeir vilji hóta einhverjum. M hafi fengið fregnir af þessu frá vinkonu A. M hafi beðið hana um að taka mynd en hún hafi verið of hrædd til þess. M kvaðst geta trúað því að hann fengi ekki húsið sitt til baka ef hann sneri aftur til Venesúela og að hús hans væri komið á nafn einhvers annars einstaklings.

Í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun, dags. 8. apríl 2024, greindi K frá því að vera fædd og uppalin í […] í Bolívar fylki í Venesúela þar sem hún hafi búið, fyrir utan þrjá síðustu mánuðina áður en hún hafi flúið heimaríki. Þá hafi K búið í […] sem sé svæði við landamæri Kólumbíu. Kærendur hafi farið frá heimabæ sínum um miðjan febrúar 2023 og farið á milli um það bil sjö fylkja. K hafi búið í einbýlishúsi í eigu M og K í heimaríki. K hafi ekki verið í launuðu starfi en hafi verið með lítinn rekstur þar sem hún hafi selt mat og slíkt frá heimili sínu. A hafi gengið í skóla sem hafi gengið vel. K greindi frá því að eiga foreldra og systkini í heimaríki. K greindi frá því að vera [...] en væri að öðru leyti heilsuhraust og að A væri við góða heilsu. K greindi frá því að tilheyra hvorki sérstöku þjóðarbroti né minnihlutahópi í heimaríki og væri hvorki aðili að stjórnmálaflokki né virk í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki. K greindi frá því að M hafi unnið hjá ríkisfyrirtæki sem hafi verið að ferja járn, málm og efni úr námum á námusvæði. M hafi verið járnbrautarstjóri en hafi síðar færst til í starfi og byrjað að starfa sem gæðastjóri þar sem hann hafi verið að fylgjast með að allt sem væri flutt á milli væri rétt. M hafi sagt K að hann hafi verið neyddur til að gera hluti sem hafi ekki verið í lagi. M hafi neitað að gera það og þá hafi honum byrjað að berast hótanir. Einstaklingar sem hafi hótað honum hafi verið meðlimir vopnaðra hópa á vegum yfirvalda. Yfirmaður M hafi verið ósáttur og hafi hótað honum og sagt að ef M gerði ekki það sem þessir hópar færu fram á yrðu afleiðingar fyrir M sem myndi hafa áhrif á hann og fjölskyldu hans. M hafi komið heim einn daginn og tilkynnt K að eftir framangreinda hótun hafi hlutirnir versnað í vinnunni og að yfirmaður hans hafi verið að hóta honum. Meðlimir vopnuðu hópanna sem störfuðu í fyrirtækinu hafi rænt M til að þrýsta á hann að leyfa efnum að fara á milli án vandræða. Þeir hafi ætlað að taka bifreið þeirra til að beita frekari þrýstingi. K og M hafi verið búin að ræða um að M væri í hættu af þessum sökum og þegar hann hafi sent henni skilaboð og beðið hana um að koma með pappíra fyrir bifreiðinni hafi hún vitað að hann væri í hættu. K hafi farið til lögreglunnar til að tilkynna að M væri í hættu og til að fá aðstoð. Lögreglan hafi ekki tekið neina skýrslu en spurt hvort K vissi hvar M væri í haldi. K hafi fengið heimilisfangið sem M hafi verið í haldi til að koma með pappírana og lét lögreglu það í té. Þegar K hafi komið á staðinn ásamt lögreglunni hafi komið í ljós að lögreglan væri í samstarfi með meðlimum glæpahópsins. M, K og A hafi verið handtekin og haldið yfir nótt. Síðar í viðtali staðfesti K að það hafi einungis verið M, K og A sem hafi verið handtekin og að þeir sem hafi haft M í haldi hafi verið í sama hóp og lögreglan. Aðilarnir hafi ekki handjárnað þau, heldur farið með þau á annan stað sem þeir hafi átt og skilið þau þar eftir yfir nóttina í fangaklefa. Kærendur hafi ekki vitað hvort aðrir hafi verið þarna, en þetta hafi verið herbergi, þar hafi ekki verið rúm, vaskur eða klósett og þau hafi ekki fengið neitt að borða. Það hafi ekki verið tekin skýrsla af þeim þar sem þeir hafi verið að gera eitthvað ólöglegt og hafi ekki viljað skilja eftir sig nein spor. Daginn eftir hafi lögreglan keyrt þau heim og M hafi verið skipað að mæta í vinnuna aftur annars vissi hann hvað myndi gerast. K hafi túlkað það sem svo að þeir hafi ætlað að drepa þau fjölskylduna. Þá hafi kærendur ákveðið að flýja. K greindi frá því að hún hefði afrit af skilaboðum sem M hafi sent henni á meðan hann hafi verið í haldi. K greindi frá því að ofsóknirnar hafi byrjað í september 2022 og að M hafi verið rænt 14. febrúar 2023. Þar á undan hafi M afhent tvenn uppsagnarbréf til vinnuveitanda. Kærendur hafi farið með A til móður M og þaðan hafi þau flúið í gegnum sjö eða átta fylki til að komast til […]. Þar hafi þau verið í kringum þrjá mánuði til að safna pening til að flýja. Þegar þau hafi verið í […] hafi þeim borist hótun frá vopnaða hópnum þar sem þeir hafi sent kærendum myndband. K greindi frá að kærendum hafi borist fyrsta hótunin á flótta og næsta þegar þau hafi verið í […]. K greindi frá því að þeir hafi vitað hvar kærendur hafi verið því að þetta hafi verið vopnaður hópur á vegum yfirvalda og þeir geti nálgast allar upplýsingar sem þeir vilji. Þetta sé stór vopnaður hópur í Venesúela sem hafi verið að hóta M og að í myndbandi, sem hafi verið sent til K, hafi komið fram að þeir muni myrða fjölskyldu hans og nafngreint K og A. Um fimm mánuðum fyrir viðtalið hafi hópurinn nálgast fjölskyldu M í Venesúela og sent kærendum myndband í gegnum fjölskyldu M. Þeir hafi ekki náð til M og K af því þau hafi verið komin með ný símanúmer. Í myndbandi sem sent hafi verið til fjölskyldunnar hafi komið fram að þeir viti að þau séu ekki í landinu, að M sé með fjölskyldu sinni og megi ekki koma aftur til landsins annars verði þau myrt. Þeim hafi borist myndbandið frá fjölskyldumeðlim í gegnum samskiptaforritið WhatsApp. Glæpahópar hafi verið í sambandi við fjölskyldu M en ekki fjölskyldu K. Þá greindi K frá því að þau hafi ekki leitað til lögreglunnar aftur eftir að hafa leitað til þeirra þegar M hafi verið rænt. K kvaðst óttast að fjölskyldan yrði myrt sneri hún aftur til Venesúela. Í ljósi hótana sem þeim hafi borist eftir að þau hafi yfirgefið heimabæ sinn telji K ekki mögulegt fyrir þau að búa annars staðar í Venesúela. Glæpahópurinn starfi um alla Suður-Ameríku. K kvaðst óttast um líf sitt og að vera beitt ofbeldi í heimaríki vegna hótana og áfalla sem þau hafi orðið fyrir og telji þau ekki geta fengið vernd yfirvalda þar sem þau hafi ekki fengið vernd þegar þau hafi þurft á því að halda. K greindi frá því að aðstæður A hafi verið venjulegar, hann hafi sótt skóla en með þeim áhættum sem hafi fylgt því að vera þar og ótta um að honum yrði gert mein. A sé í sömu hættu í kærendur í heimaríki.

A mætti til viðtals hjá Útlendingastofnun 10. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og túlki. A greindi frá því að vera fæddur og uppalinn í [...] í Venesúela. A greindi frá því að vera almennt heilsuhraustur, að hann hafi farið til læknis ef hann hafi orðið mjög veikur en að það hafi verið dýrt að sækja sér heilbrigðisþjónustu í heimaríki. A hafi fengið nóg af mat og haft aðgang að vatni. A greindi frá því að eiga ömmu, frænda og hálfbróður í Venesúela sem búi þar hjá móður sinni. A greindi frá því að K hafi verið með litla verslun sem hún hafi rekið á heimili þeirra og að M hafi unnið við að stjórna lestarumferð. A hafi gengi í skóla og liðið vel þar, A hafi getað spilað hafnabolta og farið út með vinum sínum og liðið vel heima hjá sér þar til að vandamál föður hans hafi byrjað. A kvaðst ekki geta snúið til baka til heimaríkis vegna þess sem hann hafi séð og upplifað tengt M. A hafi liðið illa heima hjá sér í Venesúela og það hafi verið óöruggt þar. A kvaðst vera hræddur við ríkisstjórnina og að honum hafi fundist einhver vera að elta hann. Sá ótti hafi byrjað eftir handtökuna. A greindi frá því að fjölskyldan hafi flúið vegna vandamála með M en hann viti ekki nákvæmlega hvað hafi gerst. A greindi frá því að þau fjölskyldan hafi verið tekin. Þau hafi ekki verið handtekin en einn dag hafi K sagst vera að fara með hann á lögreglustöðina og það hafi verið líkt og þeir hafi vitað að þau væru að koma því þegar K og A hafi komið hafi M verið í bifreið fyrir framan lögreglustöðina. K og A hafi farið inn í bifreiðina og þau hafi verið tekinn á annan stað, verið sett í herbergi og haldið þar frá klukkan 13 þar til daginn eftir. A hafi ekki fengið að vita af hverju þeim hafi verið haldið þarna. M hafi reglulega verið sóttur og tekinn út úr herberginu. A greindi frá því að hafa ekki fengið mat eða vatn á meðan þau hafi dvalið í herberginu og að þau hafi ekki verið beitt ofbeldi. A greindi frá því að eftir þetta atvik hafi þau farið að landamærum Kólumbíu og Venesúela og verið þar í um fimm mánuði til að safna fyrir flugmiðum til Íslands. A hafi sjálfur þurft að vinna á sveitabænum og hafi ekki getað gengið í skóla.

Kærendur lögðu fram fjölda gagna við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun. Kærendur lögðu m.a. fram myndband af M við störf, þrjú myndbönd, afrit af prentuðu bréfi sem ber með sér vera frá X, ljósmynd af starfsmannaskírteini M hjá Y, ljósmynd framhlið og bakhlið skírteinis um að M sé fulltrúi […] sveitafélagsins, afrit af skírteinum um að M hafi tekið þátt í tækninámskeiðum á vegum Y, afrit af staðfestingu, dags. 6. janúar 2020, um að M hafi starfað hjá Y sem lestarstjóri, afrit af því sem virðist vera útprent af starfsmannayfirliti úr tölvukerfi Y, dags. 23. september 2020, afrit af tveimur uppsagnarbréfum, dags. 18. janúar og 10. febrúar 2023, skráningaskírteini bifreiðar í eigu M, ljósmynd af samtali við nafngreindan einstakling á samskiptamiðlinum WhatsApp og afrit af fréttum af tveimur forystumönnum stéttarfélagsins Sutis/Sidor sem hafi verið handteknir og settir í varðhald fyrir að mótmæla og nýta andmælarétt sinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og barni þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Barni kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 28. júní 2024 og kærunefnd barst greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum 15. júlí 2024. Kærunefnd bárust frekari gögn frá kærendum 23. ágúst 2024.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram að M hafi verið [...] í Venesúela. M hafi unnið við að flytja efni með lestum hjá nafngreindu ríkisreknu námufyrirtæki. M hafi verið forvarnarfulltrúi innan stéttarfélags í starfi sínu, hann hafi verið kosinn í það hlutverk, en starf hans hafi falist í því að keyra lestar. M greindi frá því að margir samstarfsfélagar hans í stéttarfélaginu innan fyrirtækisins sem hann studdi við sem forvarnarfulltrúi væru í fangelsi. M liti á það sem pólitíska afstöðu þar sem hlutverk hans hafi verið að stöðva það sem að glæpahópurinn Colectívos væri að gera innan fyrirtækisins. Glæpahópurinn hafi verið með sitt eigið stéttarfélag innan fyrirtækisins en M hafi verið í öðru stéttarfélagi innan fyrirtækisins. M hafi flúið vegna ofsókna og líflátshótana á vinnustaðnum. M hafi verið að mótmæla hlutum sem hafi verið rangir á vinnustaðnum. Colectívos hafi haft einn stjórnanda á hverju svæði og þetta hafi verið á svæðinu […]. Vegna þessara mótmæla hafi honum verið rænt af meðlimum Colectívos á heimleið úr vinnu 14. febrúar 2023 og haldið í sólarhring. Honum hafi verið tjáð að þetta hafi verið afleiðingar þess að starfa ekki með glæpahópnum. Meðlimir glæpahópsins hafi ætlað að taka af honum bílinn og hann hafi komið skilaboðum á eiginkonu sína um að koma með pappíra og í leiðinni að hann væri í hættu. K hafi verið svo stressuð að hún hafi leitað til lögreglu eftir aðstoð. K hafi mætt með lögregluna á staðinn þar sem M hafi verið haldið og í kjölfarið hafi kærendur og barn þeirra verið handtekin og þau hafi verið látin sitja í fangaklefa yfir nótt. Á sunnudagsmorgni hafi þeim verið skutlað heim og strax eftir það hafi þau misst húsið sitt því þau hafi viljað flýja. Á flótta þeirra hafi kærendum borist myndband þar sem glæpahópurinn kvaðst vita að M væri að færa fjölskyldu sína. Fyrsta myndbandið hafi verið sent til móður M, annað myndabandið til bróður hans og þriðja myndbandið hafi verið sent á K. Myndböndin hafi komið frá meðlimum glæpahópsins El Tren de Aragua sem næðu til margra landa. Þessir hópar ynnu með ríkisstjórninni og væru eins og her ríkisins. Eftir að kærendur hafi flúið heimaríki hafi meðlimir Colectívos gert hús fjölskyldunnar upptækt og að það sé notað líkt og starfstöð eða lögreglustöð þar sem þeir fari með fólk sem þeir vilji hóta. Kærendur hafi fengið þessar upplýsingar frá vinkonu A sem hafi sagt þeim að það væru alltaf einhverjir úr glæpahópnum og mótorhjólin þeirra fyrir utan.

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela og meðferð heimilda mótmælt. Kærendur hafi borið fyrir sig ofsóknir af hálfu glæpahópsins Colectívos í Venesúela og óöryggi sem þau hafi upplifað þar. Kærendur vísa til landaupplýsinga máli sínu til stuðnings og telja að ljóst sé að viðbrögð stjórnvalda við glæpastarfsemi hafi ekki borið árangur í Venesúela. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Kærendur telja að það sé handahófskennt úr hvaða málsástæðum kærenda sé leist úr m.t.t. trúverðugleikamats. Kærendur vísa til framlagðra ganga fyrir kærunefnd máli sínu til stuðnings. Í ákvörðunum Útlendingastofnunar hafi frásagnir kærenda af hótunum verið metnar trúverðugar en frásögn ekki talin nægilega alvarleg.

Kærendur byggja á því að hinar kærðu ákvarðanir séu haldnar verulegum annmörkum, einkum á grundvelli rannsóknarreglu.

Börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og sé stjórnvöldum skylt að hafa það sem sé börnum fyrir bestu að leiðarljósi þegar þau taki ákvarðanir um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003, og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá beri samkvæmt 1. mgr. 22. gr. sama samnings að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu flóttamanns fái viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta þau réttindi sem við eiga og kveðið er á um í samningnum og öðrum alþjóðlegum löggerningum á sviði mannréttinda- og mannúðarmála. Kærendur hafni túlkun stjórnvalda á landaupplýsingum um skólagöngu barna og vísa til landaupplýsinga máli sínu til stuðnings. Menntunarmöguleikar barna séu því almennt séð ekki tryggðir í Venesúela. Með hliðsjón af einstaklingsbundnu mati á væntanlegum aðstæðum barnsins beri að veita þeim alþjóðlega vernd hér á landi.

Kærendur kalla eftir því að leyst verði úr máli þeirra með hliðsjón af þeirri óvissu sem ríki um hagi útlendinga sem hafi verið endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023 og þeirri staðreynd að ekki hafi hlotist lendingarleyfi í Karakas fyrir flutninga fólks til landsins sem hafi átt að fara fram í lok febrúar s.l. Þá virðist einungis hafa farið fram takmörkuð rannsókn stjórnvalda, enn sem komið er, á því hvað nákvæmlega hafi átt sér stað við endursendingu ríkisborgara til Venesúela og ekki hafi verið athugað hvort sú atburðarrás hafi haft áhrif á meðferð mála sem nú séu til vinnslu á kærustigi hjá kærunefnd útlendingamála. Við endurkomu fólks til Venesúela 15. nóvember 2023 hafi venesúelsk yfirvöld, þ.m.t. vopnaðir lögreglumenn, tekið á móti þeim, fólk hafi ekki verið frjálst ferða sinna, hafi þurft að fara í löng viðtöl við fulltrúa yfirvalda og hafi verið komið fyrir í varðhaldi í meira en sólarhring við afar bágar aðstæður. Þá hafi komið fram upplýsingar um að fólki hafi verið gert að skrifa undir skjöl og bannað að taka myndir af þeim skjölum. Þau atvik sem hér um ræði kunni að hafa áhrif á úrlausn um skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og skilyrði fyrir banni við endursendingu.

Kærendur vísa til þess að nýlega hafi stjórn Maduro rekið starfsfólk Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi í kjölfar þess að Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu að áætlanir stjórnarinnar til að takast á við hungur í Venesúela færu eftir því hvort að einstaklingar séu pólitískir stjórnarandstæðingar í landinu eða ekki. Landaupplýsingar í hinum kærðu ákvörðunum um umsvif sameinuðu þjóðanna hvers lags verkefni og átök í Venesúela séu því að mati kærenda á brostnum grundvelli og það hafi sérstaka þýðingu í tilviki þeirra verkefna sem séu nefnd í sambandi við réttindi barna.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur séu flóttamenn samkvæmt skilgreiningu 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem nefndir séu í a- til c- lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að þau séu þolendur ofbeldisglæpa af hálfu glæpahópsins Colectívos og að þau séu stjórnarandstæðingar. Kærendur hafi lýst því í viðtali að þeim hafi verið rænt og þau frelsissvipt yfir nótt af hálfu lögreglunnar sem hafi starfað með glæpahópnum sem hafi hótað M. Þá hafi kærendur lagt fram gögn máli sínu til stuðnings. Kærendur hafi ekki viljað tilkynna þetta rán, enda hafi lögreglan verið þátttakandi og starfi náið með glæpahópum á svæðinu. Hótanir og ofbeldi í slíku mæli af hálfu glæpahópsins Colectívos jafnist á við ofsóknir. Kærendur hafi hlutlægan ótta um ofsóknir þar sem þau hafi orðið fyrir ofbeldi af hálfu glæpahópsins og öll hafi þau orðið fyrir frelsissviptingu og líflátshótunum, en einnig af huglægum grundvelli sem nægi til þess að uppfylla skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Af framangreindu leiðir að þau atvik sem kærendur byggja á falla að hugtakinu ástæðuríkur ótti og uppfylli alvarleikastuðul 1. mgr. 38. gr laga um útlendinga. Verði ekki fallist á að atvik sem kærendur hafi lýst varði við ofsóknir telja kærendur að tilefni sé til að meta málið út frá samansafni athafna. Kærendur hafa fjölþættar, en samverkandi, ástæður fyrir flótta sínum þegar litið sé til þeirra aðstæðna sem kunni að bíða þeirra í heimaríki. Kærendur séu í slíkri stöðu að þegar þættir málsins séu teknir saman hafi þau ástæðuríkan ótta við ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37.gr. laga um útlendinga og uppfylli skilyrði alþjóðlegrar verndar, sbr. 1. mgr. 37. gr., 1., 2. og 3. mgr. 38. gr. og 1. mgr. 40 gr. sömu laga. Fyrir liggi að kærendur geti ekki hlotið vernd yfirvalda í Venesúela enda séu yfirvöld sjálf valdur að ofsóknum með ýmsum hætti sbr. a- liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærendur óttist ofbeldi af hálfu glæpahópsins Colectívos, sbr. b- og c- liður 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, en landaupplýsingar sýni ótvíræð tengsl hópsins við venesúelsk stjórnvöld. Kærendur vísa m.a. til leiðbeininga Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um gengjatengt ofbeldi máli sínu til stuðnings.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim og barni þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til málsástæðna sem settar hafa verið fram á fyrri stigum, í köflum um landaupplýsingar og í aðalkröfu. Í greinargerð til Útlendingastofnunar hafi komið fram að kærendur búi auk þess við almennt óöryggi í landinu og aðstæður í landinu hafi ekki batnað á undanförnum mánuðum. Það eigi einnig við um einstaklingsbundnar aðstæður kærenda sem séu þolendur ofbeldisglæpa. Kærendur hafi orðið fyrir ofbeldi og hótunum af hálfu glæpahópsins Colectívos, en af landaupplýsingum leiði að hópurinn ógni öryggi venesúelskra borgara með handahófskenndum árásum og glæpum í skjóli refsileysis. Hættan á ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð gegn kærendum eykst í ljósi þess að þau séu stjórnarandstæðingar. Morðtíðni í landinu sé sérstaklega há og stjórnarandstæðingum hafi verið mismunað hvað varðar mataraðstoð og peningaúthlutum frá venesúelskum stjórnvöldum. Að mati kærenda á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, lögskýringagagna sem standi að baki henni, landaupplýsingum og öðrum gögnum sem vísað hafa verið til sé ljóst að kærendur uppfylli skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd.

Kærendur telji hvorki raunhæft né sanngjarnt að ætlast til þess að þau og barn þeirra, setjist að annars staðar í heimaríki sínu sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga í ljósi þess að yfirvöld í heimaríki þeirra séu ábyrg fyrir þeirri alvarlegu stöðu sem þar ríki. Vopnaðir hópar líkt og kærendur hafi orðið fyrir séu starfandi um allt land.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og barni þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur vísa til athugasemda við ákvæðið í frumvarpi því er varð að lögum um útlendinga. Kærendur vísa til röksemda í aðal- og varakröfu þeirra og landaupplýsinga, einkum hvað varðar athafnaleysi stjórnvalda gagnvart ofbeldisglæpum sem stjórnvöld hafa t.d. ekki verið fús um að veita rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna í mars 2024. Kærendur telja að í Venesúela blasi við ófullnægjandi aðgangur barns þeirra að menntun og staða fjölskyldunnar varði við erfiðar félagslegar aðstæður. Ástand í mannréttindamálum í Venesúela sé bágborið. Um erfiðar félagslegar og efnahagslegar aðstæður sé að ræða auk almenns ótryggs ástands í landinu og ríkjandi mannréttindabrota. Ástandið hafi valdið kærendum þjáningu, ótta og óöryggi sem varði við mannúðaraðstæður. Möguleiki kærenda á vernd yfirvalda er útilokaður og lögregluvernd er engin. Með tilliti til alls framangreinds uppfylli kærendur skilyrði dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærendur telja að með endursendingu þeirra og barns þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telja kærendur að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu. Trúverðugleikamat Útlendingastofnun sé verulegum annmörkum háð sem og meðferð heimilda í ákvörðun allri. Þá sé handahófskennt úr hvaða málsástæðum kærenda sé leist m.t.t. trúverðugleikamats.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Réttarstaða barna

Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.

Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.

Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.

Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.

5.3 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og barn sitt. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og barn þeirra hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og barn þeirra séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.4 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 24. september 2024);
  • UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezeula (Britannica, síðast uppfært 28. september 2024);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 19. september 2024);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahófs myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.

Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun í júlí 2024 höfðu um 530 venesúelskir ríkisborgarar yfirgefið Ísland sjálfviljugir á árinu 2024. Þá hafi a.m.k. 520 þeirra farið aftur til Venesúela. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna almenns ástands. Þá byggja kærendur umsókn sína á því að þau séu í hættu í heimaríki vegna hótana og ofbeldis af hálfu glæpahópsins Colectívos og vegna stjórnmálaskoðana sinna. Ennfremur eigi þau á hættu ofsóknir af þeirri ástæðu einni að þau snúi til baka til heimaríkis.

Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 8. apríl 2024, greindu kærendur frá því að M hafi borist hótanir frá meðlimum glæpahópsins Colectívos í tengslum við starf hans hjá Y. Kærendur greindu frá því að M hafi verið rænt af meðlimum glæpahópsins og að kærendur og A hafi verið handtekin af lögreglunni og haldið föngnum í tæpan sólarhring. Lögreglan hafi verið í samstarfi með hópnum. Þá hafi lögreglan neytt þau til að skrifa undir eigandaskiptayfirlýsingu fyrir bílnum sínum. Þá greindi M frá því að einbýlishús kærenda hafi verið tekið yfir af meðlimum glæpahópsins Colectívos og væri í dag notað undir starfsemi hópsins.

Kærendur lögðu fram nokkur gögn við meðferð máls síns hjá kærunefnd. Kærendur lögðu m.a. fram afrit af bréfi frá nafngreindum aðila sem kveðst vera nágranni kærenda og frá forseta sveitastjórnar […]“, dags. 24. júní 2024, um að hús kærenda hafi verið tekið yfir af glæpahópnum Colectívos, ódagsett bréf frá móður K um ástæður flótta fjölskyldunnar, ljósmynd af lögreglufulltrúum í deild skipulagðra glæpastarfsemi (s. Division Contra La Delincuencia Organizada (D.C.D.O)) ásamt tveimur öðrum einstaklingum í borgarlegum klæðnaði í ótilgreindri íbúðargötu, ljósmynd af skilríkjum tilgreinds nágranna kærenda, skjáskot af skilaboðum á samskiptaforritinu WhatsApp sem bera með sér að vera frá móður K og myndband.

Að mati kærunefndar gætir töluverðs misræmis í heildarfrásögn kærenda í viðtölum hjá Útlendingastofnun. Þar má helst vísa til hótana sem kærendum eiga að hafa borist í tengslum við starf M, tengsl hans við stéttarfélag innan fyrirtækis sem hann hafi starfað fyrir og aðstæðna við meinta handtöku og frelsissviptingu kærenda og A. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hafa mótmælt hlutum sem honum hafi þótt rangir á vinnustað hans hjá Y. M hafi bannað lestum sem ekki hefðu viðeigandi gögn að flytja efni á milli staða. Meðlimir Colectívos hafi viljað að lestir með tiltekin efni fengju að fara án tilskilinna leyfa og án þess að það yrði skráð. Þegar M hafi neitað því hafi hann verið ofsóttur af yfimanni sínum X, bróður forseta fyrirtækisins, sem hafi skipað M að leyfa lestum að fara því annars yrðu meðlimir glæpahópsins reiðir. Kærendur lögðu fram afrit af ódagsettu, óundirrituðu og óstimpluðu bréfi, sem ber með sér að nafngreindur yfirmaður hjá fyrirtækinu Y hafi skipað M að fylgja eftir þeirri skipun að flytja tiltekin farm, annars hefði það afleiðingar fyrir M og fjölskyldu hans. Bréfið er útprentað og er án nokkurrar dagsetningar, stimpils eða undirskriftar. Bréfið ber merki fyrirtækisins í vinstra horni og er nafn prentað á bréfið með öðru letri en meginmál bréfsins. Í viðtali greinir kærandi einnig frá nafni yfirmannsins, sem ekki er sama nafn og nafnið sem prentað er á bréfið. Að mati kærunefndar verður einnig að teljast ólíklegt að yfirmaður M hafi sett fram fyrirskipanir tengdri starfsemi glæpahóps innan fyrirtækisins á blað og á bréf með merki fyrirtækisins. Í viðtali hjá Útlendingstofnun greindi M frá því að yfirmenn fyrirtækisins hafi verið í sama liði og meðlimir glæpahópsins og ef hann hlýddi ekki boðum þeirra í vinnunni hafi yfirmenn hans sent meðlimi Colectívos til að hóta þeim. Þannig hafi ástandið verið frá september og fram í desember 2022 en þá hafi honum borist framangreint bréf. Framangreind frásögn er ekki í samræmi við innihald bréfsins og frásögn kærenda um efni bréfsins þar sem bréfið ber með sér að M eigi að fara að skipunum yfirmannsins svo að „félagar“ þeirra, sem að sögn M eru meðlimir Colectívos, verði ekki reiðir og annað gæti haft afleiðingar fyrir M og fjölskyldu hans. Texti bréfsins ber þannig ekki með sér að það séu yfirmenn M sem nýti meðlimi Colectívos í að hóta starfsmönnum sem ekki hlýði þeim. Af framangreindu leiðir að bréfið hefur ekkert sönnunargildi og er frekar til þess fallið að draga úr trúverðugleika frásagna kærenda. Í viðtali greindi kærandi frá að í desember 2022 hafi hann verið settur í aðra stöðu innan fyrirtækisins og að hann hafi ekki getað sinnt fyrra starfi sínu. Í framhaldinu hafi M reynt að segja upp störfum hjá fyrirtækinu í tvígang, annars vegar í janúar og hins vegar í febrúar 2023. M hafi verið hræddur um að ef hann myndi leyfa ólöglegum hlutum að gerast á hans vakt og það kæmist upp myndi hann fara í fangelsi. Yfirmenn hafi neitað að taka við bréfunum og hafi sagt að hann yrði að starfa áfram. Kærendur leggja fram afrit af tveimur útprentuðum bréfum undirrituðum af M, dags. 18. janúar og 10. febrúar 2023, sem bera með sér að vera uppsagnarbréf. Af afritum bréfanna er ekki hægt að greina neitt sem staðfestir að framangreind bréf hafi verið afhent til yfirmanna M svo þau hafa lítið sönnunargildi hvað þá frásögn kæranda varðar. Þá má ráða á frásögn M að hann hafi verið að trufla starfsemi glæpahópsins innan fyrirtækisins og þeir hafi verið óánægðir með það. Að mati kærunefndar verður því að telja það ólíklegt að yfirmenn í fyrirtækinu, sem skipuðu M að gera eins og meðlimir glæpahópsins hafi óskað, hafi meinað honum að segja upp störfum.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að 14. febrúar 2023, stuttu eftir að hann hafi reynt að segja upp starfi sínu í seinna skiptið, hafi meðlimir Colectívos rænt honum á heimleið úr vinnu. M greindi frá því að þeir hafi farið með hann á annan stað þar sem að kvenmaður, sem stjórnaði glæpahópnum í heimaborg kærenda, hafi lamið hann og sagt honum að þetta væru afleiðingar þess að vinna ekki fyrir glæpahópinn Colectívos. Þá hafi glæpahópurinn viljað fá bifreið kærenda. M hafi sent skilaboð til K þar sem hann hafi beðið hana um að koma með pappíra fyrir bifreiðinni. Í skilaboðunum hafi hann komið þeim upplýsingum til K að hann væri í hættu með fyrirfram ákveðnu merki. K hafi verið svo stressuð að hún hafi farið beint til lögreglunnar og hafi mætt með lögregluna á staðinn þar sem M hafi verið í haldi. Lögreglan hafi komið og gert það sem hafi þurft að gera. Lögreglan hafi tekið allt fólkið og fjölskyldan öll hafi verið handtekinn. M, K og A hafi endað í fangelsi og M hafi verið látinn skrifa undir eigendaskipti að bifreiðinni þeirra á lögreglustöðunni þar sem þau hafi verið í haldi. Degi síðar, á sunnudagsmorgni, hafi lögreglan og meðlimir Colectívos farið með kærendur og A heim til þeirra og M hafi verið skipað að mæta til vinnu á miðvikudeginum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að M hafi verið rænt 14. febrúar 2023 af vopnuðum hópi á vegum yfirvalda sem hafi verið að þrýsta á M að gera hluti sem hann hafi ekki viljað gera í starfi. Eftir að meðlimir hópsins hafi rænt M, hafi þeir viljað taka bifreið þeirra til að þrýsta á M að vera samstarfsfús. Meðlimir hópsins hafi beðið hann um að biðja K að koma með pappíra fyrir bílnum, sem hann hafi gert og hún hafi þá vitað að M væri í hættu. Sama dag hafi K farið til lögreglunnar til að fá aðstoð. K hafi tekið A með sér á lögreglustöðina. Lögreglan og K hafi farið á staðinn þar sem M hafi verið í haldi og þar hafi komið í ljós að lögreglumennirnir tilheyrðu sama glæpahópi og einstaklingarnir sem hafi rænt M. K greindi frá því að M, K og A hafi verið handtekin og haldið í heila nótt. K greindi frá því að þeir hafi farið með þau á annan stað sem þau hafi átt og skilið þau þar eftir yfir nóttina. Framburður K ber ekki með sér að farið hafi verið með þau á lögreglustöð í fangaklefa. Daginn eftir hafi lögreglan keyrt kærendur og A heim og lögregluþjónar hafi sagt við M að hann ætti að mæta aftur til vinnu og hótað honum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 10. apríl 2024, kvaðst A ekki hafa verið handtekinn en einn dag hafi K sagt honum að þau væru að fara á lögreglustöðina. Þegar A og K hafi komið að lögreglustöðinni, hafi M verið í bifreið þar fyrir utan. Hafi A og K farið inn í bifreiðina og þau flutt á annan stað. Kærendur og A hafi verið sett inn í herbergi og haldið þar frá því klukkan 13 þar til daginn eftir. M hafi reglulega verið sóttur í herbergið. A greindi frá því að hafa hvorki fengið vatn né mat en þau hafi ekki orðið fyrir ofbeldi. Framangreint misræmi af meginatvikum í frásögn kærenda, einkum hvað varðar aðgerðir lögreglu í tengslum við handtöku, hvar þau hafi verið í haldi og hverjir hafi farið með þau aftur heim, er til þess fallið að draga úr trúverðugleika framburðar kærenda.

Við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram þrjú myndbönd sem þau greindu frá að hafa fengið eftir að kærendur hafi flúið heimaborg sína. Kærendur greindu frá því að einstaklingarnir í myndböndunum séu að hóta þeim. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að myndböndin hafi öll verið frá meðlimum Tren de Aragua og að honum hafi borist fyrsta myndbandið þegar hann hafi komið að landamærum Kólumbíu og Venesúela, annað myndbandið þegar hann hafi starfað á sveitabæ við landamærin og þriðja myndbandið eftir að hann hafi komið til Íslands, um fimm mánuðum fyrir viðtal hans hjá Útlendingastofnun. M kvaðst ekki hafa heyrt meira eftir að honum hafi borist síðasta myndbandið en hann hafi frétt að í fyrirtækinu sem hann hafi starfað hjá sé óbreytt staða og samstarfsmenn þar séu komnir í fangelsi. Aðspurður um hvernig honum hafi borist myndböndin greindi M frá því að móður hans hafi borist fyrsta myndbandið, bróður hans hafi borist annað myndbandið og K hafi fengið þriðja myndbandið sent. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að þau hafi fengið sent myndband á leið sinni að landamærum Kólumbíu og Venesúela frá þessum vopnaða hópi á vegum ríkisins og annað þegar þau hafi verið komin til […] þar sem þau hafi búið við landamærin. Þá greindi K frá því að fimm mánuðum fyrir viðtal sitt hjá Útlendingastofnun hafi glæpahópurinn nálgast fjölskyldu M í heimaríki til að ná til kærenda. Þeir hafi ekki getað náð í kærendur af því þau hafi verið með ný símanúmer. Þeir hafi sent þriðja myndbandið í gegnum fjölskyldu M í heimaríki. Myndböndin sem kærendur lögðu fram við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun sýna í fyrsta lagi einstakling í hettupeysu með andlitið hulið og sólgleraugu innandyra sem heldur á byssu og skothylki úr byssu, í öðru lagi byssur, skothylki og byssuskot og í þriðja lagi þrjá einstaklinga með hatta og hulin andlit halda á byssum með byssur fyrir framan sig sem virðast standa utandyra við tré. Myndböndin bera m.a. með sér að verið sé að beina hótunum að kærendum og barni þeirra. Af framangreindum myndböndum verður hins vegar ekki ráðið hvenær og hvar myndböndin hafa verið tekin upp. Þá verður ekki ráðið af myndböndum að þau stafi frá tilteknum glæpahópi, hvaða einstaklingar séu á myndböndunum eða að þeir tilheyri glæpahópnum Colectívos eða öðrum glæpahópum. Þá verður ekki ráðið að þær hótanir sem hafðar eru uppi í myndböndunum beinist að M í tengslum við störf hans hjá Y. Þá ber að líta til þess að kærendur hafa ekki verið samstíga í frásögn sinni af því hvernig þeim hafi borist myndböndin. Hafa því framangreind myndbönd lítið sönnunargildi.

Við meðferð máls þeirra hjá kærunefnd lögðu kærendur fram eitt myndband og afrit af skilaboðum á samskiptaforritinu WhatsApp sem bera með sér að vera á milli K og móður hennar. Myndband sem kærendur lögðu fram sýnir tvo grímuklædda menn innandyra og annar heldur á byssu. Í myndbandinu er glæpahópurinn Colectívos nafngreindur. Af skilaboðunum af samskiptaforritinu WhatsApp má ráða að einstaklingar með byssur hafi komið á heimili móður K og sagst hafa skilaboð til kærenda. Þessir einstaklingar hafi tekið síma móður K og sent myndbandið. Þá má sjá að í skilaboðunum er framangreint myndband sem kærendur lögðu fram við meðferð máls síns hjá kærunefnd. Af skilaboðum á WhatsApp verður ekki ráðið hver dagsetning þeirra er en af tímasetningu skilaboðanna má ráða að myndbandið sem kærendur lögðu fram hjá kærunefnd hafi verið sent til kærenda á sama spjallþræði og hafi verið sent eftir að móðir K hafi sent skilaboð um að einstaklingar hafi ráðist inn í húsið með byssur. Þá verður ekki ráðið hvenær og hvar myndbandið hafi verið tekið upp, hvaða einstaklingar séu á myndbandinu og hvort þeir tilheyri glæpahópnum Colectívos eða öðrum glæpahópum. Þá verður ekki ráðið að þær hótanir sem hafðar eru uppi í myndbandinu beinist að M í tengslum við störf hans hjá Y. Myndbandið hefur því lítið sönnunargildi.

Líkt og áður segir greindi M frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að honum hafi verið rænt 14. febrúar 2023, verið handtekinn af lögreglu síðar sama dag og sleppt deginum eftir, á sunnudagsmorgni. Hinn 14. febrúar árið 2023 var þriðjudagur og er því misræmi í frásögnum M hvað þetta varðar. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M ítrekað frá því að það hafi verið glæpahópurinn Colectívos sem hafi verið að hóta honum í starfi. Í lok frásagnar sinnar af ástæðum flótta frá heimaríki greinir M hins vegar frá því að glæpahópurinn sem hafi verið á eftir þeim næði til margra landa líkt og Perú, Kólumbíu, Ecuador og nýlega Bandaríkjanna og að hann heiti Tren de Aragua. Þá greindi M frá því að Tren de Aragua væri her ríkisstjórnarinnar og að glæpahópurinn réði ríkjum og stjórnaði stjórnvöldum á heimasvæði kærenda. Hér gætir töluverðs misræmis í frásögn M. Af landaupplýsingum má ráða að ekki er um sama glæpahóp að ræða og ljóst að Colectívos hóparnir er samsafn margra hópa sem hafa afmarkaða starfsemi innan sinna svæða í Venesúela. Að mati kærunefndar dregur framangreint úr trúverðugleika heildarfrásagnar M. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greinir M frá því að hafa hringt í einstakling hjá lögregludeild gegn spillingu og mannránum (CONA) eftir að hann hafi verið handtekinn. Sá aðili sem þeir hafi rætt við hafi frekar ráðlagt kærendum að fara en að kæra því glæpahópar fái vitneskju um það strax ef einhver leggi fram kæru gegn þeim. Síðar í viðtalinu greinir M frá því að það hafi verið meðlimir lögregludeildar gegn spillingu og mannránum (CONA) sem hafi látið hann skrifa undir eigendaskiptayfirlýsingu fyrir bifreið hans þegar fjölskyldan hafi verið í haldi í fangelsinu. Aðspurður síðar í viðtalinu um af hverju M hafi haft samband við sömu lögregludeild og hafi handtekið hann, greindi M þá frá því að það hafi verið vinur hans sem hann hafi haft samband við hjá deildinni. Að mati kærunefndar verður að telja framangreindar útskýringar ótrúverðugar og ólíklegt að M hafi leitað ráða hjá sömu lögregludeild og á að hafa handtekið kærendur og starfað með glæpahópnum sem rændi þeim. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hafa verið forvarnarfulltrúi í fyrirtæki sem hann hafi starfað fyrir, það hafi þurft að kjósa á tveggja ára fresti í þetta hlutverk og það hafi verið einhvers konar stéttarfélag. M greindi frá því að samstarfsfélagar hans, sem hafi gegnt hærri stöðum en M innan félagsins og hafi verið að berjast fyrir bættum réttindum starfsmanna hafi verið sakaðir um að vera föðurlandssvikarar og væru nú í fangelsi. M greindi frá því að það hafi verið tveir nafngreindir menn, R og S, sem hafi verið settir í fangelsi. M greindi frá því að það hafi verið tvö stéttarfélög innan fyrirtækisins, annars vegar fyrir þá sem hafi starfað fyrir glæpahópinn Colectívos og yfirvöld og svo hina sem hafi verið andstæðingar þeirra. Aðspurður í hvoru stéttarfélagi M hafi verið kvaðst hann ekki vita hvort hann ætti að segja frá því, hann hafi bara verið starfsmaður fyrirtækisins, kosningar hafi verið á tveggja ára fresti og starfsmennirnir hafi verið að verja réttindi þeirra sem væru í fangelsi, gæta þess að allt færi rétt fram og styðja þannig við stéttarfélag sem hafi viljað gera hlutina rétt. M greindi frá því að það mætti líta á það sem stjórnmálatengda afstöðu að sinna forvarnarhlutverki innan félagsins. Aðspurður um hvort M hafi þá verið í því stéttarfélagi sem væri að berjast fyrir réttindum starfsmanna svaraði M því hvorki játandi eða neitandi heldur að hann hafi verið 100% sammála þeim sem hafi verið að gera hlutina rétt. Hefur M því ekki svarað með afgerandi hætti hvort hann hafi verið meðlimur í stéttarfélagi fyrirtækisins sem hann starfaði hjá og er það til þess fallið að draga úr trúverðugleika frásagnar hans hvað það varðar.

Við meðferð máls síns hjá kærunefnd lögðu kærendur fram afrit af frétt, dags. 27. október 2023, sem ber með sér að fjallað sé um handtökur og varðhald tveggja nafngreindra manna, R og S, sem séu leiðtogar stéttarfélagsins Sidor sem hafi verið handteknir vegna mótmæla og fyrir störf sín fyrir stéttarfélagið. Líkt og að framan greindir hefur M ekki svarað því með afgerandi hætti hvort hann hafi verið meðlimur í stéttarfélagi fyrirtækisins sem hann starfaði hjá. Þá er með öllu óljóst af svörum M hvort að staða forvarnarfulltrúa sem hann kvaðst hafa sinnt og hafi falið í sér stjórnmálatengda afstöðu hafi verið í tengslum við störf stéttarfélagsins eða verið staða innan fyrirtækisins Y. Af frásögn M verður ekki ráðið að hlutverk hans sem forvarnarfulltrúi hafi haft tengingu við stéttarfélagið þegar litið er til þess að lýsing hans á því hlutverki á meira skylt við almennar starfsskyldur og þess hve óljós svör kærandi gaf um aðild sína að stéttarfélaginu. Við meðferð máls hans hjá Útlendingastofnun lagði M einnig fram skírteini sem ber með sér að hann hafi verið fulltrúi hjá sveitarfélaginu […] (í Bolívar héraði). Af texta á bakhlið skírteinisins má ráða að handhafi þessa skírteinis skuldbindi sig til að verja réttindi starfsmanna með því að vinna að félagslegum og stjórmálatengdum framförum m.a. með forseta landsins, Nicolas Maduro Moros. Á framangreindu skírteini er engin dagsetning og þá er ekki að finna neinar upplýsingar sem tengja fulltrúastarfið við fyrirtækið Y. Að mati kærunefndar hefur M því ekki rennt stoðum undir þá frásögn sína að hann hafi gengt stjórnmálatengdu hlutverki innan fyrirtækisins Y eða að hótanir sem hann kvaðst hafa fengið hafi tengst störfum hans eða tengslum við stéttarfélagið.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því í lok viðtalsins að meðlimir Colectívos hafi tekið yfir einbýlishús kærenda í heimaríki og noti það sem starfsstöð glæpahópsins. K greindi ekki frá framangreindu í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun. Við meðferð máls síns hjá kærunefnd lögðu kærendur fram tvö bréf, annars vegar bréf sem þau kveða vera frá nafngreindum nágranna sínum og annars vegar bréf sem er merkt og undirritað af forseta sveitastjórnarinnar […], dags. 24. júní 2024, um að hús kærenda hafi verið tekið yfir af glæpahópnum Colectívos. Þá lögðu kærendur fram ljósmynd sem þau kveða að sýni að glæpahópurinn Colectívos hafi tekið yfir hús þeirra í heimaríki. Á ljósmynd má sjá fjóra lögreglumenn merkta lögregludeild um skipulagða glæpastarfsemi (s. Divison Contra Delincuencia Organizada, (D.C.D.O)) og tvo menn í borgaralegum klæðum við inngang að opnu svæði. Framangreindir tveir menn virðast vera að ræða við einn af lögreglumönnum. Á framangreindri mynd er ekkert sem gefur vísbendingar um í hvaða landi, borg eða götu myndin er tekin og að glæpahópur hafi yfirtekið húsnæði við götuna. Hafa því framangreind gögn lítið sönnunargildi. Að mati kærunefndar hafa því kærendur ekki leitt líkum að því að glæpahópurinn Colectívos hafi tekið yfir hús þeirra í heimaríki og stundi þaðan starfsemi sína. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greinir M frá því að fjölskyldan hafi þurft að fara í gengum fjölda eftirlitsstöðva þegar þau hafi verið að flýja á leið sinni að landmærum Kólumbíu. Á eftirlitsstöðvunum hafi bæði verið lögregla og meðlimir Colectívos sem hafi upplýsingar um alla og þess vegna hafi fjölskyldan fengið far með öðrum til að komast í gegnum þær. Að mati kærunefndar verður að telja ólíklegt að kærendur hafi ekki þurft að framvísa skilríkjum eða gera grein fyrir sér á annan hátt við eftirlitsstöðvar sem þau hafi farið fram hjá á flótta sínum frá heimaborg sinni, jafnvel þó að þau hafi fengið far með öðrum einstaklingum. Þá er það mat kærunefndar að það sé ólíklegt að stjórnvöld og glæpahópur hafi verið á eftir kærendum ef þau hafa komist í gegnum allar eftirlitsstöðvar þar sem fulltrúar þeirra hafi verið og haft upplýsingar um alla líkt og frásögn M ber með sér. Í þessu sambandi er einnig til þess að líta að K og A hafi fengið gefin út vegabréf 25. janúar 2023 fjórum mánuðum eftir að þau greina frá að hótanir hafi byrjað í starfi M og bendir það ekki til þess að kærendur hafi verið undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum eða að þau hafi verið að reyna hindra för þeirra úr landi á einhvern hátt.

Í ljósi framangreinds og upplýsinga um heimaríki kærenda telur kærunefnd hins vegar ekki ástæðu til að draga í efa að M hafi starfað hjá fyrirtækinu Y sem lestarstjóri. Þá telur kærunefnd ekki hægt að útiloka að M hafi fengið hótanir frá meðlimum ótilgreinds glæpahóps í tengslum við starf sitt sem lestarstjóri hjá Y. Að mati kærunefndar hafa kærendur hins vegar ekki leitt líkur að því að M hafi verið meðlimur eða starfað í þágu stéttarfélags innan fyrirtækisins Y sem hafi barist á móti stjórnvöldum og glæpahópum á þeirra vegum. Þá hafa kærendur ekki leitt líkum að því að hótanir hafi tengst stjórnmálaskoðunum M og að yfirvöld standi að baki ofsóknum á hendur kærendum. Verður framangreint því ekki lagt til grundvallar niðurstöðu málsins.

Kærunefnd hefur litið til landaupplýsinga í heimaríki kærenda sem benda til þess að vopnaðir glæpahópar séu starfræktir í heimaríki þeirra sem stundi glæpi á við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Þá bera landaupplýsingar einnig með sér að glæpahópar séu með virka starfsemi á námusvæðum í Bolívar fylki og berjist m.a. við öryggissveitir ríkisins um yfirráð svæðanna. Þá þekkist dæmi um það að meðlimir öryggissveita starfi með glæpahópunum.

Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa venesúelsk stjórnvöld ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa í landinu og brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna. Bera heimildir ekki með sér að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð glæpahópa sem fellur undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laganna. Þá bera landaupplýsingar sem kærunefnd hefur kynnt sér við meðferð málsins með sér að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við ólöglegum námugreftri og spillingu hjá ríkisreknum fyrirtækjum. Verður að telja að þær aðgerðir beri með sér að einstaklingar og fyrirtæki sem stundi ólöglega starfsemi í tengslum við m.a. námugröft í landinu njóti ekki verndar yfirvalda í Venesúela. Að mati kærunefndar verður ekki annað ráðið af framangreindu en að kærendur geti leitað til yfirvalda í Venesúela varðandi hótanir og áreiti sem þeim kann að hafa borist. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærendur eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu stjórnvalda eða glæpahópa með tengsl við stjórnvöld.

Kærendur bera einnig fyrir sig að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu yfirvalda snúi þau til baka til Venesúela. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda eða tengdra aðila við það að snúa til baka eða fyrir hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun.

Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum A var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtali við barnið og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að barnið fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Barn það sem um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur barni kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að barnið muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barns þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur vísa til að kærendur búi við almennt óöryggi í landinu og aðstæður í landinu hafi ekki batnað á undanförnum mánuðum. Það eigi einnig við um einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra, sem séu þolendur ofbeldisglæpa. Kærendur hafi orðið fyrir ofbeldi og hótunum af hálfu glæpahópsins Colectívos, en af landaupplýsingum leiði að hópurinn ógni öryggi venesúelskra borgara með handahófskenndum árásum og glæpum í skjóli refsileysis. Hættan á ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð gegn kærendum sé meiri í ljósi þess að þau séu stjórnarandstæðingar. Morðtíðni í landinu sé sérstaklega há og stjórnarandstæðingum hafi verið mismunað hvað varðar mataraðstoð og peningaúthlutun frá venesúelskum stjórnvöldum. Að mati kærenda, á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, lögskýringagagna sem standi að baki henni, landaupplýsingum og öðrum gögnum sem vísað hafi verið til, sé ljóst að kærendur og barn þeirra uppfylli skilyrði þess að hljóta viðbótarvernd.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Í greinargerð kærenda er vísað til þess að nýlega hafi stjórn Maduro rekið starfsfólk Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi. Landaupplýsingar í ákvörðun Útlendingastofnunar séu því að mati kæranda á brostnum grundvelli. Samkvæmt þeim heimildum sem kærunefnd hefur kynnt sér átti sér stað ágreiningur milli stjórnar landsins og tækniráðgjafarskrifstofu Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna í Venesúela sem leiddi til þess að skrifstofunni var lokað í febrúar 2024 og starfsfólki hennar gert að yfirgefa landið. Samkvæmt landaupplýsingum tilkynnti Maduro í apríl 2024 að samkomulag hefði náðst á milli stjórnar landsins og Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna um að skrifstofan yrði opnuð í landinu að nýju.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barns þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í […]í Bolívar fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Bolívar fylki í suðvesturhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kærenda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærendur og barn þeirra hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Eins og áður greinir þá bera upplýsingar um heimaríki kærenda með sér að lögreglan sé að vinna í því að uppræta ólöglegan námugröft í heimaborg og fylki kærenda. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur og barn þeirra eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barns þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og barn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur og barn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barns þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 8. apríl 2024, greindi M frá því að þjást af fæðutengdu mígreni. M hafi oft farið til læknis í Venesúela vegna þessa og meðferð við mígreni væri íbúfen sem hann hafi fengið í heimaríki. M hafi fyrst verið greindur með [...] en hafi síðar fengið greiningu um mígreni. M greindi frá því að hafa verið áhyggjufullur vegna fjölskyldu sinnar og atburða í heimaríki. K greindi frá því að vera líkamlega og andlega uppgefin. Hún þjáist ekki af neinum sjúkdóm og hafi einungis þurft að leita sér heilbrigðisaðstoðar til að fá getnaðarvörn. K hafi ekki þurft að greiða fyrir þjónustuna. Kærendur greindu frá því að heilsa A sé góð. Þau hafi einungis þurft að sækja heilbrigðisþjónustu vegna einhvers venjulegs, ekki alvarlegra veikinda og að A hafi ekki þurft að taka nein lyf. Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 10. apríl 2024, greindi A frá því að vera almennt heilsuhraustur. A hafi farið til læknis ef hann hafi verið veikur en það hafi verið dýrt.

Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða barn þeirra glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða barn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur og barn þeirra hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða börn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 8. apríl 2024, greindu kærendur frá því að hafa búið í einbýlishúsi í þeirra eigu. M greindi frá því að hafa verið í launuðu starfi hjá ríkisreknu námufyrirtæki og hafi haft um 50 dollara í mánaðarlaun. K greindi frá því að hafa verið með lítinn atvinnurekstur á heimili kærenda, selt mat og annað og hafi haft um 50 dollara í mánaðarlaun. Kærendur greindu frá því að A hafi gengið í skóla og að það hafi gengið vel. Kærendur greindu frá því að hafa haft efni á mat og annarri nauðsynjavörur og hafi þurft að kaupa vatn. K kvaðst ekki vera skuldug en M kvaðst skulda fjölskyldu sinni pening fyrir flugmiðum til Íslands. M greindi frá því að eiga 16 ára barn frá fyrra sambandi, móður og systkini í Venesúela og K greindi frá því að eiga foreldra og systkini í heimaríki.

Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér og barni sínu í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barns þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Við þetta mat hefur kærunefnd litið til hagsmuna barns kærenda og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. sömu laga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnsins í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barns þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða barn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og barni þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn sitt 19. júní 2023 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda og barns þeirra. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda og barns þeirra þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barns þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barns þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. M kvaðst ekki hafa nein tengsl við Ísland né önnur ríki á Schengen-svæðinu. K kvaðst eiga systur sem búi á Íslandi og hafi lagt fram umsókn um alþjóðlega vernd. Kærendur kváðu brottvísun og endurkomubann vera ósanngjarnar ráðstafanir þar sem þau þurfi virkilega á alþjóðlegri vernd að halda og það væri hættulegt fyrir þau að snúa til baka til heimaríkis.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barns þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.

Þorsteinn Gunnarsson


Sindri M. Stephensen Þorbjörg I. Jónsdóttir