11 nóvember 2024

/

Nýtt öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni - kynningarfundur 20. nóvember

{image.Description}

Athugið að fundinum á Eyrarbakka hefur verið frestað um viku og verður 20. nóvember.

Dómsmálaráðherra boðar til kynningar á nýju öryggisfangelsi á Stóra-Hrauni miðvikudaginn 20. nóvember kl. 19:30. Viðburðurinn fer fram í Rauða húsinu, Eyrarbakka, Búðarstíg 4.

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra flytur opnunarávarp.

Birgir Jónasson, settur forstjóri Fangelsismálastofnunar reifar stöðuna í fullnustumálum og þörfina fyrir nútímalegt fangelsi.

Nína Baldursdóttir, verkefnastjóri hjá Framkvæmdasýslunni-Ríkiseignum kynnir frumathugun og framgang verksins.

Fundurinn er öllum opinn og tekið verður við spurningum að loknum erindum.

Fundinum er einnig streymt á vef stjórnarráðsins.

Rauða húsið á Eyrarbakka

https://maps.app.goo.gl/J6a4p74RUzKT1ePY9