11 október 2024

/

Yfirmenn hermála norðurskautsríkja funduðu á Íslandi

{image.Description}
LHG/Gunnar Flóvenz
Yfirmenn hermála á Íslandi, Bandaríkjunum, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Kanada og Svíþjóð skoðuðu aðstæður á gossvæðunum við Grindavík. Hér eru þeir á varnargarði við Svartsengi.

Yfirmenn hermála á Íslandi, Bandaríkjunum, Danmörku, Noregi, Finnlandi, Kanada og Svíþjóð héldu fund á öryggissvæðinu í Keflavík á miðvikudag þar sem öryggismál á norðurslóðum voru til umræðu. 

Þeir fjölluðu um leiðir til að auka samvinnu ríkja á svæðinu, meðal annars til að bregðast við áskorunum tengdum loftslagsbreytingum, efnahagsumsvifum og aukinni skipaumferð. Þá ræddu þeir um mikilvægi þess að fylgjast vel með ástandinu á norðurslóðum í ljósi hernaðaruppbyggingar Rússa, tveimur og hálfu ári eftir allsherjarinnrás þeirra í Úkraínu.

Um er að ræða árlegan lykilfund milli náinna bandamanna til að stilla saman strengi, dýpka samvinnu og skiptast á upplýsingum. Ísland hélt fundinn að þessu sinni, en skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins var fundarstjóri og gestgjafi.