27 október 2024

/

Volodómír Selenskí kemur til Íslands

{image.Description}
Regeringskansliet
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra og Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu á fundi í Stokkhólmi í maí sl.

Volodómír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til Íslands á morgun. Í heimsókn sinni mun hann funda með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra og taka þátt í fjórða leiðtogafundi Norðurlandanna og Úkraínu.

Selenskí mun einnig ávarpa gesti á þingi Norðurlandaráðs sem hefst í Reykjavík á þriðjudaginn. Þá mun Selenskí einnig eiga fund með forseta Íslands.