01 nóvember 2024
/
Úrskurður nr. 1100/2024
Hinn 1. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 1100/2024
í stjórnsýslumáli nr. KNU23100039
Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 9. október 2023 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fæddur [...], og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. september 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnun sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu lagði kærandi fram umsókn um alþjóðlega vernd 1. júní 2023. Kvaðst kærandi sækja um vernd vegna þrýstings hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab á hann að ganga í samtökin þegar að móðir hans hafi gifst frænda kæranda sem sé meðlimur Al-Shabaab. Kærandi kvaðst eiga eiginkonu í heimaríki og hafa verið kennari og starfað við einkakennslu í stærðfræði og ensku. Kærandi greindi frá því að reynt hafi verið að neyða systur hans í hjónaband með meðlim Al-Shabaab en hún hafi flúið og búi og starfi í Mógadisjú. Þá greindi kærandi frá því að bróðir hans hafi verið drepinn og að kærandi hafi tekið að sér tvö börn bróðir síns.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 14. júní, 12. og 25. september 2023 ásamt löglærðum talsmanni. Þar greindi kærandi frá því að fæddur og uppalinn í [...] í Sómalíu þar sem hann hafi verið búsettur þegar hann hafi yfirgefið heimaríki 1. mars 2023. Kærandi hafi unnið sem kennari í einkaskóla og kennt heima á kvöldin. Kærandi greindi frá því að tilheyra [...] ættbálknum og undirættbálkunum [...] og [...]. Kærandi kvaðst tilheyra minnihlutahópi þar sem hann sé meðlimum [...] ættbálksins. Hús fjölskyldu kæranda hafi verið tekið af þeim þegar faðir hans dó og hann hafi verið rekinn úr starfi sínu sem kennari. Kærandi greindi frá því að móðir hans hafi gifst einstaklingi, X, sem hafi verið meðlimur hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab. X hafi margsinnis reynt að fá kæranda til að ganga til liðs við samtökin. Þegar kærandi hafi neitað hafi X hótað honum og gefið öðrum meðlimum Al-Shabaab númer kæranda sem einnig hafi hótað honum. Þar sem kærandi hafi ekki svarað skilaboðum þeirra hafi þeir ákveðið að drepa hann og þá hafi móðir kæranda hvatt hann til að flýja land. Móðir kæranda hafi síðar sagt skilið við manninn. Kærandi greindi frá því að eiga fimm systkini, og að einn bróðir hans hafi verið drepinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 9. október 2023. Greinargerð barst kærunefnd samdægurs ásamt fylgiskjölum. Kærunefnd barst viðbótargögn frá kæranda 23. október 2023. Með tölvubréfi, dags. 15. október 2024 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Samdægurs barst kærunefnd upplýsingar frá kæranda.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu kærunefndar er ekki ástæða til þess að reifa greinargerðina frekar.
4 Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 40. gr. laga um útlendinga kemur fram að flóttamaður skv. 37. gr. sömu laga sem er hér á landi eða kemur hér að landi, hafi samkvæmt umsókn rétt á að fá hér alþjóðlega vernd. Þá kemur fram í 1. mgr. 74. gr. laganna að heimilt sé að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins. Af athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga verður jafnframt ráðið að rétturinn til alþjóðlegrar verndar nái ekki til flóttamanna sem eru utan marka landsins. Verða ákvæðin ekki skilin öðruvísi en svo að réttur umsækjenda til alþjóðlegrar verndar og dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða sé háður því ófrávíkjanlega skilyrði að umsækjandi sé utan heimaríkis og staddur hér á landi eða komi hér að landi.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli kæranda kom fram að kæra frestaði réttaráhrifum ákvörðunarinnar. Ljóst er því að kæranda var heimilt að dvelja á landinu á meðan mál hans var til meðferðar hjá kærunefnd.
Útlendingastofnun barst beiðni frá stjórnvöldum á Írlandi, dags. 27. ágúst 2024, um að taka við kæranda á grundvelli b-liðar 18. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 604/2013 (hér eftir Dyflinnarreglugerðin) og samþykktu íslensk stjórnvöld viðtöku kæranda degi síðar. Hinn 15. október 2024 sendi kærunefnd tölvubréf á Útlendingastofnun og óskaði eftir upplýsingum um hvort kærandi væri staddur hér á landi, þ.e. hvort hann væri kominn aftur til landsins frá Írlandi. Í svari Útlendingastofnunar, sem barst samdægurs, kemur fram að stofnunin hafi ekki upplýsingar um það hvort kærandi væri komin aftur til landsins eftir að hafa sótt um vernd á Írlandi 30. júlí 2024. Með vísan til þessa hafði kærunefnd samband við talsmann kæranda og greindi honum frá því að nefndinni hafi borist upplýsingar um að kærandi hafi yfirgefið landið og sótt um vernd á Írlandi. Kærunefnd óskaði eftir upplýsingum frá talsmanni um hvort kærandi væri staddur hér á landi ef svo væri var talsmanni veittur frestur til að leggja fram staðfestingu á því. Í svari frá talsmanni kæranda sem barst kærunefnd 21. október 2024 greindi talsmaður frá því að tilraunir hans til að hafa samband við kæranda hafi ekki borið árangur. Kærunefnd hafði samband við Heimferða- og fylgdardeild Ríkislögreglustjóra 22. október 2024. Í svörum deildarinnar, sem bárust kærunefnd 28 október 2024, kom fram að stoðdeild hefði ekki frekari upplýsingar um kæranda. Þar sem kærandi hefur ekki sýnt fram á að hann sé staddur hér á landi, verður með vísan til framangreindra upplýsinga, lagt til grundvallar að hann hafi yfirgefið landið.
Líkt og að framan er rakið nær rétturinn til alþjóðlegrar verndar ekki til umsækjanda sem er utan marka landsins. Ekkert bendir til annars en að brottför kæranda af landinu hafi verið sjálfviljug en eins og áður hefur komið fram frestaði kæra til kærunefndar réttaráhrifum ákvörðunar Útlendingastofnunar. Það er því niðurstaða kærunefndar að vísa beri kæru kæranda frá nefndinni þar sem ekki hefur verið staðfest að hann sé staddur innan marka landsins.
Samantekt
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið er kæru kæranda vísað frá.
Úrskurðarorð:
Kæru kæranda er vísað frá.
The Appeal is dismissed.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Þorsteinn Gunnarsson
formaður