07 nóvember 2024

/

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Winnipeg

{image.Description}
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 30. nóvember 2024 hefst hjá aðalræðisskrifstofunni í Winnipeg fimmtudaginn 7. nóvember 2024. Hægt er að kjósa eftir samkomulagi og óskað er eftir að kjósendur bóki tíma í gegnum netfangið [email protected] eða í síma 204-284-1535.