07 nóvember 2024

/

Úrskurður nr. 1120/2024


Hinn 7. nóvember 2024 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 1120/2024

í stjórnsýslumáli nr. KNU24070138

Kæra [...]

á ákvörðun

Útlendingastofnunar

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 15. júlí 2024 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. júlí 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og fallist verði á beiðni hans um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 19. júní 2024, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir 15 daga dvöl frá 27. september til 11. október 2024. Umsókn kæranda var synjað með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 1. júlí 2024. Hinn 15. júlí 2024 barst kærunefnd kæra frá kæranda.

III. Málsástæður og rök kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi starfi hjá ríkisreknu fyrirtæki og hafi því ekki getað framvísað rekstrarleyfi fyrirtækisins. Auk þess kvaðst kærandi hafa verið taugaóstyrkur í símaviðtali 28. júní 2024.

Á kærustigi lagði kærandi fram nýja flugbókun, nýjar hótelbókanir og ítarlegri ferðaáætlun.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. reglugerðarinnar synjað um vegabréfsáritun í tilteknum tilvikum. Meðal þeirra tilvika sem tilgreind eru í ákvæðinu er ef umsækjandi getur ekki fært rök fyrir tilgangi eða skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar, sbr. ii.-lið a-liðar ákvæðisins, eða ef rökstudd ástæða sé til að draga í efa að fylgiskjöl, sem umsækjandi leggur fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, eða áreiðanleika framburðar umsækjanda eða ásetning hans til að yfirgefa yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin sem sótt er um rennur út, sbr. b-lið ákvæðisins.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað form sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauki 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17, þ.e. ástæður þess að umsóknum sé synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 2, 10 og 11, þ.e. að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar; upplýsingarnar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að ekki hafi verið hægt að staðfesta flug- og hótelbókanir auk þess sem rekstrarleyfi hafi ekki verið lagt fram. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

Kærandi hefur lagt fram ný gögn á kærustigi eins og áður segir, m.a. nýjar flug- og hótelbókanir en Útlendingastofnun synjaði umsókn hans m.a. á þeim grundvelli m.a. að ekki hafi verið hægt að staðfesta þær bókanir sem lágu fyrir hjá stofnuninni.

Í hinni kærðu ákvörðun er líkt og að framan greinir merkt við þrjá reiti nr. 2, 10 og 11 sem ástæður synjunar á umsókn kæranda um vegabréfsáritun, nánar tiltekið að ekki hafi verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar; upplýsingarnar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar. Í viðbótarathugasemdum kemur fram að ekki hafi verið hægt að staðfesta flug- og hótelbókanir auk þess sem rekstrarleyfi hafi ekki verið lagt fram.

Gögn sem sýna fram á flug- og hótelgistingu eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5. og 7. tölul. gátlista með vegabréfsumsóknum sem lagðar eru fram hjá utanríkisþjónustunni í Kína, þar sem kærandi lagði umsókn sína fram. Kærandi hefur lagt fram ný gögn á kærustigi, m.a. nýjar flug- og hótelbókanir. Það ferðatímabil sem kærandi sótti um vegabréfsáritun fyrir er hins vegar liðið þegar úrskurður þessi er kveðinn upp. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hvað þetta varðar byggjast á hlutlægum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hefði hann áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022. Telst kærandi því ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að lagt sé mat á nýjar flug- og hótelbókanir sem lagðar voru fram á kærustigi. Er kæranda þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.

Hin kærða ákvörðun grundvallast einnig á því að upplýsingarnar sem veittar hafi verið um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar. Um er að ræða synjunarástæðu sem felur í sér persónuupplýsingar sem kunna að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hafi hann áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. fyrrnefndan dóm Hæstaréttar nr. 25/2022. Hinn 28. júní var tekið símaviðtal við kæranda. Af gögnum málsins verður ráðið að það hafi verið gert til þess m.a. að staðfesta flug- og hótelbókun, starfsmannaskírteini og rekstarleyfi, sem kærandi lagði fram með skýringum. Í endurriti af umræddu viðtali, sem og dagbókarfærslu sem skráð er eftir viðtalið, kemur fram að kærandi hafi ekki getað greint frá ferðaáætlun sinni því hann hafi að eigin sögn ekki munað hana, þrátt fyrir að hafa skipulagt ferðina sjálfur. Hann ætli sér að ferðast einn en framlögð flugbókun hafi sýnt tvö önnur nöfn auk nafns kæranda. Af gögnum málsins má jafnframt ráða að kærandi hafi áður sótt um og fengið útgefna vegabréfsáritun frá þýskum stjórnvöldum en sú áritun hafi verið afturkölluð vegna upplýsinga sem lagðar voru fram um rökstuðning fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sem þóttu ekki áreiðanlegar. Í fyrrgreindu viðtali hafi kærandi hins vegar greint frá því að hafa ekki nýtt áritunina af persónulegum ástæðum, nánar tiltekið vegna þess að amma hans hafi orðið veik.

Í kæru kemur fram að kærandi starfi hjá ríkisreknu fyrirtæki og hafi því ekki getað framvísað rekstrarleyfi fyrirtækisins. Þá kveðst kærandi hafa verið taugaóstyrkur í símaviðtali 28. júní 2024 og því ekki getað gert grein fyrir ferðaáætlun sinni. Hann hafi ekki getað svarað spurningum fulltrúa utanríkisþjónustunnar með fullnægjandi hætti sem honum þyki miður. Í kærunni gerir kærandi betur grein fyrir uppfærðri ferðaáætlun. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að kærandi hafi leitast við að koma framangreindum upplýsingum varðandi uppfærða ferðaáætlun og ástæður þess að hann hafi ekki getað svarað spurningum í viðtali, áleiðis til utanríkisþjónustunnar. Þá hefur kærandi ekki bætt úr þeim annmarka er varðar misræmi í skráðum upplýsingum í VIS-upplýsingakerfinu um afturköllun útgefinnar vegabréfsáritunar af hálfu þýskra stjórnvalda og þeirra skýringa sem kærandi gaf um að hafa ekki nýtt áritunina.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki getað fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar sinnar og að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa að fylgiskjöl sem kærandi lagði fram séu ósvikin eða að innihald þeirra hafi verið rétt, sbr. ii. tölul. og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi kærandi þannig ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar og að ástæða hafi verið til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kæranda hingað til lands og réttmæti upplýsinga sem hann hafði veitt, sbr. d-lið 6. mgr. og 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun um að synja kæranda um vegabréfsáritun til landsins því staðfest. Kæranda er leiðbeint um að hann geti sótt um vegabréfsáritun að nýju.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður